Morgunblaðið - 26.02.2016, Síða 28

Morgunblaðið - 26.02.2016, Síða 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2016 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Verður er verkamaður launa sinna. Því er augljóst að því meira sem lagt er á sig þeim mun meiri verður umbunin. Hið sama gildir um ráðagerðir tengdar menntun og lögfræðilegum efnum. 20. apríl - 20. maí  Naut Byrinn blæs aldeilis með þér því það er eins og allt gerist af sjálfu sér. Gömul verk- efni hvíla þó á þér. Láttu því slag standa áður en þú bognar undan álaginu. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú hefur á tilfinningunni að fólk ef- ist um hæfileika þína. Gættu þess líka að setja sjálfum þér ekki of stífar reglur. Mundu að allir eiga sína útgáfu af hamingjusama endinum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þér ætti að ganga flest í haginn í dag. Lífið kemur til þín þegar þú reynir ekki of mikið til þess og bíður ekki í úthugsuðum stellingum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú óttast að þú munir ekki ná settu marki. Hafðu ekki áhyggjur af öðrum þegar þessi þörf kemur yfir þig. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú ert í innkaupaskapi í dag. Um- ræðuefnið er óvenjulegt og aðstæður frá- brugðnar. Maður getur orðið háður því alveg óvart. 23. sept. - 22. okt.  Vog Meðan fólkið í kringum þig nýtur augna- bliksins í kastljósinu, skaltu reyna að apa ekki eftir því. Notaðu tækifærið. Reyndu að vera vingjarnleg/ur og þolinmóð/ur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þemað hjá þér er að eiga við sterka karaktera. Komdu hlutunum í lag og þá geturðu um frjálst höfuð strokið. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú situr á fleiri góðum galdra- brögðum en sjálfur Houdini. Núna er ekki góður tími til að taka ákvarðanir sem krefjast skýrrar hugsunar. 22. des. - 19. janúar Steingeit Ekki láta vin koma þér úr jafnvægi í dag. Leggðu þig fram um að styrkja tengslin við vini og vandamenn. Láttu niðurstöðurnar ekki koma þér á óvart en notaðu þær eins og þér best hentar. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Sýndu öðrum næga tillitssemi, sérstaklega þar sem um sameiginleg fjár- hagsmálefni er að ræða. En líttu ekki of lengi um öxl því það er framtíðin sem skiptir máli. 19. feb. - 20. mars Fiskar Láttu ekkert stöðva þig í að hrinda áhugamálum þínum í framkvæmd. Farðu þér því að engu óðslega því tíminn vinnur með þér og þeim fyrirætlunum sem þú hefur. Ólafi Stefánssyni þykir gamanað þessum ensku limrum, orðaleiknum og „viðlaginu“, og spreytti sig þess vegna á því að snúa þeim á íslensku: There was a young fellow named Skinner who took a young lady to dinner. they started to dine at quarter to nine – and at twenty to ten it was in ’er. The dinner? No,Skinner. Skinner was in ’er before dinner. There was a young fellow named Tupper who took a young lady to supper. They sat down to dine, at quarter to nine, and at twenty to ten it was up ’er. Not the supper – not Tupper – it was some son-of-a-bitch named Skinner. Hér kemur svo þýðing Ólafs: Hann var grallari gaurinn Jósafat, sem Gyðríði sætu bauð út í mat. Veglegt var átið, vel útilátið, en um tíuleytið var troðið í gat. Troðið mat? Nei, Jósafat. Tróð þá í gat hann Jósafat. Hann var líka á ferð þá, hann Finni, sem frakkur bauð stúlḱ upp á kynni. Þau settust að mat en súpan var frat, og um miðnætti mest allt var inni. Þú meinar Finni, – var