Morgunblaðið - 26.02.2016, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.02.2016, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2016 ✝ Sigurbjörg Ósk-arsdóttir fædd- ist 11. september 1926 á Hnapp- stöðum á Skaga- strönd. Hún lést á Landspítalanum, Fossvogi, 11. febr- úar 2016. Foreldrar hennar voru Helga Vilhelm- ína Sigurðardóttir, f. 15. apríl 1902, d. 18. mars 1974, og Óskar Lauf- dal, f. 22. janúar 1885, d. 24. jan- úar 1946. Sigurbjörg var ein af átta systkinum. Þorsteinn Lauf- dal er einn eftirlifandi. Sigurjónsdóttir. Þau eiga tvo syni og átta barnabörn. 2. Bylgja Björk, f. 8. apríl 1948, maki Bragi Ingvason. Þau eiga þrjú börn og sex barnabörn. 3. Óskar Karl, f. 12. ágúst 1949, maki Helga Guðný Jónsdóttir. Þau eiga einn son. 4. Vilhelm, f. 6. apríl 1952. Hann á fjögur börn og þrjú barnabörn. 5. Gunnbjörn, f. 6. apríl 1952, maki Kristjana Möller. Þau eiga þrjár dætur og fimm barnabörn. 6. Sigurbjörn Laufdal, f. 8. febrúar 1959, maki Halldóra Sigurþórs- dóttir. Þau eiga þrjú börn og fimm barnabörn. Sigurbjörg var húsfreyja lengst af og vann ýmis fisk- vinnslustörf sín seinni ár eða þar til hún fór á eftirlaun. Útför Sigurbjargar verður gerð frá Grindavíkurkirkju í dag, 26. febrúar 2016, og hefst athöfnin kl. 14. Sigurbjörg gift- ist 2. febrúar 1948 Guðmundi Karls- syni skipstjóra, f. 10. október 1919, d. 28. júlí 2001. Sigurbjörg og Guðmundur hófu sinn búskap á Skagaströnd en bjuggu lengst af í Grindavík. Þau fluttu síðan í Kópavog þar sem þau eyddu síð- ustu æviárunum. Börn Sigur- bjargar og Guðmundar eru: 1. Hreinn Sveinsson, f. 15. desem- ber 1943, maki Svanhildur Elsku mamma mín. Í dag kveð ég þig með sorg og söknuði í hjarta en hugga mig við það að þú ert komin til pabba sem þú saknaðir ávallt eftir að hann lést. Þú barst aldurinn mjög vel og hafðir gott minni allt fram und- ir það síðasta. Þú varst með ágæta heilsu þar til þú fórst í uppskurð í júní í fyrra og eftir áramót varst þú svo til föst á sjúkrahúsi. Þú mundir allan aldur og afmælis- daga og var nóg að hringja í þig og spyrja ef minni mitt brást. Þú varst góð mamma og yndisleg amma. Börnin mín elskuðu þig og ég tala nú ekki um hvað lang- ömmubörnin elskuðu þig mikið. Þú varst dýravinur og mikil hann- yrðakona. Þú saumaðir allan fatn- að á okkur systkinin, prjónaðir mikið, saumaðir fallega hluti og gerðir öll kort handa fjölskyldum og vinum. Eftir þig liggur margt fallegt handverkið. Þú misstir mikið þegar pabbi féll frá. Þá misstir þú stóru ástina í lífi þínu, besta vininn og ferðafélagann og þann missi ræddum við oft. Það besta sem þú gerðir eftir að hann dó var að flytja í Gullsmárann þar sem margt var í boði fyrir eldri borgara og þú naust þess að vera með vinkonum þínum í alls kyns tómstundum. Í Gullsmáranum kynntist þú góðu fólki og yndis- legu vinkonur þínar Kristín og El- ísabet hugsuðu hlýtt til þín og fylgdust vel með þér í veikindum þínum. Við vorum mjög nánar mæðgur og höfðum mikið sam- band hvor við aðra. Ég hef saknað heimsóknanna til þín og símtal- anna síðan slokknaði á þeim. Við áttum yndislega tíma saman og þú varst dugleg að koma í heim- sókn og vera hjá mér. Einnig átt- um við ófáar samverustundir í sumarbústaðnum þar sem minn- ingin um ykkur pabba lifir að ei- lífu. Þótt móðir mín