Morgunblaðið - 18.12.2015, Page 22

Morgunblaðið - 18.12.2015, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Bandarískiseðlabank-inn ákvað á miðvikudag að hækka stýrivexti um helming. Það kann að hljóma djarflega að tvöfalda vexti, en þá verður að hafa í huga að þeir hafa verið í námunda við núllið, á milli 0 til 0,25%, en verða nú 0,25 til 0,5%. Þessi ákvörðun þykir söguleg vegna þess hvað lengi vextirnir hafa verið við núllið. Bandaríski seðlabankinn hækkaði síðast vexti 2006 og höfðu verið 0 til 0,25% í sjö ár upp á dag þegar hækkunin var tilkynnt. Ákvörð- unin kom þó ekki á óvart og þyk- ir bera því vitni að bandarískt efnahagslíf sé komið til nokk- urrar heilsu eftir að kreppuna 2008. Ekki er hækkunin þó óum- deild. Ákvörðunin var einróma og er hefð fyrir því í bankanum. Í aðdraganda hennar höfðu þó þrír úr bankastjórninni lýst yfir efasemdum um að bandarískur efnahagur væri undir hækkun búinn. Demókratar hafa einnig hald- ið því fram að bankinn sé of bráður og muni ákvörðun hans draga úr fjölgun starfa og hækk- un launa. Ekki er málið síst við- kvæmt vegna þess að innan árs verður gengið til kosninga og vilja demókratar að efnahags- lífið eflist sem mest til að auka líkur á því að íbúinn í Hvíta hús- inu verði áfram úr þeirra röðum. Á hinn bóginn eykur það hættuna á bólumyndun ef ódýrt er að taka lán. Það hafa margir nýtt sér undanfarið. Fjárfestar í Bandaríkjunum hafa hlaðið upp skuldum af krafti til að kaupa hlutabréf og reyndar hafa menn tekið ódýra dollara að láni um allan heim frekar en að fá lán í eigin gjaldmiðli. Búast má við því að haldið verði áfram að hækka stýrivexti smám saman í Bandaríkjunum. Það er hins vegar ólíklegt að það sama verði uppi á teningn- um í Evrópu. Stýrivextir seðla- banka Evrópu eru nú 0,05% og verða því vart lægri. Lækkunin í Bandaríkjunum gæti haft verðbólguáhrif annars staðar í heiminum. Gengi doll- arans er víst til að hækka. Það myndi leiða til þess að verð á ol- íu hækkaði annars staðar. Sömuleiðis gætu vörur frá Bandaríkjunum hækkað, en seðlabankinn vill ekki að hækk- unin verði til þess að draga úr útflutningi. Hún gæti líka latt erlenda ferðamenn því dýrara yrði fyrir þá að ferðast til Bandaríkjanna. Hærri vextir lokka hins vegar fjárfesta til Bandaríkjanna. Ákvörðunin um þessa örlitlu hækkun á stýrivöxtum getur því haft áhrif um allan heim. Banda- rískur efnahagur lítur þokka- lega út, þótt batinn sé ekki án veikleika, en staðan annars stað- ar í heiminum er mun viðkvæm- ari. Undanfarnir áratugir hafa sýnt tilhneigingu til voldugra sveiflna í viðkvæmu efnahags- kerfi heimsins, sem er orðið svo samtengt að minnstu gárur á einum stað geta valdið flóðöldu á öðrum. Fyrsta hækkun stýrivaxta í Bandaríkjunum í tæpan áratug} Varfærnisleg hækkun Landsmenn erulöngu farnir að huga að jólum og eru uppteknir við annað en það mál- þófskarp sem nú fer fram á Alþingi. Og ekki er að undra að þeir hafi lítinn áhuga á að fylgjast með þingstörfum þessa dagana. Eitt lýsandi dæmi um hvern- ig umræðan þar gengur fyrir sig er lítið frumvarp frá utan- ríkisráðherra um málefni þróunarsamvinnu Íslands, sem gengur út á að færa þau mál undir einn hatt í nafni einföld- unar og aukinnar skilvirkni. Ætla mætti að ekki þyrfti að hafa um þetta mjög mörg orð. Málið er tiltölulega einfalt og þingmenn geta verið annað- hvort meðmæltir því eða and- snúnir. Stjórnarandstaðan á Alþingi hefur hins vegar tekið þá afstöðu að þetta mál sé vel til þess fallið að tefja þingstörf og hefur í haust rætt það í fjörutíu klukkustundir í þing- sal. Og þetta bætist við þá umræðu sem fram fór á liðnu þingi, þegar nánast sama mál fékk einnig rækilega meðferð. En þetta er ekki allt. Í löngum dagskrárumræðum í gær var þetta mál mjög rætt og þá upplýsti Hanna