Víkurfréttir - 08.10.1992, Side 8
8
Víkurfréttir
8. október 1992
molar
grín ■ gagnrýnl m
■ vangaveltur ■
umsjón: emil páll*
Borgar Ólafsson...
Borgar Olafsson, veitinga-
maður á Boggabar, er í slæmum
málum, eftir yfirlýsingar sínar á
Brosinu, sem síðan voru end-
urbirtar í Suðurnesjafréttum. Þar
lýsir hann yfir furðu sinni á
fregnum af Wendy's-málinu og
vill fá að vita hver hafi kvartað
við Víkurfréttir, það hafi ekki
verið hann.
...í slœmu móli...
Vegna þessa er rétt að upplýsa
Borgar og aðra um ýmislegt og
árétta annað s.s. að það kom
aldrei fram hér í blaðinu að einn
eða neinn hefði kvartað. Hið
rétta er hins vegar að Borgar
óskaði eftir umfjöllun um málið,
hann lagði línurnar og svaraði
blaðamanni því sem hann þurfti.
Engu að síður fór hann strax í
vörn þegar fréttin birtist hér í
blaðinu. Sami leikurinn endurtók
sig þegar blaðamaður við annan
mann hitti hann strax að loknu
viðtalinu á Brosinu. Er ýmsilegt
sem hann hafði skýrt rangt frá
var borið á hann kenndi hann urn
minnisleysi um hvað hann hefði
sagt í útvarpið og viðurkenndi
einnig að frásögnin þar hafi verið
röng. Fer því ekkert á milli mála
að svona háttarlag kemur Borg-
ari í slæm ntál og það að eigin
sök.
... fótt er þó
Fátt er þó svo slæmt að ekki
fylgi því eitthvað gott. Það er t.d.
niðurstaðan úr Wendy's-málinu
að vegna skrifa í Víkurfréttum
hefur þarna orðið breyting á.
Með öðrum orðum máttur blaðs-
ins er ótvíræður og þetta hafa
aðrir fjölmiðlar séð unt að aug-
lýsa fyrir okkur og því erum við
þakklátir.
Hvar er jókvœðnin?...
Þeir eru margir sem hafa á-
hyggjur af eintómum fréttum af
kreppuástandi, atvinnuleysi o.fl.
héðan að sunnan. Sömu aðilar
segja að upphrópun um gjald-
þrotamet, sé ekki til að bæta böl-
sýnina, nóg sé af henni samt. Nú
sé því svo komið að ótti sé víða
farinn að grípa um sig og því
orðin þörf á að lífga aðeins upp
á tilveruna. Því birtum við hér
smágrín þó það sé kannski ekki
af Suðurnesjum.
...atvinnumólin...
Á alþjóðlegri ráðstefnu lýta-
lækna sem haldin var í New
York, hittust nokkrir af þeint
færustu á öldurhúsi, dauða-
drukknir, og fóru að rifja upp sín
mestu afrek. Sá fyrsti var ástr-
alskur lýtalæknir, sem skýrði
svo frá: „Við fengum til okkar
náunga sem hafði fest sig í
prentvél á vinnustað sínum á
síðasta ári og það eina sem var
heilt á honum var litli puttinn.
Lýtalæknaliðið okkar byggði
fyrst á hann nýja hendi og
handlegg, setti saman nýjan lík-
ama og að endingu, þegar hann
kom aftur á gamla vinnustaðinn
sinn, var hann svo afkastamikill
að fimm manns urðu at-
vinnulausir vegna hans.“
...lýtalœknarnir...
„Það er ekkert," bætti enskur
lýtalæknir við. „Við fengurn til
okkar verkamann sem hafði
lokast inni í kjarnorkuofni og
allt sem var eftir af honum var
hárið. Við byggðum nýja haus-
kúpu. nýjan búk og nýja lirni og
sendunt hann aftur í vinnuna
sína. Hann er svo afkastamikill
að núna hafa fimmtíu ntanns
misst vinnuna".
... og Davíð Oddsson
Islenski lýtalæknirinn varð að
koma með eitthvað betra. „Eg
var á rölti útivið eitt sinn þegar
ég gekk fram á nokkuð sterka
prumpu lykt. Eg náði henni í
ruslapoka og fór með á spít-
alann, þar sem ég sleppti henni
yfir vinnuborðið okkar og hóf-
umst við þegar handa. Fyrst
settum við rassgat um Itana,
byggðum síðan sitjanda um gat-
ið, settum iíkama á annan end-
ann og fætur á hinn. Hægt og
bítandi sköpuðum við mann sem
heitir Davíð Oddsson. Hann er
nú á góðri leið með að gera alla
í landinu atvinnulausa".
