Morgunblaðið - 15.01.2016, Page 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2016
Hugboð nefnist sýning þýsku
listakonunnar Moniku Grzymala
sem opnuð verður í A-sal Hafn-
arhússins í kvöld kl. 20.
„Þar mætast á einstæðan hátt
listrænt inngrip í arkitektúr safns-
ins og teikning eða umfangsmikið
línuspil sem unnið er úr lituðu
límbandi,“ segir m.a. í tilkynningu
frá Listasafni Reykjavíkur.
Þar kemur einnig fram að
Grzymala lýsi verkum sínum sem
rýmisteikningum. „En hún hefur
þróað einstaka aðferð við að
vinna þrívíðar teikningar. Til
verksins nýtir hún marga kíló-
metra af límbandi sem hún teygir
um rýmið.“
Samkvæmt upplýsingum frá
safninu er listakonan Monika
Grzymala fædd í Póllandi árið
1970 en hefur frá barnsaldri búið í
Þýskalandi. „Hún hefur undanfar-
inn áratug vakið athygli fyrir rým-
isteikningar sínar. Verk hennar
hafa verið sýnd í virtum sýning-
arsölum beggja vegna Atlantshafs,
þar á meðal í MoMA í New York,
í Judd Foundation í Marfa í Texas
og Theseus Temle í Vínarborg.“
Morgunblaðið/RAX
Sýnt víða Verk Moniku Grzymala hafa verið sýnd í virtum sýningarsölum
beggja vegna Atlantshafsins, þar á meðal í MoMA í New York.
Þrívíðar teikningar unn-
ar með lituðu límbandi
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Kvartett nefnist fyrsta sýning Lista-
safns Íslands á nýju ári sem opnuð
verður í dag. Þar getur að líta verk
eftir fjóra samtímalistamenn, þau
Gauthiers Hubert, Chantal Joffe,
Jockum Nordström og Tuma Magn-
ússon. „Öll vinna þau með sjálfan
manninn í brennidepli. Framsetning
verka þeirra snýst um listmiðilinn og
sögu hans að fornu og nýju og þau
ganga út frá ákveðnum sögulegum
forsendum en með afar ólíkum
hætti,“ segir m.a. í tilkynningu frá
safninu.
„Ég vinn yfirleitt ekki mikið með
líkamann, þótt það komi fyrir í stöku
verkum. Verkin hér eru öll tengd lík-
amanum nema hljóðverkið „Lækur“
sem ég sýni í anddyrinu,“ segir Tumi
og bendir á að hljóðið muni flæða
milli hæða. „Ég held að þetta verði
mjög skemmtileg sýning. Hún er
sett upp þannig að allir listamenn-
irnir verða í stóra salnum, þ.e. sal
eitt. Hinir listamennirnir þrír sýna
málverk, en ekki ég,“ segir Tumi sem
verður með innsetningar bæði í sal
eitt og tvö sem og í anddyrinu. „Í sal
tvö verð ég með vídeó-hljóðinnsetn-
ingu,“ segir Tumi sem sýnir verkið
„Fjölskyldumynd“ frá árinu 2000.
„Þar er um að ræða risastórt ljós-
myndaprentverk þar sem sjá má
ýmsa hluti úr andliti, svo sem nef og
eyra,“ segir Tumi og bendir á að
verkið nái á milli hæða þar sem það
er sjö metra hátt og fjögurra metra
breitt.
Hljóðverk unnið inn í rýmið
„Hljóðverkið í anddyrinu er nýtt
og unnið sérstaklega inn í sýningar-
rýmið. Vídeóverkið er frá 2013, en
þar er ég að vinna með rólegan sof-
andi andardrátt. Loks má nefna
minni prentverk sem birtast hér og
þar í rýminu,“ segir Tumi og vísar
þar í röð af teygðum hauskúpumynd-
um sem nefnast „Holbein“ og vísa til
málverksins „The Ambassadors“ eða
Sendiherranna sem þýski listmál-
arinn Hans Holbein málaði árið 1553.
