Morgunblaðið - 26.02.2016, Side 26

Morgunblaðið - 26.02.2016, Side 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2016 Rakel Sævarsdóttir var á skíðum í Austurríki þegar blaðamaðurhafði samband við hana. „Ég hef aðallega verið á snjóbrettumen það er gaman að fara út fyrir þægindarammann þegar maður er fertugur og prófa eitthvað nýtt.“ Rakel er með BA-gráðu í listfræði og MA í hagnýtri menningar- miðlun, hvort tveggja frá Háskóla Íslands. Hún hefur verið að reka vefverslunina kaupstaður.is, netgalleríið Muses.is og síðast Dags- son.com sem er heimasíða Hugleiks Dagssonar. „Það hefur verið svo mikið að gera við að reka Dagsson.com að ég hef ekki haft tíma til að sinna hinum heimasíðunum. Við Hugleikur byrjuðum með Dags- son.com fyrir einu og hálfu ári en ég hafði verið að selja verk eftir hann á Muses.is. Það var svo mikil eftirspurn eftir verkunum hans að við ákváðum að taka þetta skrefinu lengra og vera með sérsíðu um Hugleik. Þar erum við að selja alls konar varning eftir hann, boli og bolla ásamt bókunum, teikningunum og plakötunum. 95% af kaupend- unum eru útlendingar og Hugleikur er orðinn alþjóðlegt merki. Ég sé um að framleiða vörurnar og pakka þeim inn en við seljum þær einnig í Epal, Hörpu og Listasafni Reykjavíkur. Áhugamálin eru þetta týpíska, ferðast og vera með fjölskyldunni, hlusta á góða tónlist og vera með vinum og halda matarboð. Svo er vinnan náttúrlega helsta áhugamálið.“ Eiginmaður Rakelar er Gunnar Hólm Friðriksson, sjómaður hjá Brimi, og börn þeirra eru Ísar Hólm sem er að verða 10 ára og Katla Hólm 6 ára. Morgunblaðið/Eggert Við Reykjavíkurhöfn Rakel fyrir utan skrifstofuna sína. Selur verk Hugleiks Dagssonar á netinu Rakel Sævarsdóttir er fertug í dag S igtryggur fæddist á Akureyri 26.2. 1966 og ólst þar upp: „Ég ólst upp á Brekkunni frá átta ára aldri, miðja vegu milli Barnaskólans, Gagn- fræðaskólans og Menntaskólans. Þetta var afskaplega praktísk staðsetning á heimilinu enda var ég aldrei meira en tvær mínútur að ganga í skólann. Að öðru leyti voru þetta frá- bærar æskuslóðir, stutt út í nátt- úruna í allar áttir, ekki síst upp með Glerárgili og Súlurnar ekki langt frá. Svo dundaði maður sér við að dorga á Höfnersbryggju sem er gamla bryggjan í Inn- bænum. Sigtryggur gekk í Barnaskóla Akureyrar, Gagnfræðaskóla Akur- eyrar, stundaði nám við MA og Sigtryggur Bjarni Baldvinsson myndlistarmaður – 50 ára Á ferðalagi Sigtryggur og Tinna með Baldvini Hrannari, Hallbjörgu Emblu og Tryggva Kolviði í Flateyjardal 2008. Sækir innblástur og hvíld í Héðinsfjörðinn Ermarsund Olíumálverk á striga, eftir Sigtrygg. Verkið var málað 2014. Hafnarfjörður Al- exander Árni Gunnarsson fæddist 5. febrúar 2015 kl. 15.22. Hann vó 3.950 g og var 51,5 cm langur. Foreldrar hans eru Gerður Ósk Grétarsdóttir og Gunnar Þór Árnason. Nýir borgarar Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Þú gerir ekki *samkvæmt dekkjaprófun haustið 2014 Ipike W419Winter i'cept Korna- dekk – Síðan 1941 – Smiðjuvegi 68-72, Kóp Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Austurvegi 52, Selfossi Skútuvogi 2, Rvk Sími 568 3080 betri kaup! Áberandi gott skv. FÍB*

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.