Morgunblaðið - 26.02.2016, Side 4

Morgunblaðið - 26.02.2016, Side 4
Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Skiptar skoðanir eru á Alþingi um væntanlegar breytingar á starfs- umhverfi heilsugæslustöðva á höf- uðborgarsvæðinu sem Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra kynnti í gærmorgun. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær, þegar hún var spurð um afstöðu flokks hennar til fyrirhugaðra breytinga: „Við erum andvíg einkarekstri í heilbrigð- isþjónustu, sérstaklega þegar kem- ur að grunnheilsugæslunni og sjúkrahúsunum. Þó að þarna sé tek- ið fyrir að hægt sé að taka arð út ur heilsugæslunni, þá teljum við þetta ekki réttu leiðina við að byggja upp heilsugæsluna, að fara einkareknu leiðina. Okkur líst þannig ekki vel á þessar breytingar. Við höfum vitn- að til þess að það er verið að tala um að fjármagnið eigi að fylgja sjúkingunum. Við höfum áhyggjur af því varðandi reynslu erlendis frá, hvaða afleiðingar þetta hefur haft, varðandi skipulag þjónust- unnar og minnum á að félagsleg heilbrigðiskerfi hafa komið best út.“ Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, svaraði sömu spurningu og Katrín var spurð svona: „Þetta er þekkt aðferðafræði, þar sem þú fjár- sveltir stofnun og þegar í óefni er komið þá er tækifærið notað til þess að boða einkarekstur. Við tökum undir það að heilsu- gæslan þarf á skipulagsbreytingum að halda og auknu fjármagni, en með þessum breytingum er ekki verið að boða sérstaklega nýtt fjár- magn inn í kerfið og það á að bjóða út þrjár heilsugæslur. Ríkið ætlar ekki að stjórna staðsetningu þeirra og það teljum við vera alvarlegt, því það er auðvitað ríkisvaldið sem á að ákveða hvar á að veita nær- þjónustu við íbúana.“ VG og Samfylking á móti einkavæðingu  Samstiga í gagnrýni á breytingar 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2016 Ofurfæða! biobu.is - Lífrænar mjólkurvörur Grísk jógúrt, vara sem er stútfull af góðri fitu og próteini Morgunmatur: Grísk jógúrt + múslí + skvetta af agave Eftirréttur: Grísk jógúrt + kakó + agave + chia fræ Köld sósa: Grísk jógúrt + handfylli rifinn gúrka + 2 hvítlauksrif + salt og pipar Jón Birgir Eiríksson Orri Páll Ormarsson Sunna Sæmundsdóttir Kristján Þór Júlíusson heilbrigð- isráðherra boðaði í gær endurbætur á starfsumhverfi heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu. Að hans sögn hefur lengi verið ljóst að heilsugæslan geti ekki að óbreyttu staðið undir því hlutverki, sem sátt er þó um að hún eigi að þjóna, að vera fyrsti viðkomustaður fólks í heilbrigðiskerfinu. Breyting- arnar leiði einnig af sér hagkvæmari rekstur, betri þjónustu og aukinn sveigjanleika fyrir notendur. Heilsugæslustöðvum fjölgar Stefnt er að því að fjölga heilsu- gæslustöðvum á höfuðborgarsvæð- inu um þrjár á þessu ári en Sjúkra- tryggingum Íslands hefur verið falið að auglýsa eftir rekstraraðilum. Rekstur þeirra verður annaðhvort í höndum opinberra stofnana eða fé- laga sem stofnuð verði sérstaklega um hverja stöð, þar sem starfsmenn hennar yrðu eigendur. Í dag starfa alls sautján heilsu- gæslustöðvar á höfuðborgarsvæð- inu. Fimmtán þeirra eru ríkisreknar og tvær af einkaaðilum. Ný fjármögnunaraðferð Fjármögnunarlíkan heilsugæsl- unnar mun taka stakkaskiptum sam- kvæmt áætlunum ráðherra. Stefnt er að því að lýðfræðilegir þættir, ásamt