Morgunblaðið - 26.02.2016, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2016
!"#
$#
"
$%%
$
"!%
$#
%
$%
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%$
$!#
!
$
"
"!!"
$%
% #
$
%
$"$
!%#
$""
%
"!"
%"
$"
! $#
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Tólf mánaða verðbólga mælist nú
2,2% samkvæmt nýjustu tölum Hag-
stofunnar. Þannig hækkar vísitala
neysluverðs um 0,68% frá fyrra
mánuði. Vísitala neysluverðs án hús-
næðis hækkar hinsvegar um 0,69%.
Vetrarútsölur eru víða gengnar til
baka og hækkaði verð á fötum og
skóm um 6,4% milli mánaða og verð
á húsgögnum og heimilisbúnaði um
11,7%.
Spár greiningaraðila um verð-
bólgu febrúarmánaðar reyndust allar
vanáætlaðar. Spár bankanna um
hækkun vísitölu neysluverðs í febrúar
voru á bilinu 0,3% til 0,6%.
Verðbólgan er 2,2% í
febrúarmælingunni
● Leigufélagið Klettur, sem er sjálfstætt
dótturfyrirtæki í eigu Íbúðalánasjóðs,
hefur verið auglýst til sölu. Virðing mun
annast söluferlið fyrir hönd sjóðsins.
Leigufélagið var stofnað í janúar 2013 og
samanstendur eignasafn þess af 450
íbúðum sem eru í útleigu. Markmið fé-
lagsins er að bjóða almenningi upp á
íbúðir til tryggrar langtímaleigu. Þeir
fjárfestar sem hyggjast bjóða í félagið
munu þurfa að skila inn óskuldbindandi
tilboði í síðasta lagi mánudaginn 4. apríl.
Leigufélag í eigu Íbúða-
lánasjóðs auglýst til sölu
STUTTAR FRÉTTIR ...
Sigurður Nordal
sn@mbl.is
Hagnaður Landsbankans nam 36,5
milljörðum króna á síðasta ári, en
það er 6,8 milljörðum króna meiri
hagnaður en á árinu 2014. Það hefur
veruleg áhrif á afkomuna að Lands-
bankinn gerði á árinu 18 milljarða
króna tekjufærslu vegna virðis-
breytingar á útlánum, sem einkum á
rætur að rekja til bakfærslu á eldri
varúðarfærslu sem gerð var vegna
óvissu um gengistryggð lán. Sam-
bærileg tekjufærsla vegna virðis-
breytinga útlána var einnig gerð árið
2014 og nam þá um 20 milljörðum
króna fyrir skatta.
Hreinar vaxtatekjur Landsbank-
ans jukust um 4,3 milljarða króna á
milli ára og námu 32,3 milljörðum
króna á síðasta ári. Vaxtamunur
eigna og skulda hækkaði úr 1,9% ár-
ið 2014 í 2,2% í fyrra.
Hreinar þjónustutekjur hækkuðu
um 1,0 milljarð króna milli ára og
námu liðlega 6,8 milljörðum árið
2015, sem er 17% hækkun. Skýrist
það af auknum umsvifum í markaðs-
viðskiptum og eignastýringu, auk
breytinga á kortamarkaði sem skila
auknum þjónustutekjum.
Laun og launatengd gjöld hækk-
uðu um 1% hjá Landabankanum en
annar rekstrarkostnaður lækkaði
um 5% á milli ára.
Heildareignir Landsbankans
námu 1.119 milljörðum króna í lok
ársins og hækkuðu um 20,3 milljarða
á síðasta ári. Þar af námu útlán til
viðskiptavina 811 milljörðum króna
en útlán jukust um 93 milljarða
króna á milli ára. Aukningin er að
stærstum hluta vegna aukinna íbúð-
arlána til einstaklinga ásamt aukn-
um lánveitingum til fyrirtækja.
Eigið fé Landsbankans um ára-
mótin var 264,5 milljarðar króna,
tæplega 14 milljörðum króna meira
en í árslok 2014, þrátt fyrir að geidd-
ur hafi verið 23,7 milljarða króna
arður til hluthafa. Eiginfjárhlutfall í
árslok 2015 var 30,4%.
Greiða 80% hagnaðar í arð
Steinþór Pálsson bankastjóri seg-
ir í afkomutilkynningu að góður
gangur hafi verið á nánast öllum
sviðum hjá Landsbankanum á síð-
asta ári, en stórir og óvenjulegir liðir
hafi haft töluverð áhrif. „Viðbúið er
að hagnaður muni lækka töluvert á
næstunni þar sem ekki er reiknað
með áhrifum af þessum óvenjulegu
liðum í rekstri bankans til framtíð-
ar.“
Stjórn bankans hyggst leggja til
við aðalfund að greiddur verði 28,5
milljarða króna arður til hluthafa
eða sem nemur tæplega 80% af
hagnaði ársins 2015.
Landsbankinn með
36 milljarða hagnað
Morgunblaðið/Eggert
Ársreikningur Eiginfjárhlutfall Landsbankans var 30,4 % í lok síðasta árs.
Stjórn bankans leggur til 28,5 milljarða króna arðgreiðslu
Hagnaður vátryggingarfélagsins
Varðar var 658 milljónir króna á síð-
asta ári og jókst um 71% á milli ára.
Munar þar mest um mikinn vöxt í
fjárfestingartekjum sem voru 1.164
milljónir króna og jukust um 718
milljónir á milli ára, eða um 161%.
Iðgjöld námu tæplega 5,8 milljörð-
um króna á síðasta ári og jukust um
8,5%. Tjón námu hins vegar nærri
4,6 milljörðum og jukust um 17,4% á
milli ára. Rekstrarkostnaður hækk-
aði um 11% og var kostnaðarhlutfall
óbreytt á milli ára, 22,1%.
