Morgunblaðið - 15.01.2016, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 15.01.2016, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2016 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Talsvert er um að fólk sem fékk greiðsluaðlögun þegar það var án vinnu eigi enn í greiðsluvanda þótt það hafi nú starf. Greiðslugeta þess hefur ekki aukist, eins og gert var ráð fyrir í samningi, til að standa undir hluta skulda sinna. Þetta segir Svanborg Sigmarsdótt- ir, upplýsingafulltrúi umboðsmanns skuldara (UMS). „Það er svolítið um að fólk komi aftur til okkar eft- ir að samningi um greiðsluaðlögun lýkur vegna þess að það nær ekki utan um eftir- stöðvar skulda, þrátt fyrir eftir- gjöf. Við upphaf samnings þess um greiðsluaðlögun var óvissa um framtíðartekjur og gert ráð fyrir að staðan yrði betri og tekjur hærri við lok samningstímans. Því náðist einungis að semja um 80- 90% eftirgjöf.“ Hefðu þurft fulla eftirgjöf „Við lok samningstímans hefur hins vegar komið í ljós að greiðsluget- an hefur ekki aukist og ljóst að við- komandi hefðu þurft fulla eftirgjöf. Það er enda ekki fyrir hendi greiðslu- geta til að borga af þessum 10-20% sem eftir standa. Þeir sem voru at- vinnulausir, þegar þeir fengu samn- ing um greiðsluaðlögun, voru með neikvæða greiðslugetu. Þ.e.a.s. tekjur þeirra dugðu ekki fyrir fram- færslu. Þótt viðkomandi séu komnir með vinnu við lok samningsins hafa tekjurnar ekki hækkað nógu mikið til að þeir geti staðið undir hækkandi framfærslukostnaði og þeirri greiðslubyrði af lánum sem gert var ráð fyrir í upphafi samnings,“ segir Svanborg. Um 55% samninga gera ráð fyrir 100% eftirgjöf samnings- krafna við lok samnings. Í öðrum er gert ráð fyrir hlutfallslegri eftirgjöf. Eins og sýnt er á grafi hér til hliðar er vinnslu lokið í 5.462 málum vegna greiðsluaðlögunar. Tölurnar miðast við stöðuna 1. janúar sl. Alls 66 slík mál voru þá í vinnslu hjá UMS og 120 mál í vinnslu hjá umsjónarmanni. Hafa rúmlega 2.900 umsækjendur fengið samþykktan samning vegna greiðsluaðlögunar. Annað graf sýnir fjárhagsaðstoð vegna skiptakostnaðar, en lög um slíka aðstoð tóku gildi 1. febrúar 2014. Hér er átt við kostnað við uppgjör bús þegar einstaklingur fer í gjald- þrot. Þriðja grafið sýnir fjölda samn- inga um greiðsluaðlögun. Þegar umsókn um greiðsluaðlögun hefur verið samþykkt fara umsækj- endur í greiðsluskjól og eru afborg- anir af lánum þá frystar. Umboðs- maður skuldara aðstoðar síðan umsækjendur við að semja um eftir- gjöf skulda í samræmi við greiðslu- getu. Námslán, meðlög, virðisauka- skattur og staðgreiðsla opinberra gjalda er hér undanskilið, en tekið er tillit til þessara skulda og greiðslna vegna þeirra í greiðsluaðlögunar- samningi. Það er forsenda fyrir eftir- gjöf skulda að umsækjendur standi við samninginn og mánaðarlegar greiðslur. Alls bárust 276 umsóknir um greiðsluaðlögun í fyrra. Svanborg segir fjölda umsókna um greiðsluaðlögun hafa náð hámarki. Vilja breyta samningi Hins vegar berist embættinu enn margar umsóknir um breytingar á samningi, eða 162 umsóknir í fyrra af samtals 571 umsókn frá stofnun emb- ættisins í ágúst 2010. „Fólk er að óska eftir breytingum á samningum sem eru í gildi en það getur af einhverjum ástæðum ekki staðið við að fullu. Þá aðstoðum við og athugum hvort hægt sé að breyta samningnum þannig að hægt sé að standa við hann. Ef ekkert er gert endar samningurinn í vanskilum og þá fær fólk ekki þá eftirgjöf sem ætti að koma í lok samnings.