Morgunblaðið - 26.02.2016, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2016
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Umhverfisstofnun veitti 61 leyfi
vegna kvikmyndagerðar, ljós-
myndataka og framkvæmda á frið-
lýstum svæðum á síðasta ári. Þar af
voru a.m.k veittar 22 heimildir til
kvikmyndatöku auk þess sem heim-
ildir voru veittar til framkvæmda eða
rasks vegna kvikmyndagerðar. Það
sem af er ári hefur Umhverfs-
isstofnun veitt sex leyfi og þar af eru
þrjú vegna vegna kvikmyndgerðar.
„Yfirleitt er það þannig að umsóknum
fjölgar um og upp úr febrúar, hvort
sem um er að ræða kvikmyndatökur
eða eitthvað annað. Menn hafa reynt
að vera skipulagðari og að setja sig í
samband við okkur fyrr en áður.
Stundum er samt mjög lítill fyrirvari.
En það er alltaf að verða vinsælla og
vinsælla að koma til Íslands til að
kvikmynda og við finnum fyrir aukn-
ingu. Enda eru margar perlurnar
sem vekja áhuga,“ segir Sigrún.
Taka ber fram að víða eru svæði
sem ekki eru háð leyfi til kvikmynda-
töku á Íslandi og því ómögulegt að
segja til um heildarfjölda kvikmynda-
taka í atvinnuskyni í landinu út frá
þessum tölum.
Sigrún segir að hana reki ekki í
minni til þess að borið hafi á því að
ekki hafi verið vel gengið um þar sem
kvikmyndatökufólk hafi verið að
störfum. „Þessi stærri fyrirtæki sem
eru vön að vinna að þessum verk-
efnum passa þetta mjög vel,“ segir
Sigrún.
Vinsælir staðir víða um land
Nokkrir staðir eru vinsælli en aðrir
til kvikmyndatöku hérlendis. Af lista
um leyfisveitingar Umhverfisstofn-
unar má sjá að fólkvangur á Suður-
landi, Dyrhólaey, Gullfoss, Geysir,
Fjallabak og Skógafoss eru dæmi um
vinsæla staði til kvikmyndatöku.
Það sem af er ári hefur Umhverf-
isstofnun veitt þrjú leyfi sem snúa að
kvikmyndagerð á friðlýstum svæð-
Vel gengið um
friðlýst svæði
Á þriðja tug leyfa vegna kvikmynda-
töku á friðlýstum svæðum árið 2015
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Framkvæmdir Við Mývatn er hafin smíði einhvers sem notast á við við tök-
ur á Fast and the Furious 8 sem tekin verður að hluta upp hér á landi.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Tjöld Á Álftabáru og við Gig Hótel eru risin stór tjöld vegna verkefnisins.
um. Eitt leyfið snýr að kvikmyndinni
Fast and the Furious 8. Til stendur
að sökkva nk. eftirlíkingu af bíl í Mý-
vatn. Í umsögn frá Umhverfsstofnun
segir að um sé að ræða bíl sem búið
er að hreinsa allt innan úr, alla vökva,
vél, rafgeyma og gler. Þessi grind er
búin loftbelgjum og búnaði á vír til að
draga grindina fljótt upp aftur. Þar
kemur jafnframt fram að í skilyrðum
Umhverfisstofnunar komi fram að ef
farið verði eftir skilyrðum komi
verknaðurinn ekki til með að hafa óá-
sættanleg áhrif á lífríki Mývatn, sem
er á rauðum lista Umhverfisstofn-
unar yfir friðlýst svæði. Annað leyfið
snýr að heimild til utanvegaaksturs í
fjörunni við Ölfusárós. Er um að
ræða kvikmyndatöku vegna auglýs-
ingar. Þá var veitt heimild til að grafa
gröf á Hólmsnesi vegna vinnu við
þættina Fortitude.
Á annað hundrað umleitanir og
umsóknir berast Umhverf-
isstofnun árlega. Stundum
kemst umsóknarferlið aldrei á
það stig að vera hafnað og
formleg umsókn er ekki lögð
fram, en í öðrum tilfellum hafn-
ar Umhverfisstofnun leyfisveit-
ingu eftir umsóknarferli. Dæmi
eru um að kvikmyndagerð-
armönnum hafi verið meinað að
sigla á Mývatni til að vernda líf-
ríki, að fljúga þyrlu í Dyrhólaey
til að vernda fuglalíf og aðhaf-
ast í Gróttu til að vernda dýralíf.
Þá eru einnig dæmi um að kvik-
myndagerðarmönnum hafi verið
óheimilt að aka utan vega við
myndatöku.
Engin þyrla í
Dyrhólaey
STUNDUM HAFNAÐ
Vítaplús
hágæða fjölvítamín
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
Fylgist með okkur á faceboock
Leðurjakkar 59.990
Við höfum lækkað vöruverð
Í gær ógilti Hæstiréttur úrskurð
yfirfasteignanefndar frá 30. maí
2012 þar sem staðfest var ákvörð-
un Þjóðskrár frá árinu 2011 um að
byggja fasteignamat Hörpu á
byggingarkostnaði hússins. Harpa
stefndi Þjóðskrá Íslands og
Reykjavíkurborg en Hæstiréttur
sýknaði borgina.
Í maí á síðasta ári féllst Héraðs-
dómur Reykjavíkur á úrskurð yf-
irfasteignamatsnefndar um að
fasteignamatsvirði Austurbakka 2
sé rúmir 17 milljarðar króna. Sam-
kvæmt dómnum þurfti Harpa að
greiða um 400 milljónir króna í
fasteignagjöld á ári.
„Ég ætla ekki að leyna því að ég
er alveg svakalega ánægður með
þetta. Við erum búin að eyða fjór-
um árum í þetta,“ sagði Halldór
Guðmundsson, forstjóri Hörpu, í
samtali við mbl.is í gær, en Hall-
dór sagði að rekstur Hörpu stæði
ekki undir þess háttar greiðslum.
„Úrskurðurinn í dag [í gær] þýð-
ir að það þurfi að endurmeta hús-
ið,“ sagði Halldór en fast-
eignamatsvirði hússins er í dag 22
milljarðar. „Við erum að borga 380
milljónir í fasteignagjöld á þessu
ári. Rekstur sem skilar 1.000 millj-
ónum á ári getur það ekki, sama
hvað við reynum.“
Hæstiréttur dæmdi Hörpu í vil
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Harpa Tekur á sig ýmsar myndir,
hérna í frönsku fánalitunum.