sé nú aðeins minningin ein mun ég ávallt minnast hennar með glöðu geði og dýpstu virðingu, hugheilu þakklæti og hjartans hlýju, fyrir allt og allt. (Sigurbjörn Þorkelsson) Takk fyrir allt, elsku mamma mín. Ég veit að þú ert núna komin í Sumarlandið til pabba og fjöl- skyldunnar þinnar. Hvíl í friði. Þín dóttir, Bylgja Björk Guðmundsdóttir. Elsku amma og langamma, nú ertu komin heim í sælureitinn sem afi hefur undirbúið vel fyrir komu þína ef við þekkjum hann rétt. Það gleður okkur jafn mikið að þú sért komin í hlýjar hendur hans eins og það syrgir okkur að hafa misst þig. Góðar og fallegar minningar eru svo sannarlega eitthvað sem þú skilur eftir þig fyrir okkur að eiga í framtíðinni og allar sögurnar sem þú sagðir okkur frá þínum yngri árum, sem þú mundir eins og þær hefðu gerst í gær. Minnugri konu höfum við aldrei kynnst og það varstu fram á þinn síðasta dag. Þú sagðir reglulega að það hafi verið vegna þess að þú smakkaðir aldrei dropa af áfengi eða reyktir aldrei á þinni ævi og varst stolt af því og það máttir þú svo sannarlega vera. Við vildum að margir myndu hugsa svona um sig eins og þú gerðir og þegar við skrifum þessa grein þá áttum við okkur á því að við hefðum átt að gera heimild- armynd eða skrifað bók um þig því við erum hrædd um fá okkar muni hlutina eins vel og þú gerðir. Þín lífssýn einkenndist af ein- stöku æðruleysi og hógværð sem við lærðum svo sannarlega mikið af og verður gott veganesti fyrir okkur í framtíðinni. Það er ein- faldlega svo margt fallegt og gott sem þú skilur eftir þig og við eig- um öll eftir að sakna. Lítið en gott dæmi um það eru pönnukökurnar þínar, en enginn gerir þær betri en þú enda voru þær það fyrsta sem Karen minntist á þegar frétt- irnar bárust okkur að þú værir farin. Það var unun að fylgjast með þér töfra fram alla fallegu handavinnuna þína, afköstin voru hreint út sagt ótrúleg án þess þó að bitna á vandvirkninni. Nú geymum við þetta eins og dýr- gripi. Þú máttir aldrei aumt sjá eða lítinn unga finna, þá varstu ávallt komin til aðstoðar. Alla þína tíð hefur þú haft mikla ástríðu fyr- ir börnum og dýrum, ef dýrin bíða eftir okkur hinum megin líka þá er heill dýragarður sem tekur á móti þér ásamt afa. Við vitum þá líka hvert Dimma myndi fara þeg- ar hún verður komin á aldur. Amma og langamma, við eigum eftir að sakna þín en þú getur flogið hreykin í burtu á þínum stóru englavængjum sem þú vannst þér svo sannarlega vel inn í þessu lífi. Takk fyrir að hafa ver- ið til og mundu eftir að kyssa afa frá okkur. Helgi Rúnar, Hildur Ýr, Karen Lind og Dimma. Elsku amma. Nú ert þú komin í Sumarlandið þitt og við sitjum hér eftir og ylj- um okkur við minningarnar sem við eigum um þig. Þú varst ynd- isleg manneskja og góðhjörtuð kona. Stundirnar sem við áttum saman eru okkur dýrmætar. Stundirnar þegar við sátum og spjölluðum um alla heima og geima. Stundirnar þegar við vor- um saman hér á Blómsturvöllum, í sumarbústaðnum og í Hvalfirði. Þú varst dugleg að koma og eyða tíma þínum hjá okkur og það er okkur fjölskyldunni ómetanlegt. Þú sast við hannyrðir og ég dund- aði í eldhúsinu og við ræddum um lífið og tilveruna. Þið afi eydduð miklum tíma í bústaðnum og þar áttum við líka margar gæðastund- ir með ykkur. Þú gerðir heimsins bestu pönnukökur og þegar