Morgunblaðið - 26.02.2016, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2016
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Árið 2007 var Jenný Mar-grét Henriksen, nemi ígrafískri hönnun í Mynd-listaskóla Akureyrar, búin
að skipuleggja „slys“, sem yrði einni
manneskju að bana. Henni sjálfri.
Þessari kvíðnu og þunglyndu konu
sem ekki yrði til nokkurs nýt í sam-
félaginu, börnunum sínum þremur
byrði og öllum til ama og leiðinda.
Þannig hugsaði Jenný þegar hún
sökk í sitt dýpsta þunglyndi. Hún
fyllist ennþá ónotatilfinningu þegar
hún keyrir framhjá Jökulsá á Fjöll-
um, fyrirhuguðum vettvangi „slyss-
ins“.
Fyrir tilstuðlan Stefáns Magn-
úsar Jónssonar, manns hennar, sem
á þeim tíma var reyndar fyrrverandi,
var hún lögð inn á geðdeild. Hún
hafði fengið taugaáfall. „Upp frá
þessu hefur baráttan þó bara verið
upp á við. Löng og ströng en alltaf
barátta,“ segir Jenný, sem hyggst
ásamt fleirum segja reynslusögu sína
á málþinginu Leyst úr læðingi á veg-
um Geðhjálpar. Áhrif erfiðra uppeld-
isaðstæðna og áfalla á andlega heilsu
eru í brennidepli. Þótt hún ætti ást-
ríka foreldra fellur saga hennar að
þemanu. Áföllin í æsku eru að hennar
mati rót alvarlegs þunglyndis sem
hún hefur glímt við árum saman og
virðist loks vera að ná tökum á með
góðra manna hjálp. Að minnsta kosti
er hún ekki lengur andlega nið-
urbrotinn 100% öryrki heldur í fullu
starfi sem verslunarstjóri í Te og
kaffi á Akureyri þar sem hún býr
með Stefáni, börnum og barnabarni.
„Ég man varla eftir mér öðruvísi
Sjálfskoðun og glíma
við drauga fortíðar
Fyrir nokkrum árum var Jenný Margrét Henriksen svo mikil mannafæla að hún
þorði varla út úr húsi. Hún er sannfærð um að þunglyndi og ofsakvíði sem hún hef-
ur átt við að stríða nánast frá því hún man eftir sér séu afleiðingar kynferðisofbeldis
sem hún var beitt sem barn. Undanfarið hefur hún tekið mörg gæfuspor í átt til betri
andlegrar heilsu og ætlar að segja sögu sína á málþinginu Leyst úr læðingi.
Getty Images
Geðheilsa Þunglyndi og andleg vanlíðan getur átt rætur að rekja til erfiðra
uppeldisaðstæðna og áfalla af ýmsum toga í æsku.
Það er svo óskaplega margt sem við
mannfólkið getum gert okkur til ynd-
is og ánægju án þess að það þurfi að
kosta einhvern helling. Og það þarf
ekki endilega að fara að heiman, það
er gaman að bjóða heimilismeðlimum
að leggjast með sér á gólfið og gera
nokkrar teygjur og hláturæfingar, því
fylgir vellíðan og jafnvel hlátursköst,
og það er aldrei nóg af einfaldri sam-
veru. Fyrir þá sem vilja dekra við sig
er um að gera að skella sér í ilmandi
freyðibað, kveikja á kertum og grípa
bók með sér ofan í baðið. Eiga svo
notalega gæðastund með sjálfum
sér, nú eða bjóða einhverjum ofan í.
Endilega …
…farið í
freyðibað
Morgunblaðið/Ernir
Emmsjé Gauti Hann fílar freyðibað.
