Morgunblaðið - 27.02.2016, Page 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016
✝ Halldór KarlHalldórsson
fæddist á Borg-
arfirði eystra 5. jan-
úar 1937. Hann and-
aðist á
Sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri 16. febrúar
2016.
Foreldrar hans
voru Halldór Ás-
grímsson alþing-
ismaður og kaup-
félagsstjóri, f. 17. apríl 1896, d. 1.
desember 1973, og Anna Guðný
Guðmundsdóttir, kennari og
skólastjóri, f. 7. desember 1895, d.
20. nóvember 1978. Hann fluttist
með fjölskyldu sinni til Vopna-
fjarðar þriggja ára gamall og ólst
þar upp. Bræður Halldórs eru
Árni Björgvin, f. 17. október 1922,
d. 31. mars 2000, Ásgrímur Helgi,
f. 7. febrúar 1925, d. 28. mars
1996, Ingi Björn, f. 7. desember
1929, d. 22. júní 2009 og Guð-
mundur Þórir, f. 10. ágúst 1932.
Halldór kvæntist 10. október
1958 Sjöfn Aðalsteinsdóttur hús-
móður, f. 10. október 1935, d. 10.
mars 1999. Hún var dóttir Að-
alsteins Jóhannssonar járnsmiðs,
f. 8. desember 1910, d. 8. apríl
1987, og Maríu Davíðsdóttur
1993. c) Bjarney Anna, f. 1999.
Sambýliskona frá 1991 Anna
Guðlaug Ásgeirsdóttir, f. 1942.
Halldór og Anna slitu samvistir.
Halldór stundaði nám í Barna-
og unglingaskóla Vopnafjarðar og
lauk námi þaðan árið 1952, var
síðan við nám á Laugum í Reykja-
dal og við Samvinnuskólann á Bif-
röst árin 1956-1958.
Hann vann ýmis störf samhliða
námi en hóf störf hjá Sambandinu
árið 1958.
Árið 1961 flutti Halldór ásamt
fjölskyldu sinni til Hafnar í Horna-
firði og starfaði þar hjá Kaup-
félaginu árin 1961-1964. Árið 1964
flutti fjölskyldan til Vopnafjarðar
þar sem Halldór tók við starfi
kaupfélagsstjóra hjá Kaupfélagi
Vopnfirðinga. Því starfi gegndi
hann til ársins 1979 en flutti þá til
Reykjavíkur og starfaði hjá Sam-
bandinu og síðar Olíufélaginu árin
1979 til starfsloka árið 2004.
Halldór var félagsmálamaður
og var m.a. fyrsti formaður nem-
endafélags Samvinnuskólans á
Bifröst. Hann starfaði í flugmód-
elklúbbi á Höfn, var hvatamaður
að stofnun Lionsklúbbs Vopna-
fjarðar sem og Hestamanna-
félagsins Glófaxa á Vopnafirði og
stofnfélagi í báðum félögunum.
Halldór flutti aftur til Vopna-
fjarðar árið 2007 og bjó þar til
æviloka.
Útför Halldórs fer fram frá
Vopnafjarðarkirkju í dag, 27.
febrúar 2016, og hefst athöfnin kl.
14.
verkakonu, f. 8. sept-
ember 1905, d. 27.
maí 1987. Halldór og
Sjöfn skildu árið
1985.
Börn þeirra eru 1.
María Hrönn, f. 1953,
maki Árni Árnason,
f. 1951, börn a) María
Sjöfn, f. 1972, börn,
Helga Björk f. 1991
og Aron Árni, f.
1996. b) Agnar Karl,
f. 1982, maki Ingibjörg María
Konráðsdóttir, f. 1995, börn Árni
Rúnar, Hrannar Kári og óskírður
drengur. 2. Aðalsteinn Arnar, f.
1958, maki Helga Björnsdóttir, f.
1962, börn a) Daníel Örn, f. 1982,
maki Dögg Júlíusdóttir, f. 1979,
barn, Bragi Fannar, f. 2004. b)
Björn Metúsalem, f. 1989. 3. Anna
Halldóra, f. 1963, maki Magnús
Ólafur Kristjánsson, f. 1968, börn
a) Eva, f. 1981, maki Fjölnir Guð-
mannsson, f. 1981. b) Kristján
Steinn, f. 1990, maki Petrea Krist-
ín Vignisdóttir, f. 1995. c) Baldvin
Kári, f. 1997. d) Hafsteinn Ingi, f.
