Morgunblaðið - 18.12.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2015
lÍs en ku
ALPARNIR
s
alparnir.is
Við mótum skóna á þig!
FAXAFENI 8, SÍMI 534 2727
Skíðaskórnir hitaðir á staðnum
og sérsniðnir að þínum fæti
NÝTT Á ÍSLANDI
STÓRAR
STELPUR
tískuvöruverslun
Hverfisgötu 105
www.storarstelpur.is
Munið bílastæði
á bak við hús
Við erum á facebook
Loðskinnskragar
Loðskinnsvesti
Tryggvagötu 18 - 552 0160
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Síðar siffonkápur
Verð 10.900 Litir: blátt, svart
Str. S-XXL
Jólasöfnun
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin
Það hefur sýnt sig að á erfiðum tímum stendur
íslenska þjóðin saman og sýnir stuðning,
hver og einn eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
Einnig er opið fyrir síma á skrifstofutíma
s. 551 4349, netfang: maedur@simnet.is
Skoðið flottu fötin á
friendtex.is
Gjafakort
Opið laugardaga
í desember
kl. 12-16
Bonito ehf. • Friendtex • Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870 • www.friendtex.is
Opið alla virka daga kl. 11:00-17:00, laugardaga kl. 12:00-16:00.
40-50%
afsláttur
af fallegu haustvörunni
frá Friendtex
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Framundan eru í næstu viku fjórir
frídagar og hefur það vakið hina ár-
legu umræðu um hvenær tala megi
um „brandajól“. Stutta svarið er að
nákvæm skilgreining á hugtakinu er
ekki til, en það er notað þegar jól falla
þannig á vikudaga að margir helgi-
og frídagar lenda í röð. Mun að
minnsta kosti óhætt að tala um „litlu
brandajól“ í ár þegar aðfangadag ber
upp á fimmtudag og sunnudagurinn
er fjórði frídagurinn í röð.
Í bók Árna Björnssonar þjóðhátta-
fræðings Sögu daganna kemur fram
að elsta heimildin um hugtakið er
runnin frá Árna Magnússyni prófess-
or um 1700. „Brandajól kalla gamlir
menn á Íslandi þá jóladag ber á
mánadag, áttadag á mánadag og
þrettánda á laugardag,“ skrifaði
hann. Mismunandi skilningur hefur
verið lagður í hugtakið alla tíð og spil-
ar þar inn í að árið 1770 voru þriðji í
jólum og þrettándinn afhelgaðir af
Danakonungi. Þá hefur laugardagur
orðið almennur frídagur.
Orðið „branda“ vafist fyrir fólki
Orðið „branda“ hefur líka vafist
fyrir mönnum. Samkvæmt bók Árna
er algengasta skýringin sú að merk-
ingin komi frá eldibrandi eða eldiviði.
Þurftu menn að draga að mikinn eldi-
við fyrir jólin þar sem þeir máttu ekki
vinna á jólafrídögunum. Þetta er þó
ekki vitað með vissu og kemur nafn-
giftin efalaust til með að valda mönn-
um heilabrotum áfram.
Í fyrra, þegar aðfangadagur var á
miðvikudegi og frídagarnir urðu
fimm, urðu nokkrar umræður um
þetta mál. Niðurstaðan varð þá, sam-
kvæmt úrskurði Árna Björnssonar
þjóðháttafræðings í samtali við
Morgunblaðið, að það væru stóru
brandajól, en það orð er líka gamalt í
málinu.
Í Sögu daganna telur Árni eðlileg-
ast að tala um stóru brandajól þegar
aðfangadagur fellur á mánudag eða
miðvikudag og litlu brandajól þegar
aðfangadag ber upp á sunnudag eða
fimmtudag eins og núna.
Morgunblaðið/Kristján
Hátíð Óhætt er að slá því föstu að það verði kátt á jólunum í næstu viku,
hvað svo sem menn vilja kalla frídagana góðu sem framundan eru.
Réttast að tala um
litlu brandajól í ár
Brandajól
» Nú er yfirleitt talað um
brandajól þegar margir frídag-
ar lenda í röð.
» Elsta heimildin um orðið er
frá því um 1700.
» Breytingar á helgidögum og
frídögum hafa áhrif á hvernig
menn skilja hugtakið.
» Árni Björnsson þjóðhátta-
fræðingur gerir greinarmun á
stóru brandajólum og litlu
brandajólum.
Á fundi borgarráðs Reykjavíkur í
gær var lagt fram bréf skrifstofu
eigna og atvinnuþróunar, þar sem
óskað er eftir heimild ráðsins til að
auglýsa Perluna til leigu.
Beiðnin var samþykkt með fjór-
um atkvæðum borgarfulltrúa Sam-
fylkingarinnar, Bjartrar framtíðar,
Vinstri grænna og Pírata, gegn
tveimur atkvæðum fulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins. Fulltrúi Fram-
sóknar og flugvallarvina sat hjá við
afgreiðslu málsins.
Málið fer nú til endanlegrar af-
greiðslu borgarstjórnar.
Borgarráð samþykkir að leigja Perluna
Morgunblaðið/Ómar
Perlan Ekki hafa fengist fjárfestar til að
kaupa Perluna en núna á að leigja hana.
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
—með morgunkaffinu