eðli og gæðum þjónustunnar, hafi bein áhrif á dreifingu fjár- magnsins, en aðferðin er þekkt víða og hefur meðal annars verið notuð í Svíþjóð. Byggist hún á því að sá hópur sem skráður er á hverri heilsugæslustöð sé skilgreindur eftir líklegri þörf fyrir þjónustu og að fjármagn fylgi notendum. Hver heilsugæslustöð fái þannig meira greitt vegna sjúklings sem er t.d. aldraður með þunga sjúkdómsbyrði en þá sem ungir eru. Jafnræði með rekstraraðilum Í tilkynningu heilbrigðisráðuneyt- isins segir að í dag séu rekstr- arframlögin ójöfn til heilsugæslu- stöðvanna, enda starfi þær ekki allar á sama rekstrargrundvelli. Rík- isreknar stöðvar fái úthlutað fé í fjárlögum, en einkareknar stöðvar starfi á grundvelli samninga við hið opinbera. Nýtt fyrirkomulag tryggi fjármögnun byggða á sama kerfi, óháð rekstrarformi. Miðað er við að 90% fjármögnunar hverrar stöðvar verði í samræmi við áðurgreint líkan, en 10% ráðist af þáttum, sem snúi að gæðum veittrar þjónustu sem metin er samkvæmt skilgreindum mælikvörðum. Óheimilt verður að taka út arð í rekstri heilsugæslustöðvanna, ætl- ast er til að ávinningur af rekstr- inum verði nýttur til úrbóta og upp- byggingar í þágu notenda þjónustunnar. Lagst gegn áformum ráðherra Stjórn BSRB sendi í gær frá sér harðorða ályktun vegna fyrirhug- aðra breytinga ráðherrans. Leggst hún alfarið gegn breytingunum, en í ályktuninni segir m.a. að „það ætti að vera skýrt markmið stjórnvalda að allur mögulegur „hagnaður“ af rekstri heilbrigðisþjónustu renni beint til frekari uppbyggingar þjón- ustunnar, en ekki í vasa einkaaðila.“ Kristján Þór segir að ekki sé um hreina einkavæðingu að ræða. „Ef þetta væri hrein einkavæðing, þá myndi ríkið gefa frá sér og ekki hafa nein afskipti af þeim heilsu- gæslustöðvum sem myndu fara í rekstur samkvæmt þessu líkani. Þvert á móti ætlar ríkið að hafa af- skipti af þessum rekstri með þeim hætti að búið hefur verið til fjár- mögnunarlíkan fyrir rekstur þess- ara stöðva og gerð kröfulýsing um hvaða vinnu heilsugæslustöðvar eiga að inna af hendi,“ segir hann. Boðar breytingar á heilsugæslunni  Heilbrigðisráðherra kynnti í gær nýja stefnu heilsugæslustöðva  Fjárveitingar fylgi notendum þjónustunnar  Þrjár stöðvar bætast við á árinu  Stjórn BSRB ályktar harðlega gegn áformunum Morgunblaðið/Árni Sæberg Heilsugæsla rjár nýjar heilsugæslustöðvar verða jafnvel opnaðar á árinu. Nýtt fjármögnunarlíkan leiðir til betri þjónustu að sögn ráðherra. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Jóhann Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Hótels Cabin, segir uppsett leiguverð á húsnæði undir hótel- rekstur oft á tíðum svo hátt að úti- lokað sé að reksturinn beri sig. „Leiguverðið á markaðnum er að mínu mati orðið alltof hátt. Síðustu tvö ár hefur mér verið boðið að taka þátt í nokkrum verkefnum á mánuði [sem varða leigu á húsnæði undir hótel]. Það á við um öll verkefnin að ég get ekki reiknað arðsemi út úr þeim. Boginn er spenntur alltof hátt. Það er komið hálfgert gull- grafaraæði í greinina. Byggingar- verktakar ráða orðið hótelbransan- um. Menn þurfa að taka þessi hús á alltof hárri leigu. Þegar ferðaþjón- ustan lendir í mótvindi munu mörg rekstrarfélaganna sem leigja húsin standa ansi illa,“ segir Jóhann sem kemur einnig að rekstri Hótels Kletts í Reykjavík og Hótels Arkar í