Morgunblaðið - 18.12.2015, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 18.12.2015, Qupperneq 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2015 ✝ KetillKristjánsson fæddist 12. desem- ber 1924 í Hauka- dal, Biskupstungum í Árnessýslu. Hann lést á Landakoti í Reykjavík 10. des- ember 2015. Foreldrar hans voru hjónin Krist- ján Loftsson, f. 1887, d. 1983, frá Kollabæ í Fljótshlíð, Rangár- vallasýslu, og Guðbjörg Greips- dóttir, f. 1893, d. 1973, frá Haukadal. Þau Kristján og Guðbjörg eignuðust alls 13 börn, fimm syni og átta dætur, og náðu tíu þeirra fullorðinsaldri en þrjú dóu í æsku. Systkini hans voru: Greip- ur Kjartan, Sigurgeir, Elín, Jó- hanna, Loftur, Sigríður, Auður, Katrín og Áslaug. Af systkinun- um frá Haukadal og Felli eru nú á lífi Sigríður, Auður og Áslaug. Ketill ólst upp í Haukadal fyrstu æviárin en á fimmta ald- ursári taka foreldrarnir sig upp með fjölskylduna og flytja að Felli. Ketill gekk í Íþróttaskól- ann í Haukadal og var síðan tvo vetur í Héraðsskólanum á Laug- arvatni. Á uppvaxtarárunum búð með Brynjari M. Lárussyni. 2) Ingibjörg, f. 4.12. 1958. 3) Kristján, f. 8.9. 1961. Hann var kvæntur Elínu Ebbu Björgvins- dóttur og dætur þeirra eru: a) El- ínborg, f. 1982, gift Daða Frey Ólafssyni og eiga þau soninn Hrafnkel Frey; b) Eva Dögg, f. 1984, gift Garðari Eyjólfssyni og eiga þau tvær dætur, Sögu og Lukku; c) Katla Björg, f. 1990, í sambúð með Kjartani Árna Sig- urðssyni. Með fyrrverandi sam- býliskonu sinni, Ragnhildi Krist- jánsdóttur, á Kristján tvíburana Ketil og Kolfinnu, f. 2000. 4) Ein- ar, f. 20.5. 1963. Hann er kvænt- ur Yvonne Michele Ketilsson og eru börn þeirra: Leif Gunnar Ketilsson, f. 1994, Leah F. Ket- ilsson, f. 1996, og Lauren K. Ket- ilsson, f. 2000. Á Torfastöðum í Biskupstung- um bjuggu Ketill og Inga í þrjú ár, næstu fimm árin bjuggu þau á Tóftum í Stokkseyrarhreppi. Ár- ið 1963 flytja þau til Þorlákshafnar með fjögur börn og gerðust ein af frumbyggj- unum. Þar byggðu þau sér ein- býlishús í C-götu 10, sem þau bjuggu í til ársins 1997 er þau fluttu í Kópavoginn, þar sem Ketill bjó til æviloka. Í Þorláks- höfn vann Ketill ýmis störf. Ketill verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju í dag, 18. des- ember 2015, og hefst athöfnin kl. 13. vann Ketill við bú foreldra sinna á Felli, auk þess var hann í mörg ár hjá Ræktunarsambandi Suðurlands. Árið 1951 eignast Ketill soninn Berg, f 27.10., með Áshildi M. Öfjörð. Bergur er kvæntur Gunni Sigdísi Gunn- arsdóttur. Dætur þeirra eru: a) Svandís, f. 1972, gift Ragnari Hólm Gíslasyni. Þau eiga þrjú börn, Daníel Berg, Ívar og Sigdísi Erlu: b) Heiðrún, f. 1975. Ketill og Ingibjörg Einarsdótt- ir gengu í hjónaband árið 1955 og hófu búskap á Torfastöðum í Biskupstungum. Foreldrar Ingi- bjargar voru Guðrún Ingimars- dóttir frá Efri-Reykjum i Bisk- upstungum og Einar Gíslason, bóndi í Kjarnholtum. Ketill og Ingibjörg höfðu því verið í hjóna- bandi í 60 ár. Börn þeirra eru: 1) Guðrún Björg, f. 17.4. 1957, gift Kristófer Einarssyni. Börn þeirra: a) Einar Óli, f. 1980, kvæntur Sólveigu Hörpu Krist- jánsdóttur, þau eiga tvö börn, Elvý Elenóru og Kristófer Huga. b) Elísabet Inga, f. 1983, í sam- Um undra-geim, í himinveldi háu, nú hverfur sól og kveður jarðarglaum; á fegra landi gróa blómin bláu í bjartri dögg við lífsins helgan straum. (Benedikt Gröndal) Það er alltaf sárt að kveðja þá sem standa manni næst. Nú þegar elskulegur tengdafaðir minn er genginn, þá er margs að minnast þegar farið er yfir far- inn veg. Ég minnist tengda- pabba sem glaðværs