hann þá inni? Nei, – ekki Finni, – en helvískur jaxlinn Jósafat. Það væri skemmtilegt ef eitt- hvert tónskálda okkar semdi lag við þetta limruafbrigði, sem menn skemmtu sér síðan við að syngja á góðri öl-stund! Páll Imsland heilsaði Leirliði árla dags með þeim ummælum, að fuglafræði nútímans fengi innspýt- ingu með orðaleikjum: Við ströndina buslar oft straumönd og í störinni bælir sig sefönd, en uppi í skóla við skræður má dóla ein skýrleiks og fróðleiksþyrst nemönd. Páll setti síðan aðra orðsendingu á Leirinn að bragði, sagði, að „þeg- ar ég sendi limruna áðan datt í hug mér gömul limra með ættartengsl. Hvort hún hefur áður sést á leir man ég ekki: Þar er landslag á bökkunum loðið en lausagrjót mest allt þó soðið. Þarna loftbólur sulla. Þar er leir bæði og drulla. Allt af hverfuglum trampað og troðið.“ Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af gaurnum Jósafat, nemöndum og hverfuglum Í klípu „ÞÚ ERT ENN Í ÖNDUNARVÉL. HVAÐA HLUT AF „Á LÍFI“, SKILUR ÞÚ EKKI?“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞÚ FÆRÐ PULSU ÞEGAR ÞÚ FERÐ HEIM OG SKIPTIR Í JAKKA OG BINDI.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... einhver sem leysir úr flækjunum þínum. KANARÍFUGLS- LASAGNA! MAÐUR LIFANDI! ÞÚ VEIST ALDREI HVENÆR SNILLIGÁFAN FER Í GANG! ÉG VIL ÞÍNA BESTU STEIK! EN ÞANNIGFRAMREIÐUM VIÐ FILET MIGNON! EN EKKI GEFA MÉR PÍNULÍTINN SKAMMT EINS OG SÍÐAST MÉR ER ALVEG SAMA UM HANN… ÉG VIL ALVÖRU STEIK! Ef það er ekki í Morgunblaðinuskiptir það ekki máli, sagði ágætur maður fyrir margt löngu. Þessi staðhæfing lifir ekki aðeins góðu lífi, að mati Víkverja, heldur eykst mikilvægi hennar eftir því sem áreiti fjölmiðla og einkum og sér í lagi samskiptamiðla verður meira. x x x Á hverjum degi eru sagðar fréttir íljósvakamiðlum og gjarnan vitn- að í Morgunblaðið, en þó ekki alltaf. Helsta forsíðufrétt Moggans í gær um ákvörðun Hvals hf. að stunda ekki hvalveiðar í sumar var til dæm- is síðan birt á mbl.is og í kjölfarið tekin upp á öllum öðrum helstu net- og ljósvakamiðlum landsins. Í öllum tilfellum nægði frétt Moggans um málið. x x x Á tímum flokksblaða fór Víkverjisamviskusamlega yfir öll blöðin en eftir að þau hættu og fríblöð tóku við hefur hann látið Moggann duga, minnugur þess að ef það er ekki í Mogganum skiptir það ekki máli. x x x Víkverji áréttaði enn einu sinni íspjalli yfir tebolla í gær að hann væri ekki með reikning á Facebook, Tinder, Snapchat, Twitter eða In- stagram og væri alvarlega að hugsa um að endurnýja ekki farsímann þegar hann gæfi upp öndina. x x x Einn viðstaddra varð orðlausvegna fyrrnefndrar yfirlýsingar og botnaði ekki í því hvernig væri hægt að komast í gegnum daginn án þess að vera að minnsta kosti á Facebook. Það hefur Víkverji gert, ekki misst af neinu, sem skiptir máli, og lifað góðu lífi. x x x Reyndar passar Víkverji illa inn íþjóðarmynstrið. Hann hefur til dæmis aldrei farið í ljós og aldrei farið í leik á tölvu. Ekki einu sinni lagt kapal í tölvu, en þegar hann var yngri var spilastokkurinn aldrei fjarri og margir kaplarnir lagðir á milli þess sem tekið var í spil. Þegar landlínan verður lögð niður hefur hann þó alltaf Moggann til að fá fréttirnar. víkverji@mbl.is Víkverji Himinn og jörð munu líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok líða. Mark. 13:31 Í S L E N S K H Ö N N U N O G S M Í Ð I LAUGAVEGI 61 KRINGLUNNI SMÁRALIND

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.