„Á myndinni birtist teygð hauskúpa í
forgrunni myndarinnar. Ég vitna í
þetta verk Holbeins án þess að vinna
með minnið um forgengileika lífsins,
enda hefur merking hauskúpunnar
breyst í vestrænu samfélagi og er
orðin meira kitsch,“ segir Tumi sem
býr og starfar í Danmörku.
„Flest sumur dvel ég á Íslandi. Ég
var að kenna í Danmörku, en sá
samningur rann út 2011 og síðan þá
hef ég bara starfað að myndlist,“
segir Tumi sem gegndi prófessors-
stöðu í myndlist í sex ár við Akadem-
íuna í Kaupmannahöfn, en hafði áður
gegnt prófessorsstöðu í jafnlangan
tíma við Listaháskóla Íslands. „Það
fer mjög vel saman að kenna og
skapa, en hins vegar tekur kennslu-
staðan of mikinn tíma frá sköpun-
inni, ekki síst ef maður hefur umsjón
með heilli deild. Mér finnst gaman að
kenna, en þetta var komið gott. Mig
langaði alltaf svo mikið til að hafa
meiri tíma fyrir myndlistina,“ segir
Tumi sem kennir þó enn stöku nám-
skeið.
Þess má að lokum geta að sýningin
stendur til 1. maí nk.
Verk tengd líkamanum
Morgunblaðið/Eggert
Flæði „Ég held að þetta verði skemmtileg sýning,“ segir Tumi Magnússon.
„Gauthier Hubert tekur hug-
myndlæga afstöðu til mál-
verksins og spretta verk
hans af sagnfræðilegum at-
vikum sem bregða skýru
ljósi á starf og hugarheim
listamannsins í fortíð og nú-
tíð,“ segir í kynningartexta
frá Listasafni Íslands um
sýninguna Kvartett.
„Chantal Joffe gengur
gjarnan út frá sjálfri sér, sínu
nánasta umhverfi. Verk
hennar eru í senn nærgætin, innileg og nærgöngul.
Jockum Nordström teiknar, klippir og límir upp barnslegar myndir af
samfélagi eins og það birtist okkur gjarnan í sögulegum sápuóperum
um húsbændur og hjú. Undir liggur þó sori og siðleysi.“
„Sori og siðleysi“
SAMSÝNINGIN KVARTETT Í LISTASAFNI ÍSLANDS
Afstaða Listamaðurinn Gauthier Hubert tekur
hugmyndlæga afstöðu til málverksins.
Opnað verður
fyrir umsóknir
í myndlistarsjóð
15. janúar.
Myndlistarsjóður
Úthlutað verður tvisvar úr
sjóðnum árið 2016. Síðari
úthlutun er áætluð í ágúst.
Úr fyrri úthlutun verða veittir
Undirbúningsstyrkir og styrkir
til minni sýningarverkefna allt
að 500.000 kr.
Styrkir til stærri sýningar-
verkefna, útgáfu-/rannsóknar-
styrkir og aðrir styrkir allt
að 2.000.000 kr.
Umsóknarfrestur er til
miðnættis 1. mars 2016.
Upplýsingar um myndlistar-
sjóð, umsóknareyðublað,
úthlutunarreglur og leið-
beiningar er að finna á
vefsíðu myndlistarráðs.
www.myndlistarsjodur.is
Úthlutað verður í apríl.
Minningarsjóður um Jean-Pierre Jacquillat, fyrrum
aðalstjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands, mun
á þessu ári veita efnilegum tónlistarmanni styrk til
framhaldsnáms erlendis á skólaárinu 2016-2017.
Veittur er einn styrkur að upphæð 1.500.000 kr.
Umsóknir, með upplýsingum um námsferil
og framtíðaráform, sendist fyrir 1. mars nk.
til formanns sjóðsins:
Halldór Friðrik Þorsteinsson
Pósthólf 8444,
128 Reykjavík.
Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár frumsaminna
verka eða önnur gögn sem sýna hæfni umsækjenda.
Styrkur til
tónlistarnáms
MINNINGAR
SJÓÐUR
JPJ
Ím
y
n
d
u
n
a
ra
fl
/
M
-J
PJ
www.minningarsjodur-jpj.is