Víkurfréttir - 08.02.1996, Page 17
þegar vaktstjórinn kemur niður úr
stjómherberginu því þar gáfu ljós til
kynna að ekki væri allt með felldu.
Hann kallaði þá strax til björgunar-
lið".
GÓÐUR BATI
Læknum á Borgarspítalanum tókst á
miðvikudaginn að græða höndina á
Júlíus. Eftir aðra aðgerð á laugardag-
inn spurði Júlíus hjúkrunarliðið
hvenær hann fengi að fara heim og
fékk þau svör að hann yrði að vera
a.m.k. viku í viðbót á sjúkahúsinu. A
mánudag var Júlíus farinn að geta
kreppt fingur og sagði að með þjálfun
ætti hann að geta náð góðum bata.
- En þú vinnur varla mikið nteira á
þessu ári?
„Ef ég fæ að ráða þá mun ég mæta
aftur til vinnu en sjáum til hvernig
gengur að koma mætti í höndina. Ég
er jákvæður og það hefur niikið að
segja í að sigrast á svona meiðslum".
31. KL. 09:30
Þetta er ekki fyrsta slysið sem Júlíus
lendir í um ævina því 31. maí 1972
missti hann Ijóra fingur í slysi til sjós.
Mánaðardagurinn 31. virðist ætla að
hafa mikla merkingu í lífi Júlíusar því
slysið í síðustu viku varð miðviku-
daginn 31. janúar. Það er lfka athygl-
isvert að slysið varð kl. 09:30 um
morguninn en slysið árið 1972 varð á
sama tíma.
Dansaðí
sundlaug
„Urvalsdeild" Keflavíkur í sundi hélt
sitt árlega þorrablót í Sundmiðstöð
Keflavíkur sl. laugardag. I úrvalsdeild-
inni eru morgunhanar sem synda og
ræða lífsins heitustu málefni alla virka
daga frá klukkan sjö á morgnana. A
myndinni má sjá tvo af morgunhön-
unum stíga dans í rennubrautarpottin-
um, þau Gunnu „skó" og Óla í Radfó-
nausti. Fjörið var mikið, eins og sjá
má. VF-mynd/pket.
KÁTAR SKVÍSUR
Þær vom aldeilis í miklu stuði þessar
skvísur sem skemmtu sér á Kaffi
Keflavík um síðustu helgi. Við vomm
þar og smelltum af mynd
ii
MhitH!
• UHF • VHF •
ÖRBYLGJU • FM
Einnig tilheyrandi
tengibúnaður og magnarar!
RAFBÚÐ R.Ó.
Hafnargötu 52 - sími 4213337
ÁÐ VIÐ STEKKJARKOT
Göngufólk á vegum Útivistar hefur síðustu sunnudaga gengið gömlu landnámsleiðina um Suðumes. Hópurinn var á ferð
við Stekkjarkot sl. sunnudag þegar ljósmyndari blaðsins átti þar leið um. Sól skein í heiði og það var létt yfir mannskapnum
sem þennan daginn rölti frá Gróf og inn í Voga. VF/mynd: hbb
Skattframtöl
Tökum að okkur gerö skattframtala fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Traust og góð þjónusta á sanngjörnu verði.
SiyunÁun S&úti údl.
P&neLun. ^ayuan&iau
Grundarvegi 23, Njarðvík
Tímapantanir í síma 421 5767 Bréfsími 421 5075
Opið frá kl. 16.00 til 22.00 virka daga og um helgar frá kl. 10.00 til 16.00
Visa/Euro greiðslukortaþjónusta.
Víkuifréttir
17