Morgunblaðið - 27.02.2016, Side 4

Morgunblaðið - 27.02.2016, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016 KONUNGLEG SKEMMTUN „Fáránlega skemmtileg og snjöll ... Dásamleg lítil bók. Lesið hana. “ Þorgeir Tryggvason, gagnrýnandi Kiljunnar Hveragerðis, fengust þær upplýs- ingar að aðalskipulagi hefði verið breytt „til að undirbúa jarðveginn, þannig að allt sé tiltækt þegar menn fara að teikna hús“. „Það eru komin frumdrög að útliti og skipulagi húss- ins,“ segir Guðmundur og bendir á að vinna við deiliskipulag eigi eftir að fara fram. Raunhæft sé að því ferli verði lokið í byrjun næsta árs. Hér fyrir ofan má sjá yfirlit yfir hótel í Hveragerði. Samantektin er lausleg og er byggð á auglýsingum á vefjunum booking.com og hotels.- com. Skal tekið fram að hér er ein- göngu miðað við hótel og gististaði sem eru skráðir í Hveragerði. Á vefnum booking.com eru til dæmis tugir gististaða skráðir í nágrenn- inu. Þá er hér látið ógert að fjalla um uppbyggingu hótela og gististaða á Selfossi. Má þar nefna að unnið er að fjölgun herbergja á Hótel Selfossi um 40 og verða þau alls um 140. Ingi Þór Jónsson, markaðsstjóri Heilsustofnunar NLFÍ, segir málið í vinnslu. Unnið sé að hönnun hótels og heilsulindar og mótun hug- myndafræðinnar að baki þjónust- unni sem þar verður veitt. „Náttúrulækningafélag Íslands vinnur ötullega að því að hefja upp- byggingu á heilsutengdri ferðaþjón- ustu, til hliðar við heilsustofnunina í Hveragerði. Það verður byggt á vandaðri þjónustu fyrir skilgreinda heilsuferðamenn.“ Bæta við lúxusíbúðum „Sú breyting hefur orðið í hönn- unarferlinu að nú er t.a.m. gert ráð fyrir rúmgóðum og vel búnum íbúð- um með spa. Það er ákveðinn mark- hópur sem vill vera út af fyrir sig í lúxusaðstöðu. Slíkar íbúðir voru ekki í upphaflegum teikningum.“ Ingi Þór segir heilsutengda ferða- þjónustu í sókn. Fyrst og fremst sé horft til Bandaríkja- og Evrópu- markaðar. Um allan heim sé fólk í auknum mæli að huga að heilsu- samlegum lífsstíl. Það vilji tengja saman upplifun, ferðalög og heilsu- þjónustu. „Heilsutengd ferðaþjón- usta skiptist í lækningaþjónustu og vellíðunarþjónustu. Það er enginn að blanda þessu tvennu saman á Ís- landi. Við munum hins vegar gera það,“ segir Ingi Þór. 800 munu geta gist í Hveragerði  Áformað er að bæta við 60 herbergjum á Hótel Örk í Hveragerði  Einnig í undirbúningi að reisa 100 herbergja heilsuhótel á lóð NLFÍ  Með þessum viðbótum yrðu 380 hótelherbergi í Hveragerði Morgunblaðið/Árni Sæberg Hótel Örk á sumardegi Á þessari loftmynd frá ágúst 2013 má sjá að nóg pláss er fyrir nýja álmu. Tölvuteikning/Tark arkitektar/Birt með leyfi Nýtt útlit Unnið er að því að endurnýja móttökuna á Hótel Örk. Tölvuteikning/Tark arkitektar/Birt með leyfi Hver Restaurant Svona mun nýi veitingastaðurinn á Hótel Örk líta út. Hótelherbergi í Hveragerði *Sagt rúma 8 gesti. Hér er það umreiknað í fjögur herbergi. **Sagt rúma 6 gesti. ***Sagt rúma 4 gesti. Heimildir: Talsmenn félaganna, vefsíður hótelanna, bókunarvefurinn booking.com. Fjöldi herbergja Hótel Örk eftir stækkun (nú eru 85 herbergi) 145 Hugmynd að hóteli á lóð við NLFÍ 100 Hótel Eldhestar 26 Hjarðarból Guesthouse 24 Frost og funi hótel 21 Hótel Hlíð 21 Frumskógar Guesthouse 9 Gljúfurbústaðir 8 Iceland’s Guesthouse 8 Brúarhvammur 3* 4 Birkimörk Apartments** 3 Ás Guesthouse 3 Varmi Guesthouse Apartments 2 Klukka Apartment*** 2 Guesthouse Inga 2 Samtals 378 Fjöldi gesta miðað við tvo í herbergi 756 Sigríður Helga Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Hót- els Hjarðarbóls, segir hótelið geta hýst allt að 64 gesti í 24 herbergjum. Þau séu dreifð um gömlu úti- húsin. Hótelið er mitt á milli Hveragerðis og Selfoss og við rætur Ingólfsfjalls. Reksturinn hófst árið 2012 og segir Sigríður Helga að eftirspurnin sé vaxandi. Hugmyndir séu um að fjölga herbergjum á hót- elinu. Þau áform séu á teikniborðinu. „Mínir helstu viðskiptavinir eru erlendir ferðamenn og erlendir skólahópar, mest breskir skólahópar,“ segir Sigríð- ur Helga sem telur skólahópana