Morgunblaðið - 18.12.2015, Page 43

Morgunblaðið - 18.12.2015, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2015 Ábókarkápu kemur fram aðí þessari bók er úrval ljóðasem Matthías hefur ort sl.fimm ár. Þau eru fjöl- breytt að efni og formi. Hér eru ljóð í fullkomlega frjálsum hætti og önn- ur sem hlíta ströngum bragreglum, fylgja fornri hefð í hvívetna; hér er sonnetta og frjálslegt fornyrðislag. Og yrkisefnin eru fjölbreytt, langir bálkar þar sem hugarfluginu er gefinn laus taum- ur, haglegar nátt- úrumyndir, hvort sem er sýn út um glugga eða úr gönguferð, mynd- ir úr borg og óbyggð og hér eru heimsádeilur með nýju sniði, en kallast þó á við gamla hefð, hér eru ljóð sem óbeint eru vaxin úr starfi Matthíasar sem ritstjóri og hvarvetna birtast les- anda markvissar vísanir í bók- menntir og ummæli úr samtíma og fortíð. Kannski háir það lesendum hvað hann er víðlesinn! Segja má að söknuður leiki á fyrstu fiðlu í þessari hljómkviðu. Ljóðmælandinn er rosk- inn, hann hefur misst lífsförunaut sinn. Hann nýtur lífsins í skugga þess: „áttræður væntir einskis / utan haustmyrkurs“. Ljóðmælandi er lífsreyndur. Stjörnur himins kvikna honum eins og flugur „og fylgja mér yfir grámosótt / hraunhaf / míns innra manns“. Annað erindi ljóðsins „Þú ert minning“ er á þessa leið: „ég sakna þín, minn söknuður er eins / og sóley tregi júníbirtur þínar / en hugsun mín hún nýtur aldrei neins / en norpir eins og blóm við rætur sín- ar“. Lokaerindið er kannski niður- staða, en ekki sátt: „En þessi minn- ing mildar það sem var, / hún mildar skugga hausts í fylgd með þér / því hún er eins og ljós við lítið skar / og lýsir þessa nótt í huga mér“. Þetta er fallega kveðið og af einlægni. Dauðinn er nálægur ljóðmælanda, vinir hans hafa „horfið inní ósýnilega / ályktun dauðans, / horfið / eins og fuglar inní óvæntan / himin“. Fleiri ljóð eru vaxin af þessari rót og öll ort af yfirvegun. Skáldinu er mikið niðri fyrir þeg- ar hann hugsar til tíma útrásar og hruns. Matthías blæs þar á básúnu, honum óar við hugsunarhættinum: „Ég veit að tízkan telur sig ei þurfa / að tjalda því sem gerir oss að þjóð“. Spillingin er ágeng og „þjóð er óþjóð ef hún festir rót“. Hann vill að „Hólsfjöll séu áfram íslenzk jörð / og efalaust að tízkan leyfi það“; hann grunar að ýmsum standi á sama um landið því að „nú er eins og Íslend- ingaþættir / séu ekkert nema gam- almenna raup.“ Þjóðin hefur verið í „öskugráum byl vors hrunadans“ svo gripin sé upp lína þar sem hann skírskotar til Jónasar og hann vonar að „nýir tímar hefji vora hugi / til heiðurs arfleifð þessa kalda lands“. Orðfæri Matthíasar er myndrænt í betra lagi. Hér eru lýsingarorð eins og fjalldauður, heststyggur, úthafs- blár. Tunglið dreifir „geislablómum sínum“ sem „glitra inní nótt“. Hér er „þinglýst náð“, „skurðgróin jörð“, „fingurmjúk nærfærni“, fiðrildi flýg- ur „úr laufgrænum svefni“. Er „þangbrúnt hvassviðri“ ekki hund- leiðinlegt veður? Snjallar smámynd- ir blasa við lesanda: „Leggja þrestir / langsára vængi / á vorgrænar nálar // syngja / sólgulum degi / til dýrðar, // hægt mjakast suðrið / til vesturs.“ Örnefni notar hann markvisst. Drekagil, Sprengisandur, Vegamót, Kerlingarskarð og Fróðárheiði standa hér ekki einungis til skrauts. Eftirmáli Ástráðs er ljómandi gott vegakort fyrir lesanda á leið um skáldskap Matthíasar. Hann gerir góða grein fyrir helstu kennileitum í kveðskap hans og sérstöðu og nefnir góð dæmi máli sínu til stuðnings. Það er laukrétt sem hann segir að Matthías er marghamur. Afköst hans eru raunar með ólíkindum. Og það eru engin ellimörk á þessari bók önnur en þau að skáldið veit að nú hallar vesturaf. Öll efnistök eru óloppin og skáldinu er mikið niðri fyrir. Matthías á brýnt erindi við samtíð sína í þessari bók um leið og hann veitir okkur hljóða og einlæga sýn á viðkvæm einkamál. Þetta er einkar læsileg bók ljóðelsku fólki. Morgunblaðið/Golli Skáldið „Matthías á brýnt erindi við samtíð sína í þessari bók um leið og hann veitir okkur hljóða og einlæga sýn á viðkvæm einkamál.