og duglegs manns sem alltaf var tilbúinn að aðstoða ef hann mögulega gat. Sérstaklega átti það við ef eitt- hvað þurfti að smíða og laga til þá var hann alltaf tilbúinn að rétta hjálparhönd. Ketill var góður smiður og betri læriföður í þeim efnum var varla hægt að fá. Þegar Ketill hætti á vinnu- markaði var hann rúmlega sjö- tugur og réðst þá strax í smíði myndarlegs sumarbústaðar fyrir fjölskylduna að Felli í Biskups- tungum. Bústaðurinn er stað- settur á dásamlegum útsýnis- stað á landareigninni og þar undi hann hag sínum afar vel og vildi helst dvelja þar öllum stundum með Ingu. Tengda- pabbi hafði mikla ánægju af söng og hafði afar fallega ten- órrödd sem hann hélt ótrúlega vel til dánardægurs og líklega leið aldrei sá dagur sem hann tók ekki lagið sér og öðrum til ánægju. Í 90 ára afmæli sínu á síðasta ári söng Ketill einsöng fyrir afmælisgesti og tókst vel upp. Nú í október þegar hann dvaldi hjá okkur Lillu í tvo daga, þá orðinn heilsulítill, vildi hann endilega taka lagið með henni, þau sungu saman nokkur lög og höfðu gaman af. Þá var ákveðið að fara á skype og tala við dóttursoninn, Einar Óla í Danmörku, og endaði sá síma- fundur í samsöng á milli land- anna þar sem þau þrjú sungu saman nokkur lög og skemmtu sér hið mesta. Nú nýlega þegar Elísabet Inga dóttir okkar kom í heimsókn til hans á spítalann tók hann eftir því að von var á nýju langafabarni og við sýnd- um honum þrívíddarmynd af litlu ófæddu dömunni sem er væntanleg nú um áramótin, þetta þótti honum stórfurðulegt að hægt væri að gera og gladd- ist yfir því að hægt væri að kíkja í pakkann. Tengdapabbi hafði einstaklega notalega nærveru, alltaf yfirvegaður, brosmildur og vildi hafa eitthvað fyrir stafni. Hann þakkaði langlífi sitt því að hann hafi alltaf unnið mikið og gætt hófs í mat og drykk. Ég er þakklátur fyrir þá gæfu að hafa átt vegferð með Katli í tæp 40 ár. Ég og fjölskylda mín þökkum og blessum minningu góðs manns. Megi góður Guð styrkja okkur öll sem syrgjum. Kristófer Einarsson. Hann afi minn var enginn venjulegur karl. Hann var góður karl sem vildi öllum vel og hafði fá orð um veikleika annarra. Hann var vinnusamur og hand- laginn smiður, söngelskur og skemmtilegur og það var alltaf stutt í grínið. Í barnslegri minn- ingunni þá er hann hávaxinn í gráum jakka, með grátt hár en fagurgljáðan skalla og keyrir um á hvítum pick-up-bíl. Hann hafði stórt hjarta og risastórar klunnalegar en hlýjar hendur sem gátu samt á undraverðan hátt klætt litla stelpurófu í fingravettlinga sem var síðan vandlega pakkað undir erma- stroffið á úlpunni því ekki mátti vera bert á milli. Mér þótti kraftaverki líkast hvaða fín- hreyfingar voru mögulegar með þessum tröllslegu hrömmum. Afi hafði alltaf tíma og þol- inmæði til að tala við börn. Hann var mér góður afi og hann var dætrum mínum góður langafi, en það eru ekki margir níræðir menn sem leiða börn á öðru ári í berjamó, setjast á gólfið til að púsla eða baksa við að koma upp hengirúmi í tré fyrir kröfuharða sex ára prins- essu, en hann afi minn gerði þetta allt. Sem börn, þá lögðum við systurnar leið okkar reglulega til afa á Reykjabrautina og þá voru oft einhverjir vinir með í för. Við svöruðum þegar hann ávarpaði okkur Immu og Lillu eins og ekkert væri eðlilegra, þó svo að við heitum sjálfar Eva og Ella og hin nöfnin tilheyri dætr- um afa sem honum þótti við svo líkar. Af hverju kallar afi þinn þig Immu? spurði vinkona mín hissa eftir eina heimsóknina en mér fannst ekkert eðlilegra, því fyrir mér var þetta bara eitt af því skondna sem var svo