Morgunblaðið - 02.01.2016, Qupperneq 25
Að margra mati er engin betri leið til að bæta þolið en að sippa.
Þó sippið virðist bráðeinfalt og auðvelt þá þarf ekki að hoppa svo oft
til að hjartað byrji að hamast og svitinn að perla á enninu. Best af öllu
er að sippið kallar ekki á flóknar græjur eða mikið pláss. Þarf bara að
finna hæfilega stóran gólfflöt, þar sem nógu hátt er til lofts, og svo
nægilega langt band af réttri þykkt og þyngd.
Nú hefur fyrirtækið Tangram fært sippubandið yfir á næsta stig
og búið til sannkallað snjall-sippuband.
Sippubandið talar við snjallsímann sem heldur utan um tölfræð-
ina og mælir árangurinn. Forritið sem fylgir sippubandinu á að
hjálpa til við að hvetja notandann til dáða og gefur „verðlaun“ þegar
ákveðnum þröskuldum er náð.
Allrasniðugast er að í bandinu sjálfu eru díóður sem blikka á hár-
réttum tíma þegar bandinu er sveiflað, svo að fyrir framan notandann
birtist, eins og í lausu lofti, teljari sem segir til um hversu oft hefur verið
hoppað.
Sippubandið frá Tangram er til sölu á store.tangramfactory.com og kost-
ar þar tæpa 90 dali. Má velja um nokkra liti og fimm lengdir.
ai@mbl.is
Er snjallsippuband hið
fullkomna æfingatæki?
MORGUNBLAÐIÐ | 25
Eitt heitasta líkamsræktar-
æðið í dag er sniðugu litlu
svamprúllurnar. Á það að vera
allra meina bót, og styrkja
ótrúlegustu vöðva, að leggja
rúlluna á gólfið og renna lík-
amanum á henni eftir kúnst-
arinnar reglum.
Þeir sem hafa haft áhyggjur
af að svamprúllan væri of ein-
falt æfingatæki geta núna
glaðst yfir því að komin er á
markaðinn hátækni-rúlla.
Græjan hefur fengið nafnið
Vyper og er framleidd af
Hyperice.
Galdurinn á bak við Vyper er
öflugur titrari sem hefur verið
komið fyrir í rúllunni miðji. Má
velja um þrjár hraðastillingar
og er titrarinn knúinn áfram af
rafhlöðu með tveggja tíma
hleðslu.
Á titringurinn að gera góða
rúllu enn betri, hjálpa til við að
nudda vöðvana og slaka.
Vyper fæst meðal annars á
Amazon.com og kostar þar
199 dali án sendingarkostn-
aðar og skatta.
ai@mbl.is
Konungur
rúllanna
Svamprúlla
sem titrar