1999. 4) Þór Halldórsson, f. 1964,
maki Helga Vilborg Sigjónsdóttir,
f. 1968, börn a) Þórgunnur, f.
1991, maki Þórður Sævar Jóns-
son, f. 1989. b) Halldór Karl, f.
Maggi? Sæll vinur, Dóri! Þann-
ig hófust gjarnan símtölin frá
Halldóri tengdaföður mínum, á
vinarkveðju. Þegar ég lít til baka
finnst mér það bæði notalegt og
viðeigandi því að fyrir mér var
hann einmitt það, hann var vinur
minn. Það var gott að eiga vináttu
Halldórs og samskiptin við hann
voru öðru fremur skemmtileg og
hressandi. Hann var húmoristi,
hafði gaman af góðum sögum og
hló oft mikið og hátt. Nokkrar
uppáhaldssögur rifjaði hann upp
reglulega og hló alltaf jafnmikið í
hvert skipti. Í fjölskyldunni eru
ýmis orðatiltæki tengd slíkum
sögum og þarf þá ekki nema eina
litla setningu til að kalla fram
hlátur en þær eru þá flestum öðr-
um algerlega óskiljanlegar. Til-
vitnunin í baðvörðinn sem spurði
svo eftirminnilega; „E I bú ba?“er
sígilt dæmi um slíkt. En það út-
leggst sem eruð þið búnir í baði.
Við Halldór áttum samleið um
langan tíma og reyndist hann mér
ávallt vel. Hann var ákveðinn og
sjálfstæður í allri framgöngu og
fór sínar eigin leiðir. Ég minnist
sambúðar okkar við hann í
Hraunbænum, notalegra sam-
verustunda í sumarhúsinu á Hús-
um og skemmtilegra heimsókna
hans til okkar Önnu í gegnum tíð-
ina. Hann var lestrarhestur og
unnandi góðra bóka, fróður um
menn og málefni og sérstaklega
um sögu Vopnafjarðar, sem hann
sýndi mikinn áhuga. Honum þótti
vænt um æskustöðvar sínar og
eftir áratuga búsetu í Reykjavík
tók hann sig upp og flutti aftur ár-
ið 2007 á Vopnafjörð, þar sem
hann bjó síðustu æviárin. Hann
var grúskari og hafði gaman af að
glugga í gömul skjöl, bækur og
ekki síst myndir. Það var bæði
fróðlegt og skemmtilegt að sitja
með honum yfir slíku. Á seinni ár-
um safnaði hann saman á tölvu-
tækt form miklum fjölda ljós-
mynda, einkum frá Vopnafirði og
af Vopnfirðingum. Með því lagði
hann grunn að stóru myndasafni
sem síðan hefur vaxið og dafnað
bæði í umsjá hans og annarra.
Eins og gengur og gerist í erli
hversdagsins leið misjafnlega
langt á milli þess sem við hittumst
eða töluðumst við. Síðasta árið
fjölgaði símtölunum hins vegar
nokkuð þó að þau væru jafnan
stutt. Alltaf var notalegt að heyra
í mínum manni og sérstaklega
gaman þegar hann tók sínar víð-
frægu hlátursrokur. Þessi símtöl
eru mér dýrmæt minning nú þeg-
ar Halldór hefur kvatt okkur eftir
stutta en nokkuð snarpa baráttu
við veikindi. Ég vil að leiðarlokum
þakka Halldóri fyrir allt sem
hann var mér og mínum. Ég
minnist hans með þakklæti og
hlýju. Blessuð sé minning hans.
Magnús Kristjánsson.
Dóri frændi skipaði alltaf sér-
stakan sess í hjarta mínu. Hann
var yngsti bróðir pabba, hress og
skemmtilegur. Þegar við hitt-
umst eða töluðum saman í síma
fór ég alltaf burt með gleði í
hjarta af þeim fundum. Hann var
alla tíð órjúfanlega tengdur
Vopnafirði, þar ólst hann upp, var
kaupfélagsstjóri um nær tveggja
áratuga skeið og þangað flutti
hann aftur til að búa þegar Elli
kerling fór að sækja að. Á Vopna-
firði lágu leiðir okkar oft saman.
Fyrst hjá afa og ömmu í Kaup-
vangi þegar ég var barn og hann
unglingur enn í foreldrahúsum.
