Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.11.1993, Page 3

Víkurfréttir - 25.11.1993, Page 3
25. NÓVEMBER 1993 WRURFRÉTTIR íslensk vara - innlend atvinna oooooooooooooooooo REYKURí FESTI Slökkvilið Grindavíkur og lögregan í Grindavík voru kölluð að skemmtistaðnum Festi í Grindavík sl. fimmtudag. Mikill reykur var í húsinu og kom hann frá rafmagnsspólu í töflu. Engar alvarlegar skemmdir urðu. • VÖRUBÍLSTJÓRAR finna pólitíska lykt. • SLÖKKVILIÐ GRINDAVÍKUR reyklosaði samkomuhúsið Festi í Grindavík eftir bruna í rafmagnstöflu. VERSLUNARMANNAFÉLAG SUÐURNESJA Nauðgun kærð Kona á fertugsaldri hefur kært nauðgun til lögreglunnar í Kefla- vík. Samkvæmt framburði kon- unnar á nauðgunin að hafa átt sér stað í skrúðgarðinum í Keflavík. Það var snemma á sunnu- dagsmorgun sem formleg kæra barst lögreglunni í Keflavík. Lög- regan í Ketlavík vinnur að rann- sókn málsins. ÁSTAND BÍLA MJÖG GOTT Lögreglan í Grindavík hefur staðið fyrir átaki síðustu daga ásamt lögreglunni í Keflavík og víðar. Meðal þess sem lög- reglumenn hafa fengist við er að klippa númeraplötur af bílum. Grindvfskir lögreglumenn hafa í átakinu aðeins klippt af fimm bifreiðum, þar sem að fyrr á árinu hafði lögreglan klippt skrán- ingamúmer af 10% bílaflota Grindvíkinga. I stað þess að klippa af bílum, hefur lögreglan kannað ástand bifreiða og er það mjög gott, að sögn Sigurðar Agústssonar, aðstoðaryfirlög- regluþjóns í Grindavík. VBK-MENN ÓÁNÆGÐIR Vörubílstjórar á Vörubílastöð Keflavíkur eru óánægðir með að hafa ekki mátt bjóða í flutninga á vegum Eimskipafélags Islands frá Keflavík til Reykjavíkur. Skipaafgreiðsla Suðurnesja ann- ast llutningana og hefur samið Heiðargarður 11, Keflavík 120 ferm. raðhús ásamt 29 ferm. bílskúr. 4 svefn- herbergi. Hagstæð lán á- hvílandi. “ 10.500.000.- Faxabraut 32C, Keflavík Glæsileg 3ja herbergja íbúð á annari hæð. ásamt mikilli sameign. Ibúðin er öll ný- tekin í gegn. Mjög hagstæð lán áhvílandi. 5.700.000,- Smáratún 16, Keflavík 3ja herbergja neðri hæð. með sérinngangi. Góður staður. Mjög hagstæð lán á- hvílandi. ’ 4.100.000.- Mávabraut 6A, Keflavík 79 ferm. neðri hæð með sér- inngangi. Ný hitaveitulögn og nýir miðstöðvarofnar. Mjög vel með farin íbúð. Tilboö Vallargata 7, Keflavík 95 ferm. einbýlishús ásamt bílskúr. Húsið er mikið end- urnýjað m.a. nýtt rafmagn og miðstöðvarkerfi o. fl. Hag- stæð byggingarsjóðslán á- hvílandi.” ' 7.000.000,- Hafnargata 66, Keflavík 3ja herbergja neðri hæð. í góðu ástandi. Sérinngangur. Skipti á dýrari íbúð kemur til greina. 2.500.000,- Austurgata 17, Keflavík 3ja-4ra herbergja efri hæð, með bílskúr. Nýleg eld- húsinnrétting. Sérinngangur. 6.100.000,- Hásevla 22, Njarðvík 143 ferm. einbýlishús ásamt 28 ferm. bílskúr og stórri sólverönd. Vandað hús. Skipti á fasteign í Keflavík, eða Ytri-Njarðvík koma til greina. 11.500.000,- Lyngholt 10, Keflavík 103 ferm. 4ra herbergja neðri hæð með sérinngangi. Ný- legir gluggar, skolp- og mið- stöðvarlagnir. Hagstæðir greiðsluskilmálar. Laus strax. 5.900.000,- Heiðarhorn 14, Keflavík 152 ferm. einbýlishús ásamt 42 ferm. bílskúr. Vandað hús á eftirsóttum stað. Skipti á góðri íbúð kemur til greina. 12.500.000,- Lyngholt 7, Keflavík 3ja herbergja neðri hæð, með sérinngangi. Bílskúrsréttur. Nýir gluggar í stofu og svefnherbergi. 4.700.000.- Heiðarvegur 23, Keflavík 2ja herbergja íbúð á neðri hæð með sérinngangi. 