Víkurfréttir - 25.11.1993, Qupperneq 7
WffUÆFRÉTTm
25. NOVEMBER 1993
7
SVART&
SYKUR
UMSJÓN: PÁLL KETILSSON OG HILMAR BRAGI
Bílabíó
Það var engu líkara en opnað hefði
verið bílabíó við höfnina í Grindavík
í síðustu viku þegar flóðin voru þar
hvað mest. Síðdegis á mánu-
deginum fjölmennti fólk á bílum
sínum niður að hafnarsvæðinu til að
sjá bryggjurnar á kafi í sjó og fyll-
urnar ganga á land. Það má segja að
það hafi verið bíll við bíl á bakk-
anum við ftskvinnsluhúsin í
Grindavík.
Áhugi ó
kynlífsmólum mikill
Ahugi fycir kynlífinu og málum því
tengdu virðist vera mjög mikill á
Suðurnesjum. A.m.k. hafa fyr-
irlestrar Ottars Guðmundssonar,
læknis, um tilfinningar, ástina og
fyrstu samfarirnar verið vel sóttir.
Um eitthundrað stúlkur og mæður
sóttu fund í Z-unni á mánu-
dagskvöldið, en þar talaði Ottar op-
inskátt um kynlífið og svaraði fyr-
irspurnum. Fundur um sama mál var
haldinn með stúlkum og mæðrum
þeirra í Grindavík á þriðju-
dagskvöidið og í gærkvöldi mættu
strákar í Keflavík með feðrum sín-
um til að ræða kynlífið og til-
finningarnar.
Nóðu þér í stelpu til að
vígja rúmið!
Athygliverð dæmisaga kom upp á
fundinum um kynlífið í Z-unni á
mánudaginn. Ein móðirin sagði frá
því að strákur hafi verið að fá nýtt
rúm og faðirinn hafi sagt við stráksa:
„Farðu nú út og náðu þér í stelpu til
að vígja rúmið". Dæminu var snúið
við og spurt var hvort faðirinn hefði
sagt við dóttur sína. „Farðu nú út og
náðu þér t' strák til að vígja nýja
rúmið". Eða hver hefðu orðið við-
brögð föðursins ef dóttirin á heim-
ilinu hefði sagt: „Nú er ég farin út
að ná mér í strák til að vígja skeið-
völlinn".
Með eyrnatappa ó
rokktónleika
Það var margt fróðlegt og
skemmtilegt sem fram komaá fundi
Ottars Guðmundssonar á Z-unni á
mánudagskvöldið. I umræðum um
getnaðarvarnir kom fram að strákar
á Islandi eru lítið gefnir fyrir
smokka þegar kentur að samförum
við stúlkur og þeir vilja að kven-
þjóðin sjái alfarið um getn-
aðarvarnirnar. Það kont fram á
fundinum að strákarnir líta á
smokkinn í samförum eins og að
fara með eyrnatappa á rokktón-
leika.
Sœkja fróðleik
í klómmyndir
Það kom einnig fram á fyrir-
lestrinum á Z-unni að samkvæmt
könnun fjölmiðla sækir mikill fjöldi
unglinga kynlífsþekkingu sína í
klámmyndbönd. Aðallega væru það
þó drengir sem horfðu á slíkar
myndir. Það varð allavega lítið um
svör þegar Ottar spurði hvort ein-
Itver stúlknanna inni á Z-unni hafi
sé slíkt myndband. Ottar sagði að
úr klámmyndböndunum fengju
menn miklar ranghugmyndir, enda
byggjast klámmyndirnar á því að
allir séu með öllum. Raun-
veruleikinn er hins vegar allt öðru-
vísi.
Rétti andinn?
Myndlistarmenn eiga oft auð-
veldara með að koma viðfangsefni
sínu á strigann eftir að hafa kynnt sér
viðfangsefnið vel og verið í snert-
ingu við það. Nú velta menn því
fyrir sér hvort Emil Páll Jónsson,
ritstjóri vikublaðsins Beztablaðsins,
hafi farið eins að og málararnir.
Emil sást nefnilega á uppboði í
Trésmiðju Þorvaldar Olafssonar á
dögunum og gerði betur, því hann
keypti skrifstofuhúsgögn inn á rit-
stjórnarskrifstofu sína á uppboðinu.
Rétti andinn hefur því verið yfir rit-
stjórnarskrifstofunni þegar greinin
um gjaldþrot fyrirtækis Þorvaldar
Olafssonar var skrifuð.
JUVENA
SNYRTIV ÖRUKYNNIN G
FÖSTUDAGINN 26. NÓVEMBER
frá kl. 13-18.
Bobba kynnir.
/7 SNYRTIVORUVERSLUNIN
CTjnndta
Hafnargata 37 A
Keflavík - Sími 13311
»Grindavík:
Aftanákeyrsla
Umferðarslys varð á gatnamótum Grindavíkurvegar og Vigdísarvalla
á þriðjudag í sl. viku. Bifreið var ekið aftan á aðra bifreið með þeim af-
leiðingum að hlutaðeigandi kvörtuðu undan eymslum í hálsi og brjósti..
ímpldimpí
Eitt mesta úrval
landsins af
skíðagöllum
og úlpum.
Barna og fullorðins
Á MJÖG
GÓÐU VERÐI!
Verið tímanlega að
velja fyrir jólin á meðan
úrvalið er gott.
OPNUM AFTTJR EFTIR
n nrvn &n laugardaginn
BREYTINGAR kí“or
STÆRRI OG BETRIVERSLUN MEÐ FJÖLBREYTTU VÖRUÚRYAU
í TILEFNI OPNUNARINNAR BjÓÐUMVIÐ 15% AFSLÁTT AF ÖLLUM LjÓSUM.
ATHUGIÐ! Verslunin verður lokuð
mióvikudag, fimmtudag og föstudag
vegna breytinganna.
YERIÐ VELKOMIN
RAFLAGNAVINNUSTOFA
SIGURÐAR INGVARSSONAR
Heiðartúni 2. Garði - Sími 27103