Morgunblaðið - 27.02.2016, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016
U
M
H
VE
RF
ISV
I‹URKENNIN
G
2015
umhverfis- og
auðlindaráðuneytið
Kuðungurinn 2015
Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum
um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári er þess
verðugt að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2015.
Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni.
Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.
Tillögur skulu berast umhverfis- og auðlindaráðuneytinu eigi síðar en
miðvikudaginn 23. mars nk. merktar „Kuðungurinn“ á netfangið postur@uar.is
eða með pósti í umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.
Nánari upplýsingar er að finna á www.uar.is/kudungurinn
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Marco Rubio, öldungadeildar-
þingmaður frá Flórída, gerði harða
hríð að auðkýfingnum Donald Trump
í sjónvarpskappræðum fimm fram-
bjóðenda í forkosningum bandarískra
repúblikana í Texas í fyrrakvöld.
Rubio gagnrýndi m.a. viðskiptahætti
auðkýfingsins og sakaði hann um
hræsni í deilunni um ólöglega inn-
flytjendur. Trump lét þó engan bil-
bug á sér finna og virðist hafa staðist
atlögu Rubio, að mati margra stjórn-
málaskýrenda.
„Vitið þið hvað Donald Trump væri
núna hefði hann ekki erft 200 millj-
ónir dollara? Að selja úr á Manhatt-
an,“ sagði Marco Rubio í einni af
rimmum keppinautanna tveggja.
„Ég tók eina milljón og breytti
henni í 10 milljarða dollara,“ svaraði
Trump sem hefur lagt mikið upp úr
sigrum sínum í viðskiptum og lofað að
koma Bandaríkjunum á sigurbraut.
Réð ólöglega innflytjendur
Rubio gagnrýndi stefnu Trumps í
innflytjendamálum, m.a. loforð hans
um að reisa múr við landamærin að
Mexíkó og flytja milljónir ólöglegra
innflytjenda frá Rómönsku Ameríku
úr landi. Rubio sagði að Trump hefði
eitt sinn stutt breytingar á lögum til
að gera óskráðum innflytjendum
kleift að fá ríkisborgararétt í Banda-
ríkjunum. Hann gagnrýndi einnig
Trump fyrir að hafa ráðið „verulegan
fjölda manna frá öðrum löndum í
störf sem Bandaríkjamenn hefðu get-
að fengið“ og minnti á að auð-
kýfingurinn var dæmdur til að greiða
sekt fyrir að ráða 200 ólöglega inn-
flytjendur frá Póllandi þegar Trump-
turninn á Manhattan var reistur á ní-
unda áratug aldarinnar sem leið. „Ég
hef ráðið tugi þúsunda manna,“ sagði
þá Trump. „Þú hefur ekki ráðið einn
einasta mann, lygari.“
Ted Cruz, öldungadeildarþing-
maður frá Texas, réðst einnig snarp-
lega gegn Trump, sagði hann koma
úr röðum frjálslyndra Bandaríkja-
manna þótt hann sæktist nú eftir at-
kvæðum íhaldssamra repúblikana í
forkosningunum. Cruz gagnrýndi
Trump fyrir að hafa styrkt demó-
krata með fjárframlögum, þ. á m.
Hillary Clinton, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra, sem er líkleg til að
verða forsetaefni demókrata. „Við
getum ekki sigrað í kosningunum í
nóvember með forsetaefni sem er
sammála Hillary Clinton og getur
ekki sigrað hana í kappræðum og í
kosningunum,“ sagði Cruz. Trump
svaraði fullum hálsi og sagði að Cruz
hefði getið sér orð fyrir að vera verst
þokkaði þingmaður öldungadeildar-
innar. „Þér semur ekki við neinn,“
sagði hann. „Þú hefur ekki fengið
stuðning eins einasta manns í öld-
ungadeildinni og þú vinnur með þess-
um mönnum. Þú ættir að skammast
þín!“ sagði hann.
