Morgunblaðið - 03.03.2016, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2016SJÁVARÚTVEGUR
Á Suðureyri hefur orðið til fyr-
irtæki sem tengir saman sjávar-
útveg og ferðaþjónustu. Lesendum
kann að þykja það undarlegt en
fyrir mörgum erlendum ferðamann-
inum er það hápunktur heimsóknar
til Íslands að upplifa allt ferli fisks í
litlu sjávarþorpi, frá hafi og ofan í
maga.
„Þetta er nákvæmlega það sama
og Íslendingar eru að sækjast eftir
þegar þeir ferðast til Frakklands til
að skoða vínbúgarða, eða þekkta
matvælaframleiðslu annarra þjóða.
Erlendir gestir vilja upplifa at-
vinnumenningu Íslendinga. Við er-
um fiskveiðiþjóð en ekki banka-
þjóð,“ segir Elías Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Fisherman
(www.fisherman.is).
Fjölskyldan gerði upp lítið hús
Saga fyrirtækisins hófst fyrir
fimmtán árum þegar fjölskylda Elí-
asar eignaðist lítið hús í þorpinu.
Átti að rífa húsið, svo ekki þurfti að
borga mikið fyrir bygginguna.
„Þetta byrjaði sem lítið áhugamál
hjá okkur. Fyrir húsið greiddum
við 50.000 kr. og endurbyggðum
hvenær sem laus stund gafst. Vorið
2001 gátum við leigt þar út fjögur
herbergi til ferðamanna. Á þessum
tíma var ekkert sem hét ferðaþjón-
usta á þessum slóðum og var hótel-
reksturinn í raun algjört aukatriði
og snerist þessi iðja okkar fyrst og
fremst um að gera eitthvað upp-
byggilegt við dauðar stundir.“
Smám saman hefur starfsemi
Fisherman vaxið og dreifist nú yfir
nokkur hús í bænum. Frá og með
næsta vori verða 19 herbergi í út-
leigu og stefnt á 26 herbergi með
nýrri viðbyggingu sem er verið að
undirbúa fyrir framkvæmdir. Sam-
hliða hótelrekstrinum rekur Fisher-
man veitingastað og kaffihús og
tvinnast öll starsfemin saman við
sjávarútvegs- og matartengdar
ferðir um svæðið.
„Í ferðunum blöndum við saman
þremur áhersluþáttum í ólíkum
hlutföllum: sögu svæðisins, matar-
menningunni og nátúrunni,“ segir
Elías. „Í náttúruferðinni liggur leið-
in meðal annars að Dynjanda, með
stoppi á Þingeyri og Suðureyri á
bakaleiðinni, og komið við á völdum
stöðum þar sem má smakka fisk-
rétti heimamanna. Söguferðin sýnir
ferðalöngunum elstu verstöð lands-
ins í Bolungarvík, sjóminjasafnið á
Ísafirði, fræðir um hvernig Ísland
byggðist upp í kringum sjómennsk-
una og endað á fiskismakki á Suð-
ureyri.“
Steinbítur undir berum himni
Loks er í boði sjávarréttaferð.
„Þetta köllum við gúrme-ferð og
m.a. er komið við í fiskhjalli þar
sem má smakka hjallþurrkaðan
harðfisk, barinn á steini. Við heim-
sækjum fiskvinnslu og skoðum
hvað er um að vera niðri við
bryggju. Einn af hápunktunum er
þegar við bjóðum fólki að smakka
þorskhnakka matreidda í tapas-stíl
og leyfum gestunum að gæða sér á
steinbít undir berum himni. Endar
ferðin í því sem við köllum Fiski-
skólann, í rými á bak við kaffihúsið.
Þar læra ferðalangarnir að elda
suður-amerískan skyndirétt, ce-
viche, sem er gerður án allrar ut-
anaðkomandi orku, og gæða sér á
kræsingunum.“
Suðuramerísku áherslurnar í
matnum í sjávarréttaferðunum eru
komnar til vegna þess að Fisherm-
an vill sýna erlendu ferðalöngunum
breiddina sem hráefnið býður upp á
og sýna nýstárlega eldun á fiski.
