Morgunblaðið - 18.12.2015, Page 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2015
Töluvert hefur verið
rætt um, hvort aðild-
arumsókn Íslands að
Evrópusambandinu sé
enn í gildi eða hvort aft-
urköllun ríkisstjórnar
Íslands á umsókninni sé
nægjanlega skýr til að
öllum sé ljóst, að um-
sóknin er ekki lengur í
gildi.
Samfylking og
Vinstri-grænir samþykktu umsóknina
á Alþingi 16. júli 2009 en felldu tillögu
minnihluta utanríkisnefndar um að
þjóðin fengi að greiða atkvæði um mál-
ið. Komu þessir flokkar í veg fyrir
lýðræðislegan farveg málsins með
tveggja atkvæða mun og var flokks-
svipu ESB-flokkanna beitt til að ná
fram þessum nauma meirihluta.
Þjóðin fékk fyrst möguleika á að tjá
hug sinn í alþingiskosningunum 2013
eftir nokkur ár af sundrungu og
stjórnmálaófriði og gerði það svo ræki-
lega, að rasskellur ESB-flokkanna
heyrist enn langt út fyrir landsteinana.
Hrun ESB-flokkanna, Samfylkingar
og Vinstri-grænna, varð samanlagt
27,7% og týndu þau 18 þingmönnum.
Meirihluti sjálfstæðis- og framsókn-
armanna er sannfærandi með 38 þing-
menn af 63 á Alþingi. Skýrari skilaboð
hafa stjórnmálin sjaldan fengið, hvorki
á Íslandi né í Vesturheimi.
Núverandi ríkisstjórn hyggst ekki
sækja um aðild eða halda áfram aðild-
arferlinu og Sjálfstæðisflokkurinn og
Framsóknarflokkurinn munu ekki
taka umsókn aftur upp nema þjóðin
sjálf segi í atkvæða-
greiðslu, að hún vilji af-
sala sér fullveldinu og
fiskimiðunum og gerast
amt í ríki ESB. Ríkis-
stjórnin hefur á skýran
hátt tilkynnt valdhöfum
ESB, að Ísland sæki ekki
um aðild að sambandinu.
Þrátt fyrir skýr skila-
boð til ESB eru svörin
þaðan óljós um hvort að-
ildarumsókn Íslands sé
enn í gildi eða „aftur-
kölluð“. Er það í stíl
þessa stórveldasambands, að öll sam-
skipti við það eru einhliða. Eini til-
gangur ESB er að mynda alríki og eini
samskiptavegurinn sem til er er fyrir
þá sem vilja ganga í sambandið.
Annaðhvort ert þú á leiðinni inn eða
kominn inn. Engin leið er fyrir aftur-
köllun umsóknar eða útgöngu úr sam-
bandinu. Einungis er til verklagsferli
fyrir samþykkt umsóknar en ekki fyrir
afturköllun eða útgöngu úr samband-
inu. Engum hefur nokkru sinni tekist
að snúa við aðild að ESB og venjulega
er talað um eina leið inn og enga leið
út.
Evrópusambandið er stjórnmála-
tilraun til myndunar stórveldis í Evr-
ópu með samruna aðildarríkjanna í eitt
ríki. Aðildarumsókn meirihluta Al-
þingis 2009 var stjórnmálatilraun ís-
lenskra ESB-flokka til að gera Ísland
að þátttakanda í tilraunastarfsemi
ESB.
Þær tilraunir, sem ESB hefur fram-
kvæmt t.d. með gjaldmiðlasambandi
evrunnar og öðrum sneiðasamböndum
eins og Schengen, bankasambandi,
hernaðarsambandi o.s.frv., eru komn-
ar á leiðarenda. ESB er í upplausn:
ríkin fylgja ekki samþykktum sam-
bandsins, evran er í ginnungagapi tor-
tímingar og valdhafarnir hafa enga
haldbæra stefnu aðra en að tryggja
eigin flótta þegar skútan sekkur. Eng-
in áætlun finnst ef tilraunin mistekst
og verða íbúar aðildarríkjanna sjálfir
að sitja uppi með skipbrotið, sem
stjórnmálaleiðtogar þeirra hafa valdið.