Getsagnir...
í síðustu MOLUM var bæj-
arstjórn Njarðvíkur gagnrýnd
fyrir ranga bókun um sjúkra-
húsmálið. Sú gagnrýni var þó
mjög hógvær miðað við það sem
Heilbrigðisráðherra hefur sent
frá sér vegna viðkomandi bók-
unar. Segir ráðhen'a að umrædd
bókun sé að verulegu leyti
byggð á getsögnum og flugu-
fréttum sem bæjarstjórn hafi
ekki leitað eftir staðfestingu á
áður en hún gerði samþykkt
sína. Síðan segir orðrétt:
...og flugufréttir...
„Að byggja mót-
mælasamþykkt á því að einhver
hafi heyrt að einungis eigi að
taka í notkun hluta rúma í nýju
hjúkrunarheimili í Grindavík og
að fresta eigi framkvæmdum utn
óákveðinn tíma eins og segir
orðrétt í samþykkt bæjarstjórn-
arinnar er merki um óvönduð
vinnubrögð því með einu símtali
til heilbrigðisráðuneytis hefði
bæjarstjórn getað fengið staðfest
að þessi flugufregn er ósönn og
að engu hafandi. Þá kannast
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra ekki við neina sam-
þykkt unt byggingu D-álmu
sjúkrahúss Keflavíkur sem hafi
verið brotin. Það er ekki til þess
fallið að auka tiltrú ráðuneytis til
sveitarfélags sem gerir jafn til-
hæfulausa samþykkt og hér er
um rætt."
...bœjarstjórnar
Njarðvíkur
Síðan tekur ráðherra fyrir
hvem lið á fætur öðrum sem
hann hrekur, en lokaorð hans unt
málið eru þessi: „Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra mót-
ntælir harðlega þeint vinnu-
brögðum, sem fram konta í
bókun bæjarstjórnar Njarðvíkur,
þar sem ekki er farið rétt nteð
eitt einasta efnisatriði. Ráðherra
hvetur bæjarstjórn-armenn á ný
til þess að afla sér upplýsinga
áður en þeir álykta því að svona
vinnubrögð eru bæjarstjórn
Njarðvíkur ekki sæmandi".
Sonja slœr í gegn
Þeir eru fáir sem eru léttlyndir
eftir að heilsan bilar og sjúkra-
húsvist kallar. I hinum stórgóðu
þáttum Omars Ragnarssonar á
Stöð 2 um spítalasögu, kynnt-
umst við tveimur Suðurnesja-
mönnum. Annar rétt sást og
heitir Rudolf Thorarensen. var
að vísu kallaður Adolf. Hin var
í einu aðalhlutverkanna og sló
sannarlega í gegn, Sonja
Cristensen heitir hún og bjargaði
hún nánast þáttargerðinni með
skemmtilegri framkomu.
Að skemma fyrir
Fréttir af hugsanlegri löndun
Þjóðverja í Keflavíkur- eða
Njarðvíkurhöfn hafa komist í
fjölmiðla nú, þrátt fyrir að þessi
umræða hafi verið í gangi frá því
í vor eða vetur. Þeir sem koma
málinu í fjölmiðla virðast hins
vegar ekki gera sér grein fyrir
viðkvæmni málsins og því að
þeir geta allt eins skemmt svo
fyrir að ntálið náist aldrei
nokkurn tímann í gegn. Fari svo
geta þeir státað sig af því að eiga
hlut í auknu atvinnuleysi. sem
kannnski hefði verið hægt að
afstýra ef þeir hefðu leyft að-
ilum málsins að vinna lengur að
því áður en þeir gerðu það op-
inbert.
Flugmóðurskipið...
Eins og fram kom í fréttum í
síðustu viku fékk Jón Gunnlaugs
GK 444 hluta af flugvélarflaki í
trollið út af Sandgerði í síðustu
viku. Gár-ungarnir í flotanunt
eru fljótir að gefa hlutunum nafn
og nú gengur skipið undir nafn-
inu „Flugmóðurskipið". Það
vakti einnig athygli að margir
tjölmiðlar skírðu skipið upp á
nýtt í síðustu viku og sögðu
skipið Heita Jón Gunnlaugsson
GK.
