Morgunblaðið - 27.02.2016, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 27.02.2016, Qupperneq 1
Bjó í sömugötu ogBreivik Spinnurglæpavef Åsne Seierstad fær loffyrir bók sína umfjöldamorðingjannAnders BehringBreivik. Hún segisttrúa á staðreyndir, efeitthvað sé skilið eftir ískugga og myrkri fariorðrómurinn af staðog samsæris-kenningarnar. 14 28. FEBRÚAR 2016SUNNUDAGUR Hálsinn er viðkvæmur Næsta verkefnileikstjórans Bald-vins Z er gerðspennuþátta þarsem barnsráner gru Sjúkraþjálfari segir teygjur áhálsi ekki gera neinum gott 32 Tvítugurum áttrættHlaupársbörn sem eiga afmæli á mánudag segjast ánægðmeð þennan einstaka dag þrátt fyrir að geta aðeins fagnaðfæðingu sinni á fjögurra ára fresti 18 í for- nni 52 L A U G A R D A G U R 2 7. F E B R Ú A R 2 0 1 6 Stofnað 1913  48. tölublað  104. árgangur  Íslenskur byggingariðnaður, skipulagsmál og mannvirkjagerð Laugardalshöll 3.–6. mars Stórsýningin Verk og vit 2016 Misstu ekki af glæsilegri sýningu! PO RT HÖ NN UN www.verkogvit.is KRISTÍN OG ÞRÁÐURINN Í LISTINNI ÓPERAN DON GIOVANNI Í HÖRPU FRUMSÝNING 47MANNSLÍKAMINN 10 Slátrun er að komast í fullan gang í laxasláturhúsi Arnarlax hf. á Bíldudal. Sláturhúsið er það fyrsta hérlendis sem byggt er upp að norskri fyrirmynd þar sem laxinn er fluttur lifandi úr sjókvíum í land. Auk þess er notaður búnaður til að kæla laxinn strax niður, með aðferðum svonefndrar ofur- kælingar. Laxinum er dælt úr sjókvínni í tanka brunnbáts. Mikill atgangur er þegar þrengt er að fiskinum svo hann rati í rörið, eins og sést á mynd- inni. Laxinn er geymdur yfir nótt í bátnum og slátrað morguninn eftir. Afurðirnar fara samdægurs með flutningabíl áleiðis á markaði. »18 Slátrun hafin í nýtísku laxasláturhúsi á Bíldudal Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Sýður og kraumar í kvínni Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fjárfestar áforma nokkurra millj- arða króna fjárfestingu í hótelum í Hveragerði á næstu árum. Gangi áformin eftir munu Hvergerðingar, sem eru um 2.400 talsins, geta hýst að minnsta kosti 800 næturgesti. Eigendur Hótels Arkar eru að endurnýja innviði á hótelinu og íhuga að byggja við það álmu með 60 herbergjum. Með því yrðu alls 145 herbergi á Hótel Örk. Tvö sumur orðin vel bókuð Jakob Arnarson, hótelstjóri á Hótel Örk, segir að í fyrsta sinn á þessum árstíma séu tvö sumur bók- uð fram í tímann. Nær allt árið sé orðið vel bókað á hótelinu. Jóhann Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Hótel Cabin og rekstrarfélags- ins sem rekur Hótel Örk, segir Suðurstrandarveg hafa breytt miklu fyrir reksturinn í Hveragerði, sem sé í mörgum tilvikum orðin fyrsti og síðasti áfangastaður ferðamanna. Höfða til efnafólks Skammt frá Hótel Örk eru aðrir fjárfestar að undirbúa byggingu um 100 herbergja hótels og heilsulindar á lóð sem er við hlið heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands. Sú breyting hefur orðið í hönnunarferlinu að búið er að teikna lúxusíbúðir fyrir efnaða ferðamenn sem munu hafa laugar út af fyrir sig. Mun heilsuhótelið koma til viðbót- ar fyrirhuguðu 150 herbergja lúxus- hóteli og baðlóni við Skíðaskálann í Hveradölum, vestur af Hveragerði. Sigríður Helga Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Hótel Hjarðar- bóls, segir stíganda í eftirspurn eftir gistingu. Af þeim sökum sé í undir- búningi að stækka hótelið. »4 Milljarðar í hótelherbergi í Hveragerði  Fjárfestar áforma fjölgun gistirýma  Tvö heilsutengd hótel eru í pípunum  Hópur sem Jó- hannes Stefáns- son veitinga- maður, kenndur við Múlakaffi, og Jón Axel Ólafs- son útvarps- maður eru hluti af hefur uppi áform um að opna háloftaveit- ingastað á Klambratúni í sumar. Hefur hópurinn tryggt sér leyfi til þess að opna staðinn, sem þekktur er undir vörumerkinu Dinner in the Sky og á rætur að rekja til Belgíu. Að sögn Jóns Axels er verkefnið í ferli í borgarkerfinu þar sem tilheyrandi leyfi þurfa að fást áður en hægt er að hefja rekst- ur. Sambærilegir staðir eru í 53 borgum um allan heim. Gestir eru festir með beltum og hífðir upp í allt að 45 metra hæð. »6 Vilja hífa gesti með krana í 45 m hæð Í París Dinner in the Sky er í 53 borgum.  Stóll sem húsgagnahönnuðurinn Hjalti Geir Kristjánsson teiknaði árið 1963 er nú framleiddur í 170 eintökum fyrir nýtt íslenskt hótel sem rís á svokölluðum Hljóma- lindarreit í maí. Hótelið rís einmitt við hlið skrif- stofu Hjalta Geirs við Laugaveg, á sama reit og faðir hans, Kristján Siggeirsson, rak um árabil eigin húsgagnaverslun og framleiðslu. Stólarnir fyrir hótelið eru fram- leiddir hérlendis í húsgagnavinnu- stofunni Grein á Vatnsleysuströnd. „Það er alltaf verið að reyna að fá þá sem standa í framkvæmdum til að nota íslenskt,“ segir Hjalti Geir, sem lítur á þetta sem hvatn- ingu fyrir alla íslenska hönnun og segir ánægjulegt að hönnunin standist tímans tönn. »Sunnudagur 20 Íslenskur stóll frá sjöunda áratugnum á nýju hóteli Stóll Hönnun Hjalta er frá árinu 1963. Þingvallanefnd hefur hafnað beiðni eldri íslenskra hjóna um að fá að selja sumarbústað sem þau eiga í landi Kárastaða á Þingvöllum til bandarískra hjóna. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins gerðu bandarísku hjónin tilboð í bústaðinn sem hljóð- aði upp á nálægt 35 milljónum króna. Ástæða synjunar Þingvallanefnd- ar var sú, samkvæmt því sem Sig- rún Magnúsdóttir, umhverfisráð- herra og formaður Þingvalla- nefndar, segir í samtali við Morgun- blaðið, að bandarísku hjónin búa ekki á Evrópska efnahagssvæðinu, auk þess sem það er yfirlýst stefna Þingvallanefnd- ar að fækka sumarbústöðum innan þjóðgarðs- ins. Nefndin heimilar aðeins að bústaðir séu seldir ættingjum, eða renni til erf- ingja. Nefndin hefur ekki fjármagn til þess að nýta sér forkaupsrétt í öll- um tilvikum. Nefndin vill standa vörð um þennan helgistað þjóðar- innar. »16 Fá ekki að selja út- lendingum bústað  Þingvallanefnd hafnaði beiðninni Þingvellir eru helgur staður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.