Víkurfréttir - 08.02.1996, Qupperneq 7
URVALÚTSYN
S E R F_E R D I R
Framtíðarsýn í húsnæðis
málum menningarlífsins
Eins og öllum ætti að vera
kunnugt, sem eitthvað fylgjast
með umræðum um menningar-
mál, hafa eigendur Félagsbíós
boðið bæjaiyfirvöldum Reykja-
nesbæjar bíóið til kaups undir
menningarstarfsemi og þegar
þetta er skrifað standa viðræður
á milli aðila yfir. Leikfélag
Keflavíkur hefur óskað eftir því
við bæjaryfirvöld að þau ráði
bót á húsnæðisvanda félagsins
og hafa húsnæðisvandræðunum
verið gerð góð skil á síðum bæj-
arblaðanna. Öllum er Ijós þörfm
á góðu húsi undir alls konar
menningarviðburði s.s. leiksýn-
ingar og tónleika og hefur
Menningamefnd Reykjanesbæj-
/1zamni og alvöru
KJARTAN MÁR KJARTANSSON
ar ályktað um þessi mál æ ofan í
æ.
Nú hafa bæjaryftrvöld ákveðið
að leggja áherslu að mótuð verði
stefna til framtíðar í þessum
málum svo þeir, sem láta sig
menningarlífið varða, viti
nokkum veginn hvað framtíðin
ber í skauti sér. I stuttu máli em
hugmyndimar þær að Byggða-
safnið fái Duus húsin til varð-
veislu og nýti þau sem sýningar-
húsnæði., myndlistarmenn fái
humarvinnsluhúsin sem bærinn
eignaðist við kaupin á húsnæði
Keflavíkur h.f. við Hafnargötu
2-6 og síðast en ekki síst verði
farið í forhönnun á Qölnota sal
fyrir alls konar sýningar, þar
með taldar leiksýningar og tón-
leika, þar sem nú eru rústir fisk-
vinnslusalanna í sama húsi.
Með því að gera fiskvinnsluhús-
in að menningarmiðstöð fæst
góður heildarsvipur á alla Duus t
torfuna, tenging við gamla
hverfið í Keflavík er aðlaðandi
hugmynd svo ekki sé talað um
þá byltingu sem verður í um-
hverfismálum svæðisins þegar
endurbyggingu húsanna er lok-
ið. En allt er þetta framtíðarmús-
ík sem stefnt verður að. Vonandi
tekur þetta þó ekki allt of langan
tíma því þörfrn er mjög brýn nú
þegar. Ttl þess að leysa brýnustu
vandamál Leikfélagsins hafa
bæjaryfirvöld ákveðið að bjóða
félaginu aðstöðu að Vesturbraut
17 en þar á bæjarfélagið eitt
stykki samkomuhús sem stend-
ur ónotað. I þessum sal getur
Leikfélagið æft og sýnt og í
rauninni verið með allt sitt starf
á meðan ekki þarf að nota hús-
næðið undir einhverjar aðra
mikilvægari starfsemi. Vonandi
nær Leikfélagið að fóta sig á
Vesturbrautinni og halda áfram
því mikilvæga starfi sem á vett-
vangi þess er unnið. Fjöldi ung-
linga hefur nú gengið til liðs við
félagið og þar er unnið mjög
gott og gagnlegt uppbyggingar
og forvarnarstarf. Ef draumur-
inn um menningarmiðstöðina á
Hafnargötunni rætist á þetta
sama unga fólk eftir að sk-
emmta okkur hinum á fjölum
leiksviðsins innan gamla grjót-
garðsins þar sem Duus gamli
ætlaði eiginkonu sinni, frú
Duus, að rækta matjurtir og trjá-
plöntur, eins og hún hafði gert
heima í Danmörku, í skjóli fyrir
rokinu á Suðumesjum.
Þessi sami veggur á vonandi eft-
ir að veita viðkvæmum og fi'n-
gerðum tilfinningum leikaranna
skjól í átökum við stór og erfið
verkefni bókmenntanna.
kveðja kmk
Skattframtalsgerð fyrir einstaklinga ogfyrirtœki.
• •
Bókhaldsþjónusta og ráðgjöf. Orugg og góð þjónusta. Sœki umfrest.
FRAMTALSÞJONUS TAN Katrín H. Árnadóttir, viðskiptafrœðingur, Hafnargötu 90 - símar 421 2125 og 896 4480
Opib alla virka daga kl. 9:00 til 17:00
4 4
^NRVAL'ÍTSÝN
Hajhargötu 15 - Keflavík - sími 421 1353 - fax 421 1356
Opib hús í nýrri söluskrifstofu okkar ab Hafnargötu 15
sunnudaginn 11. febrúarkl. 13:00til 16:00.
Bangsi bangsafararstjóri mætir á stabinn
meb nammi fyrir krakkana.
Víkurfréttir
7