“ Sigling á hraunhafi innra manns Ljóð Við landamæri bbbbn Eftir Matthías Johannessen. Ástráður Eysteinsson annaðist útgáfuna og ritaði eftirmála. Bókaútgáfan Sæmundur 2015. Innbundin, 144 bls. SÖLVI SVEINSSON BÆKUR Svo máttug / og megn“. Þann-ig hefst ljóðið um orðin,annað tveggja langra semljúka fyrstu ljóðabók Sig- rúnar Haraldsdóttur, Hvítir veggir. Þetta er eitt óbundnu ljóðanna í bók- inni, býsna vel lukkað og lýsir vel glímu skálds við orð sem stundum tæta upp brjóstið, rífa svöðusár í hjartað, finnast stundum ekki þegar á þarf að halda og stundum liggja þau á tung- unni „eins og gráir bingir / úr örfín- um salla / sem fjúka burt / við minnstu hreyfingu / raddbandanna“. Titilljóð bókarinnar, sem henni lýkur á, er enn áhrifaríkara, en þar er dregin upp knöpp, tregafull og vel mótuð mynd af gömlum manni, föl- um og stirðum, sem er aleinn eftir að konan var borin burt frá honum og hann „sat einn eftir / og hélt dauða- haldi í rökkrið“. Þrátt fyrir að þetta sé fyrsta bók Sigrúnar þá er hún vön glímunni við ýmis form ljóðlistarinnar, hefur verið virk í samfélagi skálda í netheimum sem annars staðar og yrkir bæði bundið og óbundið. Í bókinni eru um fjörutíu ljóð, ólík að formi og í nálg- un, og líklega er einnig um að ræða safn frá lengri tíma og er það helsti galli bókarinnar hvað hún er laus í sér sem heild. Því í bestu ljóðunum dregur skáldið upp áhrifaríkar myndir og vel mótaðar stemningar, hvort sem ort er bundið eða óbundið. Góð dæmi um áhrifaríkan óbundinn kveðskap eru fyrrnefnd lokaljóð bók- arinnar og einnig „Í ringulreiðinni“ þar sem lýst er erfiðum fundi við deyjandi mann sem er ávarpaður: en þú sem dauðinn hafði þegar merkt með áberandi lit lést sem ekkert væri þó að blátt ljós augna þinna lýsti upp óttann sem þar var greyptur Í mörgum bestu háttbundnu ljóðanna eru dregnar upp fallegar og einlægar náttúrumyndir. „Loksins sé ég ljóma þinn“ er til að mynda undurfallegt kvæði um vorkomuna sem hreinlega kallar á að fallegt lag sé samið við það. Svona er fyrsta erindið af þremur: „Loksins sé ég ljóma þinn / og litlu grænu spor, / finnurðu ekki fögnuð minn / feimna, ljósa vor?“ Í ljóðunum má merkja áhrif víða að, eins og eðlilegt er þegar um fyrstu bók er að ræða, en þar sem skáldinu tekst best upp finnur hún sína eigin rödd. Og þetta er líka áhugaverð bók sem sýnir að ljóð Sig- rúnar eiga fullt erindi við lesendur. Morgunblaðið/Eggert Ljóðskáldið Sigrún dregur upp fallegar og einlægar náttúrumyndir. Hélt dauðahaldi í rökkrið Ljóð Hvítir veggir bbbnn Eftir Sigrúnu Haraldsdóttur. Bókaútgáfan Hólar, 2015. Innbundin, 70 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl. Billy Elliot (Stóra sviðið) Lau 19/12 kl. 19:00 Sun 27/12 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 19:00 Lau 26/12 kl. 19:00 Fös 8/1 kl. 19:00 Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - sýningum lýkur í janúar Njála (Stóra sviðið) Mið 30/12 kl. 20:00 Frums. Sun 10/1 kl. 20:00 6.k Fim 21/1 kl. 20:00 11.k Lau 2/1 kl. 20:00 2.k Mið 13/1 kl. 20:00 7.k Sun 24/1 kl. 20:00 Sun 3/1 kl. 20:00 3.k Fim 14/1 kl. 20:00 8.k Fim 28/1 kl. 20:00 12.k Mið 6/1 kl. 20:00 4.k Sun 17/1 kl. 20:00 9.k Sun 31/1 kl. 20:00 Fim 7/1 kl. 20:00 5.k Mið 20/1 kl. 20:00 