Morgunblaðið - 02.01.2016, Blaðsíða 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ
H
ugmyndin að baki fjarsál-
fræðimeðferð er að allir
eigi kost á sálfræðiþjón-
ustu og því býð ég upp á
sálfræðimeðferð í gegnum netið þar
sem ég notast við skype, google-
skjöl og tölvupóst,“ segir Ragnhild-
ur Þórðardóttir, klínískur heilsusál-
fræðingur og einkaþjálfari, betur
þekkt sem Ragga nagli, en hún hef-
ur verið búsett í Kaupmannahöfn frá
árinu 2009.
„Fjarsálfræðimeðferð hefur
reynst mörgum árangursrík og það
er margt mjög jákvætt við þetta fyr-
irkomulag. Mörgum skjólstæðingum
mínum finnst það mikill kostur að
geta tjáð sig heima, í öruggu um-
hverfi, enda sé þannig auðveldara að
vinna úr hugsunum og tilfinningum.
Ég rek jafnframt sálfræðistofu hér í
Kaupmannahöfn og meðhöndla þar
bæði Dani og Íslendinga, en fjöl-
margir Íslendingar eru búsettir í
borginni og þeim finnst ómetanlegt
að geta tjáð sig á sínu eigin tungu-
máli.“
Átröskun og kvíði
Ráðgjöf á sviði heilsusálfræði;
hver eru þín helstu viðfangsefni?
„Mín sérhæfing innan sálfræð-
innar snýr að átröskunum, þyngd-
arvandamálum, líkamsímynd og
hegðun tengdri ofáti. Sömuleiðis
vinn ég mikið með kvíða, streitu,
sorg, depurð og þunglyndi. Ég not-
ast mest við hugræna atferl-
ismeðferð, gjörhygli, en blanda mik-
ið inn öðrum meðferðarformum,
eftir því sem við á. Mikilvægt er að
meðferðin sé alltaf einstaklings-
miðuð, því enda þótt vandamálin séu
í grunninn svipuð er birtingarmynd
þeirra mismunandi. Margra ára
starfsreynsla og þekking mín á lík-
amsþjálfun nýtist mér mjög vel við
ráðgjöf varðandi mataræði og
hvernig hægt er að breyta hugs-
unarhættinum og þróa með sér já-
kvæðara samband við mat.“
Neikvæðar tilfinningar og vanda-
mál tengd mat; er vandinn stærri á
meðal yngra fólks?
„Í nútímasamfélagi er rík til-
Máttur auglýsinga
Hvað með áhrif tískunnar og mátt
auglýsinga?
„Tískuiðnaðurinn á auðvitað sinn
þátt í því að draga upp óraunsæja
mynd af því hvað er fallegt og eðli-
legt, sem getur leitt til óheilbrigðrar
sjálfsmyndar og átröskunar. Mynd-
ir af horuðum ofurfyrirsætum ýta
undir óánægju fólks með líkama
sinn, ekki bara á meðal unglinga
heldur líka þeirra sem eldri eru.
Rannsóknir sýna að konur sem lesa
tískublöð að staðaldri borða minna
og hafa meiri áhyggjur af útliti sínu
en aðrar konur. Sömuleiðis hafa
rannsóknir leitt í ljós að ungar
stúlkur eru óánægðari með líkama
sinn eftir að hafa horft á auglýs-
ingar með fyrirsætum undir með-
alþyngd, en þegar um er að ræða
auglýsingar með fólki í eðlilegum
líkamsstærðum.“
Hvert er hið leiðandi stef í þinni
heilsusálfræðiráðgjöf?
„Í mínum huga hefur heilsa lítið
með holdarfar að gera. Að vera
hraustur, geta gert það sem maður
vill og notað líkamann eins og mað-
ur vill, þegar maður vill – það er
heilsa. Þá er mjög mikilvægt að við
temjum okkur jákvætt sjálfstal.
Að mínu mati væri ráðlegt að for-
eldrar væru vakandi yfir því hvað
börn þeirra aðhafast á netinu, hverj-
um þau fylgja á fésbók, instagram
og twitter og uppfræddu þau um
heilbrigða líkamsímynd. Það er mik-
ilvægt að börn og unglingar geti
greint á milli þess hvað er heilbrigt
og hvað er glimmergerviveröld sem
við getum ekki, og eigum ekki, að
keppa við.“
Engin u-beygja
Heilsubók Röggu nagla, sem kom
út á síðasta ári; gekkstu lengi með
hana í maganum?
„Ég hef skrifað pistla um heilsu,
hreyfingu og mataræði í 10 ár og lét
loks tilleiðast að skrifa mína eigin
bók. Heilsubókin hefur fengið frá-
bærar viðtökur og ratað efst á met-
sölulista. Í nýlegri bókagagnrýni á
RÚV sagði Auður Haralds til dæmis
að bókin væri sérstaklega góð fyrir
þá sem vildu styrkja sjálfsmyndina,
því í henni væri hamrað á mikilvægi
jákvæðrar líkamsímyndar.
Markmiðið með bókinni var að
leggja áherslu á mikilvægi hug-
arfarsins, í stað þess að einblína á
hegðunarbreytingar eins og svo
margar lífsstílsbækur ganga út á.
