Víkurfréttir - 08.02.1996, Blaðsíða 14
Lífeyrissjóður Suðurnesja:
Eipnir hafa
rumlega fimm-
faldast á síð-
ustu átta árum
-og eru nú 5,6 milljarðar króna
♦ Stjórn Lífeyrissjóðs Suðurnesja er skipuð fjórum mönnum þeim Halldóri
Ibsen, varaformanni, Halldór Pálsson, formanni, meðstjórnendunum Birni
Jóhannssyni og Jóni Ægi Ólafssyni. A myndinni er f.v. Halldór Ibsen, Hall-
dór Pálsson og Daníel Arason, framkvæmdastjóri. VF-mynd/pket.
„Áætlað ráðstöfunarfé Lífeyrissjóðs Suðurnesja á
þessu ári nemur rúmlega einum milljarði króna
en fjárfesting þess fer nú orðið eftir fjárfestinga-
stefnu sem stjórn sjóðsins samþykkti á síðasta
ári“, sagði Daníel Arason, framkvæmdastjóri Líf-
eyrissjóðs Suðurnesja.
I kjarasamningi aðila vinnumarkaðarins um lífeyris-
mál, sem undirritaður var í desember 1995 er meðal
atriða að skýrari ákvæði verði sett um ávöxtun á
vörslufé sjóðanna m.a. krafa um tjárfestingastefnu.
Daníel sagði að stjórn Lífeyrissjóðs Suðumesja hafi
samþykkt Ijárfestingastefnu fyrir sjóðinn í júlí 1995
og var hún í undirbúningi frá upphafi árs 1994 eða
um eitt og hálft ár. Á þessum tíma var gerð ítarleg út-
tekt á verðbréfasafni sjóðsins og aðstoðaði Verð-
bréfamarkaður Islandsbanka við úttektina og veitt
ráðgjöf við gerð ljárfestingastefnunnar.
I þessari nýju stefnu segir m.a. í inngangi hennar:
„Markmið með eftirfarandi fjárfestingastefnu og
áætlunum um eignastýringu Lífeyrissjóðs Suður-
nesja er fyrst og fremst að ná góðri ávöxtun og
áhættudreifingu á tjármuni sjóðsins og gera þannig
sjóðinn hæfari til að sinna því hlutverki sínu að ávax-
ta iðgjöld sjóðfélaga á sem bestan og öruggastan hátt
og standa undir lífeyrisskuldbindingum í framtíð-
inni“.
SAMBÆRILEG
ÍSLENSKUM MARKAÐSBRÉFUM
Þá segir einnig að Ijárfestingastefnan miðist við að
ná sambærilegri ávöxtun og íslensk markaðsbréf á
hverjum tíma og ávallt skuli hafa varfæmissjónarmið
í huga við tjárfestingar, bæði hvað varðar sveiflur í
verðmæti verðbréfa, tryggingar og einstaka skuldara.
Stefna um eignaskiptingu sjóðsins tekur mið af
skiptingu skuldabréfa og hlutabréfa á innlendum
verðbréfamarkaði og til erlendra verðbréfa og skal
hlutfall þessara verðbréfa vera 90%, þar af erlend
verðbréf allt að 10%. Þó er gert ráð tyrir til að leitast
við að ná hæiri ávöxtun að heimilt sé að víkja frá
vægi hvers flokks markaðsverðbréfa um sem nemur
helming af vægi flokksins.
Gert er ráð fyrir að óstöðluð bréf verði eigi hærra
hlutfall en 10% þ.m.t. skuldabréf sjóðfélaga. Þó
verður tekið tillit til eftirspumar sjóðfélaga eftir lán-
um hvetju sinni.
SKIPTINGU
VERÐI NÁÐ ÁRIÐ 2000
Daníel segir að tjárfestingastefnan miðist við að
ákveðinn skipting á verðbréfaeign sjóðsins verði náð
árið 2000 og er því leitast við að kaupa verðbréf í
eftirfarandi hlutföllum, þó með heimild til frávika
um allt að helming í hveijum flokki, heimiluð frávik
vegna erlendra verðbréfa er þó einungis til lækkunar:
Spariskírteini ríkissjóðs 18,0%
Húsbréf og húsnæðisbréf 23,0%
Önnur skuldabréf m/ábyrgð ríkissjóðs 7,0%
Samtals skuldabréf m/ábyrgð ríkissjóðs 48,0%
Skuldabréf sveitarfélaga 10,0%
Skuldabréf banka og sparisjóða
7,0%
Skuldabréf eignarleigufyrirtækja 2,0%
Önnur markaðsskuldabréf 8,0%
Innlend hlutabréf 5,0%
Erlend verðbréf 10.0%
Markaðsverðbréf alls 90,0%
ENDURSKOÐIST ÁRLEGA
Daníel segir að gert sé ráð fyrir að fjárfestingastefna
sjóðsins endurskoðist árlega og við breytingar á
stefnunni verði fyrst og fremst tekið mið af breyting-
um sem verða á íslenska verðbréfamarkaðnum en nú
í upphaft nýs árs er ekki talin ástæða til að gera
breytingar á henni, en hún verður aftur til skoðunar á
miðju þessu ári.
♦ David Pitt, kunnur kaupsýslumaður úr Reykjavík, Jónína Sand-
ers, bæjarfulltrúi og hjúkrunarfræðingur og Unnur Þorsteinsdóttir
afgreiðsludama úr Apótekinu höfðu um margt að spjalla.
Fyrsti viðskiptavinurinn heppinn!
♦ Benedikt og Heiðrún með yfirsmiðunum
þeim Héðni Skarphéðinssyni og Ásgeiri Ingi-
mundarsyni en þeir sáu um smíði nýju innrétt-
inganna í Apóteki Keflavíkur.
Fyrsti viðskiptavinurinn f nýrri snyrtivömdeild Apóteks
Keflavíkur, hún Elín Elíasdóttir hafði heppnina með sér
þegar hún kom fyrst allra í Apótekið klukkan tt'u síðast-
liðinn laugardag. Hún fékk að gjöf af þessu tilefni glæsi-
Iegt Caitier ilmvatnsglas, sem heitir ,.So pretty“ og kostar
litlar tíu þúsund krónur. Það var reyndar svolt'úð spaugi-
legt að fylgjast með Elt'nu þegar hún kom. Hún skoðaði
ýmsar vömr í smá stund og fór svo út. Af einhvetjum
ástæðum kom hún inn í verslunina aftur eftir smástund
og keypti þá einhvern vaming. Það borgaði sig svo sann-
arlega!
Síðdegis var boðið til opnunarhófs í tilefni breytinganna
og stækkun apóteksins og vom meðfylgjandi myndir
teknar við það tækifæri. VF-mynd/pket.
♦ Heiðrún Þorgeirsdóttir afhenti fyrsta
viðskiptavininum í nýrri snyrtivörudeild
apóteksins, Elínu Elíasdóttur glæsilegt
ilmvatnsglas að gjöf. VF-mynd/pket.
14
V íkurfréttir