Morgunblaðið - 15.01.2016, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.01.2016, Blaðsíða 13
Frumkvöðlarnir Kristján, Kjartan og Hörður segja snjallsímavæðinguna kærkomið tækifæri til að samtvinna tæknina við hefðbundið lestrarform og að lestur sé undirstaða allrar þekkingaröflunar. lestur ungmenna – bylta lestrar- umhverfi þeirra. Study Cake er spurningaleikur úr vinsælum barna- bókum. Þátttaka í leiknum kallar á að börnin hafi lesið bækurnar. Eftir lest- ur hvers kafla geta þau kíkt á símana sína, svarað spurningum sem reyna á lesskilninginn og fengið sýndarveru- leikastig í staðinn. Stigin safnast sam- an og verða að svokölluðum heilasell- um og síðan að raunheimaverðlaun- um. Til dæmis ísbíltúr, sundferð, kósí bíómyndakvöldi eða öðru skemmti- legu sem þeim hafði hugkvæmst að semja um við foreldra sína eða for- ráðamenn áður en leikar hófust. Með þessum hætti geta foreldrar eða afar og ömmur hvatt börnin til að lesa meira og börnin um leið bæði aukið lesskilning sinn og minni. Fyrir vikið verður lesturinn skemmtilegri en ella og nokkurs konar hvatakerfi í hönd- um foreldra,“ útskýra þeir félagar. Tenging við tæknina Þeir víkja að umræðum sem skapast hafa um hlutverk snjallsím- ans og hvernig látlaus skilaboð geti truflað bæði börn og fullorðna í dags- ins önn og amstri. Sérstaklega hafi yngri kynslóðinni verið legið á hálsi fyrir að eyða of miklum tíma í snjall- símanum. Facebook, Twitter eða Snapchat glepji hana frá þarfari verkum. „Í bókum eru engin „hash- tögg“ eða „retweet“ en það er þar sem við komum inn,“ eins og Kjartan sagði á fyrrnefndum kynningarfundi. Bara lestur upp á gamla mátann, en þó með beina tengingu við tækni nú- tímans. Snjallsíminn er enda ekki óvinurinn. „Snjallsímavæðingin er þvert á móti tækifæri til að samtvinna tæknina við hefðbundið lestrarform. Rót vandans er að krakkar lesa minna en nokkru sinni fyrr og eyða gríðarlega miklum tíma fyrir framan síma, spjaldtölvur og alls konar skjái. Lestur er undirstaða allrar þekkingaröflunar og því hagsmuna- mál fyrir alla. Okkur finnst því eðli- legra að nota tækniþróunina til þess að hjálpa ungmennum að bæta sig og læra meira. Með því að gera lest- urinn að hluta stafrænan verða bæk- ur margfalt áhugaverðari fyrir þau. Við sem samfélag þurfum að læra að nýta tæknina til þess að mæta yngri kynslóðinni á hennar forsendum,“ segja þeir. Í samstarfi við bókaútgáfur Í lok mánaðarins er í bígerð að þrjátíu barnabækur verði fáanlegar í Study Cake-smáforritinu og fjölgi ört þaðan í frá. Í fyrstu útgáfunni eru spurningapakkar úr nokkrum af þeim vinsælustu frá liðnu ári; Mömmu klikk eftir Gunnar Helga- son, Vísindabók Villa, Rökkur- hæðum, Stelpunum okkar eftir Ill- uga Jökulsson og Stráknum í kjólnum svo fáeinar séu nefndar. Study Cake er í samstarfi við átta bókaútgáfur og segja Kjartan, Hörð- ur og Kristján að þær sem og rithöf- undar sem þeir hafi kynnt framtakið fyrir hafi tekið því fagnandi. Yfirleitt eru þrjár spurningar fyrir hvern kafla bókarinnar, bæði huglægar og hlutlægar. „Spurning- arnar snúast ekki eingöngu um inni- hald kaflans, heldur eru sumar samdar til að hvetja börnin til sjálf- stæðrar hugsunar og um leið að mynda sér skoðun. Til dæmis eru þau spurð hvort þau væru sammála sögupersónunni ef þau væru í sömu aðstöðu og þar fram eftir götunum. Við slíkum spurningum eru engin rétt eða röng svör, en börnin fá samt stig fyrir að hafa myndað sér skoð- un.