Morgunblaðið - 18.12.2015, Side 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2015
✝ Þórður Jóns-son fæddist í
Keflavík 13. febr-
úar 1941. Hann
lést á Heilbrigð-
isstofnun Suð-
urnesja 1. nóv-
ember 2015.
Foreldrar hans
voru Jón Einar
Bjarnason, f, 21.6.
1910, d. 30.11.
1982, og Kristín
Þórðardóttir, f. 21.9. 1912, d.
27.3. 1988. Systkini Þórðar eru
Birkir, Sigríður, Elías (látinn),
Björg, Gréta, Kristján, Ásmund-
ur, Einar og Borgar.
Þórður fór sex ára til afa síns
og nafna vestur að Stóra-Hrauni
í Kolbeinsstaðahreppi. Þar var
hann til 16 ára aldurs með
hléum þegar hann dvaldi í
ar eru Elvar Alexander, f. 5.1.
2006, og Dylan Þór, f. 19.12.
2007. c. Anton Ægir, f. 20.9.
1989, maki Aurélie Avorio. d)
Adam Ingi, f. 7.10. 2001. 2)
Kristín, f. 21.8. 1965, maki Þór-
arinn Gunnar Pétursson, f. 2.7.
1966. Börn þeirra eru: a) Sigrún
Harpa, f. 27.10. 1987. b) Elín
Ástrós, f. 10.7. 1992, sambýlis-
maður Þór Tómasarson. c) Hel-
ena Sóley, f. 6.10. 1995. 3) Ingv-
ar Þorsteinn, f. 16.9. 1970, maki
Ágústa Sigmarsdóttir, f. 11.10.
1960.
Þórður og Elínborg skildu.
Seinni kona Þórðar var Kolbrún
Erla Einarsdóttir, f. 22.9. 1944,
d. 4.1. 2001. Barn þeirra er
Linda Björk, f. 29.9. 1979, maki
Gretar B. Magnússon, f. 8.7.
1970. Sonur þeirra er Baldvin
Máni, f. 13.8. 2003. Góð vinkona
Þórðar til 12 ára er Elín Ingólfs-
dóttir, f. 17.3. 1941.
Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Keflavík. Níu ára
var hann farinn að
stunda sjóinn og
stundaði alla tíð sjó-
mennsku eða störf
tengd henni. Þórður
hafði alla tíð áhuga
á ferðalögum, bæði
innanlands og utan,
og fór oft með fjöl-
skylduna um allt
land.
Ungur kynnist
Þórður Elínborgu Sólveigu Þor-
steinsdóttur, f. 1.4. 1944. Eign-
uðust þau þrjú börn: 1) Helena
Birna, f. 7.7. 1963. Börn hennar
eru a) Þórður Valdimar, f. 25.10.
1982, maki Guðrún Jensdóttir, f.
28.11. 1981. Börn þeirra eru Óð-
inn Örn, f. 24.8. 2005, og Emma
Dís, f. 25.8. 2011. b) Fanney
Dögg, f. 10.3. 1985. Synir henn-
Elsku besti pabbi minn.
Nú ertu farinn frá mér, far-
inn til mömmu. Ég veit að þið
hugsið vel hvort um annað og
hugsið til mín. Þið eruð mínir
verndarenglar.
Ég var mikil pabbastelpa og
þú hugsaðir vel um mig, varst
alltaf að passa upp á mig og
okkur, litlu fjölskylduna, og
gerðir allt fyrir mig. Ég hugsa
um þig og mömmu á hverjum
degi, hugsa um allar skemmti-
legu stundirnar sem við áttum
saman. Sakna þess svo að geta
ekki hringt í þig og spjallað um
allt og ekkert. Elsku pabbi
minn, þín verður sárt saknað.
Mér tregt er um orð til að þakka þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Í munann fram myndir streyma.
Hver einasta minning er björt og
blíð,
og bros þitt mun fylgja mér alla tíð,
unz hittumst við aftur heima.
Ó, elsku pabbi, ég enn þá er
aðeins barn, sem vill fylgja þér.
Þú heldur í höndina mína.
Til starfanna gekkstu með glaðri
lund,
þú gleymdir ei skyldunum eina
stund,
að annast um ástvini þína.
Þú farinn ert þangað á undan inn.
Á eftir komum við, pabbi minn.
Það huggar á harmastundum.
Þótt hjörtun titri af trega og þrá,
við trúum, að þig við hittum þá
í alsælu á grónum grundum.
Þú þreyttur varst orðinn og þrekið
smátt,
um þrautir og baráttu ræddir fátt
og kveiðst ekki komandi degi.