Áhugavert verður að fylgjast með
komandi kosningum Breta um ESB
og verður það fyrsti alvöruprófsteinn-
inn á skipulagða útgöngu úr logandi
rústum ESB.
Raunveruleiki ESB er ekki Íslands.
Ísland er lítil þjóð á eyju á miðju Atl-
antshafi og hér hefur fólk byggt lífs-
afkomu sína á kostum sjávar og sveita
kynslóðum saman. Íslenskur veruleiki
er ekki markmið valdhafanna í Bruss-
el. Íslenska stjórnarskráin er haldreipi
Íslendinga í baráttunni gegn afsali á
yfirráðum eigin lífs til valdhafanna í
Brussel. Umsókn meirihluta Alþingis
2009 eru engin lög frá Alþingi og eng-
inn stjórnarskrárbundinn samningur
undirritaður af forseta Íslands við er-
lent ríki með samþykkt Alþingis. Ís-
lendingar eru ekki frekar bundnir af
ESB-umsókninni en tveggja aura
hækkun virðisaukaskatts á neftóbaki
eitt kjörtímabilið. Þjóðinni er hins veg-
ar hollast að gleyma ekki fólskuverki
krata og vinstri-grænna, sem gerðu
tilraun til að ræna þjóðina sjálfstæði
sínu á meðan þeirri blekkingu var
haldið fram að verið væri að athuga,
hvað aðild að ESB þýddi.
Íslenska stjórnarskráin mælir um,
að forseti Íslands geri samninga við
erlend ríki og er sérstaklega tekið
fram að hann hafi engan rétt að semja
um kvaðir eða afsal á landi eða land-
helgi né breyta stjórnarhögum rík-
isins. Vinstristjórnin reyndi það allt á
eigin spýtur.
Skv. ESB hefur Ísland gert hlé á
umsóknarferlinu. Umsóknin liggur
óvirk þar til stjórnvöld á Íslandi velja
að virkja hana aftur. Annað er ekki í
boði af hálfu ESB. En margt getur
breyst. Upplausn ESB í núverandi
mynd og fækkun ríkja frá 28 í t.d. 10
ríki er ekki sama samband og Ísland
sótti um aðild að. En við getum ekki
verið viss, því réttindi vörumerkisins
fylgja þeim sem taka við því. Með
smáheppni þyrfti að endurnýja um-
boðið svo hléið myndi ekki sjálfkrafa
hætta skv. nýrri mynd ESB. Ef ESB
leggst niður fer umsóknin í gröfina
með sambandinu.
Hvað svo sem verður um ESB í
þeim stórveldastormi sem nú skellur á
mannsbyggðina er svar ESB um að
umsóknin sé innanríkismál Íslendinga
í fullu gildi.
Það þarf bara að segja það beint út:
Aðildarumsóknin að ESB fylgir ekki
stjórnarskrá lýðveldisins og er því
marklaus.
Umsókn Íslands að ESB
er í trássi við stjórnarskrá Íslands
Eftir Gústaf Adolf
Skúlason » Annaðhvort ert þú á
leiðinni inn eða kom-
inn inn. Engin leið er
fyrir afturköllun um-
sóknar eða útgöngu úr
sambandinu.
Gústaf Adolf Skúlason
Höfundur er smáfyrirtækjarekandi
og fyrrverandi aðalritari Smáfyrir-
tækjabandalags Evrópu.
Móttaka
aðsendra
greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk-
un og tryggir öryggi í samskiptum
milli starfsfólks Morgunblaðsins
og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru send-
ar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt
er á lógóið birtist felligluggi þar
sem liðurinn „Senda inn grein“ er
valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf notand-
inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít-
arlegar leiðbeiningar fylgja hverju
þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem
notanda í kerfið er nóg að slá inn
kennitölu notanda og lykilorð til
að opna svæðið. Hægt er að
senda greinar allan sólarhringinn.
mbl.is
alltaf - allstaðar