skemmtilegt og sjarmerandi við hann afa minn. Eins og áður sagði, þá var hann afi þegar með skalla þegar ég kom til sögunnar. Ég þurfti snemma á lífsleiðinni að ræða þessa vöntun á hári við manninn og þá stóð ekki á svörum. Hann hafði verið að keyra svaka hratt á bíl með engu þaki og hárið fauk bara af. Ég trúði auðvitað hverju orði og ímyndaði mér að hann hefði verið á hermannaj- eppa. Ég sá hann fyrir mér þeysast Óseyrarbrautina í Þor- lákshöfn á ofsahraða á grænum Willys, með engu þaki, og rétt í þann mund þegar hann brunar fram hjá söluskálanum þá fýkur hárið af. Ég var sennilega byrj- uð að hanga í Skálanum á kvöld- in þegar það rann upp fyrir mér að það væri sennilega önnur og eðlilegri skýring á skallanum hans afa. Elsku afi minn. Ég kveð þig með söknuð í hjarta. Þegar ég hitti þig síðast varstu aftur orð- inn barn. Þú talaðir fallega um foreldra þína og sagðist ákveð- inn ætla heim í sumar. Áður hafði ég heyrt þig segja að þú værir ekki veikur, heldur bara gamall. Gamall maður hvílir nú lúin bein og ég sé þig fyrir mér ungan aftur, í sumarblíðu í sveitinni þinni. Vertu sæll afi minn. Eva Dögg Kristjánsdóttir. Afi Ketill var góður og ljúfur maður. Hann var með stóran faðm sem umvafði mann þéttu og hlýju faðmlagi og svo var hann líka með óvenjustórar hendur og hlýjar. Ég hafði svo sem aldrei veitt þessu athygli með stærðina á höndunum fyrr en ég var orðin fullorðin og vin- kona mín hafði það á orði að afi minn væri með stærstu hendur sem hún hefði séð. Ég var aftur minnt á handastærðina þegar sonur minn fæddist en hendurn- ar hans voru óvenjustórar miðað við ungbarn og minntu á hend- urnar hans afa. Það er sko ekki leiðum að líkjast. Þegar ég var krakki þá bjó afi í Þorlákshöfn eins og við systur en amma dvaldi hins vegar lang- dvölum á höfuðborgarsvæðinu. Í þau skipti sem maður kom við á Reykjabrautinni lumaði afi iðu- lega á Canada dry og brúnni lagtertu. Ein mest ljóslifandi minningin mín úr barnæsku er af afa Katli hjá mér við inngang- inn vaskahúsmegin á Reykja- brautinni að syngja „Hver var að hlæja“. Reyndar var afi alltaf syngjandi, hann söng fyrir okk- ur barnabörnin allar heimsins vísur og hann trallaði líka og söng fyrir langafabörnin enda lagviss og með fallega söngrödd. Afi og amma áttu lengi vel hjólhýsi á Laugarvatni og það voru farnar ófáar ferðir með afa þangað á hvíta pikkanum þar sem hann benti á fjöllin og önn- ur kennileiti í náttúrunni á leið- inni og þuldi upp fyrir okkur nöfnin á þeim. Einu sinni tók afi sig til, útvegaði bát og réri með barnabörnin út á Laugarvatn. Það vildi ekki betur til en að kallinn datt í vatnið í miðri ferð og er ferðarinnar helst minnst fyrir það. Afi var ótrúlega hraustur lík- amlega allt fram undir það síð- asta og lét sig ekki muna um að skella sér niður á fjóra fætur og bjóða langafabörnunum á hest- bak. Hann settist líka alltaf með litlu langafabörnunum á gólfið og lék við þau á þeirra plani. Á hverju hausti passaði hann sig að hreinsa upp öll ber á landinu þeirra ömmu við bústaðinn og mátti iðulega sjá rassinn á hon- um standa út í loftið einhvers staðar uppi í brekku og ein- hvern tíman fyrir ekki svo löngu þá sá hann ástæðu til að spyrja okkur systur hvort að við treyst- um okkur upp brekkuna, hann þá 87 ára og við rétt um þrí- tugt!. En það var einmitt uppi í bústað þar sem hann undi sér best, í hlíð heimafjallsins með útsýni yfir sveitina. Í lokin læt ég hér fylgja vís- una sem afi söng svona eftir- minnilega fyrir mig og ég mun aldrei gleyma: Hver var að hlæja þegar ég kom inn? Kannski’ að það hafi verið kötturinn. Æi nú, jæja, látum hann þá hlæja, kannski’ að hann hlæi ekki’ í annað sinn. (Höfundur ókunnur.) Elsku afi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Þú lifir í hjörtum okkar. Elínborg (Ella), Daði og Hrafnkell Freyr. Ketill Kristjánsson Elsku pabbi minn, ég er svo feginn að við komum til ykkar í október og að við gátum eytt þessum dögum saman. Það er ekki sjálfgefið að eiga svona yndislega foreldra eins og þig og mömmu sem styðja við bak- ið á manni í gegnum súrt og sætt og er alltaf hægt að leita til þegar á þarf að halda. Þó að líf okkar á uppvaxtarárunum hafi ekki alltaf verið fyllt af veraldlegum gæðum var það yf- irfullt af því sem skiptir mestu máli í lífinu, ást og alúð frá ykkur mömmu. Við áttum svo margar góðar stundir saman þegar við keyrðum á milli golf- valla hérna í gamla daga, þú vildir alltaf hlusta á Dubliners en ég var alltaf að lækka og segja þér brandara. Ég hélt í mörg ár að þú hefðir aldrei fattað það að Dubliners var ekki uppáhaldshljómsveitin mín, þangað til fyrir nokkrum árum að mamma sagði mér Guðmundur Ingi Jónatansson ✝ GuðmundurIngi Jón- atansson fæddist 17. maí 1950. Hann lést 4. desember 2015. Útför Guð- mundar Inga fór fram 16. desember 2015. hvað þér þótti þetta skemmtilegt, og sérstaklega þar sem þú spilaðir bara með og lést mig halda að ég væri bara svona sniðugur. Þegar ég var að byrja í flugnáminu, og var engan veginn viss um að það væri rétt leið í lífinu því atvinnumöguleikar væru af mjög skornum skammti, sagðir þú við mig setningu sem ég gleymi aldrei; „Hannes ekki hafa neinar áhyggjur af því að fá vinnu, það er alltaf pláss fyr- ir góða menn.“ Þessi orð voru rauði þráðurinn í gegnum nám- ið mitt og hafa heldur betur reynst orð að sönnu. Það var svo gaman að fara með þig í flug á Íslandi og þegar við flug- um nánast hringinn í kringum landið á einum degi með við- komu á golfvellinum á Dalvík var eitthvert besta flug ævi minnar. Þú studdir alltaf svo við bak- ið á mér og meira en góðu hófi gegnir stundum þegar þú neyddir fólk sem kom í heim- sókn á Böggvisbrautina til að horfa á Emirates-diskinn til að sýna því hvað hlutirnir væru nú flottir hjá þeim. Við ræddum mjög oft um ferilinn hjá mér og þú varst svo spenntur yfir því að ég væri að verða flugstjóri innan skamms. Það var því mjög sárt að hugsa til þess þegar þú féllst frá langt fyrir aldur fram að þú ættir ekki eftir að sjá mig klára flug- stjórann því þú áttir svo gríð- arlega stóran þátt í því hvað flugnámið hjá mér gekk vel. Elsku pabbi minn, þín er sárt saknað. Það var svo gott að vera nálægt þér og svo gam- an að vera í kringum þig. Þú tókst sjálfan þig aldrei of alvar- lega og ég gat alltaf strítt þér við matarborðið hvað þú varst „kurteis“. „Pabbi, maður segir viltu rétta mér smjörið.“ „Ha, já,“ sagðir þú og svo hlógum við að öllu saman. Þú ert frábær fyr- irmynd fyrir mig sem faðir og minningarnar okkar saman lifa í hjarta mér. Hvíl í friði, elsku pabbi. Hannes Ingi Guðmundsson. Miðvikudaginn 16. desember var til moldar borinn frá Dal- víkurkirkju samstarfsmaður minn og vinur Guðmundur Ingi Jónatansson. Leiðir okkar Guðmundar lágu fyrst saman er hann hóf störf við Grunnskóla Ólafs- fjarðar fyrir nokkrum árum. Þegar síðar meir voru samein- aðar tvær kennslustofnanir, annars vegar Grunnskóli Ólafs- fjarðar og síðan Grunnskóli Siglufjarðar, í eina, þ.e. Grunn- skóla Fjallabyggðar, þá hafði ég starfað í allnokkur ár við skólann í Ólafsfirði en Guð- mundur hafði verið skemur. Eitt af því sem gert var til að „hrista