(Hugrún)
Elsku Elín, Helena Birna,
Steini, Kiddý og fjölskyldur,
megi guð styrkja okkur á þess-
um erfiðum tímum.
Þín dóttir,
Linda Björk.
Elsku hjartans pabbi/tengda-
pabbi, núna er liðinn rétt rúm-
ur mánuður síðan þú okkur
kvaddir.
Við erum enn að reyna að ná
því að þú sért farinn frá okkur,
og getum ekki lýst því, elsku
Þórður okkar, hversu sárt við
söknum þín.
Þú verður ætíð í hjörtum
okkar um ókomna tíð. Við
sjáumst síðar þótt það verði
einhver bið á því.
Elsku Þórður, hve sárt það
er að þurfa að horfa á eftir þér.
Ljósið flæðir enn um ásýnd þína:
yfir þínum luktu hvörmum skína
sólir þær er sálu þinni frá
sínum geislum stráðu veginn á.
Myrkur dauðans megnar ekki að
hylja
mannlund þína, tryggð og fórnarvilja
– eftir því sem hryggðin harðar slær
hjarta þitt er brjóstum okkar nær.
Innstu sveiflur óskastunda þinna
ennþá má í húsi þínu finna –
þangað mun hann sækja sálarró
sá er lengst að fegurð þeirra bjó.
Börnin sem þú blessun vafðir þinni
búa þér nú stað í vitund sinni:
alla sína ævi geyma þar
auðlegðina sem þeim gefin var.
Þú ert áfram líf af okkar lífi:
líkt og morgunblær um hugann svífi
ilmi og svölun andar minning hver
– athvarfið var stórt og bjart hjá þér.
Allir sem þér unnu þakkir gjalda.
Ástúð þinni handan blárra tjalda
opið standi ódauðleikans svið.
Andinn mikli gefi þér sinn frið.
(Jóhannes úr Kötlum)
Þinn sonur og tengdadóttir,
Þorsteinn Þórðarson,
Ágústa Sigmarsdóttir.
Elsku besti pabbi minn.
Kveðjustundin er erfið og sökn-
uðurinn mikill. Margar á ég
minningarnar frá þessum 52 ár-
um sem við áttum saman; ferð-
irnar í Sædýrasafnið, ferðalögin
innanlands sem barn og full-
orðin, utanlandsferðirnar sem
voru mjög skemmtilegar, þegar
börnin mín fæddust varstu
þeim þeirra besti afi og svo
komu barnabarnabörnin og þau
elskuðu að koma til þín og El-
ínar.
Oft varstu hræddur um okk-
ur, ein fallegasta setning sem
ég hef heyrt er þegar ég og
Fanney Dögg vorum að fara til
Flateyrar fyrir fjórum árum
með strákana, þá sagðir þú:
„Farið varlega elskurnar, þið
eruð með svo dýrmætan far-
angur.“ Elsku pabbi, ég gæti
skrifað svo miklu meira en læt
þetta duga, vera einu sinni fá-
mál eins og þú. Þú varst sjó-
maður af lífi og sál alla þína tíð
og núna hefur þú siglt á önnur
mið, mjög líklega með Erlu þér
við hlið. Eins og þegar prest-
urinn spurði langafastrákana
þína þrjá hvernig afi þú hefðir
verið þá sögðu þeir að hann
hefði verið besti afinn og sá
yngsti horfði á prestinn stoltur
og sagði: „Hann afi var sjómað-
ur.“
Faðir vor, þú sem ert á himnum.
Helgist þitt nafn,
til komi þitt ríki,
verði þinn vilji, svo á jörðu sem á
himni.
Gef oss í dag vort daglegt brauð,
og fyrirgef oss vorar skuldir,
svo sem vér og fyrirgefum vorum
skuldunautum.
Eigi leið þú oss í freistni, heldur
frelsa oss frá illu.
Því að þitt er ríkið,
mátturinn og dýrðin
að eilífu. Amen.
Elsku Elín, Steini, Linda,
Kiddý, barnabörn og barna-
barnabörn, megi guð styrkja
okkur í sorginni.
Hvíl í friði elsku pabbi.
Þín dóttir,
Helena Birna.
Elsku afi, ég er ekki orð-
margur maður en ég vil þakka
þér fyrir þann tíma sem við
höfðum saman. Margar af mínu
sterkustu minningum eru með
þér. Með þér horfði ég á mína
fyrstu fótboltaleiki í sjónvarp-
inu og þá varð ekki aftur snúið.