„Við erum vistvænt veiðisamfélag
og við þurfum, sem dæmi, ekki
orku til að elda fiskinn,“ segir Elí-
as. „Á veitingastaðnum og kaffihús-
inu gerum við sjávarafurðunum
hins vegar skil á hefðbundnari nót-
um, að hætti heimamanna.“
Aldrei er neitt sett á svið og
frekar reynt að haga ferðunum
þannig að eitthvað sé um að vera á
þeim stöðum sem hópurinn heim-
sækir. „En ef svo ber til að ekkert
er að gerast í fiskvinnslunni lýsum
við því einfaldlega fyrir fólki hvað
þar er gert.“
Sýna vinnu sína með stolti
Segir Elías að útlendingunum
þyki mikil upplifun að sjá vönduð
handtökin og fullkomna tæknina í
veiðum og vinnslu sjávarafurða, og
vitaskuld eru allir klæddir í viðeig-
andi hlífðarfatnað til að tryggja ör-
yggi og fullnægja ströngum gæða-
kröfum matvælafyrirtækjanna.
Virðist það ekki trufla fólkið sem
starfar við sjávarútveginn þó fylgst
sé með því við störfin, og raunar
sýna sjómennirnir og fisk-
vinnslufólkið vinnu sína með glöðu
geði. „Íbúarnir á svæðinu eru mjög
stoltir af því sem þeir eru að gera,
enda atvinnugrein sem ber af í
samanburði við önnur lönd og há-
tækniframleiðsla eins og best þekk-
ist.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Elías segir sjávarútveginn spennandi í augum útlendinga rétt eins og franskar vínekrur laða til sín Íslendinga.
Ferðamennirnir
heillaðir af slorinu
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Fisherman gefur erlendum
gestum innsýn í íslenskan
sjávarútveg. Heimsótt er
fiskvinnsla, kíkt á höfnina og
fjölbreyttir réttir smakkaðir.
ÞORSKUR
Þorskveiði á Íslandsmiðum fer vel af
stað og á fyrstu tveimur mánuðum
ársins hefur veiðin verið rúm 54 þús-
und tonn eða um 27% meiri en á sama
tíma í fyrra. Aukinn afli hefur fyrst og
fremst skilað sér í auknum útflutningi
á ferskum flakaafurðum. Norðmenn
eru á sama tíma að mokveiða þorsk
og senda hann ferskan til Evrópu. Af-
urðaverð er farið að gefa aðeins eftir
en samt ekki eins mikið og búast hefði
mátt við. Vera kann að markaðurinn
sé farinn að aðlagast hinni norsku
holskeflu en fyrir Íslendinga hefur
verið afar mikilvægt að hafa sterka
stöðu á breskum og bandarískum
markaði fyrir fersk flök.
Á meðfylgjandi mynd sést glögg-
lega að þegar Norðmenn flytja hvað
mest út í febrúar, mars og apríl gef-
ur verðið á íslenskum flökum eftir í
Evrópu en helst stöðugt í Bandaríkj-
unum og Bretlandi. Það sést einnig á
myndinni að Norðmenn byrjuðu
veiðina snemma í ár og flakaverð
lækkaði bæði á Bretlandsmarkaði og
Evrópumarkaði í janúar 2016. Þetta
getur stafað af því að norski kvótinn
náðist ekki í fyrra og norskir sjó-
menn ætla ekki að brenna inni með
kvóta. Þeir veiða því af kappi núna
þegar vel gefur og olíuverð er lágt.
ÞRÓUN KORTLÖGÐ
Fersk þorskflök og bitar Útflutningur frá Íslandi FOB verð í €
Magn (t) Kg verð í €
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
12
10
8
6
4
2
0
Verðþróun og spá
Bandaríkin Bretland (tonn) EB (tonn) Bandaríkin €/kg Bretland €/kg EB €/kg
Janúar Desember
8,41
9,77
9,62
1
.5
4
1
1
.5
9
6
1
.7
3
1
Samantekt markofish.com
Mikill gangur í þorsk-
veiði í upphafi ársins
Vatnagarðar 16, Reykjavík, s. 568 6625, velarehf.is
Við látum dæluna ganga
• Ásþétti
• Dælur - dæluviðgerðir
• Belzona viðgerðarefni
• Rafmótorar
• Vélavarahlutir
viftur
íshúsið
S:566 6000 ∑ Smiðjuvegur 4a, græn gata, 200 Kópavogur
viftur.is
-andaðuléttar