Samsett hlutfall samstæðu Varðar
versnaði nokkuð frá árinu á undan
og var 105,8% á síðasta ári, en sam-
setta hlutafallið var 98,3% árið 2014.
Hækkunin skýrist einkum af aukn-
um tjónakostnaði í ökutækjatrygg-
ingum.
Heildareignir félagsins námu 11,3
milljörðum króna í lok síðasta árs og
höfðu þá vaxið um 10,4% yfir árið.
Eigið fé var 3,5 milljarðar og var eig-
infjárhlutfall 30,7% í lok árs 2015.
Stefnt að sölu á fyrri hluta árs
Guðmundur Jóhann Jónsson for-
stjóri segir afkomu Varðar þá bestu í
sögu félagsins og þar ráði mestu góð
afkoma af fjárfestingarstarfsemi
sem var mun betri en áætlanir gerðu
ráð fyrir. „Á móti var afkoma vá-
tryggingarstarfseminnar undir
væntingum sem skýrist helst af auk-
inni tíðni ökutækjatjóna og hækkun
viðgerðarkostnaðar,“ segir Guð-
mundur í afkomutilkynningu. „Það
er verulegt áhyggjuefni hvað tjónum
hefur fjölgað síðustu tvö ár.“
Vörður er í eigu færeyska bank-
ans Bank Nordik sem hyggst ganga
frá sölu félagsins til Arion banka á
fyrri hluta þessa árs, með fyrirvara
um að viðskiptin uppfylli kröfur
eftirlitsaðila.
Morgunblaðið/Eggert
Tryggt Guðmundur forstjóri segir
afkomuna þá bestu í sögu Varðar.
Góð ávöxtun eyk-
ur hagnað Varðar
Fjölgun tjóna er
mikið áhyggjuefni,
segir forstjórinn
Tölvuleikjaframleiðandinn CCP
skilaði 2,7 milljarða króna hagn-
aði á árinu 2015. Felur það í sér
mikil umskipti frá fyrra ári þeg-
ar félagið tapaði 8,7 milljörðum
króna. Tap síðasta árs skýrðist
fyrst og fremst af gjaldfærslu
vegna þróunarkostnaðar. Þannig
lækkar rannsókna- og þróun-
arkostnaður félagsins um rúm
80% milli ára, fer úr rúmum 11
milljörðum í tæpa 2,2 milljarða á
nýliðnu ári.
EBITDA-hagnaður nam 4,1
milljarði samanborið við 1,3 millj-
arða á árinu 2014.
Heildareignir CCP námu 10,4
milljörðum í lok árs. Eiginfjár-
staða fyrirtækisins hefur styrkst
til mikilla muna frá fyrra ári
þegar eigið fé þess var neikvætt
um 2 milljarða. Nam það í lok
síðasta árs 4,6 milljörðum og var
eiginfjárhlutfall 44%.
Vaxtaberandi skuldir fyrirtæk-
isins lækkuðu um 600 milljónir
milli ára og námu 2,9 milljörðum
í árslok. Þá var handbært fé
félagsins 7,3 milljarðar á sama
tíma.
Ljósmynd/Arnar Valdimarsson
Forstjóri CCP Hilmar V. Pétursson.
CCP úr
tapi í
hagnað
Eigið fé félagsins
að nýju orðið jákvætt
BJÓÐUM NOKKRAR GERÐI
R AF
FERMINGARBORÐUM.
Fjölbreyttir réttir smáréttabo
rðanna
okkar henta bæði í hádegis-
og kvöldveislur.
Steikarhlaðborðin eru alltaf
vinsæl, sérstak-
lega ef um kvöldveislu er að
ræða. Bjóðum
upp á tvær gerðir ka hlaðb
orða, en einnig
er í boði að panta einstaka h
luta úr þeim. t.d
Ka snittur, fermingartertur.
Pinnahlaðborð
eru þægileg og slá hvenær s
em er í gegn.
Hólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
æðisleg
veislan
verður
Ferming
ar-
TapasSmáréttir Kaltborð P
innamatur
Góð fe
rming
ar-
SÚPA BRAUÐOG SMÁRÉTT
IR
Hádegisveisla 12-14
Verð frá kr. 2.760
TAPASVEISLA 9 RÉTTIR
Síðdegisveisla 16-19
Verð frá kr. 3.950
STEIKARBORÐ
Kvöldveisla 17-20
Verð frá kr. 3.600
KALT HLAÐBORÐ
FISKRÉTTIR
Verð frá kr. 5.160
TERTU OGTAPASBORÐ
Miðdegisveisla 13-15
Verð frá kr. 4.370
FERMINGARKAFFIHLAÐBO
RÐ
Miðdegisveisla 14-17
Verð frá kr. 2.450
PINNAMATUR
Miðdegisveisla 14-17
Verð frá kr. 2.850
Samanlagður hagnaður við-
skiptabankanna þriggja, Arion
banka, Íslandsbanka og Lands-
bankans, nemur 106,7 millj-
örðum króna á árinu 2015.
Þetta er 25,5 milljörðum króna
meiri hagnaður en árið á undan
þegar samanlagður hagnaður
bankanna var 81,2 milljarðar.
Hagnaður beggja áranna litast
mjög af einskiptisliðum en
áætla má að hagnaður af reglu-
legri starfsemi nemi um eða yfir
50 milljörðum króna fyrir bank-
ana þrjá á síðasta ári.
Hagnaðurinn
107 milljarðar
AFKOMA BANKANNA 2015