Morgunblaðið - 18.12.2015, Qupperneq 23
23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2015
Hressleiki Fólkið er vægast sagt hresst sem stundar vatnsleikfimi í Kópavogslaug, þenur raddböndin og spriklar af krafti undir stjórn Helgu Guðrúnar Gunnarsdóttur, íþrótta- og heilsufræðings.
Ásdís
Við lifum í heimi
þar sem kröfur um
heilnæm matvæli
verða sífellt háværari.
Neytendur vilja vita
hvað þeir eru að
kaupa og hvernig það
er framleitt. Og víst
er að aðstæðurnar og
aðferðirnar eru mis-
munandi. Sýklalyf eru
víða notuð í miklu
magni við kjötfram-
leiðslu, í ávaxta og- grænmet-
isræktun og fiskeldi. Sem dæmi má
nefna að í Bandaríkjunum fara 80%
af sýklalyfjum í dýr en aðeins 20% í
mannfólkið. Í Evrópusambandinu
skiptist þetta til helminga. Á Ís-
landi og Noregi er hlutfallið miklu
lægra þar sem talið er að um 80%
sýklalyfja fari í mannfólkið.
Ástæðan fyrir notkun sýklalyfja
við matvælaframleiðslu er sú, að
þau eru vaxtarhvetjandi og fyrir-
byggjandi. Slík notkun er óheimil á
Íslandi. Samkvæmt upplýsingum
frá Alþjóðaheilbrigðisstofnunni
(WHO) eru bakteríur sem eru
ónæmar fyrir sýklalyfjum orðnar
verulegt vandamál. Og því meiri og
útbreiddari sem notkun sýklalyfja
er, því meiri verður vandinn. Nið-
urstaðan verður óhjákvæmilega sú
að hefðbundin sýklalyf virka ekki
sem skyldi. Afleiðingin, að mati
WHO, getur orðið sú að „saklaus-
ar“ venjubundnar sýkingar og sár
geta valdið miklum skaða og jafn-
vel dregið fólk til dauða vegna þess
að sýklalyfin vinna ekki á sýklun-
um; þeir eru orðnir ónæmir.
Sýkingar geta í sumum tilfellum
borist úr dýrum í menn. Til dæmis
inflúensa svína og fugla, salmonella
og kampýlóbakter. Það sama gildir
um bakteríustofna sem eru ónæmir
fyrir sýklalyfjum. Þeir
geta borist í menn frá
dýrum og matvælum.
Áhættan vex en er þó
mismikil eftir löndum
og svæðum.
Smitvarnarstofnun
Evrópusambandsins
(ECDC) telur að í dag
nemi árlegur kostn-
aður vegna baktería
sem eru ónæmar fyrir
sýklalyfjum, um 1,5
milljörðum evra og að
á hverju ári látist um
25 þúsund manns af
þessum völdum. Það sama er uppi
á teningnum í Bandaríkjunum.
Áhrifaríkasta leiðin til að snúa
þessari óheilla (lífshættulegu) þró-
un við, er að banna að lyf séu notuð
við þauleldi og/eða sem vaxtar-
hvetjandi efni í eldi dýra, en það
hefur alltaf verið bannað á Íslandi.
Hvernig er staðan hér?
Samkvæmt Lyfjastofnun Evrópu
eru Ísland og Noregur með lang-
minnstu notkun á sýklalyfjum þeg-
ar miðað er við framleitt kíló af
kjöti líkt og sjá má á meðfylgjandi
mynd sem birtist í Bændablaðinu
og er byggð á tölum frá Lyfjastofn-
un Evrópu.
Eftir því sem best er vitað, þá er
staðan líka góð þegar kemur að
ónæmum stofnum. Hafa ber í huga
að ekki hafa á undanförnum árum
verið gerðar stöðugar mælingar á
ónæmum stofnum baktería í mönn-
um og dýrum. Óbirtar niðurstöður
rannsókna sem Matvælastofnun
stóð fyrir 2014 vegna kampýlóbak-
ter í kjúklingum, sýna að einn stofn
af 29 reyndist vera ónæmur vegna
sýklalyfjanna Ciprofloxacin og
Nalidixín sýru eða um 3,4%. Varð-
andi salmonella, þá voru allir salm-
onellastofnar sem greindust í dýr-
um og fóðri árið 2014, prófaðir með
tilliti til næmi þeirra gegn sýkla-
lyfjum, og benda óbirt gögn einnig
til þess að tíðnin sé mjög lág.
Tíðni svo kallaðrar MRSA-
bakteríu, sem er ónæm fyrir sýkla-
lyfjum, hefur aukist í dönskum
grísum; úr 44% árið 2011 í 77% í ár.