þær voru á borðum slógu þær alltaf í gegn jafnt hjá ungum sem öldn- um. Þú varst snyrtimenni og vild- ir ávallt hafa hreint í kringum þig og heimili þitt bar þess glöggt merki. Við eigum mikið af fallegu handverki eftir þig því þú varst mikil hannyrðakona og eyddir ófáum stundum við að prjóna og sauma út. Þú varst rólyndismann- eskja, umhyggjusöm og mikill dýravinur. Undir það síðasta varstu stundum lituð af skoðun- um Útvarps Sögu og tókst djúpt í árinni varðandi ýmis málefni líð- andi stundar en það var nú bara okkur hinum til skemmtunar. Þú varst ánægð fyrir mína hönd þegar við Siggi kynntumst og við hófum búskap. Stelpurnar mínar, Sigrún Björk og Bylgja Björk, voru mjög nánar þér og þú fylgdist vel með þeim og því sem þær voru að gera. Það var líka svo að ef eitthvað merkilegt gerðist í þeirra lífi þá var það viðkvæðið að hringja í langömmu og láta hana vita. Þú sýndir mikinn innri styrk í veikindum þínum og æðruleysi þitt var algjört. Það hefði nú farið með flesta að þurfa að ganga í gegnum þessa hrinu veikinda en þú tókst þessu með stóískri ró og settir allt þitt traust á læknana. Þú sagðir mér að þú hefðir það að markmiði að komast í ferminguna hennar Sigrúnar Bjarkar og helgina áður en þú kvaddir varstu að spá í hverju þú ættir að klæð- ast í fermingunni. Ég er viss um að þú verður með okkur þann merkisdag því þú varst mikil sel- skapsmanneskja og þér þótti gaman að vera í veislum. Við kveðjum í dag góða konu sem vildi að allir lifðu í sátt og sam- lyndi, ekki síst stórfjölskyldan. Þú varst okkur á Blómsturvöllum mjög kær og við söknum þín en vitum af þér í yndislegum faðmi afa. Hún var einstök perla. Afar fágæt perla, skreytt fegurstu gimsteinum sem glitraði á og gerðu líf samferðamanna hennar innihaldsríkara og fegurra. Fáar perlur eru svo ríkulega búnar, gæddar svo mörgum af dýrmætustu gjöfum Guðs. Hún hafði ásjónu engils sem frá stafaði ilmur umhyggju og vináttu, ástar og kærleika. Hún var farvegur kærleika Guðs, kærleika sem ekki krafðist endurgjalds. Hún var vitnisburður um bestu gjafir Guðs, trúna, vonina, kærleikann og lífið. Blessuð sé minning einstakrar perlu. (Sigurbjörn Þorkelsson) Hvíl í friði, elsku amma. Þín Guðrún Inga Bragadóttir. Manni finnst stundum að sum- ir séu nánast ódauðlegir og amma var ein af þeim. Hún var alltaf svo heilsugóð og hress og virtist ekk- ert eldast, nema rétt undir það síðasta þegar heilsunni fór að hraka. Nú þegar komið er að leiðar- lokum er ég þakklátur fyrir hinar fjölmörgu samverustundir okkar ömmu. Amma og afi áttu alltaf sérstakan stað í mínu hjarta, enda var heimili þeirra á Túngöt- unni mitt annað heimili á mínum yngri árum. Þar var amma alltaf til staðar hvort sem ömmustrák- urinn þurfti aðstoð eða til að spila á spil, sem mikið var gert af. Einnig átti ég margar góðar stundir í sumarbústaðnum í Þrastarskógi hjá ömmu og afa og margt skemmtilegt var brallað þar. Amma var einstök og góðhjört- uð kona sem fylgdist vel með hvernig mér og fjölskyldu minni gekk. Hún var meðal annars stolt af góðu gengi í körfuboltanum, fyrst hjá mér og Sirrý en síðar hjá strákunum okkar. Amma undi sér alltaf vel með fjölskyldu og vinum í samkvæm- um hvers konar. Í brúðkaupi okk- ar Sirrýjar lék hún á als oddi og hafði gaman af. Mér þótti mikið vænt um