Morgunblaðið - 18.12.2015, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 18.12.2015, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2015 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Unnið er að þróun smáhúsahverfis á Hellu, „Þorpsins“. Hugmyndin er að bjóða upp á umhverfisvænni búsetulausnir en nú eru algeng- astar. Íbúarnir munu hafa aðgang að garði og gróðurhúsi til að rækta eigið grænmeti, sameig- inlegum sal og þvottahúsi og jafn- vel yfirbyggðu grillhúsi og heitum potti. Björn Jóhannsson landslags- arkitekt, verkefnisstjóri Þorpsins, segir að hugmyndin hafi þróast út frá verkefni sem hann stýrir, það er uppbygging þjónustumiðstöðvar við þjóðveginn um Hellu og sam- tengds smáhýsahótels. Komið hafi upp umræður um húsnæðismál væntanlegs starfsfólks og starfs- fólks annarra fyrirtækja á staðn- um. „Þetta á að vera þorp fyrir al- menning, íbúa á Hellu,“ segir Björn. Litlar íbúðir og hús Sjálfur hefur Björn unnið að umhverfismálum hjá Umhverfis- stofnun og víðar í sínu fagi og hef- ur fylgst með umræðunni um um- hverfisvænan lífsstíl. Margir hafi ekki áhuga á að eiga stórar íbúðir eða hús og vilji frekar geta ræktað eigið grænmeti í garðinum og búa við gangstíg frekar en akveg. Hugmyndin hefur þróast út í lítið þorp með 80 fermetra ein- býlishúsum sem byggð verða úr timbri. Grunnflöturinn verður 50 fermetrar og 30 fermetra efri hæð með fullri lofthæð. Jafnframt sé verið að skoða byggingu lítilla fjöl- býlishúsa þar sem væru fjórar 40 fermetra íbúðir. Verður 500-700 milljóna króna verkefni Hugmyndin var kynnt fyrir skipulagsnefnd Rangárþings ytra í síðustu viku og nú hefur sveit- arstjórn tekið vel í hana, sagt hana afar áhugaverða. Skipulags- og byggingarfulltrúa og sveitarstjóra var falið að gera tillögu að mögu- legri staðsetningu. Björn segir að skipulags- fulltrúi hafi kynnt fyrir honum byggingarsvæði í útjaðri Hellu, rétt vestan við Helluflugvöll. Líst honum ekki illa á það. Hugmyndin er að reisa 15-20 smáíbúðir í fjölbýlishúsum og jafn mörg 80 fermetra einbýlishús. Í Þorpinu á Hellu yrðu þá alls 30 til 40 íbúðir. „Ef Þorpið fær góðan byr sé ég fyrir mér að hægt yrði að reisa fyrstu húsin eða flytja þau á stað- inn næsta haust. En markaðurinn ræður því,“ segir Björn. Verið er að reikna út kostn- aðinn og hagkvæmni framkvæmd- arinnar. Verkefnið er í þróun og ekki komin ákveðin kostnaðar- áætlun. Björn segir ekki ólíklegt að heildarfjárfestingin verði á bilinu 500 til 700 milljónir kr. Húsin framleidd í héraði „Ef fýsileikakönnun verður já- kvæð, þá er til fjármagn. Ég hefði hins vegar helst viljað fá fjárfesta sem tilheyra svæðinu með í verk- efnið. Það yrði líka liður í að auka sjálfbærni framkvæmdarinnar ef hægt yrði að framleiða húsin í hér- aði,“ segir hann. Ekki hefur verið ákveðið hvort stök hús verða seld eða hvort fjárfestir muni eiga allt Þorpið og leigja íbúðirnar út. Síð- ari möguleikinn hafi kosti fyrir uppbyggingu og umsjón sameign- arinnar. Björn segir æskilegt fyrir sveitarfélagið að húsin verði seld eða leigð út þannig að einhver eigi lögheimili í öllum íbúðum. 30-40 smáíbúðir verði í „Þorpinu“ á Hellu Teikning/Björn Jóhannsson landslagsarkitekt Þorpið Lítil einbýlishús einkenna Þorpið. Salur og sameiginlegt þvottahús verður í húsinu með græna þakinu.  