Morgunblaðið - 15.01.2016, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 15.01.2016, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 15. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696 1. WOW: Of gott til að vera satt? 2. Alan Rickman látinn 3. Ekki kynlífsleikur heldur morð 4. Hvers vegna sofna karlmenn … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Hátíðin Ljósmyndadagar Íslands hófst í gær og stendur fram á sunnu- dag með sýningum og öðrum uppá- komum í söfnum á höfuðborgar- svæðinu. Tvær einkasýningar verða opnaðar klukkan 17 í dag í Gerðar- safni í Kópavogi. Katrín Elvarsdóttir sýnir ljósmyndaverkið „Margföld hamingja“ og kemur það samtímis út á bók. Myndirnar tók Katrín í Kína á árunum 2010 til 2014 og skapar í þeim persónulega frásögn með port- rettmyndum af eldra fólki og náttúru í manngerðu umhverfi. Á hinni sýn- ingunni, „Uppsprettum“, gefur að líta ljósmyndir sem Ingvar Högni Ragn- arsson tók á nokkrum vikum í mann- gerðum gróðurvinjum í Búkarest, höfuðborg Rúmeníu. Ingvar var þar í hópi fimm ungra norrænna ljósmynd- ara sem unnu að verkefnum í tengslum við umsókn Búkarest um að verða menningarborg Evrópu. Morgunblaðið/Einar Falur Horft til Búkarest og Kína á sýningum  Sýning verður opnuð í kvöld klukk- an 20 á verkum Sæmundar Þórs Helgasonar myndlistarmanns í D-sal Hafnarhússins, Listasafns Reykjavík- ur, en salurinn er vettvangur yngri listamanna. Sýningin nefnist ÁVÖXTUN %. Sæmundur skapar verkin út frá upplýs- ingum bankanna um bestu ávöxtun upp- hæðarinnar sem hann fékk frá safninu til að setja upp sýninguna. Sýning byggð á upp- lýsingum bankanna Á laugardag Suðaustan 5-13 m/s og snjókoma eða slydda með köflum um landið sunnan- og vestanvert en lægir og styttir upp eftir hádegi. Hiti um frostmark. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi suðaustanátt, 8-15 m/s á Suður- og Vesturlandi. Þykknar upp í kvöld og fer að snjóa og dregur úr frosti. Hægari vindur á Norður- og Austurlandi, bjart og áfram kalt. VEÐUR Línumaðurinn Vignir Svav- arsson var enn að jafna sig af magakveisu þegar Morg- unblaðið ræddi við hann í gær, en hann veiktist á hót- eli íslenska liðsins í Þýska- landi í vikunni. Hann vonast til að geta beitt sér af full- um krafti í kvöld og ekki veitir af í leiknum mikil- væga við Norðmenn. Er um að ræða fyrsta leik Íslands á EM í Póllandi og hefst hann klukkan 17.15. »1 Magakveisa herj- aði á Vigni „Ragnheiður hefur unnið hörðum höndum við að koma sér í leikform eftir að hún kom heim sem hefur endurspeglast í sífellt betri leik. Ragnheiður á eftir styrkjast meira þegar á tímabilið líður og við eigum eftir að sjá hana enn betri en hún hefur verið í síðustu leikjum,“ sagði Ari Gunnarsson, þjálfari Vals, meðal annars um miðherjann Ragnheiði Be- nónísdóttur sem er leikmaður um- ferðarinnar í Dominos-deildinni í körfubolta hjá Morg- unblaðinu. »4 Ragnheiður kemur til með að styrkjast meira Nýliðar Hattar á Egilsstöðum hafa ekki haft heppnina með sér í jöfnum leikjum í Dominos-deild karla í körfu- knattleik í vetur. Í gærkvöldi tapaði liðið eftir framlengingu, 71:81, þegar Austfirðingar fengu Grindvíkinga í heimsókn. Grindvíkingar eru nú fjór- um stigum fyrir ofan fallsæti sem og ÍR-ingar sem unnu afar mikilvægan sigur á FSu 106:72. »2-3 Erfið staða hjá FSu og Hetti eftir töp í gær ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is POWERtalk-deildin Fífa í Kópavogi fagnar 30 ára afmæli í dag og af því tilefni ætlar stjórn Fífu að gefa Kópavogsbæ nokkur gjafabréf fyrir einstaklinga sem bærinn telur að hafi gagn af þjálfun hjá Fífu til vors. POWERtalk eru alheimssamtök sem leggja áherslu á einstaklings- miðaða þjálfun í tjáningu. Innan POWERtalk International á Íslandi eru sjö deildir og eru um 20 manns í Fífu og þar af tveir karlar. Guðrún Barbara Tryggvadóttir, formaður afmælisnefndar Fífu og landsforseti 2011-2012, segir að í POWERtalk sé áhersla lögð á ræðu- mennsku og fundarsköp. „Æfingin snýst um venjulega sjálfsstyrkingu,“ segir hún. „Sumir byrjendur koma titrandi á beinunum og þora varla að segja nafnið sitt en standa vel fyrir sínu að þjálfun lokinni.“ Gaman og alvara Starfið er í föstum skorðum. Verk- efnum er útdeilt og á næsta fundi eru þeim gerð skil. Verkefnin geta verið einföld eins og til dæmis að lesa upp ljóð eða erindi um afmörkuð málefni. „Þetta er bæði gaman og al- vara,“ segir Guðrún og bendir á að öll námsgögn komi frá alþjóðastjórn- inni. „Í grasrótinni kennum við eldri félagarnir þeim yngri.“ Guðrún segir að ástæður fyrir þátttöku séu mismunandi. Sumir vilji vera ræðuskörungar, aðrir vilji fá þjálfun í að stjórna fundi. Sumir vilji bara fá æfingu í því að standa upp og segja sína skoðun. „Við erum með stjórn, þar sem ritarar læra að gera fundargerðir og gjaldkerar læra hvernig á að halda utan um peningamál, svo dæmi séu tekin,“ segir Guðrún. Mikið samband er á milli deilda. Reglulega eru haldnir fræðslufundir og námskeið og landsþing er árlega á dagskrá, en Ólöf Ásdís Ólafsdóttir, núverandi landsforseti, er einmitt í Fífu. Guðrún er á meðal fárra Ís- lendinga sem hafa tekið stjórnunar- próf hjá alheimssamtökunum, en þessir einstaklingar sjá um nám- skeiðin. Guðrún gekk í Fífu 1999. Hún seg- ir að nokkru áður hafi hún farið á námskeið hjá Dale Carnegie en hafi ekki haldið sér við og því vantað æf- inguna í að tala á mannamótum. „Eftir að ég hafði öðlast sjálfsstyrk- inguna á ný uppgötvaði ég hvað það er gaman að gefa til baka, að kenna öðrum, sjá þá blómstra og þora að standa með sjálfum sér. Það er það besta sem hægt er að fá út úr þess- um samtökum.“ Félagsmenn í Fífu hittast í safn- aðarheimili Hjallakirkju fyrsta og þriðja miðvikudagskvöld í hverjum mánuði á veturna, en afmælishófið verður kl. 18-20 í Bæjarlind 14-16 í dag. Gefandi að sjá aðra blómstra  POWERtalk- deildin Fífa í Kópavogi 30 ára Morgunblaðið/RAX Leiðtogi Guðrún Barbara Tryggvadóttir var landsforseti og er formaður afmælisnefndar Fífu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.