“ Leigjendur í greiðsluvanda eru nú áberandi hópur umsækjenda hjá embættinu. Tæplega 51% umsækj- enda hjá embættinu í fyrra voru leigj- endur, borið saman við 26,5% árið 2010. „Þetta er fólk sem er í erfiðleik- um, vegna þess að þegar búið er að taka tillit til leigugreiðslna er lítið eft- ir til framfærslu og til að borga aðrar skuldir,“ segir Svanborg. Á sama tímabili, 2010-2015, hefur umsækjendum í eigin fasteign fækk- að úr 62,8% í 28,5%. Launin lítið hærri en bæturnar Fjöldi samninga um greiðsluaðlögun 20152014201320122011 1.200 1.000 800 600 400 200 0 288 1.126 683 539 305 Greiðsluaðlögun einstaklinga Í vinnslu hjá UMS 66 Í vinnslu hjá umsjónarmanni 120 Vinnslu lokið 5.462 Þ.a. samningar 2.912 Þ.a. synjað 813 Þ.a. afturkallað 864 Þ.a. niðurfellt í kjölfar athugasemda umsjónarmanns 732 Þ.a. staðfestir nauðasamningar af dómstólum 51 Þ.a. nauðasamningum synjað af dómstólum 20 Þ.a. lokið án samninga 70 Alls 5.648 Fjárhagsaðstoð v/skiptakostnaðar Í vinnslu hjá UMS 53 Vinnslu lokið 590 Þ.a. samþykkt 287 Þ.a. greitt 229 Þ.a. synjað 303 Alls 643  Greiðslugeta margra sem voru án vinnu þegar þeir fóru í greiðsluaðlögun hefur lítið aukist þótt þeir hafi nú vinnu  Yfir 50% umsókna hjá Umboðsmanni skuldara eru nú frá leigjendum  Mesti skuldavandinn eftir hrunið nú að baki Svanborg Sigmarsdóttir Ármúla 26 | 108 Reykjavík | Sími 578 4400 | MÁ BJÓÐA ÞÉR Í SJÓNMÆLINGU? NÝ SENDING AF UMGJÖRÐUM Traust og góð þjónusta í 19 ár Hamraborg 10, Kópavogi – Sími 554 3200 Opið virka daga 9.30-18, laugardaga 11–14 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Í vikunni voru veittir styrkir úr Líknarsjóði Ögnu og Halldórs Jóns- sonar. Að þessu sinni var úthlutað úr sjóðnum í tilefni af aldarafmæli þeirra Ögnu og Halldórs og 60 ára afmæli Halldórs Jónssonar ehf. Fyrsta úthlutun úr sjóðnum fór fram árið 2010 og fram til þessa hafa 12 aðilar fengið samtals 40 milljónir í styrki. Barnaspítalinn og Hjartavernd hlutu 25 milljónir kr. hvort í styrk. Haft er eftir Ásgeiri Haraldssyni, prófessor í barnalækningum og yf- irlækni á Barnaspítala Hringsins, í fréttatilkynningu að þessi styrkur muni nýtast Barnaspítalanum afar vel. Styrkurinn verður notaður í kaup á mismunandi tækjum á ýms- ar deildir spítalans. Að sögn Vilmundar Guðnasonar, forstöðulæknis Hjartaverndar, hef- ur Hjartavernd á undanförnum ár- um unnið að gerð nýs áhættureikn- is sem sannreynt hefur verið að virkar og reiknar út líkurnar á því að hafa þegar merkjanlegan æða- sjúkdóm í hálsslagæðum, sem er talinn mælikvarði á æðakölkun sem er forsenda þess að fá hjartaáfall. Styrkveitingin mun nýtast Hjarta- vernd við áframhaldandi rann- sóknir með nýjum áhættureikni. Jón Grímsson, stjórnarmaður í Líknarsjóðnum, afhenti styrkina og veitti starfsfólk Barnaspítalans og Hjartaverndar þeim viðtöku. Styrktu Barnaspít- alann og Hjartavernd  60 ára afmæli Halldórs Jónssonar ehf. Afhending Starfsfólk Hjartaverndar og Barnaspítalans tók við styrkjunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.