eitt óvæntasta atriði brúðkaupsins; þegar amma steig á svið og söng sitt uppáhaldslag, Undir bláhimni, fyrir okkur brúð- hjónin. Og svo dönsum við dátt, það er gaman, meðan dagur í austrinu rís. Og svo leiðumst við syngjandi saman út í sumarsins paradís. (Magnús K. Gíslason) Amma var ávallt bindindis- manneskja á áfengi og tóbak og sannarlega góð fyrirmynd fyrir afkomendur sína. Í samverustundum okkar ömmu í seinni tíð hefur verið gam- an að rifja upp eldri tíma, en sér- staklega eftirminnilegt var þegar hún og afi heimsóttu okkur fjöl- skylduna til Þýskalands og dvöldu hjá okkur í tvær vikur. Amma hafði gaman af að passa Ingva Þór og Jón Axel og talaði mikið um hversu góðir þeir voru alltaf hjá henni. Við gerðum margt skemmtilegt saman og að sjálf- sögðu var gripið í spil á kvöldin. Amma dvaldi hjá okkur fjöl- skyldunni nokkra daga í haust þegar hún var að jafna sig eftir sjúkrahúsdvöl. Þetta voru ánægjulegir dagar sem stóð til að endurtaka um leið og heilsa ömmu leyfði, en því miður gekk það ekki eftir. Þarna kom enn í ljós hversu vel amma náði saman með strákunum og dvöl hennar skilur eftir dýrmætar minningar hjá þeim. Elsku amma mín, nú þegar við kveðjum þig í hinsta sinn þá þökk- um við fjölskyldan fyrir alla þá hlýju og ást sem þú hefur gefið okkur í gegnum árin. Minningin um yndislega ömmu og langömmu mun lifa. Guðmundur, Stefanía og synir. Sigurbjörg Óskarsdóttir ✝ Unnur Björg-vinsdóttir fæddist í Reykjavík 3. maí 1941. Hún lést á heimili sínu í Kingsburg í Kali- forníu í Bandaríkj- unum 14. desember 2015. Unnur var dóttir hjónanna Björgvins H. Björnssonar, f. 1915, d. 1944, og Ástu S. Þorkelsdóttur, f. 1915, d. 2008. Systir Unnar, Björg Hall- dóra, er fædd 1944. Börn hennar og Valdimars Karlssonar eru Kristinn Benedikt og Ásta Björg. Unnur giftist James E. Morg- an 4. júlí 1961 og flutti með hon- um til Kaliforníu. Þá var Björg- vin ættleiddur af Ástu og Þóri. Unnur eignaðist tvö börn með manni sínum, Önnu Kristínu, f. 19. apríl 1962, gift Rick Pender- grass og eiga þau tvo syni, Luke og Danny, og Jim, f. 30. sept- ember 1965, fráskilinn og barn- laus. Unnur og Jim slitu sam- vistum 1986. Unnur lærði hjúkrun í Banda- ríkjunum og vann við hana þar til hún hætti störfum 2007. Lengst bjó hún í Rancho Cucamonga en hafði flutt þaðan til Kingsburg, þar sem Anna Kristín býr, í októ- ber 2015. Bálför og minningarathöfn fóru fram í Rancho Cucamonga 16. janúar sl. Kveðjuathöfn fer fram í Há- teigskirkju í dag, 26. febrúar 2016, kl. 15. Seinni maður Ástu var Þórir Benedikt Sigurjónsson, f. 1915, d. 2003, og áttu þau Steinunni, f. 1950. Börn hennar og Björns S. Jóns- sonar eru Jón Viðar, Hildur og Þórir Benedikt. Unnur eignaðist með Jimmy L. Richardson soninn Björgvin, f. 11. desember 1959, kvæntur Helgu Jónatansdóttur. Hún átti fyrir dótturina Ragnheiði Valdimarsdóttur, en fóstursonur þeirra er Hermann Björgvinsson. Elskuleg systir mín hefur kvatt þennan heim og þá er tími til að hugsa aftur í tímann.Við systurnar vorum alltof stutt sam- an og allt of langt á milli okkar. Þegar Unnur fæddist bjuggu foreldrar okkar á Sólvallagötu hjá ömmu Önnu og afa Birni. Þau festu fljótt kaup á 75 fm íbúð á Hringbraut 107, þó að þeim hafi liðið vel á Sólvallagötu þá vildu þau vera út af fyrir sig. Þegar