Trump skírskotaði til þess að
margir þingmenn og ríkisstjórar úr
röðum repúblikana telja Cruz vera of
íhaldssaman og einstrengingslegan í
samfélagsmálum til að eiga mögu-
leika á að sigra Clinton ef hún verður
forsetaefni demókrata. Margir þeirra
styðja nú Rubio og telja hann eina
frambjóðandann sem eigi möguleika
á að sigra Trump í forkosningunum
og síðan forsetaefni demókrata í
kosningunum í nóvember.
Rubio var gagnrýndur fyrir að tala
oft eins og vélmenni í fyrri kapp-
ræðum, endurtaka sömu þaulæfðu
setningarnar aftur og aftur, en var
miklu beinskeyttari í kappræðunum í
fyrrakvöld. Margir stjórnmálaskýr-
endur eru þó efins um að atlaga hans
að Trump hafi mikil áhrif í forkosn-
ingunum á þriðjudaginn kemur, 1.
mars, stærsta deginum í kosninga-
baráttunni.
Efast um að atlagan að Trump dugi
Rubio og Cruz gerðu harða hríð að Trump fyrir mikilvæga lotu í forkosningum repúblikana
Trump sakaður um hræsni í innflytjendamálum Gagnrýndur fyrir fjárframlög til demókrata
Heimild: realclearpolitics, The Green Papers
Alabama
C
C
C
P C
C
26 1693 38
60 5037 40
116 42
37
109 49
42 43
252 155
117 76
76 58
79
Fjöldi
kjörmanna
Forkosning
Kjörfundir
Kjördæma-
fundir
Texas Arkansas
1. mars
PP
P
P
P
P
P
P
P
Oklahoma
Tennessee
Georgía
Virginía
28
10 C
C
Bandaríska
Samóa
Alaska
Vermont
Massachusetts
Colorado
Minnesota
Stóri dagurinn nálgast
Ríki þar sem
þegar hefur
verið kosið
Kosið 1. mars
2.382
1.017 661
Lágmarksfjöldi til að ná kjöri 1.237
2.4724.763
51 51
4 6
17 17
81
Hillary
Clinton
Marco
Rubio
Donald
Trump
Bernie
Sanders
John
Kasich
Ted
Cruz
DEMÓKRATAR REPÚBLIKANAR
xx
Heildarfjöldi
kjörmanna
Kjörmenn kosnir
1. mars
Fjöldi kjör-
manna sem
frambjóðendur
hafa fengið
Aldur: 68 ára 74 64 63 44 45 69
Ben
Carson
29
Wyoming
AFP
Hörð rimma Marco Rubio, Donald Trump og Ted Cruz í kappræðum.
Stórir dagar framundan
» Á þriðjudaginn kemur verð-
ur kosið í þrettán ríkjum sem
eru með alls 661 af 2.472 kjör-
mönnum sem velja forsetaefni
repúblikana formlega.
» Rúmlega 300 kjörmenn
verða síðan kjörnir 5. og 8.
mars.
» Meira en 350 kjörmenn
verða valdir 15. mars, á næst-
stærsta deginum í baráttunni.
» Frá og með þeim degi verður
sú breyting að kjörmönnum
hvers ríkis er ekki lengur út-
hlutað í hlutfalli við at-
kvæðafjölda frambjóðenda,
heldur fær fylgismesti fram-
bjóðandinn alla kjörmennina.
Robert Mugabe, forseti Simbabve,
hefur gefið Afríkusambandinu 300
kýr í von um að gera því kleift að
vera óháð stuðningi ríkja utan Afr-
íku. Forsetinn afhenti gjöfina form-
lega á fundi með Erastus Mwencha,
varaformanni Afríkusambandsins.
Kýrnar eru þó enn geymdar í litlum
bæ norðan við höfuðborgina
Harare. Formaður utanríkis-
nefndar þingsins í Simbabve sagði
að Mugabe hefði lofað gjöfinni í
fyrra þegar hann gegndi for-
mennsku í Afríkusambandinu.
Mugabe er 92 ára og hefur verið
einráður í landi sínu í 36 ár.
SIMBABVE
Mugabe gefur Afríkusambandinu 300 kýr