Morgunblaðið - 26.02.2016, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2016
Andríki vekur athygli á að HelgiHrafn, þingmaður Pírata, full-
yrði að Birgitta
Jónsdóttir þingmað-
ur hafi opinberlega
rægt annað fólk „þó
nokkuð oft og mik-
ið“ og að Erna Ýr
Öldudóttir, formað-
ur framkvæmdaráðs
Pírata, hafi gagn-
rýnt Birgittu fyrir
að taka sér leyfis-
laust titil formanns
eða leiðtoga flokks-
ins opinberlega.
Þessi óvænta innsýn
í Pírata-flokkinn
ætti að vekja áhuga í
ljósi fylgis við flokk-
inn í skoðanakönn-
unum.
En, spyr Andríki, „vilja allir að al-menningur fái að heyra af
þessu?
Svanur Kristjánsson, stjórn-
málafræðiprófessor og fyrrverandi
kosningastjóri Pírata, segir á
Facebook að það sé þyngra en tárum
taki að Erna Ýr hafi gagnrýnt Birg-
ittu opinberlega. Það sé nefnilega
„nauðsynlegt að fólk í æðstu stöðum
njóti trúnaðar alls flokksfólks“.
Hvað hefði fólk sagt ef svona við-horf heyrðust úr röðum „fjór-
flokksins“? Að „fólk í æðstu stöðum“
eigi einfaldlega að njóta trúnaðar
„alls flokksfólks“ og gagnrýni eins
og þessi megi ekki koma fram? Ætli
það hefði ekki verið enn ein rök-
semdin fyrir því að fá „nýtt fólk“ til
valda? „Gegnsæi“. „Allt upp á borð-
ið“?
Og ef annar helsti forystumaðurstjórnmálaflokks segði op-
inberlega að hinn helsti forystumað-
urinn gerði mikið af því að rægja
annað fólk, hvernig yrði því tekið?
Annað hvort er annar forystumað-
urinn mikið í því að rægja annað
fólk, eða hinn ber slíkt ranglega upp
á hann opinberlega.“
Svanur
Kristjánsson
Þöggun úr nýrri átt
STAKSTEINAR
Helgi Hrafn
Gunnarsson
Veður víða um heim 25.2., kl. 18.00
Reykjavík 1 alskýjað
Bolungarvík -4 heiðskírt
Akureyri -9 heiðskírt
Nuuk -11 snjókoma
Þórshöfn 0 alskýjað
Ósló 2 heiðskírt
Kaupmannahöfn 3 skýjað
Stokkhólmur 2 heiðskírt
Helsinki 2 skýjað
Lúxemborg 4 léttskýjað
Brussel 3 skýjað
Dublin 5 skýjað
Glasgow 2 skýjað
London 6 léttskýjað
París 6 léttskýjað
Amsterdam 5 léttskýjað
Hamborg 3 skúrir
Berlín 2 skýjað
Vín 4 skýjað
Moskva 1 heiðskírt
Algarve 15 léttskýjað
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 16 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 13 skýjað
Aþena 15 léttskýjað
Winnipeg -8 léttskýjað
Montreal 1 súld
New York 10 alskýjað
Chicago 1 alskýjað
Orlando 15 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
26. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:47 18:35
ÍSAFJÖRÐUR 8:59 18:33
SIGLUFJÖRÐUR 8:42 18:16
DJÚPIVOGUR 8:19 18:03
Tveir ungir
karlmenn voru
í Héraðsdómi
Reykjavíkur í
gær dæmdir í
3 árafangelsi
hvor fyrir
bankarán, sem
þeir frömdu í
útibúi Lands-
bankans við
Borgartún í
Reykjavík í
desember sl.
Mennirnir, sem eru báðir tvítug-
ir, heita Ólafur Ingi Gunnarsson og
Jóel Maron Hannesson. Þeir fóru
inn í bankann, vopnaðir hnífi og eft-
irlíkingu af skammbyssu, ógnuðu
starfsfólki og viðskiptavinum og
höfðu á brott með sér peninga, 558
þúsund íslenskar krónur og jafn-
virði um 180 þúsund króna í gjald-
eyri.
Mennirnir gáfu sig fram við lög-
reglu eftir að lýst var eftir þeim,
skiluðu ránsfengnum og játuðu sekt
sína fyrir dómi. Var tekið tillit til
þess við ákvörðun refsingar en
dómurinn segir einnig að líta verði
til þess að þeir frömdu vopnað rán
á óvenjugrófan hátt.
Mennirnir voru dæmdir til að
greiða sakarkostnað og málsvarn-
arlaun, samtals 1,7 milljónir króna.
3 ára fang-
elsi fyrir
bankarán
Bankarán Bíll sem
ræningjarnir notuðu.
Svo til engar takmarkanir eru á því
hvernig fé sem veitt er til stjórn-
málaflokka eftir alþingiskosningar
er notað. Eins og fram hefur komið
fá tveir flokkar sem ekki eru á
þingi, Dögun og Flokkur heim-
ilanna greiðslur úr ríkissjóði þar
sem flokkarnir fengu yfir 2,5% fylgi
í alþingiskosningunum 2013. Námu
þessar greiðslur t.a.m. 9,2 milljónir
til Flokks heimilanna og 9,4 millj-
ónum kr. til Dögunar, á árinu 2015.
Fram kemur í skriflegu svari
Ríkisendurskoðunar við fyrirspurn
blaðsins að í lögum um fjármál
stjórnmálasamtaka og frambjóð-
enda og um upplýsingaskyldu
þeirra sé hvorki að finna nánari fyr-
irmæli um ráðstöfun framlaga sem
stjórnmálasamtökin fá úr ríkissjóði
né skilgreiningu á því hvað falli
undir stjórnmálastarfsemi. „Fram-
lögin eru með öðrum orðum ekki
bundin neinum kvöðum eða skil-
yrðum öðrum en þeim að viðkom-
andi stjórnmálasamtök fá því aðeins
framlagið hafi þau fullnægt
upplýsingaskyldu sinni til Ríkisend-
urskoðunar, þ.e.a.s. skilað stofn-
uninni ársreikningi sbr. 9. gr. lag-
anna,“ segir í svarinu. Þá segir
jafnframt að stjórnmálasamtök séu
einungis bundin af eigin lögum,
reglum og samþykktum þegar kem-
ur að ráðstöfun aflaðra tekna.
Úr innanríkisráðuneytinu fengust
þau svör að reglur um ráðstöfun
stjórnmálaflokka væru ekki til end-
urskoðunar. vidar@mbl.is
Engar takmarkanir á ráðstöfun tekna
Reglur um fjármál stjórnmálaflokka ekki til skoðunar í innanríkisráðuneytinu
Morgunblaðið/Ómar
Kjörkassi Engar takmarkanir eru á
notkun tekna stjórnmálaflokka.