Þegar við fjölskyldan fórum
fyrst til útlanda voruð þið Erla
með og er það ferð sem ég mun
muna og þykja vænt um alla
tíð. Það var alltaf svo gott að
koma suður til Keflavíkur til
ykkar Erlu og var gaman að
komast í gömlu skáktölvuna
þína sem þú sýndir mér mann-
ganginn á. Ein sterkasta jóla-
minningin er þegar ég lá veikur
á sófanum þínum ein jólin. Þín
verður sárt saknað og við
Gunna og krakkarnir biðjum
voða vel að heilsa Erlu.
Þar til næst, þinn dótturson-
ur og nafni,
Þórður.
Til elsku besta afa okkar sem
kvaddi okkur alltof snemma.
Þó sólin nú skíni á grænni grundu
er hjarta mitt þungt sem blý.
Því burt varst þú kallaður á ör-
skammri stundu
í huganum hrannast upp sorgarský.
Fyrir mér varst þú ímynd hins göf-
uga og góða
svo fallegur, einlægur og hlýr,
en örlög þín ráðin – mig setur
hljóða,
við hittumst samt aftur á ný
Megi algóður guð þína sálu nú
geyma,
gæta að sorgmæddum, græða djúp
sár
Þó kominn sért yfir í aðra heima
mun minning þín lifa um ókomin ár.
(Höf. ók.)
Hvíl í friði, elsku afi okkar.
Fanney Dögg
Valdimarsdóttir.
Til afa.
Nú sefur þú í kyrrð og værð
og hjá englunum þú nú ert.
Umönnun og hlýju þú færð
og veit ég að ánægður þú sért.
Ég kvaddi þig í hinsta sinn.
Ég kveð þig nú í hinsta sinn.
Blessun drottins munt þú fá
og fá að standa honum nær.
Annan stað þú ferð nú á
sem ávallt verður þér kær.
Ég kvaddi þig í hinsta sinn.
Ég kveð þig nú í hinsta sinn.
Við munum hitta þig á ný
áður en langt um líður.
Sú stund verður ánægjuleg og hlý
og eftir henni sérhvert okkar bíður.
Við kveðjum þig í hinsta sinn.
Við kvöddum þig í hinsta sinn.
(Þursi)
Elsku afi, við söknum þín og
munum minnast þín um ókomin
ár.
Þínir afastrákar,
Anton Ægir og Adam Ingi.
Þórður Jónsson
Margar
skemmtilegar
minningar koma
upp í hugann þegar
ég minnist Skúla. Hann var allt-
af glaður og gaman að eiga við
hann spjall, alltaf slegið á létta
strengi.
Ásrún konan hans Skúla var
frænka mín og við þekktumst
frá barnsaldri og má segja að
ég hafi verið heimagangur hjá
þeim í áratugi.
Skúli var vel verki farinn og
vinnusamur og svo ráðdeildar-
samur að hann var langt kom-
inn með að byggja sér mynd-
arlegt einbýlishús rúmlega
tvítugur.
Hann var fróður og minn-
ugur og las mikið og hafði
skemmtilegar skoðanir á mönn-
um og málefnum, alltaf stutt í
gamansemina. Skúli var bón-
góður og hjálpsamur. Stundum
vantaði kunningja hans að láta
keyra fyrir sig „smávegis“ möl,
mold eða eitthvað annað og
fannst honum þá sjálfsagt að
gera það fyrir lítið eða ekki
neitt.
Ekki hallaðist á með mynd-
arskap þeirra hjóna, þau voru
samhent um allt. Höfðu bæði
gaman af ferðalögum. Fyrst
skoðuðu þau landið okkar vel og
vandlega og þá gilti að „lands-
lag yrði lítils virði ef það héti
ekki neitt“. Þau þekktu víða
fólk og voru ættfróð.
Seinna fóru þau að fara í ut-
anlandsferðir og nutu þess
einnig vel.
Þau eignuðust þrjú vel gerð
og góð börn, sem öllum hefur
farnast vel í lífinu. Þau önn-
uðust uppeldi þeirra af ást og
umhyggju og fengu það líka vel
endurgoldið.
Það eru 10 ár síðan Ásrún
lést, alltof fljótt. Síðan hefur
Skúli búið einn og verið flinkur
í sínu húshaldi, allt í röð og
reglu. Eldaði sinn mat sjálfur
og tók á móti gestum þannig að
það hefur alltaf verið gaman að
koma til hans.
Við Ásrún vorum saman í
saumaklúbb ásamt tveim skóla-
systrum okkar frá Laugarvatni,
Ástu og Fríðu. Skúli drakk með
okkur kaffið þegar klúbbarnir
voru hjá Ásrúnu og hann var
svo skemmtilegur að við arf-
leiddum hann að sæti Ásrúnar
þegar hún féll frá.
