Víkurfréttir - 25.11.1993, Qupperneq 8
8
25. NÓVEMBER 1993
VÍfíURFRÉTTIR
Skýjaborg
félagsmið-
stöð Sand-
gerðinga
Við ætlum að kynna fyrir ykkur
hvað er að gerast í Sandgerði og
hvað er framundan.
A þriðjudagskvöldum eru opin
hús. Þar er spilað og svo förum við
stundum að dansa.
Við erunt að byrja með fé-
lagsvist fyrir eldri krakkana á
opnum húsum og það hefur tekist
mjög vel hingað til.
Karaoke verður mjög fljótlega,
við höfum einu sinni haft karaoke
áður og heppnaðist það mjög vel.
Á föstudagskvöldum eru
diskótek og það er yfirleitt mjög
gaman á þeim. Við erum að byrja
með leiki á þeim og öllum finnst
það gantan.
♦ Félagslífið í Sandgerði er fjölbreytt.
Allskonar klúbbar eru í gangi
í skólanum, t.d. skákklúbbur,
útivistarklúbbur, förðunar og
framkomuklúbbur og blaða-
klúbbur. Svo erum við að fara af
stað með leður og körfuklúbb.
Nemendaráð:
Sigurbjörg Jónsdóttir, Thelma
Björgvinsdóttir, Halldóra G. Sig-
tryggsdóttir, Richard H. Ric-
hardsson, Eydís H. Helgadóttir,
Jón A. Norðfjörð, Hilma H. Sig-
urðardóttir og Heimir Karlsson.
Blaðanefnd:
Thelma Björgvinsdóttir, Krist-
jana G. Jórunnardóttir, Guðlaug
S. Gunnarsdóttir, Rebekka 01-
afsdóttir, María Pálsdóttir, Eyrún
S. Helgadóttir, Hjördís Reynis-
dóttir og Olína Lárusdóttir.
Ef íslendingar eru spurðir hvort
þeir séu trúaðir þá svara þeir tlestir
játandi en að þeir sæki kirkju það
er aftur önnur saga. Þetta kom
fram í könnun sem Gallup-
stofnunin gerði. Landinn sagðist
jafnframt trúa á æðri máttarvöld.
Ætli við séum ekki líka tilbúin að
trúa því að ýmis dulræn fyrirbæri
eigi sér stað?
Er kirkjan tóm?
Það er athyglisvert að velta
því fyrir sér hvers vegna fólk sækir
lítið kirkju. Er það kannski vegna
þess að hið hefðbundna messuform
höfðar ekki til almennings eða er
einhver önnur ástæða? Þegar
kirkjan breytir út af venju og býður
upp á annars konar tónlist en vant
er þá laðar hún jafnvel til sín annað
og fleira fólk eða þannig var það
alla vega hér í Keflavík og Njarð-
vík sunnudaginn 31. október þegar
kórarnir sameinuðust og sungu
fyrir kirkjugesti negrasálma.
Messurnar voru óhefðbundnar,
unglingar fluttu t.d. helgileik í
Keflavíkurkirkju og séra Baldur
Rafn Sigurðsson, sóknarprestur
Njarðvíkurkirkju fræddi kirkju-
gesti m.a. um mótmæli Marteins
Lúters á sínum tíma og hver Heil-
agur Frans frá Assísi hefði verið.
Það varreglulega fróðlegt að hlusta
á prest þeirra Njarðvíkinga þennan
sunnudagsmorgun en þangað fór
/ GUD
ég til að hlusta á negrasálma og sjá
prestinn.
Þetta var trábœrt!
Eg hefði ekki viljað sleppa
þessu fyrir nokkurn mun því ég hef
sjaldan orðið fyrir eins mikilli upp-
lifun í kirkju og átti tónlistin mestan
þátt í því. Svo var auðvitað gaman
að fá að klappa saman lófunum og
"fíla" tónlistina en það finnst mér
annars það erfiðasta við núverandi
messuform, að það er ekki hefð fyrir
klappi. Það er svo oft sem kórinn
eða einsöngurinn hefur hrifið mann
og að geta ekki sýnt nein viðbrögð
gagnvart því finnst mér óeðlilegt.
