Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.02.1996, Qupperneq 2

Víkurfréttir - 08.02.1996, Qupperneq 2
Reykjanesbœr fyrirtœkja,, Fjöldi fyi „Það eru mörg fyrirtæki að huga að flutningum til Reykjanesbæjar enda eru aðstæður hér til margs konar starfsemi mjög góðar frá ýmsum hliðum séð“, sagði Ellert Eiríksson, bæjarstjóri en mörg fyrirtæki, stór sem smá hafa haft samband við forráðamenn bæjarfélags- ins vegna áhuga þeirra á því að flytja starfsemina til Reykjanesbæjar. vœnnk pirtækja Ekki alls fyrir löngu ákvað fyrirtækið Bakkavör sem staifar í sjávarútvegi að flytja starfsemi sína úr Kópavogi til Keflavíkur og hefur tekið húsnæði þar sem Jökulhamrar voru til húsa, á leigu. Sólning sem hefur rekið hjólbarðaverk- stæði í Njarðvík í mörg ár hefur ákveð- ið að söðla um og flytja dekkjafram- leiðslu sína úr Kópavogi til Njarðvíkur. vill til bs Mun fyrirtækið stækka við sig á þeim stað sem það er við á Fitjabraut. Þá er fyrirtæki sem framleiðir toghlera að færa starfsemi sína í húsnæðið þar sem Skipasmíðastöð Harðar hf. í Njarðvík var áður. Fleiri fyrirtæki munu vera í startholunum hvað flutning varðar og önnur að hugleiða þau mál. Ellert segir nokkur atriði vega þungt í ejarins þessum efnum. í fyrsta lagi er skatt- heimta í bæjarfélaginu fyrirtækjum hagstæð. I öðru lagi má nefna nálægð við útflutningsaðstöðu, þ.e. alþjóða flugvöllinn á Keflavíkurflugvelli og þriðja atriðið sem Ellert nethdi er öflugt starf Markaðs- og atvinnumálaskrif- stofu bæjarins. ✓ Uttekt á skattheimtu sveitarfélaga: Reykjanesbær kemur vel út út könnuninni Staifsmannafélög Suðurnesjabyggða og Reykjanesbær fær góða einkunn í úttekt Viðskiptablaðsins á skattheimtu sveitarfé- laga og er meðal skatt-„vænustu“ sveitarfé- lögum á landinu. I úttekt blaðsins fá sveitarfélög einkunn, þannig að hæsta einkunn vísar til lágra op- inberra gjalda. Reykjanesbær er í 6. sæti af rúmlega þrjátíu stærstu sveitarfélögum landsins og fær 4,98 í heildareinkunn. Ein- kunnagjöfin gefur vísbendingu um hversu hagstætt er fyrir einstaklinga að búa eða fyrirtæki að reka starfsemi í bæjarfélaginu, þó skýit sé tekið fram að ekki sé hægt að meta ýmsa aðra þætti, s.s. húshitunarkostn- að, lóðaverð og þá þjónustu sem bæjarfé- lagið veitir fyrir sína skattpeninga. í Reykjanesbæ er húshitun hagstæð sem og gatnagerðagjöld og gjöld fyrir lóðir em í lægri kantinum. I könnun Viðskiptablaðsins er skattheimtan metin út frá álagningu útvars. Mörg sveitar- félög nýta sér hæstu prósentu 9,2% en Reykjanesbær er þar með 9,0%. Fasteigna- skattur á íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði er 0,360% og 1,0% og er með því lægsta sem gerist. I Reykjanesbæ er lagður 0,9% skattur á skrifstofu- og verslunarhúsnæði sem mörg sveitarfélög gera alls ekki. Þá er bæjarfélagið í þokkalegu meðaltali hvað álagningu holræsagjalds varðar, bæði á íbúðir og fyrirtæki. Garðabær og Seltjamames em á toppnum í þessari könnun blaðsins en þar á eftir koma Bessastaðahreppur og Vestmannaeyjar. Ólafsfjörður er í 5. sæti en Reykjanesbær eins og áður segir í 6. sæti. ♦ Fjöldi fyrirtækja er að flytja til Reykja- nesbæjar. HAFNARGOTU 27 - usteicmasala n 7 - KEFLAVÍK<_> SÍMAR 421-1420 og 421-4288 Akurbraut 1, Njarðvík 129 ferm. raðhús ásamt 28 ferm. bíl- skúr. Nýleg eldhúsinnrétting. Mjög hagstæð Byggingarsjóðslán áhvílandi (4,9%) Skipti á 3ja herb. íbúð koma úl greina 10.000.000 Hringbraul 77, Keflavík 7 herb., hæð og kjallari með sérinn- gangi. Stærð 196 ferm. Hægt að leigja út 4 svefnherb. í kjallara. Skipti á minni fasteign koma úl greina. 7.500.000 Heiðarholt 20, Keflavík 2ja herb. íbúð á l.hæð í góðu ástandi. Góðir greiðsluskilmálar. Laus strax. 3.700.000 Vesturgata 12, Keflavik 3ja herb. íbúð á n.h. með sérinngangi. Nýjar skolp- og raflagnir. 3.700.000 Fílúmói 1, (0102) Njarðv'ík 2ja herb. ibúð á l.hæð. Getur losnað fljóúega. Hagstæð lán áhvílandi. 4.000.000 Hringbraut 86, Keflavík 77 ferm., 3ja herb. íbúð ásamt 40 femt. bflskúr. Sérinngangur. Ibúðin er í góðu ástandi. Hagstæð lán áhvflandi. Góðir greiðsluskilmálar. Útborgun 250.000. Ttlboð. Faxabraut 8, Keflavík 127 fetjn. raðhús ásamt 28 ferm. bíl- skúr. Á e.h. 3ja herb. íbúð í góðu ástandi m.a./tý eldhúsinnrétúng. Sér- inngangur. Á n.h. 2ja herb. íbúð með sérinngangi. Húsið getur losnað fljót- lega. Hægt að selja hvora ibúð sér. 7.800.000 Garðbraut67,Garði 120 ferm. einbýlishús ásamt 39 ferm. bflskúr. Nýlegir gluggar og gler, ein- nig hitalögn. 5.500.000 Fífúmói ld, Njarðvík, (0302) 2ja herb. ibúð á 3.hæð í góðu ástandi. Mjög góðir greiðsluskilmálar. Útb.kr. 200.000 3.300.000 éflavíkurbœjar: vnja sam- einingu Samkvæmt niðurstöðu úr skoðanakönnun sem gerð var meðal félaga í Starfsmannafélögum Keflavíkurbæjar og Suðumesjabyggða vilja um 80% félagsmanna að félögin verði sameinuð. „Það er náttúrlega allt sem mælir með samein- ingu. Með því yrðu um 500 manns í nýja félag- inu og þannig hefðum við möguleika á að ráða starfsmann í hálft starf‘, sagði Óskar Guðjóns- son, formaður Starfs- mannafélags Suður- nesjabyggða. Undir ftetta tekur formaður Starfsmannafélags Keflavíkur, Hólmar Magnússon. „Við mun- um halda áfram að ræða saman en síðan verða það aðalfundir félag- anna beggja að taka ákvörðun". Rétt innan við 50% fé- laga tóku þátt í skoð- anakönnuninni um en um 80% þeirra voru sammála því að sam- eina félögin. 2 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.