Skúli hafði góða heilsu lengst
af. Hann og vinur hans Guð-
mundur Ívarsson voru duglegir
að fara í bíltúra út um sveitir,
heilsuðu upp á fólk og eins til
að fylgjast með ýmsum fram-
kvæmdum, t.d. vegagerð, en
þar voru þeir á heimavelli.
Einnig heimsótti Skúli vini
sína og kunningja ef þeir áttu
við veikindi að stríða. Ég naut
þessarar ræktarsemi hans sl.
vetur, þá kom hann út á sjúkra-
hús með hlaða af bókum. Mér
átti ekki að leiðast.
Ég þakka Skúla löng og góð
kynni og votta fjölskyldu hans
innilega samúð.
Ingunn Pálsdóttir.
Elsku afi, mikið sakna ég þín.
Margar af mínum fyrstu
minningum tengjast ykkur
ömmu og ljúfum stundum í Dæ-
lenginu. Þau eru nánast ótelj-
andi skiptin sem við lágum tvö
á bekknum inni í herbergi og
þú last fyrir mig söguna um
Hans og Grétu, alveg þangað til
Skúli
Guðjónsson
✝ Skúli Guð-jónsson fæddist
26. febrúar 1929.
Hann lést 30. nóv-
ember 2015.
Útför Skúla fór
fram 16. desember
2015.
ég kunni hana utan
að og fór að segja
þér hana, nú eða
söguna um prins-
essuna sem átti 365
kjóla. Ég get auð-
veldlega ímyndað
mér að þú hafir
verið orðinn
þreyttur á þessum
ævintýrum en það
skipti þig engu
máli, þú varst alltaf
til í að lesa þau fyrir mig enn
einu sinni.
Eftir því sem ég varð eldri
kynntumst við svolítið upp á
nýtt og vinátta okkar varð enn
sterkari. Eftir að ég byrjaði í
FSu fór ég að heimsækja þig æ
oftar, hvort sem það var til þess
að spjalla við þig um daginn og
veginn, nú eða fá að nýta mér
kyrrðina sem ríkti í Dælenginu
til þess að líta á námsbækurnar.
Þér þótti nú yfirleitt vera full-
mikil ferð á mér og varst því
duglegur að hvetja mig til þess
að staldra við og leggja mig að-
eins í stofusófanum hjá þér.
Þessar stundir, þegar ég lá inni
í stofu og þú í vinnuherberginu
þínu og við tókum okkur smá
síðdegislúr með útvarpið stillt á
Rás 1 í bakgrunni, þykir mér
mjög vænt um. Það skipti nefni-
lega ekki alltaf máli þó að við
hefðum ekki mikið að segja
hvort öðru, það að vera í kring-
um þig var alltaf svo gott.
Eftir að hafa lítið séð þig í
sumar ákvað ég í haust að
heimsækja þig eins oft og ég
mögulega gæti. Síðustu mánuði
hafði ég það sem reglu að kíkja
á þig að minnsta kosti einu
sinni til tvisvar í viku og fyrir
það er ég virkilega þakklát.
Kvöldin sem við sátum í stof-
unni ræddum um allt milli him-
ins og jarðar og borðuðum
súkkulaðirúsínur munu aldrei
gleymast. Sögurnar sem þú
sagðir mér frá hinum ýmsu tím-
um voru svo ótal margar og
skemmtilegar.
Það er sárt að sjá á eftir þér,
afi, en allar góðu minningarnar
okkar munu lifa. Takk fyrir allt.
Ég elska þig og sakna þín.
Þín,
Aðalbjörg Ýr.
Skúli föðurbróðir okkar var
dugnaðarmaður, kappsfullur og
ávallt ræðinn, hress og
skemmtilegur. Skúli var dökkur
yfirlitum, hár og myndarlegur.
Hann hefur verið hluti af lífi
okkar systkina alla tíð og fastur
punktur í tilverunni.
Þeir bræður frá Kolsholti,
Gísli pabbi okkar og Skúli, voru
alltaf nánir og samgangur milli
fjölskyldna þeirra mikill. Þeir
stofnuðu báðir heimili á Selfossi
og hjálpuðust alltaf mikið að,
ekki síst þegar íbúðarhúsin
voru byggð. Sú samheldni kom
vel í ljós síðustu mánuðina sem
pabbi lifði en þá heimsótti Skúli
hann nær daglega og aðstoðaði
hann við ýmsa hluti, t.d. að fara
í búðina og bankann. Fyrir það
er hér þakkað.
