Morgunblaðið - 26.02.2016, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 26.02.2016, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 2 6. F E B R Ú A R 2 0 1 6 Stofnað 1913  47. tölublað  104. árgangur  ÁRLEG MATARMENN- INGARHÁTÍÐ FINNSK ÞJÓÐLAGASVEIT MÖRG GÆFUSPOR TIL BETRI AND- LEGRAR HEILSU TÓNLEIKAR 30 LEYST ÚR LÆÐINGI 10FOOD & FUN 24 SÍÐUR Baldur Arnarson baldura@mbl.is Dæmi eru um að leigusalar fari nú fram á tugprósenta hækkanir á leigu atvinnuhúsnæðis á höfuðborgar- svæðinu. Húsaleiga vegur þungt í rekstri verslana og gæti þessi þróun því komið fram í verðlagi á næstunni. Verslunareigandi sem ræddi við Morgunblaðið í trausti nafnleyndar sagði eitt stærsta fasteignafélag landsins nú fara fram á 40-50% hækkun á húsaleigu. Slík hækkun sé þungt högg fyrir reksturinn. Jóhann Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Hótel Cabin, segist á síðustu tveimur árum hafa fengið mörg til- boð á mánuði um leigu á húsnæði undir hótelrekstur á höfuðborgar- svæðinu. Leigan sé hins vegar svo há að reksturinn muni ekki bera sig. Magnús Árni Skúlason, sérfræð- ingur hjá Reykjavík Economics, seg- ir hátt kaupverð fasteignafélaga á eignum í miðborginni skapa þrýsting á hækkun húsaleigu. Hækkun verð- lags sé hættumerki í ferðaþjónustu. Konráð S. Guðjónsson, sérfræð- ingur hjá greiningardeild Arion banka, segir vísbendingar um að ör vöxtur ferðaþjónustu geti haft ruðn- ingsáhrif í hagkerfinu. Mikil fjárfest- ing í hótelum, fólksfjölgun, vaxandi kaupmáttur og hækkandi fasteigna- verð sé efniviður í þenslu. Hækkun íbúðaverðs geti orðið meiri en ella. Upp um tugi prósenta  Kaupmaður segir stórt fasteignafélag krefjast 40-50% hækkunar á húsaleigu  Sérfræðingur segir hátt kaupverð fasteigna skapa þrýsting á hækkun leigunnar MÞróun leiguverðs »4 Nýta sér ákvæðin » Magnús Árni Skúlason hag- fræðingur segir fasteignafélög nýta sér endurskoðunarákvæði í húsaleigusamningum. » Félögin horfi til þessara ákvæða, og möguleikans til að hækka húsaleiguna, þegar þau kaupa fasteignir. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., segir að fyrirtækinu verði að óbreyttu lokað í sumar og engin starfsemi verði í Hvalstöðinni í Hvalfirði. Hann hafi gefist upp í bar- áttunni við skrifræði embættis- manna í Japan. Fluttar voru út hvalaafurðir til Japans frá Íslandi á árunum 2010 til 2015 fyrir um 7,7 milljarða króna, samkvæmt bráðabirgðatölum Hag- stofunnar. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir í samtali við Morgunblaðið í dag að fyrirhuguð lokun í Hvalfirði sé sorg- artíðindi. Gunnar Bragi Sveinsson utanrík- isráðherra segir að þrátt fyrir til- raunir ráðuneytisins hafi ekki tekist að þoka málum Hvals hf. áleiðis í Japan. »12 Hval hf. lokað í sumar Morgunblaðið/Júlíus Hvalskip Hvalur 8 og 9 við Ægis- garð í Reykjavíkurhöfn. Hinn árlegi bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda verður opn- aður klukkan tíu í dag, en líkt og undanfarin ár verður hann staðsettur í Laugardal, nánar tiltekið undir vesturstúku Laugardalsvallar. Starfsfólki bókasafna og fleirum var boðið að heimsækja markaðinn í gær. Fjöldi fólks þáði boðið, lagði leið sína að bókaflóðinu, þar sem á gaf að líta bækur um hin fjölbreytilegustu málefni, og gerði þar góð kaup. Bókaflóð við þjóðarleikvanginn í Laugardal Morgunblaðið/Árni Sæberg  Viðskiptabankarnir þrír, Arion banki, Íslandsbanki og Landsbank- inn, högnuðust samtals um 106,7 milljarða króna á síðasta ári. Þetta er 25,5 milljörðum króna meiri hagnaður en árið 2014 þegar bank- arnir högnuðust um 81,2 milljarða króna samanlagt. Heildarhagnaður bankanna var 64,6 milljarðar árið 2013. Landsbankinn birti í gær afkomu sína fyrir árið 2015 og var hagnaður bankans 36,5 milljarðar króna. Fyrr í vikunni greindi Íslandsbanki frá 20,6 milljarða króna hagnaði bank- ans á síðasta ári og Arion banki til- kynnti um 49,7 milljarða króna hagnað á árinu 2015. Heildareignir viðskiptabankanna þriggja í lok síðasta árs nema sam- tals 3.176 milljörðum króna og juk- ust eignir bankanna um 234 millj- arða á síðasta ári. »16 Viðskiptabankarnir þrír skiluðu samanlagt 107 milljarða króna hagnaði á síðasta ári Samsett mynd/Eggert Afkoma Eignir viðskiptabankanna þriggja eru nú komnar yfir 3 þúsund milljarða. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Lagaheimild endurupptökunefndar innanríkisráðuneytisins til að fella úr gildi dómsniðurstöður Hæstaréttar fer í bága við Stjórnarskrá Íslands, en Hæstiréttur komst að þessari nið- urstöðu í dómi sínum í gær. Ákvæði laga um meðferð saka- mála var breytt í þessa veru árið 2013, en áður var dómstólum falin ákvörðun um endurupptöku dóma sinna og endurskoðun. Að sögn Jóns Steinars Gunnlaugs- sonar, hæstaréttarlögmanns og fyrr- verandi hæstaréttardómara, mátti búast við því að Hæstiréttur kæmist að þessari niðurstöðu, allt frá því lögum um meðferð sakamála var breytt. „Það sem merkilegast er í dóminum er að það sé talið að það standist ekki stjórnarskrá að stjórn- sýslunefnd sé fengið það vald í lög- um að fella úr gildi dóma Hæstarétt- ar sem handhafa dómsvalds. Mér finnst það hafa blasað við alla tíð að það fengi ekki staðist að fela stjórn- sýslunefnd þetta vald,“ segir hann. Ólöf Nordal innanríkisráðherra sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki geta tjáð sig um niðurstöðu Hæstaréttar fyrr en hún hefði kynnt sér dóminn. »2 Óheimilt að ógilda dóma  Heimild endurupptökunefndar fer í bága við stjórnarskrá Morgunblaðið/Sverrir Hæstiréttur Ekki heimilt að ógilda.  Kristján Þór Júlíusson heilbrigð- isráðherra segir að nýtt fyr- irkomulag heilsugæslustöðva feli ekki í sér einkavæðingu. „Þvert á móti ætlar ríkið að hafa afskipti af þessum rekstri,“ segir hann. Bæði Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, og Sigríður I. Ingadóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar, segjast and- vígar þessum áformum og stjórn BSRB hefur mótmælt þeim. »4 Ekki einkavæðing, segir ráðherra

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.