... og Steindórsplan
Þau eru rnörg fiskimiðin sem
heita hinum ýmsu nöfnum. Eitt
ágætt veiðisvæði skipti um nafn
á dögunum. Sagan segir að bátur
hafi verið kallaður uppi og hann
spurður hvar hann væri að veið-
um. Svarið var að hann væri
staddur á Steindórsplani. Stein-
dórsplan ntun vera þær slóðir
þar sent fiskiskipið Steindór
GK-101 strandaði undir Krýsu-
víkur-bjargi um árið. Það kom
Itins vegar babb í bátinn á dög-
unum þegar „rúntinum á Stein-
dórsplani" var lokað. en þá var
veiðisvæðinu lokað.
Blótt bann
Samkeppni skemmtistaðanna
tekur á sig ýmsar myndir og nær
jafnvel inná fjölmiðlana. Þannig
er óhætt að segja að Brosið haf-
ið ekki beint brosað framan í
aðstandendur og þátttakendur
Herrafyrirsætukeppni Suð-
urnesja í Edenborg sl. laug-
ardagskvöld. Engin umfjöllun
var um keppnina dagana fyrir
hana. Var haft eftir starfsmanni
á Brosinu að blátt bann hafi
verið sett á umfjöllun um
keppnina, þrátt fyrir að hér var
um sérstæðan atlturð í skemmt-
analífinu að ræða, svo sér-
stæðan að stærri fjölmiðlar eins
og Byigjan og Stöð 2 fjölluðu
um hana bæði fyrir og eftir. Var
m.a. sýnt frá keppninni í að-
alfréttatíma Stöðvar 2 á sunnu-
dagskvöldið.
Hermann rekstrar-
róðunautur
Flugufregnir berast um það
að Hermann Ragnarsson hafi
boðið bæjarstjórn Grindavíkur
að gerast tæknilegur rekst-
arráðunautur bæjarins varðandi
baðhúsið. Segir sagan að
Grindvíkingar vilji nú ráða
þennan mesta fjandmann sinn í
Bláa lónsmálinu til starfsins.
Takmarklega skarpir
Stjórnendur Sjúkrhússins og
Heilsugæslustöðvarinnar fengu
mikinn reiðilestur frá hendi
bæjarstjórans í Keflavík á fundi
bæjarstjórnar síðasta þriðjudag.
Var hann mjög óhress með það
tap sem nú er á rekstrinum og
það hvernig stjórnendur ætla sér
að bregðast við því. En þeirra
hugmyndir eru að loka síma-
vaktinni unt nætur og draga úr
sjúkraflutningaþjónustu. Verði
símanum lokað þurfa þeir sem
þurfa á neyðarþjónustu að halda
að leita upp í blöðum hvaða
læknar séu á vakt og hvaða
síntanúmer þeir hafi. Taldi bæj-
arstjóri að nær hefði verið að
semja við Brunavarnir sem er
með sólarhringsvakt að annast
símann yfir nóttina. Voru lýs-
ingarorð eins og að stjórnendur
væru takmarklega skarpir notuð
til að lýsa því hvernig stjórn-
endur SK og HSS virðast vera.
Meira um það síðar.
Bankaróðsmenn
ó ferðinni
Bankaráðsmenn Landsbanka
Islands ntun ferðast um Suð-
urnesin í dag og á morgun og
kynna sér þau fyrirtæki sent eru
í rekstri hjá bankanum. Segir
sagan að þeir komi einnig við í
Fjölbrautaskólanum og gefi gjöf
þar og síðan endi ferðalagið
með blaðamannafundi og hófi á
morgun.
Kvennafundur í
bœjarstjórn
800. fundur bæjarstjórnar
Keflavíkur var haldinn á þriðju-
dag. Fundurinn sem varð einn sá
lengsti í sögu bæjarins, eða í
fimm og hálfa klukkustund var
merkilegur m.a. fyrir að konur
voru þar í hreinum meirihluta,
auk þess sent ein kvennana
Ingibjörg Magnúsdóttir sat nú
sinn fyrsta bæjarstjórnarfund.
Aðar konur er sátu fundinn voru
Drífa Sigfúsdóttir. Jónína Guð-
mundsdóttir, Björk Guðjóns-
dóttir og Anna Margrét Guð-
mundsdóttir.
Aðalfundur
KFK
verður haldinn nk. miðvikudag 14.
október í íþróttavallarhúsi Keflavíkur
við Hringbraut kl. 20.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Knattspyrnufélag Keflavíkur
TIL i'OLU
Mikið breyttur
TOYOTA LANDCRUISER
GX Turbo Diesel '88.
Ekinn 94 þús.
EINN EIGANDI.
í toppstandi.
2.400.000,-
BILAKRINGLAN
Grófin 8 - Sími 14690