íbúðin var tilbúin fluttu þau þrjú inn í íbúðina. En faðir okkar fékk ekki að vera lengi hjá okkur, hann fórst á sjó 11. janúar 1944. Unnur saknaði föður okkar mjög mikið og þegar ég fæddist 29. febrúar þá beindist athygli fólks að nýja barninu. Þó að Unnur hafi verið ung þá komst hún aldr- ei yfir föðurmissinn og mundi alltaf eftir þessum tíma. Unnur var mér ótrúlega góð og dró mig með sér og burðaðist með mig um íbúðina. Unni var hampað og hossað af stórfjölskyldunni á Sólvallagötu. Afi kenndi henni að lesa og var hún orðin læs 5 ára. Hún sótti mikið í að fara upp á Sólvallagötu og leyfði mamma henni það, en fyrst þurfti hún að hringja í ömmu. Fór hún þá til Margrétar, nágranna okkar, og var með 25 aur í litla lófanum og bað um að gjöra svo vel og leyfa sér að hringja og var það auðsótt. Mar- grét náði í skammel svo hún næði upp í símann sem var á veggnum, setti peninginn í skál á borðinu og valdi fjögurra stafa númerið hjá ömmu og auðvitað mátti hún koma til ömmu. Mamma fylgdi henni út að horni á Sólvallagötu og þar tók amma við. Unnur fór á barnaheimili á Löngumýri og ég í Reykholt svo mamma gæti unnið. En svo fékk mamma vinnu á Vesturvallagötu- róló og þá gátum við verið hjá henni. Unnur var mjög góður námsmaður og þurfti lítið að hafa fyrir náminu. Hún las mikið t.d. Judit Bolton og Rósu Bennet. Og svo safnaði hún leikaramyndum, en mín kona klippti ekki út úr blöðum, nei, hún sendi bréf út á einhverjar skrifstofur og fékk myndirnar undirritaðar af leikur- unum. Unnur flutti til Bandaríkjanna þegar ég var 16 ára. Drengurinn hennar varð eftir hjá mömmu og Þóri. Þetta var erfiðasta kveðju- stundin okkar allra, ég hélt ég myndi aldrei sjá hana aftur. Þetta var svo svakalega langt. Unnur reyndi að koma heim á fjögurra ára fresti, en við heim- sóttum hana sjaldnar. Þegar hún kom heim þá voru alltaf veisluhöld hjá fjölskyldunni okkar og naut ég góðs af. Sér- staklega voru fjölskylduböndin sterk hjá föðurfólki okkar. Unnur kom heim í heimsókn í sumar og þá var ég með frænku- boð í föðurætt og Steinunn systir í móðurætt. Góð vinkona mín sagði að okk- ur hefði verið stýrt, eins og undir- búningur að því sem koma myndi væri hafinn. Elsku Björgvin, Anna og Jimmý, mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Ykkar frænka, Björg H. Björgvinsdóttir (Böggý). Unnur Björgvins- dóttir MorganElskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi,langafi, bróðir og mágur, ÓLAFUR PÉTURSSON hagfræðingur, lést 20. febrúar síðastliðinn í Ósló. . Tryggvi Ólafsson, Marianne Thorvaldsen, Pétur Magnús Ólafsson, Laila Huseby, Valdís Björgvinsdóttir, Soffía Pétursdóttir, Gunnar Örn Ólafsson, Pétur Björn Pétursson, Kristín Blöndal, Borghildur Pétursdóttir, Ólafur Haukur Johnson og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FREYDÍS TH. LAXDAL ljósmóðir, Akureyri, lést sunnudaginn 21. febrúar. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 4. mars klukkan 10.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri. . Hrafnhildur L. Ævarsdóttir, Stefán S. Ólafsson, Harpa Ævarrsdóttir, Haraldur B. Ævarsson, Elín S. Ingvarsdóttir, Andri Fannar, Alma, Atli Snær, Ævarr Freyr, Jóhanna Margrét, Freydís Ósk, Kristján Valur og Embla Sif.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.