Morgunblaðið - 18.12.2015, Síða 48
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 352. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
1. Bilun á Star Wars sýningu
2. Noregur heillar ekki jafn mikið
3. „Svona áburður er óþolandi“
4. 5 hlutir sem gerast þegar þú …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Síðustu aðventutónleikar Schola
cantorum á Jólatónlistarhátíð Hall-
grímskirkju fara fram í dag kl. 12. Ein-
söngvarar úr röðum kórsins verða
Fjölnir Ólafsson bassi, Thelma Hrönn
Sigurdórsdóttir sópran og Ragnheið-
ur Sara Grímsdóttir sópran og stjórn-
andi verður Hörður Áskelsson. Á efn-
isskrá má finna fjölbreytta aðventu-
og jólatónlist, m.a. „Ó helga nótt“ og
„Lux aurumque“.
Aðventutónleikar
í Hallgrímskirkju
Kvartett Krist-
jönu Stefáns-
dóttur flytur sinn
árlega jóladjass í
Tryggvaskála í
kvöld kl. 21. Á
dagskránni verða
þekkt jólalög í
djössuðum út-
setningum kvart-
ettsins sem skipaður er Kristjönu
Stefánsdóttur söngkonu, Vigni Þór
Stefánssyni píanóleikara, Smára
Kristjánssyni bassaleikara og Gunn-
ari Jónssyni trommuleikara.
Kvartett Kristjönu
flytur jóladjass
Alþjóðlegi sönghópurinn Olga Voc-
al Ensemble heldur þrenna jóla-
tónleika um helgina, þá fyrstu í kvöld
kl. 20 í Áskirkju í Reykjavík. Á morg-
un syngur hópurinn í Tjarnarborg,
Ólafsfirði, kl. 20 og 20. desember í
Aðventkirkjunni í Reykjavík kl. 20.
Olga syngur á Ólafs-
firði og í Reykjavík
Á laugardag Norðaustan 10-18 m/s, hvassast austast á landinu.
Úrkomulítið á Suður- og Vesturlandi, annars snjókoma, einkum fyr-
ir austan. Frost 0 til 5 stig en frostlaust syðst.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Dregur úr vindi og kólnar, víða norðaustan
8-15m/s og dálítil él. Frost 1 til 11 stig, kaldast í innsveitum norð-
austantil.
VEÐUR
„Ég reikna með að það verði
stál í stál,“ segir Þórir Her-
geirsson, landsliðsþjálfari
Evrópu- og ólympíu-
meistara Noregs í hand-
knattleik kvenna, um und-
anúrslitaleik Noregs og
Rúmeníu á heimsmeistara-
mótinu. Leikurinn fer fram í
kvöld. Liðin mættust fyrir
átta dögum í riðlakeppn-
inni. Síðan hefur rúm-
enska liðið sótt í sig veðrið
að sögn Þóris. »4
Þórir reiknar með
hnífjöfnum leik
Roman Abramovich, eigandi Chelsea,
hefur nú tíu sinnum tekið þá ákvörð-
un að skipta um knattspyrnustjóra
hjá félaginu eftir að hafa keypt það
árið 2003, en hann lét Portúgalann
José Mourinho fara í annað sinn í
gær. Líklegast er talið að Guus Hidd-
ink taki tímabundið við liðinu en
nokkrir hafa verið nefndir sem hugs-
anlegir arftakar til lengri tíma. »1
Hver þorir að stíga
næstur upp í Brúna?
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Bessastaðastrákarnir“ hafa haldið
hópinn í yfir 60 ár og einn af helstu
föstu punktum þeirra í tilverunni er
að borða saman hádegismat einu
sinni í mánuði. „Þá tökum við púls-
inn á okkur og þjóðfélaginu,“ segir
Páll Bragi Kristjónsson.
Að sögn Páls Braga eiga vinirnir
mörg sameiginleg áhugamál. Nefnir
í því sambandi fjölskyldumálin og
börnin, sumarbústaðalífið, hesta-
mennsku, bækur og fleira. „Þó við
séum á svipaðri línu í pólitíkinni för-
um við ekki djúpt í þjóðmálin,“ segir
hann. Bætir við að eftir því sem þeir
eldist þyki þeim gott að sitja saman
og slúðra. „Eftir að við hættum í
fastri vinnu sitjum við líka lengur en
áður.“
Sátu oft í hjá forsetunum
Strákarnir hafa frá mörgu að
segja. „Við höfum arkað veginn sam-
an í gegnum þykkt og þunnt, rétt
eins og vinir gera, og höfum frá
mörgu að segja,“ heldur Páll Bragi
áfram.
