Morgunblaðið - 26.02.2016, Side 6

Morgunblaðið - 26.02.2016, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2016 Hummel Útsöluaðilar: Útilíf – allar verslanir Intersport – allar verslanir Skór.is – allar verslanir Debenhams Steinar Waage Englabörn Sportver Akureyri Toppmenn og Sport Akureyri Nína Akranesi K Sport Keflavík Borgarsport Borgarnesi Siglósport Siglufirði Sentrum Egilsstaðir Pex Reyðarfirði Sportbær Selfossi Axel Ó Vestmannaeyjum Músik & Sport Efnalaug Vopnafirði Verið getur að auglýstar vörur séu ekki til hjá útsöluaðila. Umboðsaðili: DanSport ehf. Nýjar vörur Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Alls 245 erlendir ferðamenn slös- uðust á Íslandi á síðasta ári, sam- kvæmt bráðabirgðatölum lögreglu. Þar af slasaðist 91, eða 37% af heild- inni, í umdæmi lögreglu á Suður- landi, sem nær frá Hellisheiði og austur fyrir Hornafjörð. Framangreindar tölur haldast í hendur við fjölg- un erlendra ferðamanna sem koma til Íslands, en í fyrra voru þeir um 1,3 milljónir sem var 29% aukning milli ára. Slys á erlendum ferðamönnum, sem lögregla á höfuðborgarsvæðinu sinnti í fyrra, voru 51, 38 á Suð- urnesjum og 28 á Norðurlandi eystra. Misjöfn að alvarleika „Mikil fjölgun mála þar sem er- lendir ferðamenn eiga í hlut eykur álag á lögregluna. Oft verður ekki hjá því komist að lögregla fari á vett- vang með sjúkraliði. Er þetta þá hrein viðbót við annað í okkar starfi. Umdæmi Suðurlandslögreglunnar er afar víðfeðmt og oft þarf að fara um langan veg í útköll. Þeir staðir sem flestir sækja eru yfirleitt tugi kílómetra frá næstu lögreglustöð. Við erum á ystu nöf öryggismarka, það verður að segjast eins og er,“ sagði Oddur Árnason, yfirlögreglu- þjónn á Suðurlandi, í samtali við Morgunblaðið. Slysin þar, sem erlendir ferða- menn eiga í hlut, eru misjöfn að al- varleika, rétt eins og þau eru mörg. Lögregla fer þó á vettvang þeirra ef þarf og einnig þegar bráðaveikindi ber að, svo sem hjartaáfall eða slíkt. Þannig fór lögreglan á Suðurlandi í fyrra til aðstoðar 37 útlendingum sem veikst höfðu skyndilega. Þá voru dauðaslys í umdæminu, þar sem fólk af erlendu þjóðerni var á ferð, sjö alls. 245 erlendir ferðamenn slösuðust  Tölur fyrir árið 2015 liggja fyrir  91 slasaðist á Suðurlandi og sjö létust  Rúmlega 51 slys á höfuðborgarsvæðinu á sama tíma  Fjölgun ferðamanna og slysa virðist vera í ákveðnu jafnvægi Geysir Hundruð þúsunda ferðamanna koma á hverasvæðið á hverju ári. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Reynisfjara Ýmsar öryggisráðstafanir hafa verið gerðar eftir banaslys þar. Oddur Árnason Erlendir ferðamenn á Suðurlandi síðustu ár 2012 2013 2014 2015 Látnir 5 4 2 7 Bráðaveikindi 17 22 21 37 Slasaðir 40 26 27 91 Það sem af er þessu ári hafa tveir erlendir ferðamenn farist af slysförum á Suðurlandi. Japanskur ferðamaður lést í árekstri tveggja bifreiða á ein- breiðri brú í Öræfasveit snemma í janúar og Kínverji fyrr um hálfum mán- uði þegar alda í Reynisfjöru í Mýdal hreif hann út. Þar í fjöru hefur lög- regla frá því slysið varð haft varðstöðu, sem lauk nú í vikunni enda var hún aðeins hugsuð til skamms tíma. Það atvik segir Oddur Árnason að sýni þó í stóra samhenginu þörfina á efldri löggæslu – og annarri upp- byggingu innviða – víða um land vegna mikillar fjölgunar ferðamanna. Einbreið brú og alda í fjöru TVEIR ÚTLENDINGAR LÁTIST Í SLYSUM Á SUÐURLANDI Í ÁR Guðni Einarsson gudni@mbl.is Íslensk stjórnvöld þurfa að ákveða hvernig á að bregðast við ef fram- andi gæsategundir fara að hasla sér völl hér á landi, að mati dr. Arnórs Þóris Sigfússonar, dýravistfræðings hjá Verkís. Hann sendi umhverfis- og auðlindaráðuneytinu minnisblað í desember 2014 þar sem málið var reifað. Arnór hefur ekki enn fengið svar við erindinu. Arnór benti á mikinn vöxt flestra þeirra gæsastofna sem ýmist verpa hér eða fara hér um á leið sinni milli varp- og vetrarstöðva. Allir stofn- arnir hafa verið í örum vexti að und- anskilinni blesgæs. Heiðagæs og grágæs eru helstu varpstofnar gæsa