“ Sjálfir semja þeir spurningarn- ar ásamt um tíu manna teymi menntaskóla- og háskólanema, sem allir eru mjög áhugasamir um bók- menntir. Study Cake-smáforritið er bara fyrsta skrefið á verkefnalista þremenninganna. Þeir lofa ýmsum skemmtilegum nýjungum á næst- unni og hyggjast sækja á alþjóða- markað þegar fram líða stundir. Há- skólanámið kann því að frestast um sinn. Study Cake er þeirra hjartans mál, sem tekur allan þeirra tíma, orku og peninga. „Við ætlum að halda þróunar- vinnunni áfram og safna í reynslu- bankann,“ segja frumkvöðlarnir ungu. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2016  Study Cake er snjallsíma- forrit þar sem ætlað er að hvetja krakka til lestrar.  Börnin svara huglægum og hlutlægum spurningum úr uppáhaldsbókunum sínum.  Foreldrar geta veitt börn- unum verðlaun, heilasellur, fyrir góðan árangur.  Í Study Cake er hægt að kaupa vinsælustu barna- og unglingabækurnar og spurn- ingapakka. Nánari upplýsingar: studycake.is. Hvati til að lesa bækur SNJALLSÍMALEIKUR listahátíðin Ferskir vindar í Garði er haldin og listrænn stjórnandi er sem fyrr Mireya Samper. Hún segir mark- miðið að skapa lifandi umhverfi sem allir njóta góðs af, með nýstárlegum listaverkum og viðburðum. „Hér hef- ur myndast mikilvægt tengslanet milli erlendra og íslenskra lista- manna og við aukum fjölbreytileika menningarviðburða á Íslandi með há- tíðinni auk þess að efla íslenska myndlist.“ Veðrið, hafið, vindar og fuglar Nálægðin við hafið og hvítfyssandi öldur Atlantshafsins er mikil í þessu sjávarplássi á nyrsta odda Reykja- nessins. Vitarnir tveir við Garðskaga hafa verið innblástur fyrir listamenn- ina sem hafa tekið þátt í Ferskum vindum. Vitinn á líka sinn sess í mörgum verkanna í sýningarsalnum við skrifstofur sveitarfélagsins við Sunnubraut. Vindurinn, landslagið, veðrið, fuglanir og myrkrið eru einnig áberandi í verkunum. Eitt af því sem erlenda listafólkið hefur haft orð á að sé svo dýrmæt reynsla er nálægðin við lifandi náttúru. Og enn fjölgar verkunum í Listaverkagarði Garðs, sem er eitt af áhugaverðustu lista- verkunum sem þátttakendur skilja eftir samfélaginu til góða. Í grjót- hnullungana sem mynda skjólgarð er fjöldi lágmynda sem hoggnar hafa verið í jafnt á köldum vetrardögum og blíðum sumardögum. Í Listaverka- garðinum eru líka skúlptúrar. Síðustu sýningardaga listahátíð- arinnar, 16. og 17. janúar, hefst dag- skráin hefst kl. 14 í sýningarsalnum við Sunnubraut en síðan er haldið með rútu um bæinn með viðkomu þar sem listaverk og viðburði er að finna. Ókeypis er á alla listviðburði. Dag- skrá helgarinnar er á www.fresh- winds.com eða á Facebook, Fresh Winds in Garður. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Innblásturinn Vitarnir tveir við Garðskaga hafa frá upphafi verið mikill inn- blástur fyrir listamennina sem hafa tekið þátt í Ferskum vindum. SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT METSÖLULISTI EYMUNDSSON ÍSLENSKAR BÆKUR VIKAN 06.01.15 - 12.01.16 1 2 5 6 7 8 109 43 Tíminn minn - dagbók 2016 Björg Þórhallsdóttir Nóttin langa Stefán Máni Sjálfstætt fólk Halldór Laxness Ísl.-dönsk / dönsk-ísl. orðabók Halldóra Jónsdóttir Fram hjá Jill Alexander Essbaum Konan í blokkinni Jónína Leósdóttir Sogið Yrsa Sigurðardóttir Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags 2016 Dauðaslóðin Sara Blædel Almanak fyrir Ísland 2016

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.