3ja herbergja íbúð á efri hæð. með sérinngangi. Eign sem gefur ýmsa góða möguleika. Nánari upplýsingar á skrif- stofunni. Tilboð við Hauk Guðmundsson um aksturinn milli Keflavíkur og Reykjavíkur. Magnús Kol- beinsson á VBK sagði í samtali við Brosið að honum virtist sem málið lyktaði af pólitík. NÝR SORP- TÆTARI Sorpeyðingarstöð Suðurnesja hefur fengið nýja sorptætara sem mun auka afköst stöðvarinnar um 25%. Tætaranum er ætlað að vinna á timbri og grófum pappa og verður tekinn í notkun um mánaðarmótin. Framtíðaráform með Sorpeyðingarstöðina er að stækka hana um helming og bæta við nýjum brennsluofni. Sú framkvæmd kostar um hálfan milljarð króna. VIDEOTÖKUVÉL TIL KEFLAVÍKUR Bergur Sigurðsson, Heið- arholti 2 í Keflavík, vann video- tökuvél að andvirði 82 þúsund krónur í lukkuleik Pampers og Bylgjunnar á þriðjudagsmorgun. Dregið er vikulega í leiknum í þætti Önnu Bjarkar á Bylgjunni. Bergur og Guðjónína Sæmunds- dóttir eiga son og það voru bleiu- kaup fyrir guttann sem gáfu af sér videotökuvélina. BISKUPINN VÍSITERAR HAFNIR Herra Ólafur Skúlason, biskup vísiterar Kirkjuvogssókn í Höfn- um nk. miðvikudag, 1. desember. Hátíðarmessa verður í kirkjunni kl. 20:30. Biskupinn predikar og þjónar fyrir altari ásamt sókn- arpresti, sr. Jónu Kristínu Þor- valdsdóttur. Organisti er Siguróli Geirsson og kór Grindavíkur- kirkju syngur. Fermingarbörn úr Höfnum að- stoða við athöfnina og eru Hafnabúar hvattir til að fjöl- tnenna. Björgunarsveitin Ægir, Garði: W KAUPIR RUSSNESKAN HERTRUKK Björgunarsveitin Ægir í Garði hefur fest kaup á sex hjóla rúss- neskum URAL hertrukk. Kaupin voru ákveðin á félagsfundi hjá björgunarsveitinni í síðustu viku. Ágúst Arnar Jakobsson, for- maður björgunarsveitarinnar Ægis, sagði í samtali við blaðið á mánudagskvöldið að þarna væri sveitin að kaupa mikinn vinnuþjark sem væri góður í ófærð, þó svo að í venjulegum akstri fari bíllinn ekki hratt yfir. URAL hertrukkurinn er smíð- aður í Rússlandi árið 1989. Trukkurinn sem sveitin í Garð- inum fær var staðsettur hjá her- deild í austurhluta Þýskalands, en að sögn söluaðila lítið notaður. Bíllinn er nú á hafnarbakkanum í Hamborg og býður eftir að kom- ast til Islands. í URAL hertrukknum er 210 hestafla V-8 dieselvél. Bíllinn er sex hjóla með drifi á öllum. Hægt er að hleypa lofti úr dekkjunum og pumpa aftur í á ferð. Trukkn- um er hægt að aka í 1,7 metra djúpu vatni og spil er að aftan og framan. Einn farþegi getur verið með ökumanni í stjórnklefa, en á bílnum er að auki stálhús sem verður innréttað til fluttninga á mannskap. Verð bílsins á hafnarbakka í Hamborg í Þýskalandi er 750 þúsund krónur. N-iistinn í Njarðvík: Ástmar tippaði rétt * m W • a Ja-m í kosningunum N-listinn í Njarðvík var með kosningagetraun um síðustu helgi í tilefni af kosningum um sameiningu sveitarfélaga. Spurt var: Hve margir segja já við sameiningu sveitarfélaga í Njarðvík? Fyrstu verðlaun, verðlaunagrip frá Karli Olsen jr., hlaut Ást- mar Ólafsson, Hæðargötu 3 í Njarðvík. Aðeins munaði þremur atkvæðum að hann hitti á rétta tölu og verður það að teljast mikil getspeki hjá pilti. Önnur verðlaun, mat fyrir tvo á Þristinum, lilaut Guðrún Ág. Steinþórsdóttir og þriðju verðlaun. góðgæti frá Valgeirsbakaríi, hlaut Snorri Páll Jónsson.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.