Morgunblaðið - 26.02.2016, Side 19

Morgunblaðið - 26.02.2016, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2016 Bílastæðavandi Íbúum, ferðamönnum og bílum fjölgar en bílastæðum í miðbæ Reykjavíkur fækkar auk þess sem fleiri götum er lokað fyrir umferð og því getur reynst erfitt að finna bílastæði. Styrmir Kári Svo bar við í upp- hafi heimastjórnar að konungur Danmerk- ur og Íslands kom í heimsókn. Hápunktur heimsóknar konungs var ferðalag konungs austur í sveitir. Að ferð lokinni, við komu í bæinn, sagði vor sæli konungur, senni- lega ekki mikið ódrukkinn; „ríkin mín tvö“, en það töldu Íslendingar staðfestingu þess að sjálfstæði væri eigi langt undan. Það er talið að konungur vor hafi mælt þessi fögru orð í brekkunni fyrir ofan Stjórnarráðið, þar sem verið var að ljúka Safnahúsinu. Það lá vissulega vel á kóngi í þessari Ís- landsferð. Má vera að hann hafi orð- ið músíkalskur í ferðinni, jafnvel hitt Maurice Ravel á Þingvöllum! Það er nefnilega til póstkort frá tón- skáldinu frá svipuðum tíma, ritað á Þingvöllum. Það er nefnilega þannig, að allar götur frá því Íslendingar fengu sjálfstæði og fóru að ráða eigin mál- um, þá hafa þeir sem málum ráðið verið að leita leiða til að mismuna þegnum, búa til tvö ríki og tvær þjóðir, en ávallt haft að leiðarljósi að gera það með málefnalegum hætti. Svo hafa þeir vaðið eld og brenni- stein við að réttlæta ruglið. Þannig var leitað leiða til að mismuna litlum bönkum og stórum bönkum þegar lagður var á „bankaskattur“. Þá varð leiðsögnin sú að mismuna með þeim hætti að lítill MP banki greiddi aðeins örlítinn „bankaskatt“því MP banki hafði ekki „valdið hruninu“. Málefnanleg skipting Þjóðin hefur skipt sér sjálf með mismálefna- legum hætti. Þannig var til þjóð í landinu sem áði í Brúarskála en önnur þjóð sem áði í Stað- arskála þegar farið var úr eða í Húnavatnssýslu. Einnig voru tvær þjóðir, sem keyptu eldsneyti á mis- munandi stöðum, ESSO eða SHELL. Þeir sem ekki tilheyrðu neinni þjóð keyptu sitt eldsneyti hjá BP. En eins og Örn Úlfar sagði; „Manneskjan er yfirleitt ósíngjörn vera, sífellt reiðubúin til að aðhyll- ast hugsjónir, einkum ef þær eru nógu fjarri því að bæta hag hennar, en berjast með oddi og eggju gegn óvinum ef þeir eru nógu óraunveru- legir, ótrúlegir eða óskiljanlegir, ég tala nú ekki um ef þeir eru grýla ein.“ Og svo bætir Bjartur um betur og segir; „Er nokkrum of gott að vera fífl?“ Bjartur var eins og aðrir, hann talaði til að leyna hugsun sinni. Erlendir aðilar, sem að hluta til eru innlendir aðilar Því er þetta rætt nú að enn ræður tvíhyggja ríkjum í huga íslenskrar þjóðar. Það er ekki að þjóðin hafi orðið mikið músíkalskari með ár- unum. Það er helst að fjöldi mæti á tónleika þar sem graðhestatónlist er í boði. Í hugum þeirra er hafa komið til starfa í íslenskri fjármála- starfsemi er ekki talið óeðlilegt að fjármálastarfsemi þrífist eftir öðr- um reglum og utan við það sem ger- ist hjá íslenskri þjóð. Þannig segir einn þeirra sem þiggja kaupauka úr hendi gjaldþrota banka, endurreists á rústum banka, sem jaðraði við að vera glæpabanki: „Aðspurður um andrúmsloftið í þjóðfélaginu í dag þar sem erfiðar kjaraviðræðum hafa m.a. staðið yfir segir hann greiðsl- urnar hjá ALMC lúta öðrum lög- málum. „Þarna eru erlendir aðilar sem eru að vinna fyrir erlenda aðila þrátt fyrir að hluti af þeim séu inn- lendir aðilar. Þetta lútir þeim lög- málum sem svona gerir erlendis,““ segir hann og bætir við að málið sé því ekki alveg sambærilegt öðrum. „Þetta er klárlega ekki einsdæmi á alþjóðlegum vettvangi.