Birna Krist- jánsdóttir, formaður utanríkis- málanefndar, að málið hefði verið rætt á sextán fundum nefndarinnar. Útilokað er að halda því fram að þetta litla mál um tæknilega útfærslu á því hvar verkefni þróunarsamvinnu skuli unnin kalli á alla þessa umræðu. Nema að vísu umræðan hafi þann tilgang að halda þinginu uppteknu og að halda þing- mönnum frá því að ræða og af- greiða það sem máli skiptir. Getur verið að það eitt hafi áhrif á framgöngu stjórnarand- stöðunnar á þingi um þessar mundir? Smámál fær tugi klukkustunda og fjölda nefndarfunda á Alþingi Íslendinga} Þrefað um þróunarsamvinnu F orsetakosningar verða á næsta ári. Svo framarlega sem fleiri en einn verða í framboði til embættisins. Margir bíða þess að vita hvort sitjandi forseti, Ólafur Ragnar Grímsson, gefi áfram kost á sér og hafa ýmsir fundið því flest til foráttu kjósi hann að gera það. Jafnvel hefur verið talað um að þar með væri Ólafur að ákveða að verða forseti næstu fjögur árin. Langur vegur er þó frá því. Taki hann ákvörðun um að gefa áfram kost á sér væri hann ekki að gera meira en nákvæmlega það. Ólafur ræður því ekki hver verður forseti næstu fjögur árin. Það gera aðeins kjósendur. Með því að gefa áfram kost á sér væri Ólafur Ragnar í raun aðeins að leggja það í dóm kjós- enda hvort hann verði áfram forseti eða ekki í stað þess að taka þá ákvörðun sjálfur með því að gefa ekki kost á sér. Með öðrum orðum mætti segja að með því færi fram þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhald- andi veru hans á forsetastóli. Stuðningsmenn þess að mál séu útkljáð með þeim hætti ættu einkum og sér í lagi að fagna því ef Ólafur ákveður að leggja störf sín til þessa í dóm kjósenda. Þar eru Píratar meðal annarra efstir á blaði. Hins vegar hafa talsvert aðrar raddir heyrzt úr þeirri átt sem vekur óhjákvæmilega spurningar um það hvort þjóðaratkvæðagreiðslur eigi aðeins við að mati Pí- rata þegar það hentar þeim pólitískt? Fleira í málflutningi Pírata hefur raunar verið á þessum nótum. Þannig hafa þeir lagt mikla áherzlu á mikilvægi gegnsæis. En í október lögðu þingmenn Pírata hins vegar fram frumvarp til breytinga á þing- sköpum um að atkvæðagreiðslur á Alþingi um vantrauststillögur á sitjandi ríkisstjórn eða ráðherra skyldu vera leynilegar. Með öðrum orðum að haldið yrði upplýsingum frá kjós- endum um það með hvaða hætti þingmenn hefðu kosið líkt og í öðrum málum. Hvað varð um áherzlu Pírata á gegnsæi? Á það að sama skapi aðeins við þegar það hentar þeim póli- tískt? Rök þingmanna Pírata voru þau að leynileg atkvæðagreiðsla gerði þingmönnum kleift „að greiða atkvæði eftir sannfæringu sinni án ut- anaðkomandi þrýstings hvort sem hann er frá samþingsmönnum, kjósendum, fjölmiðlum eða öðrum“. Með sömu rökum mætti vitanlega gera allar atkvæðagreiðslur á Alþingi leyni- legar. Gegnsæið, líkt og áherzlan á að treysta kjósendum, má sín greinilega lítils þegar pólitískir hagsmunir Pírata eru annars vegar. Taki Ólafur Ragnar ákvörðun um að gefa áfram kost á sér sem forseti Íslands verður það þannig ekki áfall fyrir lýðræðið heldur þvert á móti. Hafi einhverjir aðrir fram- bærilegir einstaklingar hug á því að bjóða sig fram ættu þeir að taka samkeppninni frá Ólafi fagnandi. Hvort hann haldi áfram eða ekki ætti ekki að vera forsenda ákvörð- unar þeirra um framboð. Ef svo hins vegar er verður það vart skilið öðruvísi en sem viðurkenning á því að Ólafur sé betri valkostur. hjortur@mbl.is Hjörtur J. Guðmundsson Pistill Forsetinn STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Nýr veruleiki kallar ábreyttar áherslur. Súvar tíðin að veitingahús,hótel og aðrir þjónustu- staðir fyrir ferðafólk voru lokaðir um hátíðarnar, enda þótti sjálfsagt að starfsfólk fengi frí. En nú skorar Ísland sem viðkomustaður