Frumbernskan er eilíft umræðu-
efni. Páll Bragi rifjar upp að þeir
hafi sofið saman í stórum rúmum á
Bessastöðum, lesið þar saman undir
öll próf, leikið sér saman. „Við vor-
um þarna í öllum fríum, hvenær sem
tækifæri gafst, og gerðum allt sam-
an. Þetta var gríðarlegt ævintýralíf,
hvort sem við vorum í bófahasar eða
öðru. Þarna var mikill búskapur -
pabbi átti til dæmis margar kindur
og hesta - og við tókum þátt í honum
með kaupafólkinu, sem var fjöl-
mennt, 20 til 30 manns á sumrin.
Þarna voru líka börn bústjórans
þannig að félagsskapurinn var mikill
og ótrúlega mikið líf í fegurðinni á
Bessastöðum. Ég segi oft að falleg-
ustu vorkvöldin í heimi séu í logni á
Bessastöðum.“
Strákarnir fóru ýmist hjólandi úr
bænum á Bessastaði eða í strætó,
sem stoppaði á Hafnarfjarðarvegi,
auk þess sem þeir fengu oft far í for-
setabílnum. „Pabbi keyrði okkur oft
og það var hversdagslegur hlutur að
sitja í með Sveini og Ásgeiri. Við
bárum mikla virðingu fyrir þessum
mönnum og þeir voru mjög góðir við
okkur. Það er eftirminnilegt.“
Páll Bragi segist hafa eignast
fyrstu golfboltana sem lítill gutti á
Bessastöðum. „Sveinn Björnsson
var einn af fyrstu kylfingum lands-
ins. Hann gekk stundum um túnin
með eina kylfu og sló bolta. Hann
týndi mörgum boltum og þegar við
krakkarnir fundum þá var ógurlegt
ævintýri að láta þá skoppa og að ég
tali ekki um að pilla þá í sundur og
taka úr þeim allar teygjurnar.“
Hafa haldið hópinn í yfir 60 ár
Bófahasar,
bústörf og boltar
á Bessastöðum
Grúppan í hádegismat á Laugaási Frá vinstri: Eggert Óskarsson, Páll Bragi Kristjónsson, Hörður H. Bjarnason,
Sigurður G. Thoroddsen, Sverrir Þórhallsson og Ásgeir Thoroddsen. Á myndina vantar Svein Björnsson.
Strákarnir tengdust fyrstu
tveimur forsetum Íslands.
Sveinn Björnsson er sonarsonur
Sveins Björnssonar forseta.
Bræðurnir Ásgeir og Sigurður
Thoroddsen, synir Gunnars Thor-
oddsen og Völu Ásgeirsdóttur,
eru dóttursynir Ásgeirs Ásgeirs-
sonar, annars forseta lýðveld-
isins. Sverrir Þórhallsson er son-
ur Þórhalls Ásgeirssonar og er
sonarsonur Ásgeirs forseta.
Kristjón Kristjánsson, faðir Páls
Braga, var forsetabílstjóri fyrstu
áratugina. „Við kynntumst í
sveitinni á Bessastöðum og vor-
um þar meira og minna saman
fram yfir tvítugt,“ segir Páll
Bragi. „Við höfum verið eilífð-
arvinir og fjölskyldur okkar hafa
haldið þétt saman.“ Á mennta-
skólaárunum bættust í hópinn
Hörður Bjarnason og Eggert
Óskarsson.
Kynntust á Bessastöðum
TENGDUST FYRSTU TVEIMUR FORSETUM ÍSLANDS
Það var gríðarlega mikil spenna í öll-
um þremur leikjum gærkvöldsins í
Olís-deild karla í handknattleik. Ak-
ureyri og ÍBV gerðu jafntefli norðan
heiða og bæði Afturelding og Valur
tryggðu sér sigur með marki á loka-
sekúndu, hvort í sínum
leik. » 2
Þrír háspennuleikir í
handboltanum