Leikfélag Verkmenntaskólans á Akur-
eyri frumsýndi í gær söngleikinn
Bjart með köflum eftir Ólaf Hauk
Símonarson. Verkið er söngleikur
með tónlist frá hippatímabilinu og í
tilkynningu kemur fram að í sýning-
unni séu meðal annarra lög eins og
Leyndarmál, Glugginn, Dimmar rósir,
Ég elska alla, Undarlegt með unga
menn og fleiri frá því tímabili.
Sögusviðið er frá blómatímanum
og segir frá Jakobi, 17 ára strák sem
kemur úr Reykjavík og ræður sig í
vinnumennsku á Gili. Sá sveitabær er
frekar ástand en heimili. Ekkert raf-
magn, ekkert klósett og amman á
bænum sefur í líkkistu. Á bænum býr
meðal annarra ung stúlka sem heitir
Gunnvör, og henni líst vel á Jakob. Á
næsta bæ, Hvammi, er ástandið gjör-
ólíkt ástandinu á Gili. Þar er nóg raf-
magn, kók og prins póló eins og
menn geta í sig látið og allt miklu nú-
tímalegra. Dóttir hjónanna þar,
ungfrú Ausa, sem er á svipuðum aldri
og staðráðin í að ná í Jakob, enda vön
að fá það sem hún vill fá. Jakob þarf
því að velja á milli þessara stúlkna.
Um 40 manns koma að sýningunni
sem er lífleg og býður upp á gleði,
Bjart með köflum eftir Ólaf Hauk fyrir norðan
Jakob þarf að velja á milli
stúlknanna Gunnvarar og Ausu
Ausa og Jakob Þegar ástin grípur hjörtu unga fólksins flækjast málin.
Við Íslendingar erum svoæðisleg. Í þeim skilningiað við elskum að takaþátt í hinu og þessu æð-
inu. Tískubylgjum mætti líklega
kenna um flest af þessu æði, ég
man til dæmis ansi sterklega eftir
Buffalo-skónum sem ég einfald-
lega varð að eignast um aldamótin,
þá 10 ára gömul. Ég varð hins
vegar að láta mér nægja HOT-skó
úr Hagkaupum. Í seinni tíð hef ég
reynt að taka meðvitaða ákvörðun
um að falla ekki í hverja æðis-
gryfjuna á fætur annarri, heldur
reyna að þróa minn eigin fágaða
smekk. Omaggio-vasann minn fékk
ég til dæmis í útskriftargjöf, ég
hefði aldrei keypt hann sjálf
(hóst). Ég skil heldur ekki alveg
hvernig ég þurfti allt í einu
að fara að telja Iittala-
kertastjakana á heimilinu
á fingrum beggja handa,
þetta voru örugglega allt
gjafir.
Æði tengd tölvuleikjum
og vörumerkjum líkt og
Candy Crush og Frozen
hef ég hins vegar alltaf
reynt að forðast eins
og heitan eldinn. Þang-
að til einn góðan veð-
urdag þegar 6 ára göm-
ul bróðurdóttir mín
komst í símann minn,
þið vitið hvernig yngsta kyn-
slóðin og snjallsímar virka, og
náði að hlaða niður Frozen-leik
þar sem Elsa hvetur mann áfram
að sprengja kristalla í öllum regn-
bogans litum. Ég varð nú að prófa
leikinn til að ganga úr
skugga um að hér væri
á ferðinni viðeigandi
leikur fyrir 6 ára
stúlku. Til að gera
langa sögu stutta
hefur sú stutta ekki
fengið að prófa
leikinn aftur og ég
er orðin háð, komin
í level 249 af guð má
vita hve mörgum. Ég
var svo að komast að
því að um er að ræða
Candy Crush í Fro-
zen-útgáfu. Æði.
»… ég man til dæmisansi sterklega eftir
Buffalo-skónum sem ég ein-
faldlega varð að eignast um
aldamótin, þá 10 ára göm-
ul. Ég varð hins vegar láta
mér nægja HOT-skó úr
Hagkaupum.
Heimur Erlu Maríu
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is