ferða- manna árið um hring og þar eru jól og áramót engin undantekning. Hvergi liggja fyrir neinar tölur um nákvæman fjölda erlendra jólagesta á landinu um hátíðarnar. Hundruð segja sumir en aðrir telja fjöldann munu rokka á þúsundum. Flugið stopp á jóladag Næstu daga verður loftbrú til og frá Íslandi. Margir Íslendingar fara utan til að heimsækja vini og ætt- ingja og fara utan með vélum sem flytja erlenda túrista hingað til lands. „Það verður þétt umferð um Keflavíkurflugvöll alveg fram á að- fangadag. Svo stoppar allt á jóladag, en svo fer flugið aftur af stað á öðr- um degi jóla,“ segir Guðni Sigurðs- son, upplýsingafulltrúi Isavia. Þegar til Reykjavíkur kemur þarf fólk gistingu. Á vegum Íslandshótela verða fimm hótel í Reykjavík opin um áramót, svo sem Fosshótel við Þórunnartún og Grandhótel við Sig- tún sem eru einhver allra stærstu hótelin í borginni. „Jólin eru vel bók- uð en áramótin líta enn betur út. Þau eru æ vinsælli ferðamannatími,“ segir Ólafur Torfason, stjórnar- formaður Íslandshótela, í samtali við Morgunblaðið. Á aðfangadagskvöld verður opið á allmörgum matsöluhúsum í Reykja- vík, þá einkum veitingastöðum hót- elanna. Flestir þessara staða verða svo opnaðir á 2. í jólum, eins og sést á vefsetrinu vitisreykjavik.is. Rútan á daglegri áætlun Svo þarf fólk að gera sér eitthvað til dundurs og bregða undir sig betri fætinum. Margir ætla til dæmis í skoðunarferðir með rútubílum, enda hefur jólatíminn sinn sjarma fyrir ferðamenn. Glitrandi seríur eru úti um allt og næturhimni er stríðsdans norðurljósanna. „Við tökum það ró- lega á aðfangadagskvöld, en svo fer allt á snúning á jóladag. Þá erum við, samkvæmt venju, með þessa venju- legu áætlun okkar, svo sem Þing- velli, Gullfoss og Geysi, Suður- ströndina og Bláa lónið. Bókaðir farþegar skipta hundruðum,“ segir Einar Bárðarson, rekstrarstjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Reykja- vík Excursions. Hve margir erlendir ferðamenn verða á Ísland um jól og áramót er hluti af þeirri ævintýralegu fjölgun erlendra túrista á landinu bláa síð- ustu misserin. Nærri 82 þúsund ferðamenn flugu frá Íslandi í gegn- um Leifsstöð í nóvember síðast- liðnum. Það eru 20.700 fleiri en í nóvember á síðasta ári. Aukningin nemur 34,1% milli ára. Þá var fjölg- unin í nóvember 49,3% Fjöldi er- lendra ferðmanna er þar með kom- inn í um 1,2 milljónir frá síðustu áramótum. Bretar eru ríflega þriðj- ungur þessa og að Bandaríkjamönn- um meðtöldum eru þetta 55% þeirra túrista sem landið sækja heim. Raunar er má einu gilda hver litið er á fjölgun ferðamanna á Íslend- inga; Bretarnir hafa alls staðar vinn- inginn. Íslendingar geta til dæmis fundið þetta vel þegar gengið er um Laugaveginn í Reykjavík eða þá far- ið í sunnudagsbíltúr austur á Þing- velli; alls staðar eru Bretar. Og það eru væntanlega margir af því þjóð- erni sem leggja leið sína til Ísland um jólin og ármótin; hátíðirnar sem nú eru að ganga í garð. Glitrandi seríur og dansandi norðurljós Morgunblaðið/Kristinn Jólaljós Erlendur ferðamaður myndar tréð á Austurvelli sem skín skært. „Það væri tilvalið fyrir Íslend- inga að bjóða útlendingum heim um jólin og leyfa þeim að kynn- ast jólahaldinu. Hér er nefnilega meira lagt í þessa hátíð en víð- ast hvar á Vesturlöndum,“ segir sr. Sigurður Árni Þórðarson, sóknarprestur í Hallgrímskirkju. Fjöldi útlendinga sækir guðs- þjónustur í íslenskum kirkjum um jólin. Kirkjan á Skólavörðu- holti tekur um 700 manns í sæti og á aðfangadagskvöld eru út- lendingar um sjöund þess. „Fólk vill rækta trúna og heyra tón- listina,“ segir presturinn. Fólk vill trúna og tónlistina ÚTLENDINGAR Í MESSU Morgunblaðið/Þórður Prestur Sigurður Árni Þórðarson í Hallgrímskirkju.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.