Umhverfisvænn búsetukostur í þróun í Rangárþingi ytra Fjölbýli Gert er ráð fyrir litlum íbúðum í nokkrum fjölbýlishúsum. Hugmyndin að smáhúsahverfinu Þorpinu sprettur út úr vinnu við þróun Þjónustumiðstöðvarinnar á Hellu sem Björn Jóhannsson landslags- arkitekt vinnur einnig að ásamt samstarfsfólki. Þjónustumiðstöðin á að verða nýr áningarstaður við hringveginn, einskonar hlið inn í Hellu að austanverðu. Þar á að fást ferðatengd þjónusta, eins og matur, drykkur, gisting og eldsneyti. Þar verður móttaka fyrir smáhýsahótel enda gert ráð fyrir 20- 40 smáhýsum þar við. Markmið hönnunar og skipulags er að Þjónustumiðstöðin verði besti staðurinn á Suðurlandi fyrir rútur að stoppa. Besti staðurinn fyrir barna- fjölskyldur. Og þar verði besta aðstaðan fyrir bændamarkað. Markaður- inn verður í fjölnotarými sem opnast út í garð. Þar verður bændum og handverkfólki gert kleift að selja afurðir sínar, beint frá býli. Áningarstaður og markaður ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ Á HELLU Stjóri Björn Jóhannsson landslags- arkitekt er verkefnisstjóri Þorpsins. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fyrirtækið KPMG hefur gert út- tekt á öldrunarþjónustu Akureyr- arbæjar og voru drög að skýrslunni rædd á fundi bæj- arráðs Akureyrar í gær. Eiríkur Björn Björgvinsson bæj- arstjóri segir að vísbendingar séu um að sveitarfé- lagið beri veru- legan kostnað um- fram það sem það telur sig eiga að bera, eins og reyndar hafi áður verið haldið fram. „Við sjáum í reikningum okkar að við erum farin að borga verulega mikið með þessum málaflokki. Við vildum því fá úttekt á því hvert væri okkar hlutverk í rekstri öldr- unarþjónustu og hvað hún kostaði okkur raunverulega, greint niður á rekstrarliði,“ segir Eiríkur. Hann segir að umæðum sé ekki lokið um málið og niðurstöður yfir- gripsmikillar úttektar KPMG séu því enn trúnaðarmál. Þar sé fjallað um öldrunarþjónustu bæjarins í heild, þ.e. heimaþjónustu og hjúkr- unarheimilin Lögmannshlíð og Hlíð, en hjúkrunarheimilin vega þyngst í þeim efnum. Samkvæmt heimildum blaðsins hafa forystumenn ýmissa sveitarfé- laga rætt rekstrarvanda hjúkrun- arheimili undanfarið. Í síðustu viku var í Morgunblaðinu greint frá vanda Garðabæjar vegna reksturs hjúkrunarheimilisins Ísafoldar. Yfirtaka ríkisins á starfsemi Ísafoldar undirbúin Erfið staða Ísafoldar var rædd á fundi Garðbæinga með fulltrúum velferðarráðuneytisins í síðustu viku. Í fundargerð bæjarráðs Garðabæjar segir að á fundinum hafi komið fram hjá fulltrúum ráðu- neytisins að ríkið hafi ekki fjármuni til að hækka daggjöld hjúkrunar- heimila og þá hafi ríkið hafnað að greiða uppsafnaðan umframkostn- að enda sé ekki fjárheimild til þess. Fulltrúum ráðuneytisins var kynnt að samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 væri fjárveiting til rekstr- ar Ísafoldar aðeins í þrjá mánuði á næsta ári eða til 31. mars 2016. Á fundinum var samþykkt að hefja undirbúning að gerð samninga um yfirtöku ríkisins á starfsemi Ísa- foldar 2016. Á fundi bæjarráðs Garðabæjar síðasta þriðjudag var samþykkt að fela bæjarstjóra að undirbúa að stefna íslenska ríkinu fyrir héraðs- dóm og krefja ríkið um greiðslu skaðabóta vegna uppsafnaðrar skuldar. Greitt með þjón- ustu við aldraða  Úttekt á öldrunarþjónustu á Akureyri Eiríkur Björn Björgvinsson Verið velkomin í glæsilega verslun okkar við Laugaveg 99 (gengið inn við Snorrabraut) aff.is Concept ÞÚF ÆRÐ VÉLS LEÐA - FATN AÐIN NHJ ÁOK KUR STORMUR EHF | KLETTHÁLSI 15 | S: 577 1717 | WWW.STORMUR.IS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.