Morgunblaðið - 26.02.2016, Page 12

Morgunblaðið - 26.02.2016, Page 12
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Movie Star hvíldarstóll Verð frá 433.000,- Morgunblaðið/Ómar Hvalskurður Allt bendir nú til þess að hvalveiðar Hvals hf. og hvalskurður fyrirtækisins leggist af í sumar, þar sem Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, hefur gefist upp á því að eiga við japanska embættismannakerfið. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., segir að fyrirtækinu verði að óbreyttu lokað í sumar. Hann sé einfaldlega búinn að gefast upp á endalausu skrifræði þeirra í Japan og verði engin breyting þar á, sé sjálfhætt. Í Morgunblaðinu í gær kom fram að engar stórhvalaveiðar verði í sumar og ástæðan sé mikl- ar hindranir í Japan við að koma afurðum Hvals hf. á markað. „Þetta er búið að vera að gerj- ast lengi. Þetta gengur ekkert lengur og við lokum í sumar ef þessu verður ekki breytt. Við höf- um auðvitað verið að vinna í þessu og alltaf eitthvað að nudda, en Japanirnir hreyfa sig ekkert,“ sagði Kristján í samtali við Morg- unblaðið í gær. Japan eina landið Kristján bendir á að í alþjóða- samningum sé stuðst við svo- nefnda CODEX samræmingu séu út af FAO og WHO (Alþjóðaheil- brigðisstofnuninni) hafi komið á laggirnar og Japan hafi verið eitt af stofnríkjunum. Þessir stuðlar samræmi efnagreiningaraðferðir, prufutökur og fleira, þannig að ef maður flytur vöru frá einu landi, sem styðst við CODEX, til ann- ars lands, séu notaðar sömu efnagreiningaraðferðir þar. „Þetta er viðtekin venja alls staðar, en í Japan eru þeir með aðra aðferð, sem eflaust hefur verið ágæt fyrir rúmum 40 árum síðan. Japan er eina landið í heiminum sem notar þessa aðferð og því er ekki hægt að bera greiningar þeirra og okkar sam- an. Það má því segja við séum bara í rússneskri rúllettu, hvað þetta varðar. Við sendum vöruna frá okkur til Japans og bíðum svo bara með krosslagða fingur eftir niðurstöðum frá Japan um það hvort þetta er í lagi eða ekki,“ sagði Kristján. Hættum þessu bara Aðspurður hvort einhver starf- semi væri hjá Hval hf. í Hvalfirði núna, sagði Kristján svo ekki vera. „Við höfum bara verið í við- haldsstörfum og verðum áfram fram í júní. Svo hættum við þessu bara, ef ekkert breytist hjá þeim í Japan. Embættismannakerfið í Japan er bara þannig að þeir þora ekki að breyta neinu. Stjórn- málamenn ráða nær engu í Japan, því það er embættismannakerfið sem stjórnar landinu,“ sagði Kristján Loftsson. Gunnar Bragi Sveinsson utan- ríkisráðherra sagði, spurður hvað honum fyndist um þessa ákvörð- un Kristjáns Loftssonar: „Ástæð- an er auðvitað augljós. Hvalur hf. getur ekki stundað stór- hvalaveiðar með það að markmiði að flytja út til Japans, miðað við það viðskiptaumhverfi sem er þar í landi. Það er alveg ljóst að eitthvað þarf að breytast í Japan, til þess að það borgi sig að halda þessum veiðum áfram.