sækja í sveitina. Íhuga stækkun á Hjarðarbóli ERLENDIR SKÓLAHÓPAR SÆKJA Í SVEITINA Sigríður Helga Sveinsdóttir BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hótelherbergjum í Hveragerði gæti fjölgað um 160 á næstu misserum ef áform fjárfesta ganga eftir. Með þeim yrðu hátt í 400 hótelherbergi í Hveragerði og næturgestirnir farnir að nálgast 800 á háannatíma. Annars vegar eru hugmyndir um að byggja nýja álmu við Hótel Örk í Hveragerði. Rætt hefur verið um 60 herbergi, en með þeim yrðu alls 145 herbergi á hótelinu. Jakob Arnarson, hótelstjóri á Hótel Örk, segir enga ákvörðun hafa verið tekna um framkvæmdir. „Við erum að endurnýja móttökuna og ætlum að opna nýjan og glæsilegan veitingastað, Hver Restaurant. Við ætlum að leggja áherslu á hráefni úr nágrenninu,“ segir Jakob. Spurður um eftirspurnina eftir gistingu á hótelinu segir Jakob að þegar sé orðið vel bókað sumrin 2016 og 17. Síðustu mánuði hafi hann orðið var við þá breytingu að bókað sé lengra fram í tímann. „Stærstu kaupendurnir eru farnir að reyna að tryggja sér herbergi lengra fram í tímann. Það hefur líka orðið mikil aukning yfir veturinn. Tímabilið frá febrúar og út október er orðið vel bókað. Desember er líka ágætur, enda erum við sterkir í jóla- hlaðborðum. Við höfum ekki yfir neinu að kvarta nú orðið.“ Suðurstrandarvegur hjálpar Rekstrarfélagið Cabin ehf. á reksturinn á Hótel Örk, Hótel Cabin og Hótel Kletti. Jóhann Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Hótel Cabin, segir Suðurstrandarveginn hafa hjálpað mikið til við rekstur Hótel Arkar. „Við höfum rekið Hótel Örk frá 2004. Fyrstu árin gekk okkur ekki jafn vel að selja sumarið eins og mörgum öðrum hótelum. Við vorum það nálægt Reykjavík, sem var gjarnan fyrsti dvalarstaður hópa, að það hentaði ekki að taka næstu nótt í Hveragerði. Með tilkomu Suður- strandarvegar hefur fyrsta nóttin, og jafnvel sú síðasta, verið tekin hjá okkur. Þá er ekki stoppað í Reykja- vík. Það var upphafið að auknum viðskiptum á sumrin. Við það bætist aukin umferð ferðamanna. Það hjálpar að við höfum tvö vinsæl hótel í Reykjavík. Við getum því boðið upp á pakka fyrir gesti,“ segir Jóhann. Hins vegar eru hugmyndir um 100 herbergja heilsuhótel á lóð Náttúru- lækningafélags Íslands (NLFÍ). Hjá Guðmundi F. Baldurssyni, skipulags- og byggingarfulltrúa Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra, segir mikilvægt að Íslendingar sem sjáv- arútvegsþjóð haldi þeim rétti til streitu að nýta alla nytjastofna, þar á meðal hvali, á meðan það sé gert með sjálfbærum og hagkvæmum hætti. „Það er auðvitað þjóðhagslegt tap að missa af þessum tekjum sem út- flutningur á hvalaafurðum hefur gefið okkur og auðvitað er það einn- ig tekjutap þeirra sem hafa unnið að hvalveiðum og vinnslu hjá Hval hf. bæði fyrir einstaklinga og sam- félög,“ sagði Sig- urður Ingi. „Það er auðvitað mjög mikilvægt fyrir okkur sem sjáv- arútvegsþjóð að við höfum verið að nýta tvær hvalategundir með sjálfbærum hætti. Við höfum nýtt innan við 1% af þeim algjör- lega í anda og skipulagi allra al- þjóðasáttmála. Það er mikilvægt fyr- ir okkur að halda þeim rétti okkar til streitu að nýta alla nytjastofna, á meðan við gerum það með sjálfbær- um og hagkvæmum hætti,“ sagði hann. Spurður hvort hann teldi að gert yrði tímabundið hlé á stórhvala- veiðum, eða hvort þeim þætti í út- gerðarsögu Íslendinga væri lokið: „Það er auðvitað ljóst að meðan við- skiptaaðferðir Japana eru með þeim hætti sem raun ber vitni, þá hef ég fullan skilning á því að Hvalur hf. sé að gefast upp á þessum viðskiptum. En ef það verður breyting þar á, er væntanlega ekkert því til fyrirstöðu að þessi starfsemi haldi áfram á nýj- an leik,“ sagði Sigurður Ingi. Hann kveðst telja mikilvægt að þessum rétti til hvalveiða sé viðhaldið, m.a. til þess að tryggja að ákveðnu jafn- vægi í hafinu sé viðhaldið. Réttur til að nýta alla nytja- stofna á Íslandsmiðum  Kveðst hafa skilning á því að Hvalur hf. hætti hvalveiðum Sigurður Ingi Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.