Morgunblaðið - 03.03.2016, Qupperneq 16
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidskipti@mbl.is. Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Sigurður Nordal fréttastjóri, sn@mbl.is. Auglýsingar Sími 5691111, augl@mbl.is. Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
VIÐSKIPTA
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
Uppsagnir hjá NOVA
94 milljóna gjaldþrot Laundromat
Gylfi með 1,5 milljónir á dag
Höfnuðu hærra tilboði í Fáfni
Dýru hverfin hækka ekki mest
Mest lesið í vikunni
INNHERJI
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON
SKOÐUN
Samið hefur verið við bandarísku
verslanakeðjuna Hot Topic, sem
rekur hátt í 700 verslanir víða um
Bandaríkin, um dreifingu á leik-
fangalínu frá Tulipop.
Tulipop var stofnað árið 2010 af
Signýju Kolbeinsdóttur, vöruhönn-
uði og teiknara, og Helgu Árnadótt-
ur, tölvunarfræðingi og MBA. Vörur
félagsins hafa verið seldar í versl-
unum á Íslandi og í fjórtán löndum
utan Íslands, auk þess að vera seldar
á eigin vefsíðu.
Helga segir að ný lína af Tulipop-
leikföngum hafi verið frumsýnd á
sýningunni New York Toy Fair í
febrúar. Sú vörulína hafi verið af-
rakstur samstarfs Tulipop við
bandaríska leikfangaframleiðand-
ann Toynami, sem Tulipop samdi við
í fyrra. Mun vörulínan jafnframt
fara í dreifingu í gegnum dreifingar-
aðila Toynami á 17 mörkuðum, auk
þess að fara í sölu á Íslandi.
Helga segir vörulínuna afrakstur
9 mánaða samstarfs Tulipop við
hönnunarteymi Toynami. Til að
byrja með nær vörulínan til ríflega
20 vörutegunda. Fyrst koma á
markað Tulipop-bangsar sem dreift
verður í verslanir í sumar og í haust
bætast við vínylfígúrur með Tuli-
pop-karakterum, auk fleiri nýjunga.
„Þetta er svokallaður nytjaleyfis-
samningur. Toynami-leikfangafram-
leiðandinn sér um hönnun, vöruþró-
un, sölu og markaðssetningu á
línunni. Við fáum höfundarréttar-
greiðslur sem eru prósenta af verð-
mæti sölunnar. Signý, yfirhönnuður
hjá okkur, vinnur náið með hönn-
unarteymi Toynami,“ segir Helga.
Ljósmynd/Tulipop/Birt með leyfi
Mark Freedman frá Surge Licensing, umboðsaðila Tulipop í N-Ameríku,
George Sohn frá Toynami, Signý Kolbeinsdóttir og Helga Árnadóttir.
Tulipop dreift
í 700 verslanir
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vörulína frá íslenska leik-
fangafyrirtækinu Tulipop er
að fara í dreifingu í verslanir
um gervöll Bandaríkin. Hún
verður í sölu víða um heim.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Ríkið fékk margar verðmætareignir í fangið í formi stöð-
ugleikaframlags frá slitabúum
föllnu bankanna. Vissulega hefur
eignarhluturinn í Íslandsbanka
vakið mesta athygli en þær eru
sannarlega miklu fleiri. Í fyrstu var
lagt upp með að þessar eignir yrðu
færðar í félag í eigu Seðlabanka Ís-
lands. Nú hefur meirihluti efna-
hags- og viðskiptanefndar hins veg-
ar lýst þeirri skoðun sinni að það
sé ekki heppileg ráðstöfun og það
er óhætt að taka undir með nefnd-
inni. Seðlabankinn á ekki að vasast
með þessar eignir og sagan af
Hildu ehf. var eflaust vítið sem
varast vann.
En nefndin fyrrnefnda leggur tilað eignirnar verði fluttar í
einkahlutafélag sem heyra mun
undir fjármála- og efnahagsráðu-
neytið. Mun ráðherra skipa stjórn
félagsins.
Í nefndarálitinu eru mörg orðhöfð um sjálfsagða hluti og virð-
ist sem höfundar þess telji að með
því verði öllu réttlæti fullnægt. Þar
má þó greina eitt ágætt orð sem
öllu skiptir og yfirskyggir mik-
ilvægi allra annarra. Gagnsæi.
Þegar eignirnar verða komnar íhið nýstofnaða félag er von-
andi að menn beri gæfu til að aug-
lýsa þær til sölu á opinberum vett-
vangi þar sem allir munu hafa kost
á því að bjóða í þær. Hæsta verðið
muni svo ráða úrslitum. Sú aðferð
hefur að geyma einu „armslengd-
arsjónarmiðin“ sem tjáir að nefna.
Hitt eru bara orð sem engu skipta
þegar upp er staðið.
Armslengd
og gagnsæiEinhver langvinnasta vinnudeilaí manna minnum stendur nú
yfir í Straumsvík, þar sem hálf-
gerðu ekki-verkfalli er beitt gegn
möguleikum til útskipunar þeirra
verðmæta sem framleidd eru í
verksmiðjunni. Deilan sú hefur
tekið á sig ýmsar myndir og nú
hefur Sýslumaðurinn á Höfuð-
borgarsvæðinu kveðið upp úr-
skurð þess efnis að forstjóri fyr-
irtækisins, framkvæmdastjórar,
starfsmannastjóri og stjórn-
armenn megi taka til óspilltra
málana og lesta flutningaskip af
hinum verðmæta en fislétta
málmi.
Fyrirtækið hafði óskað eftir þvíað 34 starfsmenn fengju
heimild til að bretta upp ermarnar
en á lista sýslumannsins eru 15
manns í hinum útvalda hópi. Í gær
var svo hluti hans að störfum á
kajanum í Straumsvík.
Deilan er orðin farsakennd ogþeir sem ekki eiga aðild að
henni hljóta, rétt eins og þeir sem
það gera, að velta fyrir sér hversu
lengi þetta geti staðið með þessum
hætti. Ljóst er að stjórnendur og
stjórnarmenn munu ekki til lang-
frama sinna hinum verklegu þátt-
um. Auk þess má gera ráð fyrir
því að ef mótleikur þeirra í vinnu-
stöðvuninni haldi áfram og heppn-
ist muni viðsemjendur þeirra
grípa til annarra ekki-verkfalla.
Hversu mikið lýsi sem stjórn-endurnir innbyrða er engin
leið fyrir þá að ganga í öll þau
störf sem mögulegt er að leggja
niður með einum eða öðrum hætti
í álverinu.
Allt ál í stál í Straumsvík
Morgunblaðið/Golli
Stjórn og yfirmenn Rio Tinto Alcan
ferma skip í Straumsvíkurhöfn.
Á hlaupársdegi voru
skráðar 36 ferðir frá
Keflavíkurflugvelli. Þær
koma til viðbótar hinum
hefðbundnu dögum.
Hlaupárið hafði
áhrif á flugferðir
1
2
3
4
5
Í áratugi höfum við safnað saman mikilli reynslu með vinnu við
ýmsar aðstæður og við margar mismunandi gerðir hitakerfa.
Þess vegna getum við boðið réttu tengigrindalausnina fyrir
þitt hitakerfi. Lausn sem byggir á áratuga reynslu við val á
stjórnbúnaði fyrir íslenskar hitaveituaðstæður.
Danfoss hf. • Skútuvogi 6, • 104 Reykjavík. • Sími: 510 4100
Danfoss tengigrindur fyrir hitakerfi að
þínum óskum fyrir allt að 25MW afl