“ Utanríkisráðherra segir að ut- anríkisráðuneytið hafi vitanlega gert það sem því ber, að gæta hagsmuna fyrirtækisins erlendis, „en staðan er bara eins og kom fram í samtali Morgunblaðsins við Kristján, að það hefur lítið breyst og lítið þokast,“ sagði utanríkis- ráðherra. Þetta eru sorgartíðindi Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær, harma ákvörðun Hvals hf. um að hætta stórhvalaveiðum. „Ég skil svo sem alveg ástæðu þess að Kristján Loftsson tekur þessa ákvörðun. Hann er í sölu- vandræðum úti í Japan og það þarf ekkert að fara í grafgötur með það að Hvalur hf. í Hvalfirði hefur skipt samfélagið hér á Akra- nesi og í nærsveitum miklu máli. Starfsemin hefur skapað umtals- verða atvinnumöguleika fyrir okk- ar fólk, þannig að þetta eru sorg- artíðindi hvað það varðar,“ sagði Vilhjálmur. „Ég gleymi því ekkert árið 2009 þegar tilkynnt var að Hvalur hf. myndi hefja hvalveiðar á ný. Þá héldum við fjölmennan fund hér í Bíóhöllinni á Akranesi, og fylltum höllina. Fundarmenn fögnuðu þessu vel og innilega. Þetta var á þeim tíma sem Einar K. Guðfinns- son ákvað að heimila þessar veiðar á ný, en þáverandi stjórnvöld ætl- uðu að afturkalla þetta leyfi og því vildum við mótmæla hressilega og héldum því þennan samstöðuf- und,“ segir Vilhjálmur. Hann segir að hvalveiðarnar hafi skipt sveitarfélögin miklu máli, vegna þess að útsvarstekjur af starfseminni hafi hjálpað sveit- arfélögunum á svæðinu mikið eftir hrun. Góð tíðindi Árni Finnsson, formaður Nátt- úruverndarsamtaka Íslands, sagði aðspurður hvað hann segði um þessa frétt af Hval hf. „Ég tel þetta vera góð tíðindi og við hjá Náttúruverndarsamtökum Íslands erum ánægð með þessa ákvörðun. Mér finnst gott hjá Kristjáni Loftssyni að sjá að þetta er ekki að ganga og taka þess vegna ákvörðun um að hætta stór- hvalaveiðum.“ Hvalur hættir að óbreyttu í júní  Kristján Loftsson búinn að gefast upp á endalausu skrifræði í Japan  Utanríkisráðherra segir að lítið hafi breyst, þrátt fyrir tilraunir ráðuneytisins til að gæta hagsmuna fyrirtækisins í Japan 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2016 Kristján segist hafa verið í Japan í byrjun mánaðarins. Þar hafi hann lesið viðtal við fulltrúa Ford Motor Cor- poration í dagblaðinu Japan Times. Hann hafi gefið það út að Ford ætlaði að hætta að selja bíla sína í Japan frá og með næstu áramótum. Þeir hafi selt 5 þúsund bíla í fyrra, sem væri alltof lítið og þeir mættu eintómum hindrunum í japanska embættismannakerfinu. „Ástæðan er nákvæmlega sú sama og ég var að gefa upp við þig. Ford er búið að gefast upp á skrifræðinu í Japan og segir að það sé bara ekkert eigandi við þetta. Þannig að við erum eiginlega á sama báti og Ford Motor Company!,“ segir Kristján og hlær við. Hvalur á sama báti og Ford SKRIFRÆÐI EMBÆTTISMANNAKERFISINS Í JAPAN Kristján Loftsson Útflutningur á hvalaafurðum 2006-2015 *Bráðabirgðatölur. Tölur fyrir 2016 hafa ekki verið birtar. Tölur eru á verðlagi hvers árs. Fob-verð (Free on board)= verð vörunnar þegar hún er komin um borð í flutningsfar í útflutningslandi. Í heildartölunni eru 3 kíló af hvalkjöti sem flutt var til Grænlands árið 2009. Fob-verð var 5.442 kr. Fryst hvalkjöt Aðrar frystar hvalaafurðir Frystar hvala- afurðir, ótaldar annarsstaðar Ár Land Magn, kíló Fob-verð, ISK Magn, kíló Fob-verð, ISK Magn, kíló Fob-verð, ISK 2006 Færeyjar 450 325.000 2008 Færeyjar 909 722.927 Japan 81.774 94.038.488 2009 Grænland 2010 Færeyjar 650 2.256.019 Japan 764.272 1.294.392.217 Lettland 250 306.781 2011 Japan 635 486.189 Japan 940.946 1.232.419.147 2012 Grænland 10 32.233 Japan 1.041.412 1.268.106.992 2013 Japan 386.504 292.989.883 Noregur 950 93.853 2014 Japan 2.325.235 1.750.073.356 2015* Japan 1.815.713 1.791.521.425 Alls 84.678 98.167.637 1.705.218 2.526.811.364 5.569.814 5.102.785.509 Samtals 7.735.129.665

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.