hér á landi. Ör fjölgun helsingja Helsingjavarp hófst hér í ein- hverjum mæli undir lok 20. aldar. Þrjú pör urpu í A-Skaftafellssýslu árið 1988 og árið 1999 urpu sex hels- ingjapör í V-Skaftafellssýslu. Árið 2014 urpu um 500 helsingjapör í austursýslunni. Vöxturinn samsvar- aði að meðaltali um 25% aukningu á ári í austursýslunni og var ívið meiri í vestursýslunni. Talið er að íslenski helsingjastofn- inn telji nú a.m.k. 2-3 þúsund fugla og fari svo sem horfir má búast við að stofninn telji margar þúsundir fugla á næstu árum. Þá gætu hels- ingjar farið að valda bændum áhyggjum vegna ásóknar í akra og önnur ræktunarlönd á haustin. Helsinginn í Skaftafellssýslum hefur verið friðaður fyrir veiðum til 25. september en veiðar á grágæs og heiðagæs hefjast 20. ágúst ár hvert. Arnór varpaði því fram hvort Íslend- ingar hefðu sett sér markmið og hvort ástæða væri til að vernda þennan stofn áfram með þessari seinkun veiðitímans. Langt að komnar gæsategundir Kanadagæs, taumgæs og snjógæs hafa einnig reynt hér varp og sumar komið upp ungum. Kanadagæs og snjógæs eru af amerískum uppruna en taumgæs kemur frá Himalaja- fjöllum. Þessar gæsir voru fluttar til Bretlands og hafðar þar í fuglagörð- um en var sleppt eða sluppu þaðan og urðu villtar. Arnór segir að því megi líta á þær sem innfluttar teg- undir í Evrópu og jafnvel ágengar. Umhverfisráðherra hefur ekki aflétt friðun af þessum tegundum og því er ekki leyfilegt að veiða þær. Arnór telur líklegt að Kanadagæsin reyni frekara landnám hér á næstu árum. „Reynslan frá helsingjanum sýnir okkur að t.d. Kanadagæsavarp sem hæfist hér gæti vaxið hratt og þar sem um mun stærri gæs er að ræða, stærri en grágæs jafnvel, væru þær líklegri til að valda tjóni í kornrækt. Þá gætu þær keppt við innlendar gæsir, t.d. grágæs og haft áhrif á stofnstærð og útbreiðslu þeirra,“ skrifaði Arnór í minnisblaðinu til umhverfisráðuneytisins. „Sé ekki vilji til að landnám fram- andi gæsa eins og Kanadagæsa eigi sér stað tel ég rétt að brugðist verði við því strax. Ef þær reyna varp að því sé þá eytt og rétt væri einnig að leyfa veiðar á þeim samhliða veiðum á öðrum gæsum. Sé aftur á móti vilji til að þær fái að nema hér land þá verði verndun þeirra haldið áfram.“ Framandi gæsir gera sig heimakomnar hér  Spurt um afstöðu stjórnvalda til landnáms þeirra Ljósmynd/Arnór Þórir Sigfússon Útlendar gæsir Fremst má sjá Kanadagæs og er hún í fylgd með tveimur blesgæsum. Kanadagæsin er auðþekkt á hvítum bletti í kverkinni. Aðalfundur Skotveiðifélags Íslands (Skotvís) samþykkti nýverið að taka við keflinu í baráttu fyrir því að leyft verði að nota hljóðdempara á riffla hér á landi. Undirskriftasöfnun stendur yfir á netinu þar sem skorað er á innanrík- isráðherra að fella niður núgildandi vinnureglur stofnana innanríkis- ráðuneytisins varðandi bann við notkun hljóðdempara. „Við þurfum að stíga skrefið inn í heim siðmennt- aðra veiðiþjóða, heyrnar okkar vegna,“ segir m.a. í áskoruninni. Þess má geta að leyft er að nota slíka dempara á riffla í nágrannalöndum okkar, t.d. á Norðurlöndum. Einnig er vísað í umsögn Um- hverfisstofnunar sem hún gaf um frumvarp til breytinga á vopnalög- um árið 2012. Frumvarpið var ekki afgreitt frá Alþingi á sínum tíma. Í umsögninni segir m.a.: „Umhverfis- stofnun leggur því til að heimilt verði að útbúa stærri riffla með hljóð- dempurum án sérstakrar skráning- arskyldu og að slíkt leyfi sé ekki ein- göngu bundið við „eyðingu vargs eða meindýra í þéttbýli,“ eins og það er orðað í frumvarpinu.“ Aðalfundur Félags leiðsögumanna með hreindýraveiðum 2015 fól stjórn félagsins að leit allra leiða „til að fá undanþágu frá Ríkislögreglustjóra varðandi notkun hljóðdeyfa fyrir leiðsögumenn með hreindýraveiðum og hreindýraveiðimenn almennt“. Rökin voru m.a. þau að hætta væri á að leiðsögumenn biðu skaða á heyrn vegna starfs síns. gudni@mbl.is Veiðimenn vilja fá að nota hljóðdempara  Leyft verði að setja dempara á riffla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.