Hveragerði. Verslunareigandi sem Morgun- blaðið ræddi við í trausti nafnleynd- ar sagði leigusala nú fara fram á 40- 50% hækkun húsaleigunnar hjá sér. Leigusalinn, eitt stærsta fasteigna- félag landsins, nýti sér endurskoð- unarákvæði til að knýja fram hækk- un. Maðurinn rekur vinsæla verslun á fjölförnum stað austan við mið- borg Reykjavíkur. Hann segist að- spurður hafa fjárfest svo mikið í húsnæðinu að flutningar komi vart til greina. Þá muni það kosta mikið fé að auglýsa nýja staðsetningu. Mikill aflsmunur í samningum Annar viðmælandi, sem starfar í hótelgeiranum og óskaði nafnleynd- ar, sagði stóru fasteignafélögin komin í þá stöðu að stýra verð- myndun á leigumarkaði. Mikill afl- smunur sé milli félaganna og ein- yrkja sem reka verslanir. Taldi viðmælandinn einsýnt að félögin hefðu keypt eignir á háu verði með hækkanir á leigunni í huga. Þessi þróun geti ekki verið sjálfbær. Mörg fyrirtæki muni enda lenda í erfiðleikum með að standa undir slíkum hækkunum. Magnús Árni Skúlason, sérfræð- ingur hjá Reykjavík Economics, flutti erindi á ráðstefnu um fast- eignamarkaðinn í Hörpunni í gær. Hann segist aðspurður deila áhyggjum margra af því að leigu- verð sé í sumum tilfellum að hækka skart á höfuðborgarsvæðinu. „Ég er sammála því að leiguverð geti hækkað of skart. Ég ræddi við verslunareiganda sem selur vörur til ferðamanna. Hann sagði versl- unina geta borið svo hátt leiguverð þar sem hann væri með mikla veltu á fermetra. Hann væri hins vegar ekki viss um að venjuleg verslun gæti staðið undir leigunni.“ Magnús Árni tekur svo dæmi af kaupum tveggja fasteignafélaga á reitum í miðborg Reykjavíkur. Kaupverðið hafi verið hátt og kaup- in fjármögnuð með rúmlega 3% raunvöxtum. „Þá þurfa félögin að ná hærri ávöxtun á húsnæði. Því þurfa þau að nýta endurskoðunarákvæði leigusamninga. Eftir efnahagshrun- ið voru gjarnan gerðir skammir leigusamningar til að geta hækkað leigu síðar þegar betur áraði.“ Magnús Árni segir uppganginn í ferðaþjónustu eiga þátt í skorti á vissum tegundum húsnæðis. „Það er skortur á 100 til 200 fer- metra skrifstofuhúsnæði í Borgar- túni og miðborginni. Það er mikið innstreymi af erlendum ríkisborg- urum. Landsmönnum er að fjölga. Ungt fólk er að koma inn á vinnu- markað og atvinnustig er að batna verulega. Eftirspurn eftir starfs- stöðvum mun aukast. Viðmælendur mínir á fasteignamarkaði sjá fram á vandræði við að útvega stórt skrif- stofuhúsnæði og iðnaðarhúsnæði, til dæmis undir geymslur og léttan iðnað,“ segir Magnús Árni. „Höfum við gæðin til þess?“ Hann segir aðspurður að þessi þróun geti farið að birtast í verðlagi á Íslandi. Með sama áframhaldi verði verðlag orðið svo hátt að það geti farið að hafa áhrif á eftirspurn ferðamanna. „Maður hefur áhyggjur, þá bæði af offjárfestingunni og því hvort við getum verið svona dýrt ferða- mannaland. Höfum við gæðin til þess? Þegar verðlagningin í sumum tilfellum er farin að nálgast hágæða- ferðamannastaði í Evrópu með langa sögu þá fer maður að staldra við,“ segir Magnús Árni Skúlason. Þróun leiguverðs þykir áhyggjuefni í versluninni  Stór fasteignafélög sögð nýta sér endurskoðunarákvæði Morgunblaðið/Árni Sæberg Rýnt í stöðuna Fasteignaráðstefnan, sem svo er nefnd, var haldin í fyrsta sinn í Hörpu í gær. Arion banki var aðalbakhjarl ráðstefnunnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.