Yfirskrift bókarinnar er að hugur
stjórnar hegðun og hegðun stjórnar
heilsu. Bókin fjallar með öðrum orð-
um ekki um það að taka u-beygju í
hegðun, heldur byrja á byrjuninni
og skoða hvað það er sem stjórnar
hegðuninni, nefnilega hugsanirnar.
Í bókinni útskýri ég hvernig við
getum lært inn á okkur sjálf og náð
að bremsa okkur af, áður en við föll-
um í gildrur, þannig að heilsan – rétt
mataræði og hreyfing – verði lang-
tímalífsstíll. Bókin inniheldur jafn-
framt fjölda girnilegra uppskrifta að
hollum og góðum mat og er full af
fróðleik um hráefni og matreiðslu.“
Nýtt frá Röggu „søm“
Ný verkefni í fæðingu, hjá Röggu
nagla?
„Ég mun halda áfram með mat-
reiðslunámskeið mín í samstarfi við
Nettó og NOW, bæði á Íslandi og í
Kaupmannahöfn. Sömuleiðis held ég
reglulega fyrirlestra í fyrirtækjum
og stofnunum í tengslum við efni
Heilsubókarinnar, þar sem skapast
hafa mjög áhugaverðar umræður.
Það hefur verið nefnt við mig hér í
Danmörku að gefa bókina út á
dönsku og ég hef gælt við þá hug-
mynd. Reyndar skrifa ég óhefð-
bundið mál, nota eigin nýyrði og sér-
stakar myndlíkingar og veit að það
yrði þrautin þyngri að þýða bókina.
En hver veit hvað árið 2016 ber í
skauti sér? Kannski verður það ein-
mitt árið sem Ragga „søm“ lætur að
sér kveða í danskri bókaútgáfu.“
https://ragganagli.wordpress.com
https://www.facebook.com/
RaggaNagli
beggo@mbl.is
Hugur stjórnar hegðun
Ragnhildur Þórðardóttir,
heilsusálfræðingur og
einkaþjálfari, er búsett í
Kaupmannahöfn þar sem
hún rekur sálfræðistofu og
veitir jafnframt sálfræði-
ráðgjöf á netinu. Bók henn-
ar, Heilsubók Röggu nagla,
hefur fengið mjög góðar
viðtökur en þar leggur hún
höfuðáherslu á breytt hug-
arfar í tengslum við mat og
lífsstíl.
Reynsla „Margra ára starfsreynsla og þekking mín af líkamsþjálfun nýtist mér mjög vel við ráðgjöf varðandi mataræði og hvernig hægt er að
breyta hugsunarhættinum og þróa með sér jákvæðara samband við mat,“ segir Ragnhildur Þórðardóttir, heilsusálfræðingur og einkaþjálfari.
Laxaborgarar
400 g roðlaust og beinhreinsað lax-
flak
1 rauð paprika
2 vorlaukar
1 msk. hökkuð fersk steinselja
½ msk. Himnesk hollusta Sædögg
(rósmarín)
Skerið flakið í bita og hendið í
matvinnsluvél þar til áferðin verður
farskennd. Skerið papriku og vor-
lauk smátt og bætið út í laxfarsið
ásamt kryddum, salti og pipar,
hakkið í 1 mínútu. Formið fjóra
borgara úr deiginu og steikið í 3-4
mínútur á hvorri hlið.
Rófufranskar
1 stór rófa
1 msk. ólífuolía
Himnesk hollusta Sædögg (rósm-
arín)
sjávarsalt og pipar
Stillið ofn á 220°C. Skerið rófuna
í strimla, hendið í plastpoka með
olíu og kryddum og hristið eins og
vindurinn. Skellið á ofnplötu og
bakið í 25 mínútur.
’Það hefur veriðnefnt við mig hér íDanmörku að gefa bók-ina út á dönsku.
hneiging til að tengja grannan lík-
ama og gott líkamlegt form við al-
menna velgengni í lífinu og um leið
félagslegt samþykki. Fjölmiðlar,
ekki síst samfélagsmiðlarnir, halda á
lofti myndum og frásögnum af fal-
legu, grönnu fólki. Unglingar með
ómótaða sjálfsmynd verða sér-
staklega fyrir neikvæðum áhrifum
og fá ranghugmyndir um hvað sé
eðlilegt og eftirsóknarvert. Lífið
snýst um „læk“ á myndir á fésbók
og þar með viðurkenningu frá jafn-
öldrum varðandi útlit og hegðun.
Þörfin fyrir samþykki annarra eykst
sífellt og sjálfsmynd margra ung-
linga mótast af því hve margir
„læka“. Þeir verða svo uppteknir af
því að lifa í samræmi við fyrirmyndir
á instagram eða fésbók að þeir
gleyma sínum eigin gildum og því
sem þeir hafa raunverulega gaman
af.“
Laxaborgari Góður með rófufrönskum.
Sími 555 2992 og 698 7999
Hátt hlutfall
Omega 3 fitusýra
Meiri virkni
Gott fyrir:
Maga- og þarmastarfsemi
Hjarta og æðar
Ónæmiskerfið
Kolesterol
Liðina
Læknar
mæla með
selaolíunni
Selaolían fæst í:
apótekum, Þín verslun Seljabraut,
heilsuhúsum, Fjarðarkaupum,
Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð
Selaolía
Óblönduð
– meiri virkni