Það kann að vera ein ástæð-
an fyrir því hvað þeir bræður
voru nánir að árið 1940 veiktust
þeir báðir af taugaveiki. Skúli
þá 11 ára og pabbi 17 ára. Þeir
voru settir í margra vikna ein-
angrun á Landspítalanum. Sem
betur fer náðu þeir sér alveg af
veikinni en það hlýtur að hafa
verið erfitt fyrir foreldra þeirra
að bíða í voninni austur í Flóa
eftir fréttum af þeim, en þau
höfðu þá áður misst tvö börn í
frumbernsku. Veiruna fengu
þeir úr jarðveginum þegar þeir
voru að plægja tún og hafði hún
legið þar í marga áratugi.
Minningarnar um Skúla eru
margar. Ótal heimsóknir, m.a.
leit hann oft inn hér áður fyrr á
sunnudagsmorgnum á Sólvöll-
unum eftir sundferð með börn-
unum. Einnig samvera í kring-
um hestamennskuna. Svo
fengum við stundum að sitja í
vörubílnum, það var mikið
sport. Skúli var vörubílstjóri í
yfir 50 ár og átti lengst af
Scania-vörubíla, númerið var
alltaf X-95.
Kona Skúla var Ásrún Magn-
úsdóttir af Laugarvatnsætt.
Þau voru samheldin og áttu fal-
legt heimili þar sem myndar-
skapur þeirra beggja naut sín.
Ásrún lést fyrir um 10 árum.
Skúli var hennar stoð og stytta
í erfiðum veikindum hennar.
Við fráfall Skúla er okkur
systkinunum efst í huga þakk-
læti fyrir umhyggju gagnvart
okkur. Við fundum að hann
fylgdist með og var umhugað
um okkur og fjölskyldur okkar.
Við sendum Magnúsi, Kol-
brúnu og Aðalbjörgu samúðar-
kveðjur. Guð blessi minningu
þessa góða frænda okkar.
Kristín Gísladóttir,
Guðjón Skúli Gíslason,
Vignir Rafn Gíslason.
Skúli afabróðir minn markar
mörg spor í minningum mínum
frá því ég var lítill drengur og
allt til dagsins í dag. Ég og mín
systkini vorum svo heppin að í
næsta húsi við okkur, vestan
megin Tryggvagötunnar, bjó
Skúli ásamt konu sinni Ásrúnu
Magnúsdóttur, en hún lést fyrir
rétt rúmum 10 árum.
Heimili þeirra stóð manni
alltaf opið og minnisstæðar eru
ferðir þangað yfir í ýmsum er-
indagjörðum. Fyrstu árin voru
erindin yfirleitt á þá leið að fá
að kíkja í vörubílinn hjá Skúla,
og man ég eftir ferð með hon-
um ásamt systkinum mínum
upp í malarnámurnar í Ingólfs-
fjalli. Erindið var líka stundum
að fá einn sælgætismola, sem
yfirleitt stóð til boða þegar
maður leit inn. Einnig leitar
hugurinn til ferðar sem var far-
in á frambyggðum rússajeppa
sem kallaður var Gorbi, sem var
ferðabíll Skúla og Ásrúnar.
Ferðin var farin á Laugarvatn
og sátum við systkinin ásamt
barnabörnum þeirra aftur í
honum, þótti það mikil upplifun.
Síðastliðin ár voru ferðirnar
farnar til að tala um daginn og
veginn og fræðast um gamla
tíma. Skúli var fróður og minn-
ugur og aldrei kom maður að
tómum kofunum ef mann vant-
aði svör við einhverjum spurn-
ingum sem á manni brunnu.
Hann fylgdist líka vel með öllu
því sem fór fram hjá hans fólki
og er mér það sérstaklega
hjartfólgið þegar ég tók tamn-
ingapróf á Hvanneyri en þá
kom Skúli með föður mínum til
að fylgjast með. Í hvert skipti
sem maður hitti hann stóð ekki
á spurningum sem mann varð-
aði og þykir mér vænt um það
hversu mikinn áhuga hann
sýndi því sem maður gerði.
Bræðrakærleikurinn sem
ríkti milli Skúla og Gísla, afa
míns, var mikill og til eftir-
breytni.
Svo viðkvæmt er lífið sem
vordagsins blóm
er verður að hlíta þeim lögum
að beygja sig undir þann
allsherjardóm
sem ævina telur í dögum.
Við áttum hér saman svo indæla
stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson)
Ég mun halda minningu
Skúla á lofti út ævina og hlakka
til að hitta hann að lokum og
svara spurningum hans um það
sem á daga mína hefur drifið.
Innilegar samúðarkveðjur
sendi ég til allra aðstandenda
Skúla.
Gísli Guðjónsson.