Þarna er kannski mergurinn
málsins, fólki finnst það vera
þvingað í kirkju og á erfitt með að
þola allan þann alvarleika sem
liggur í loftinu. Það vantar meiri
gleði inn í kirkjuna. Minn Guð er
ekki svona hátíðlegur, hann er
reyndar mikill húmoristi og það
líkar mér vel.
■hlej- fil sölu ukvqI ir\alveKl<a
ejiiK íö\uuuap Om. öuuig
vafuslifa- og gnajíkmyudiiG
Sigurlaug Gunnarsdóttir
Fagragarði 10 - Keflavík
Sími12411
Trúlofunar-
og giftingar-
hringir
Módelsmíðaðir
giftingar- og
trúlofunarhringir
Danskir giftingar- og trúlofunarhringir
‘Modei- Listmumr
Mafnayjötu 37a - %efíavílG Simi 12575
Bruðhjonayfirheyrslan
Afskaplega
gaman að
gera til-
raunir í eld■
húsinu
Brúðhjóniti Kristbjörg
Erna Þorvaldsdóttir og
Sigurjón Fjeldsed í
Brúðhjónayfirheyrslu.
HANN
Nafn: Sigurjón Fjeldsted.
Fæðd. og ár: 29.12.65.
Foreldrar og systkini: Ottar S.
Guðmundsson, Vigdís Fjeld-
sted, Ulfar og Sigrún.
Starf/nám: Trésmiður.
Uppáhaldsmatur: Fylltar
9. október
voru gefin saman í Keflavíkur-
kirkju af séra Ólaft Oddi Jónssyni
brúðhjónin Margrét Inga-
þórsdóttir og Jóhann Ingi Grét-
arsson, Faxabraut 35A, Keflavík.
Mynd. Nýmynd.
svínalundir með rjóma-osta-
sveppasósu. salati frönskum og
gulum baunum.
Uppáhaldsdrykkur: Coke!
Hvar sástu hana fyrst: I Björg-
unarsveitarpartý.
Hvað er skemmtilegast í fari
hennar: Bjartsýni hennar.
25. september
voru gefin saman í Grinda-
víkurkirkju af séra Jónu Kristínu
Þorvaldsdóttur brúðhjónin Stein-
unn Oskarsdóttir og Ingvar Guð-
jónsson, Heiðarhrauni 40.
Grindavík.
Mxnd. Nýmvnd.
Er hún rómantísk: Já. hún er
alltaf að koma manni á óvart með
eitthvað „sætt“.
Þrífur hún bílinn: Nei.
Uppáhalds rakspíri: Free live frá
Etinne Aigner.
Ertu flughræddur: Með eða án
fallhlífar?
Tekurðu í straujárnið: Já, einu
sinni. held ég.
Draumabíllinn: Fullbúinn Toyta
Landcruser.
HÚN
Nafn: Kristbjörg E. Þorvalds-
dóttir
Fæðd.ogár: 21.10.69.
Foreldrar og systkini: Þorvaldur
Ólafsson, Sigríður Kjartansdóttir,
Andrea Sif og Ásdís.
Starf/nám: Sölumaður.
Hvernig kynntust þið: I partý á
Keflavíkurflugvelli fyrir Hjálpar-
sveitina í Njarðvík og Flugbjörg-
30. október
voru gefin saman í Utskálakirkju
af séra Hirti Magna Jóhannssyni
brúðhjónin Hjálmfríður Krist-
insdóttir og Ólafur G. Sæ-
mundsson, Reynimel 76, Reykja-
vík.
Mynd. Nýmynd.