Morgunblaðið - 26.02.2016, Side 30

Morgunblaðið - 26.02.2016, Side 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2016 Japanski tónlistarmaðurinn Dai- suke Tanabe verður með tónleika á lofti Gamla-bankans, Austurvegi 21, á Selfossi í kvöld, föstudag, klukkan 20. Tanabe leikur einkar persónulega raftónlist sem er sögð blanda af hiphopi, elektróník, þjóðlaga- og djasstónlist sem hefur hlotið talsvert lof. Tanabe var búsettur í Lund- únum um tíma og samdi þá meðal annars tónlist fyrir Gilles Peterson og Zero DB, sem eru þekktir á sviði raftónlistar. Um helgina kemur hann síðan fram á Græna hattinum á Akureyri og í Mengi í Reykjavik. Listamaðurinn Tanabe blandar saman ýmsum áhrifum í raftónlist sinni. Daisuke Tanabe leikur á Selfossi Rokksveitin Metallica hefur verið valin sérstakur sendiherra hljóm- plötuútgáfunnar fyrir alþjóðlegan dag plötunnar,sem ber upp á laug- ardaginn 16. apr- íl í ár. Af því til- efni sendir sveitin þá frá sér plötu með hljóð- ritun frá tón- leikum sínum í Bataclan- tónleikahöllinni í París, þar sem hryðjuverka- menn myrtu 89 tónleikagesti í nóvenber. Platan mun heita Liberté, Egalité, Frat- ernité, Metallica! - Live at Le Ba- taclan, Paris, France - June 11th, 2003. Allur ágóði rennur til fórn- arlamba hryðjuverkanna. Tromm- arinn Lars Ulrich segir Metallica dá plötuverslanir, sjálfstæðir plötu- salar séu hluti af DNA sveitarinnar. Bataclan-tónleikar Lars Ulrich Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Víðkunn finnsk þjóðlagasveit, Värtt- inä, kemur fram á tvennum tón- leikum hér á landi á næstu dögum. Á sunnudagskvöld kl. 20 spilar sveit- in ásamt Sinfón- íuhljómsveit Norðurlands í Hofi á Akureyri, undir stjórn Guðna Franzson- ar, og á mánu- dagskvöldið verða listamenn- irnir komnir suð- ur og leika þá í Norræna húsinu. Värttinä er skipuð þremur söng- konum og þremur hljóðfæraleik- urum, þeim Mari Kaasinen, Susan Aho og Karoliina Kantelinen sem syngja, Lassi Logrén sem leikur á fiðlur og lýru, Matti Laitinen sem leikur á ýmis strengjahljóðfæri og harmónikku- og flautuleikaranum Matti Kallio sem er búsettur hér á landi og hefur komið víða við í ís- lensku tónlistarlífi á undanförnum árum. Nútímaleg en byggja á hefðum Allt frá árinu 1983 hefur Värttinä notið vinsælda í heimalandinu auk þess að koma fram á tónleikum víða um lönd. Hljómsveitin hóf starfsemi í þorpinu Rääkkylä í norðurhluta Karelíu í austurhluta Finnlands og hefur síðan þá átt nokkrar endur- komur á tónlistarsviðið, ætíð við miklar vinsældir. Í tilkynningu segir að í þrjá ára- tugi hafi tónlist sveitarinnar verið leiðandi í straumum þjóðlaga- tónlistar og eru listamennirnir eft- irsóttir til tónleikahalds víða. Ný plata Värttinä, Víena, situr nú í fjórða sæti yfir vinsælustu þjóð- lagaplöturnar í Evrópu. Á plötunni gera hljómsveitarmeðlimir uppruna sveitarinnar hátt undir höfði og vísa til þeirrar hefðar sem hún sprettur úr, sem er meðal annars karelíu- mállýska finnskunnar. Þá er í Karel- íu sterk hefð fyrir að konur leiði sönginn að hætti fornrar ljóðahefðar sem kallast runos. En þótt byggt sé á hefðum þá leggur hljómsveitin upp með það að skapa frumsamda og nútímalega tónlist sem hefur aflað Värttinä fjölda verðlauna úr þjóðlaga- og heimstónlistargeiranum. Hljómsveitin kemur alla jafna órafmögnuð fram og segja sérfræð- ingar hljóm raddanna í bland við taktvissan hljóðheim fiðlu, harm- ónikku og strengjahljóðfæra skapa samhljóm sem sé í senn mjúkur og seiðandi. Aðdáendahópur Värttinä út um löndin er sagður fara sífellt stækk- andi og ferðast hljómsveitin reglu- lega til að leika fyrir aðdáendur sína. Nýlega lék sveitin með Lundúna- sinfóníunni og styðst Sinfóníu- hljómsveit Norðurlands við útsetn- ingarnar sem voru gerðar fyrir þá tónleika. „Er mjög flott“ „Þetta er mjög flott,“ segir Guðni