Við hétum sama nafni en vor-
um samt ekki nafnar, í þeirri
merkingu sem mér lærðist að
skilja það orð, því hann hét eftir
Halldóru föðursystur sinni, ég í
höfuðið á afa, föður hans. Nú
hygg ég að fáir leggi svo þröngt
skilgreinda merkingu í hugtakið
nafnar. Þau systkinin Halldór og
Halldóra hétu svo aftur hvort eft-
ir sínum vini langafa og lang-
ömmu. Þannig voru nöfn rakin
hér í eina tíð, til uppruna síns.
Allir voru þeir bræðurnir fimm
fæddir á Borgafirði eystra, allir
fluttu þeir með foreldrum sínum
til Vopnafjarðar. Þá var Dóri
frændi þriggja ára en karl faðir
minn átján ára kominn til náms í
MA. Allir mótuðust þeir bræður á
þessum tveimur stöðum, en þó
með mismunandi hætti. Faðir
minn var alltaf Borgfirðingur í
hjarta sér, en Dóri Vopnfirðing-
ur. Þegar fjölskyldan í Kaupvangi
rifjaði upp minningar frá Borg-
arfirði og gengið var út frá að þær
væru sameiginlegar þeim öllum
þurfti Dóri oft að minna á að hann
var einungis á þriðja árinu þegar
fjölskyldan flutti þaðan.
Í mínum huga tengdist Dóri
alltaf tveimur höfuðskepnum, há-
karli og hestum. Bréf sem hann
fékk sem polli frá stórabróður á
MA var stílað á Hákarl Halldórs-
son, það vakti mikla lukku. Hann
hljóp með það um þorpið og sýndi
öllum að hann væri Hákarl. Eitt
sinn hringdi ég í Dóra til að fá ráð
um hvernig ég gæti kennt börn-
um að njóta hákarls. Hann sagði
það einfalt, sitja með þeim fyrir
framan sjónvarpið og lauma upp í
þau einum og einum bita þegar
þau göptu af undrun. Nú eru börn
hætt að undrast. Móttökur þegar
farið var til Vopnafarðar í heim-
sókn hjá Dóra og Sjöfn voru höfð-
inglegar. Hápunkturinn var boð
um útreiðartúr og þegar heim var
komið var boðið upp á hákarl,
súrt slátur og brennivíni. Þá var
gaman að lifa.
Það var líkt með þeim bræðr-
um Dóra og pabba að þeir voru
menn gleðinnar. Dóri vildi njóta
líðandi stundar, njóta þess að líða
vel í góðra vina hópi. Hann naut
sín best þegar hann hafði fólk í
kringum sig. Þá geislaði af Dóra,
þessum hressa, heillandi og
skemmtilega manni með sína
góðu nærveru.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Ég votta börnunum hans Dóra
frænda, þeim Hrönn, Aðalsteini
Önnu Halldóru og Þór sem og
tengdabörnum, barnabörnum og
barnabarnabörnum innilega sam-
úð mína við fráfall góðs drengs.
Halldór Árnason.
Nú er horfinn á braut einn af
mínum elstu vinum á Vopnafirði,
Halldór Karl Halldórsson. Við
kynntumst stuttu eftir að ég flutti
til Vopnafjarðar og vinátta okkar
entist þar til Halldór hvarf af
þessum heimi. Það teygðist nokk-
uð á vináttuböndunum um ára-
tuga skeið en við tengdum böndin
betur þegar hann flutti aftur
heim á Vopnafjörð, þar sem hann
valdi að eyða ævikvöldinu.
Halldór Karl eyddi bernskuár-
unum í Kaupvangi og bjó þar í
foreldrahúsum til fullorðinsára.
Meiri hluta starfsævi bjó hann
fjarri Vopnafirði, en flutti aftur
heim þegar Kaupvangur hafði
risið úr öskustónni og hafði aftur
tekið við hlutverki reisulegasta
húss Vopnfirðinga. Halldór naut
þess að líta inn í kaffisopa eftir að
ég hóf rekstur kaffihúss í Kaup-
vangi. Í suðausturhorninu, þar
sem áður var búðarborð KVV,
nutum við Þórunn Egilsdóttir
margra ánægjustunda með Dóra.
Fyrir sjö árum settum við þrjú,
ásamt Ara Hallgrímssyni heitn-
um, í gang Myndagrúsk, merki-
lega söfnun mynda og upplýsinga
um myndefni sem varðar Vopna-
fjörð. Sl. sjö ár hefur hópur eldri
Vopnfirðinga hist hvern miðviku-
dag yfir vetrartímann og skoðað
myndir á tjaldi. Halldór Karl átti í
upphafi myndagrunn í tölvu með
nær þrjú þúsund myndum.
