Morgunblaðið - 02.01.2016, Blaðsíða 20
20 | MORGUNBLAÐIÐ
Fjöllin okkar 2016
24. jan Létt ganga frá Hafravatnsrétt - kynningarganga
31. jan Meðalfellsvatn hringur
6. feb Húshólmi hringleið - láglendisganga
20. feb Gullbringa hringleið
5. mars Reykjanes - raðganga 1 um Sveifluháls
19. mars Reykjanes - raðganga 2 um Sveifluháls
16. apríl Reykjanes - raðganga 3 um Sveifluháls
30. apríl Hvalvatn hringleið
21. maí Óvissuferð vorfagnaður
26. júní Jónsmessuganga - hringleið um Tindaskaga
6. ágúst Landmannalaugar - Hryggurinn milli gilja að Grænahrygg
27. ágúst Þórisjökull
17. sept Laufafell við Fjallabak
1. okt Tröllatindar Snæfellsnesi
Verð 43.000 kr fyrir verkefnið
Skráning er hafin á thordur@fjallavinir.is
Sjá nánar á www.fjallavinir.is og á fésbókinni Fjallavinir.is
„Ég var með einhvern kvíða yfir
þessu öllu saman og var oft að
spyrja mig þeirrar spurningar hvað
ég ætti að gera næst. Svo eina nótt-
ina á þessu tímabili dreymdi mig að
ég gæti verið nuddari og ákvað í
gamni að hlusta á það og skrá mig í
nuddnám. Ég ætlaði að sjá til hvort
mér þætti gaman og hvort mér þætti
þetta passa betur og þá klára námið
og ef ekki, myndi ég hætta eftir önn-
ina og finna eitthvað annað. En svo
fannst mér bara svo gaman að ég
hélt áfram og kláraði.“
Þörf fyrir slökun í samfélaginu
„Þetta er vinna í höndunum, hún
er listræn og þetta er heilbrigð-
istengt sem er mjög gott,“ útskýrir
Sara. „Svo fór ég að vinna við nudd
og fannst frábært að vinna sjálf-
stætt. Vinnan er svo gefandi og
skemmtileg en krefjandi. Það er
ekkert betra en að hjálpa fólki við
að finna meiri vellíðan og veita slök-
un. Þegar ég nudda þá líður mér
eins og ég sé að gera gagn fyrir
samfélagið. Mér þykir eitthvað svo
vænt um fólk þegar það er lagst á
nuddbekkinn.“
Sara segir að sér finnist vera mik-
il þörf fyrir nudd og meiri almenna
slökun og ró inn í samfélagið. „Það
er allt of mikið stress í gangi og allt
of margir viðurkenna það eins og
það sé eðlilegt og gott að ganga
fram af sér, þá er maður duglegur.
Ég er ekki sammála því. Ég er
ánægð með að vinna að þróun í hina
áttina. Það er kominn tími til að
hægja á og sjá hvert maður stefnir
og hvaða áhrif maður hefur á sjálfan
sig og umhverfið með gjörðum sín-
um, hugsunum og tilfinningum.“
Djúpt en rólegt nudd
Sara býður upp á heilsunudd sem
er sambland af nokkrum nudd-
formum. „Við heilsunuddarar lær-
um klassískt nudd, íþróttanudd,
heildrænt nudd, sogæðanudd, svæð-
anudd og margt fleira. Þessu er oft
blandað saman á ólíkan hátt eftir
nuddurum. Þess vegna eru engir
tveir heilsunuddarar eins. Hver og
einn nuddari þróar sína tækni út frá
þessum grunni,“ bætir hún við. „Ég
myndi segja að nuddið sem ég býð
uppá væri djúpt en rólegt. Það fer
samt eftir nuddþeganum hversu
djúpt nuddið verður. Hann verður
að segja til um sinn sársaukaþrösk-
uld til að nuddið verði sem best fyrir
hann. Svo er líka ólíkt eftir nudd-
þegum hvað þeim finnst vera slak-
andi. Sumum finnst grunnt nudd
vera meira slakandi meðan aðrir
finna fyrir pirringi ef nuddið er of
grunnt. Mörgum finnst dýptin veita
meiri slökun meðan hinum sem vilja
það grunna finnst of mikil vinna að
anda sig í gegnum djúpt nudd. Ég
vil aðlaga nuddið eins vel og ég get
að nuddþeganum og hans þörfum.