Franzson, stjórnandi Sinfóníu- hljómsveitar Norðurlands, um tón- list Värttinä og útsetningarnar sem þau leika í Hofi á sunnudagskvöld. Sinfóníuhljómsveitin verður við þetta tækifæri skipuð um þrjátíu hljóðfæraleikurum og þar á meðal verða djassmennirnir kunnu Sig- urður Flosason og Haukur Gröndal sem blása í klarínett og kallast á við söngkonurnar. „Þetta er þjóðlagatónlist sem byggist á gömlum og mótuðum hefð- um,“ segir Guðni og bætir við að raddbeiting söngkvennanna sé sér- stök og minni á búlgarska þjóðlaga- tónlist og balkanskan brjóstraddar- söng. Hann segir þetta mjög taktvissa tónlist með hrífandi hrynj- andi. „Nótnaskriftin er nokkuð flók- in en virkar síðan mjög einföld þegar maður hlustar á tónlistina. Það er gríðarmikið „grúv“ í þessu,“ segir Guðni og bætir við að hún fari í raun nokkuð nálægt prog-rokki. „Þetta er þrælrokkuð tónlist,“ segir hann. Þegar spurt er um hlutverk Sin- fóníuhljómsveitar Norðurlands á sunnudagskvöld segir hann það ekk- ert ósvipað því sem þau í Caput- hópnum gerðu með Þursaflokknum á sínum tíma. „Aðkoma okkar þéttir hljóminn mikið þótt söngurinn og tríóið með þeim séu í forgrunni. En útsetning- arnar eru gríðarvel unnar og bæta miklu við flutning Värttinä. Þetta eru engar „strengjamottur“, heldur er hljómsveitin mjög virk og bætir við litunum í tónlistina. Þá leikum við í nokkrum laganna ein með söng- konunum, tríóið stígur þá til hliðar,“ segir Guðni. „Þetta band hefur unnið frábært starf á liðnum árum og hefur að auki komið fram með sinfóníuhljóm- sveitum víða þannig að þau eru orðin mjög sjóuð í þessari uppsetningu.“ Gagnrýnandi Billboard- tímaritsins segir tónlist Värttinä „ægifagra og frumlega, þótt hún byggist á ríkulegum hefðum, ein- staklega finnska“ en þó alþjóðlega. Taktviss tónlist og hrífandi  Víðkunn finnsk þjóðlagasveit, Värttinä, kemur fram í Hofi og Norræna húsinu Ljósmynd/Seppo Samuli Söngkonurnar Þjóðlagasveitina Värttinä skipa þrjár söngkonur frá austurhluta Finnlands og þrír slyngir hljóð- færaleikarar. Guðni Franzson, stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, segir mikið „grúv“ í tónlistinni. Guðni Franzson Sönghópurinn Boudoir kemur fram á Rósenberg undir stjórn Julian Hewlett í kvöld, föstudag, kl. 22. Yfirskrift tónleikanna er Rómó á Rósenberg, en efnisskráin verður helguð þekktum og vinsælum róm- antískum dægurlagaperlum úr ýms- um áttum frá ólíkum tímum. Meðal laga sem munu óma er „The Man I Love“, „All I Ask of You“, „It Aint Necessarily So“, „Saving All my Love for You“, „For All Time“, „I Want to Spend my Lifetime Loving You“, „Stormy Weather“, „Sogno di te“, „Crazy“, „Heyr mína bæn“, „I Dreamed a Dream“, „Volare“og „Íve got Rythm“. Auk þess verður frumflutt nýtt lag eftir Julian Hew- lett sem nefnist „For All Time“. Samkvæmt upplýsingum frá hópnum hélt Boudoir tónleika á sama stað undir sömu yfirskrift í fyrra sem mæltust vel fyrir og því var ákveðið að endurtaka leikinn. Gestaleikari með hljómsveitinni verður eins og í fyrra Ian Wilk- inson, sem leikur á básúnu, barí- tonhorn og túbu, en Julian leikur á hljómborðið. Einsöngvarar á tón- leikunum eru Guðlaug Pétursdóttir, Kristín R. Sigurðardóttir, Rós Ingadóttir og Vilborg Birna Helga- dóttir. Sönghópurinn Boudoir sam- anstendur af tólf söngkonum, sem allar eiga það sameiginlegt að vera sönglærðar. Sönghópurinn var stofnaður haustið 2013, og hefur hópurinn nú þegar haldið allnokkra tónleika, og komið víða fram. Hæfileikaríkar konur Stjórnandinn Julian Hewlett ásamt sönghópnum Boudoir sem skipaður er tólf söngkonum sem allar eru sönglærðar. Rómó á Rósenberg AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR VW • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. • Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð -

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.