Myndasafnið, sem nú innheldur
tólf þúsund myndir, ber nafn
hans og er frábær gjöf til varð-
veislu menningarverðmæta eins
og var hans markmið með starf-
seminni.
Við sem vorum félagar Dóra í
Myndagrúski eigum eftir að
minnast hlátursrokanna þegar
hann sagði frá prakkarastrikum
og rófnaþjófum fyrri tíma. Með
honum hverfur hluti menningar-
arfs okkar samfélags sem ekki
tókst að bjarga áður en vinur okk-
ar varð hallur af heimi. Með þess-
um orðum viljum við Þórður
þakka Halldóri Karli vináttu lið-
inna ára.
Fyrir hönd félaganna í Mynda-
grúski sendum við börnum hans,
barnabörnum og bróður Halldórs
innilegar samúðarkveðjur. Bless-
uð sé minning góðs vinar.
Ágústa Þorkelsdóttir.
Halldór Karl
Halldórsson
Fleiri minningargreinar
um Halldór K. Halldórsson
bíða birtingar og munu birt-
ast í blaðinu næstu daga.
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Snævar Jón Andrésson
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti
undirbúnings og framkvæmd
útfarar ásamt vinnu við dánar-
bússkiptin. Við þjónum með
virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við þökkum innilega hlýhug og vináttu
vegna andláts og útfarar
RAGNHILDAR HELGADÓTTUR,
fyrrverandi alþingismanns og
ráðherra.
.
Þórunn Þórsdóttir,
Kristín Þórsdóttir, Þórir Óskarsson,
Inga Þórsdóttir, Stefán Einarsson,
Helgi Þórsson, Guðrún Eyjólfsdóttir,
barnabörn, makar þeirra og börn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför
LÚTHERS STEINARS
KRISTJÁNSSONAR,
Jöldugróf 2.
Guð blessi ykkur öll.
.
Elín Ásta Káradóttir,
Anna Dóra Lúthersdóttir, Hreinn Líndal Jóhannsson,
Torfi Lúthersson,
Margrét Lára Lúthersdóttir,
Kári Steinar Lúthersson, Berglind Dögg Jónsdóttir,
Sigurjón Lúthersson, Fjóla Steingrímsdóttir,
Hildur Helga Lúthersdóttir, Þórhallur Hákonarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför okkar ástkæra föður, sonar,
bróður, mágs og frænda,
HILMARS ARNAR BRAGASONAR,
Brúnastöðum 54.
.
Hildur Hilmarsdóttir, Birgir Hilmarsson,
Jóhanna S. Guðmundsdóttir,
Bragi Hansson, Rose Marie Christiansen,
Petra Bragadóttir, Eggert Árni Gíslason,
Ólöf Björk Bragadóttir, Sigurður Ingólfsson
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð vegna andláts og
útfarar okkar ástkæru móður, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
GUÐLAUGAR KRISTJÁNSDÓTTUR
frá Skaftárdal,
Rauðalæk 33,
sem lést á hjúkrunardeild HSA Seyðisfirði þann 25. janúar.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunardeildar HSA Seyðisfirði
fyrir umhyggju og umönnun.
.
Kristján Þór Sigurðsson, Sigrún Jónsdóttir,
Kristín Guðveig Sigurðardóttir, Cecil Haraldsson,
Anna Breiðfjörð Sigurðardóttir, Erlendur Bogason,
Þorsteinn Sigurðsson, Kristjana Bjarnadóttir,
Þorbjörg Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
HULDU REBEKKU
GUÐMUNDSDÓTTUR,
Fannborg 8, Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á
hjúkrunarheimilinu Sólvangi, Hafnarfirði, fyrir einstaka alúð
og umönnun.
.
Kolbrún Þórðardóttir Bjarni Harðarson
Bjarni Þórðarson Guðrún I. Guðmundsdóttir
Arnþór Þórðarson Ósk Ingvarsdóttir
Hulda Sigurlína Þórðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og auðsýnda
samúð við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
SÓLVEIGAR KOLBEINSDÓTTUR,
Drápuhlíð 19.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hlíðabæ og
Skógarbæ.
.
Kolbeinn Pálsson, Berglind Dina Vistra,
Málfríður Pálsdóttir, Björgólfur Jóhannsson,
Steinunn Pálsdóttir, Paul Greaves,
ömmudætur og langömmudóttir.