hópinn saman“ var að farin var óvissuferð fyrsta haustið sem hin nýja stofnun var við lýði. Lá hún m.a. í Skagafjörð þar sem farið var í flúðasiglingu. Vorum við fjögur saman í bát og urðum að hafa okkur öll við til að klára þetta verkefni. Eftir á að hyggja var þetta hin besta skemmtun. Það er einkennileg tilhugsun að í dag, rúmum fimm árum síðar, erum við bara tvær eftir hérna megin úr bátnum okkar í siglingunni þarna forðum. Guðmundur var greiðvikinn og viðræðugóður. Ósjaldan fékk ég að sitja í bílnum með honum frá Siglufirði til Ólafs- fjarðar. Fyrir þær stundir sem við áttum saman og ræddum málin vil ég þakka. Farðu í friði vinur minn. Kristín Brynhildur Davíðsdóttir. Guðmundur Ingi Jónatans- son, kennari og prentari á Dal- vík, lést 4. desember eftir harða baráttu við illvígan sjúk- dóm. Leiðir okkar lágu saman á hagyrðingamótinu í Skúlagarði 1992. Þar var glæsilegt framhald á mótinu í Sælingsdal 1991. Starri í Garði og Björn Ingólfs- son á Grenivík voru í hlutverki heiðursgests og veislustjóra, fjöldi Keldhverfinga flutti ljóð sín á palli en Sigvaldi Jónsson stóð sem styrkur klettur að baki öllum ráðagerðum. Næstu mót á Hallormsstað ’93, Flúð- um ’94, Reykjavík ’95 og Núpi ’96 tóku sinn brag af þessu glæsilega norðlenska móti. Guðmundur Ingi átti eftir að taka þátt í flestum þessara móta og prentaði vísnakver frá mörgum þeirra. Hann var ekki maður sem spurði um laun að loknu dagsverki heldur hvar þörf væri á liðsinni. Hann var góður hagyrðingur auk þess að vera hagleiksmaður. Hann lagði drjúgt af mörkum í vax- andi bæjarfélagi heima á Dal- vík. Guðmundur eignaðist úr- vals konu úr Vatnsdal, átti sjálfur húnvetnskar rætur og kenndi við Húnavallaskóla en síðar á Dalvík, en 1985 stofnaði hann fjölritun ásamt viku- blaðinu Bæjarpóstinum og hef- ur rekið það síðan – heitir nú Víkurprent – ásamt því að vera ritstjóri Bæjarpóstsins um ára- bil. Einnig prentaði Guðmundur hvaðeina fyrir sveitunga sína, s.s. ljóðabækur og plaköt, á síð- ustu árum fyrir Fiskidaginn mikla, sálmaskrár fyrir útfarir og söngbækur og Stikilshefti fyrir Húnvetning búsettan suð- ur á Selfossi sem litlu hefði komið í verk af þeim hugð- arefnum sínum ef hann hefði ekki notið þessa góða vinar og kunnáttu hans. Þeir Dalvíkingar sjá vel út á sæinn djúpa sem og yfir Eyja- fjörðinn, alveg yfir á Látra- ströndina þaðan sem enn lýsir af ljóðum Látra-Bjargar. Um Bragaþing vestur við Húnaflóa árið 2006 orti Guðmundur Ingi á kynningarspjald: Engan svíkur andans þing á ýmsu ríku lumar. Þú hittir slíkan hagyrðing á Hólmavík í sumar. Leiðirnar lágu saman á Bragaþingunum og þar var líka annan mann að finna og ómiss- andi, Jóa í Stapa, náfrænda Guðmundar, sem var upphafs- maður mótanna og sparaði aldrei tíma né fyrirhöfn við undirbúning þeirra. Mótin lifðu í tæpan aldar- fjórðung og sköpuðu stórt tengslanet um landið allt með- an þau voru í blóma. Vin minn, sem hvarf frá svo mörgum verkefnum og ríkum draumum, vil ég kveðja með ljóði Steingerðar Guðmunds- dóttur sem hún nefnir Á að- ventu: Í skammdegismyrkri þá skuggar lengjast er skinið frá birtunni næst ber við himininn hæst. Hans fótatak nálgast þú finnur blæinn af Frelsarans helgiró – hann veitir þér vansælum fró. Við dyrastaf hljóður hann dvelur – og sjá þá dagar í myrkum rann hann erindi á við hvern mann. Þinn hugur kyrrist þitt hjarta skynjar að hógværðin býr honum stað þar sest hann sjálfur að. Og jólin verða í vitund þinni að vermandi kærleiks yl sem berðu bölheima til. (SG) Ingi Heiðmar Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.