Minn ásetningur er að hjálpa fólki
við að ná slökun og losa um ým-
iskonar spennu og bólgur og ná
fram vellíðan. Ég vil að fólk fari með
ró í hjarta heim og leyfi líkamanum
að vinna í sjálfum sér eftir nuddið.“
Léttir á allri streitu
Sara segir nudd geta hjálpað fólki
með ýmislegt, svo sem bólgur í
vöðvum og vefjum. Nudd losi um
ýmiskonar spennu í líkamanum,
einnig í tilfinningalífinu.
„Nudd getur hjálpað til við að
létta þunglyndi ef viðkomandi er að
vinna í þeim málum. Það getur létt á
andlegri og líkamlegri streitu. Nudd
eykur blóðflæði og súrefnisflæði lík-
amans sem fær líkamann til þess að
heila sig sjálfur. Nudd hjálpar taug-
um að koma boðum áleiðis ef bólgur
og spenna þrengja að taugum.“
Sara bætir því við að fólk sem þjá-
ist af gigt eða ýmsum bólgu-
sjúkdómum hafi mjög gott af nuddi.
„Íþróttafólk þarf líka að fara í
nudd til að halda sér mjúku. Spenna
safnast auðveldlega upp þegar verið
er að vinna mikið með líkamanum
og það er mikilvægt að losa um hana
til að halda líkamanum í jafnvægi.
Íþróttanudd hentar vel fyrir
íþróttafólk.“
Sara segir ennfremur að kyrr-
setuvinna sé mjög spennu- og
bólgumyndandi. „Fólk sem vinnur
við tölvur eða önnur störf sem krefj-
ast mikillar kyrrsetu safnar auð-
veldlega í sig spennu. Nudd hjálpar
til við að losa um það. Ef bólgan er
orðin mikil borgar sig ekki að nudda
of djúpt. Gott væri að byrja á nuddi
sem væri mjúklegt og í grynnra lagi
og með tímanum væri hægt að
dýpka það þegar bólgurnar fara að
minnka. Spenntir vöðvar þurfa yf-
irleitt meiri þrýsting.“
Sogæðanuddið hreinsar kerfið
Fólk með mikinn bjúg hefur t.d.
gott af sogæðanuddi, að sögn Söru,
Morgunblaðið/Styrmir KáriUmhugsun „Það er allt of mikið stress í gangi og allt of margir viðurkenna það eins og það sé eðlilegt og gott að ganga fram af sér, þá er maður duglegur.
Ég er ekki sammála því,“ segir Sara. „Það er kominn tími til að hægja á og sjá hvert maður stefnir og hvaða áhrif maður hefur á sjálfan sig og umhverfið.“
É
g hef alltaf haft gaman af því
að vinna með höndunum. Ég
var mjög listræn sem barn
og er það í raun ennþá. Ég
hafði gaman af því að mála myndir,
smíða og föndra,“ segir Sara um að-
draganda þess að hún ákvað að ger-
ast heilsunuddari. „Ég var að klára
stúdent af lista- og hönnunarbraut
úr FG þegar ég þurfti að fara að
ákveða mig með framhaldið. Ég var
búin að finna það að ég vildi ekkert
endilega halda áfram í hönn-
unarnám í háskóla, ég var ekki
spennt fyrir tölvuvinnunni og hvert
námið stefndi. Ég var að spá í sál-
fræðinám líka á þeim tíma því mér
finnst heimspekin í henni svo
skemmtileg en ég var ekki viss um
hvort ég vildi vinna sem sálfræð-
ingur hvort eð er, þó ég vildi læra
um hana.“
Hún útskrifaðist um jólin 2009
með stúdentspróf og en vissi ekkert
hvað hún vildi og fannst ekkert
passa almennilega fyrir sig.
Við eigum öll skilið að fara í gott nudd
Í Hafnarfirðinum er að finna notalega, litla nuddstofu þar
sem Sara Kristófersdóttir býður upp á heilsunudd gegn
ýmsum lífstílstengdum kvillum. Hún nýtur starfsins sem
er ekki að undra því það vitjaði hennar í draumi.