“ Svo mælti forstjórinn! Þetta er sönn saga sögð í einlægni, andstætt lyginni, sem oft er merkilegri. Þarna eru „erlendir aðilar innlendir aðilar“ eða þannig! Við liggjum því ekki lengur lengst útafburt allra manna í jarðríki, við tökum upp siðu miðlægra þjóða. Til að gera kaupaukana óskiljanlega dauðlegu fólki þá segir forstjórinn fyrrverandi: „Aðspurður um grund- völlinn fyrir greiðslunum og út- reikninga þar að bak við segir hann kerfið vera flókið en bætir við að greiðslurnar séu í takti við þann ár- angur sem félagið hefur náð.“ Er nú ekki rétt að skila til þeirra sem lögðu efniviðinn til? Hvað kemur það málinu við hvað gert er erlend- is? Nú vill til að sá er þetta ritar er meðlimur í lífeyrissjóði sem tapaði um 2,5 milljörðum á starfsemi upp- haflega bankans í þessari röð. Það er erfitt að sætta sig við að í kjölfar gjaldþrots, sem að vísu var lokið með einhvers konar nauðasamningi, þá eru starfsmönnum greiddir 3,3 milljarðar í „kaupauka“. Fyrir hvaða afköst? Ég sætti mig ekki við þess háttar afgreiðslu, ég greiddi ekki í lífeyrissjóð til að dreifa í kaupauka misviturra manna! Eða er þetta ekki hluti af stöðugleika- framlagi viðkomandi fjármálastofn- unar? Greiðslujafnaðarvandi þess- arar fjárhæðar er samur, hvort heldur hann lendir hjá kröfuhöfum ellegar útvöldum aðli starfsmanna. Önnur mál sem upp hafa komið á liðnum vetri eru til þess fallin að misbjóða venjulegu fólki. Sala Arion banka á hlutabréfum í Símanum hf. er rugl. Þessi setning: að samþætta hagsmuni starfsmanna og félagsins! Þetta hefur heyrst áður um gjafa- gerninga. Þá lánuðu íslenskir bank- ar starfsmönnum fyrir eigin hluta- bréfum, án trygginga og fölsuðu eigið fé bankanna. Tryggingin var í eftirstæðum eignum bankans sjálfs! Það var hluti af markaðsmisnotkun, sem er dæmt fyrir. Nú á að reyna eitthvað svipað, eins og hjá rón- anum, sem ætlar ekki að fá timb- urmenn næst þegar hann drekkur. Á sama veg er Borgunarmál. Þar eru útvaldir starfsmenn, sem vita aðeins meira en gagnaðilinn í samn- ingnum. Það er hrúgað inn upplýs- ingum í gagnaherbergi. Sennilega að mestum hluta gagnslausar upp- lýsingar, en aðalatriðið liggur falið. Ef mál eru þannig vaxin heita það innherjasvik. Um það er fjallað í lögum um verðbréfaviðskipti. Sam- svarandi ákvæði er í fjársvikakafla hegningarlaga. Endurtekning Þegnar þessa lands eru greið- endur að forréttindum útvalinna. Það á við um óhóflegan vaxtamun! Það á við um símakostnað! Það á við um greiðslukortagjöld, hvort heldur þau eru falin eða birtast í heima- banka! Það á við um greiðslujafn- aðarvanda þegar eignum slitabúa er skotið undan stöðugleikaframlagi! Þeir, sem sitja á bekk í fjármálafyr- irtækjum, virðast hafa fullan vilja til að endurskapa og endurtaka ósiði fyrri tíðar. Konungur vor skipti ríkj- um sínum með málefnalegum hætti. Skipting í boði fjármálaheimsins hefur aldrei verið málefnaleg. Þeir, sem hafa lýst skiptingunni, hafa gjarnan litið út eins og gljáfægðir hlandkoppar. Hér varð siðrof milli þjóðar og fjármálaheims. Siðrof verður ekki endurtekið. Eftir Vilhjálm Bjarnason » Að ferð lokinni, við komu í bæinn, sagði vor sæli kon- ungur, sennilega ekki mikið ódrukkinn; „ríkin mín tvö“… Vilhjálmur Bjarnason Höfundur er alþingismaður. „Ríkin mín tvö“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.