10.k Blóðheitar konur, hugrakkar hetjur og brennuvargar Hver er hræddur við Virginíu Woolf? (Nýja sviðið) Fös 15/1 kl. 20:00 Frums. Sun 24/1 kl. 20:00 6.k Fös 5/2 kl. 20:00 11.k Lau 16/1 kl. 20:00 2.k Fim 28/1 kl. 20:00 7.k Lau 6/2 kl. 20:00 12.k Sun 17/1 kl. 20:00 3.k Fös 29/1 kl. 20:00 8.k Sun 7/2 kl. 20:00 aukas. Fim 21/1 kl. 20:00 4.k Lau 30/1 kl. 20:00 aukas. Fim 11/2 kl. 20:00 13.k Fös 22/1 kl. 20:00 aukas. Sun 31/1 kl. 20:00 9.k Lau 23/1 kl. 20:00 5.k Fim 4/2 kl. 20:00 10.k Margverðlaunað meistarastykki Lína langsokkur (Stóra sviðið) Sun 27/12 kl. 13:00 Sun 3/1 kl. 13:00 Sun 10/1 kl. 13:00 Sýningum lýkur í janúar Sókrates (Litla sviðið) Lau 19/12 kl. 20:00 Sun 27/12 kl. 20:00 Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina Vegbúar (Litla sviðið) Þri 29/12 kl. 20:00 Mið 30/12 kl. 21:00 Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið Kenneth Máni (Litla sviðið) Fös 18/12 kl. 20:00 Fös 8/1 kl. 20:00 Lau 23/1 kl. 20:00 Kenneth Máni stelur senunni TJARNARGÖTU 12, 101 REYKJAVÍK SÍMI 527 2100 TJARNARBIO.IS Frami (Salur) Lau 9/1 kl. 20:30 Fös 15/1 kl. 20:30 Fös 22/1 kl. 20:30 Predator (Salur) Mið 13/1 kl. 21:00 Lífið (Salur) Sun 17/1 kl. 13:00 Sun 7/2 kl. 13:00 Sun 24/1 kl. 13:00 Sun 21/2 kl. 13:00 Jólagrín í Tjarnarbíó (Salur) Sun 20/12 kl. 20:00 The Valley (Salur) Lau 19/12 kl. 20:30 Þroskastríðið - Hugleikur Dagsson UPPISTAND (Salur) Fös 18/12 kl. 20:00 Ævintýrið um Augastein (Salur) Sun 20/12 kl. 11:00 Sun 20/12 kl. 13:00 Sun 20/12 kl. 15:00 65 20151950 5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is DAVID FARR Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið) Mið 30/12 kl. 15:00 37.sýn Fim 14/1 kl. 19:30 42.sýn Fös 12/2 kl. 19:30 47.sýn Mið 30/12 kl. 19:30 38.sýn Sun 24/1 kl. 19:30 43.sýn Lau 13/2 kl. 19:30 48.sýn Lau 2/1 kl. 15:00 39.sýn Fös 29/1 kl. 19:30 44.sýn Sun 21/2 kl. 19:30 49.sýn Lau 2/1 kl. 19:30 40.sýn Lau 30/1 kl. 19:30 45.sýn Sun 10/1 kl. 19:30 41.sýn Fös 5/2 kl. 19:30 46.sýn Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports! Sporvagninn Girnd (Stóra sviðið) Lau 26/12 kl. 19:30 Frumsýning Fös 8/1 kl. 19:30 4.sýn Sun 17/1 kl. 19:30 7.sýn Sun 27/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 9/1 kl. 19:30 5.sýn Sun 3/1 kl. 19:30 3.sýn Lau 16/1 kl. 19:30 6.sýn Eitt af meistaraverkum 20. aldarinnar Um það bil (Kassinn) Þri 29/12 kl. 19:30 Frums. Lau 9/1 kl. 19:30 4.sýn Fim 21/1 kl. 19:30 7.sýn Sun 3/1 kl. 19:30 2.sýn Fös 15/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 22/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 8/1 kl. 19:30 3.sýn Sun 17/1 kl. 19:30 6.sýn Glænýtt verk eftir þekktasta samtímaleikskáld Svía, bráðfyndið og harkalegt í se Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið) Lau 19/12 kl. 11:00 Lau 19/12 kl. 14:30 Sun 20/12 kl. 13:00 Lau 19/12 kl. 13:00 Sun 20/12 kl. 11:00 Sun 20/12 kl. 14:30 Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins komið í sölu 11 leikárið í röð. Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið) Fim 7/1 kl. 19:30 12. sýn Fös 15/1 kl. 22:30 13.sýn Mið 13/1 kl. 19:30 aukasýn Fim 21/1 kl. 19:30 15.sýn Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna! Umhverfis jörðina á 80 dögum (Stóra sviðið) Lau 23/1 kl. 13:00 Frums. Sun 31/1 kl. 13:00 3.sýn Lau 6/2 kl. 16:00 5.sýn Lau 23/1 kl. 16:00 2.sýn Lau 6/2 kl. 13:00 4.sýn Eldfjörug barnasýning eftir Sigga Sigurjóns og Karl Ágúst! Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið) Sun 10/1 kl. 14:00 21.sýn Sun 17/1 kl. 14:00 23.sýn Sun 10/1 kl. 16:00 22.sýn Sun 17/1 kl. 16:00 24.sýn Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.