Þó er ástandið langt því frá verst í
Danmörku. En sjúkrahús og
sjúkrastofnanir um allan heim
reyna með öllum ráðum að koma í
veg fyrir að óværan berist inn fyrir
þeirra veggi. Þar getur sýking,
sem áður var saklaus, valdið illvið-
ráðanlegum eða óbætanlegum
skaða hjá fólki með veiklað ónæm-
iskerfi.
Ástandið er enn mjög gott í ís-
lenskum landbúnaði og á matvæla-
markaði. Og staðan er einnig góð á
heilbrigðisstofnunum okkar, þó
alltaf þurfi að vera á varðbergi.
Það er mikilsvert að auka ekki
áhættuna að óþörfu. Ein leið til að
draga úr framtíðaráhættu er að
auka framleiðslu á íslenskum mat-
vælum og við innflutning þarf að
gæta vel að því að flytja inn mat-
vörur frá löndum sem aðhyllast
sambærilega framleiðsluhætti og
tíðkast hér.
… en hvaðan kemur
útlenda kjötið?
Samkvæmt yfirliti frá Hagstofu
Íslands var kjöt flutt inn árið 2014
frá eftirfarandi löndum:
Sláandi er að sjá að helmingur-
inn af innflutningnum er frá Þýska-
landi; landi sem notar 35 sinnum
meira af sýklalyfjum við sína fram-
leiðslu en notuð eru á Íslandi. Dan-
ir nota sjö sinnum meira af lyfjum,
en samt eru 22% af öllu kjöti flutt
inn þaðan. Hlutfall af innfluttu
kjöti frá Spáni er 8,5% en þar er
lyfjanotkunin 40 sinnum meiri en á
Íslandi! Lítið er hins vegar flutt
inn frá Noregi og Svíþjóð, sem
ásamt Íslandi, nota langminnst af
sýklalyfjum við framleiðslu á kjöti.
Nokkur þungi hefur verið í mál-
flutningi samtaka verslunarmanna
um að herða beri á innflutningi á
kjöti til Íslands. Verslunin skýlir
sér á bak við neytendur og segir að
hagurinn sé allur þeirra. Það hlýt-
ur að vera umhugsunarefni fyrir
neytendur að kaupmenn skuli velja
að flytja inn kjöt frá þeim löndum í
Evrópu þar sem lyfjanotkunin er
margföld á við það sem hún er á Ís-
landi. Í öllu falli virðist umhyggja
fyrir heilsu neytenda ekki ráða för.
Það ætti að vera sameiginlegt
verkefni bænda, verslunar og yfir-
valda að tryggja heilnæm matvæli
á borð neytenda. Jafnframt þurfa
merkingar að vera skýrar. Þar
duga ekki upprunamerkingar um
að kjötvinnslan sé í Hollandi (sem
notar 13 sinnum meira af sýklalyfj-
um en notuð eru á Íslandi) ef dýrið
er alið og slátrað á Spáni eða Ítalíu,
sem eru þau tvö Evrópulönd sem
virðast nota hvað mest af sýklalyfj-
um við framleiðslu matvæla. Það
ætti að vera keppikefli verslunar-
innar í samstarfi við neytendur og
yfirvöld að tryggja að innflutt vara
sé af sömu gæðum og sú innlenda.
Aðeins þannig tryggjum við
örugg matvæli á alla diska, vinnum
gegn auknu ónæmi baktería og
gerum okkur þannig kleift að sigr-
ast á sýkingum í framtíðinni. Eða
eins og segir í fyrirsögn í sænska
blaðinu Dagens nyheter á dögun-
um; Val okkar á innfluttu kjöti
ræður hvort við stöndumst ónæm-
isógnina.
Eftir Sigurð Inga
Jóhannsson
»Hlutfall af innfluttu
kjöti frá Spáni er
8,5% en þar er lyfja-
notkunin 40 sinnum
meiri en á Íslandi! Lítið
er hins vegar flutt inn
frá Noregi og Svíþjóð,
sem ásamt Íslandi, nota
langminnst af sýklalyfj-
um.
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Höfundur er landbúnaðarráðherra
og dýralæknir.
Hvað er í matinn?
Heimild: Hagstofa Íslands, bráðabirgðatölur.
Hlutfall af heild
Innflutt kjöt eftir upprunalandi árið 2014
Þýskaland Frakkland
Spánn Tæland
Danmörk Pólland
Litháen Bretland
Holland Ítalía
15 önnur lönd
52,6% 2,5%
22,1% 2,1%
8,5% 1,9%
2,7% 1,3%
2,5% 2,5%
1,7%