Víkurfréttir - 19.09.1996, Síða 9
^ -J
Islensk verslun
- allra hagur
I haust standa hagsmunasamtök í verslun fyrir
kynningarátaki undir kjörorðinu Islensk verslun-
allra hagur. Þeir sem standa
að átakinu eru: Kaup-
mannasamtök íslands,
Samtök samvinnuverslana
(kaupfélögin), Félag
íslenskra stórkaupmanna og
Hagkaup. Auk þess hafa
viðskiptaráðuneytið og Ijár-
málaráðuneytið komið að
verkefninu. Markmið
átaksins er að minna á versl-
unina hér á landi og mikil-
vægi hennar sem atvinnu-
greinar nú þegar haustar og verslunarferðir ent að
hetjast til erlendra stórboiga.
Það er forráðamönnum verslana að sjálfsögðu
fagnaðarefni að Islendingar geti ferðast til útlanda
á viðráðanlegu verði og dvalist í erlendum stór-
borgum við skemmtun. Verslun almennings
erlendis er að mörgu leyti af hinu góða og veitir
íslenskri verslun aðhald og santkeppni og hvetur
til þess að íslensk verslun geri betur. Samkeppnin
snýst hins vegar ekki eingöngu um verð, margir
aðrir þættir koma þar við sögu, þættir eins og
skilaréttur, gæði, þjónusta og ábyrgð. Hætt er við
að samanburðurinn verði oft ósanngjarn og á
misskilningi byggður. Merkjavara hérlendis með
fullri þjónustu og ábyrgð er borin saman við
vöruhúsakaup erlendis þar sem óvfst er með
möguleika á að skila eða skipta ef varan hentar
ekki eða passar ekki. Virðisaukaskattur er enginn
af barnafamaði í sumum vinsælum löndum, hérer
rúmlega 20 % af vöruverði út úr búð virðis-
aukaskattur, en aukþess bætist á vömgjöld og toll-
ar, svo er verslunin hér heima skömmuð fyrir háa
álagningu.
{ haust er áætlað að um 20.000 íslendingar fari í
stórborgarferðir og er það svipaður fjöldi og
undanfarin ár. Samanlögð innkaup í þessum ferð-
um í október, nóvember og desember nema Ifk-
lega um 2 milljörðum . Þessar tölur em byggðar á
veltutölum frá greiðslukortafyrirtækjunum. A einu
ári eyða íslendingar um 10 milljörðum í versl-
unum erlendis og erþað um 1/10 af heildarveltu
smásöluverslunar á íslandi en smásöluverslunin er
um 100 milljarðar. Þessir 10 milljarðar jafngilda
allri veltu ÁTVR á einu ári. Verslun okkar erlendis
try'ggir þar af leiðandi um 2.000 störf í erlendri
verslun, en geta má þess að hvert starf í verslun er
áætlað að skapi 0.25 störf í öðmm atvinnugreinum
vegna margfeldisáhrifa. Við skulum líka í þessu
samhengi minnast þess að um 800 manns úr versl-
unarstétt á íslandi eru atvinnulausir . Erlendir
ferðamenn kaupa vömr hér á landi árlega fyrir um
2 milljarða. Við breytingar á fyrirkomulagi Tax-
free shopping nú síðastliðið sumar má búast við
aukningu í framtíðinni og reyndar gefa tölur frá
öðmm löndum vísbendingar að eftír 10 ár verði
sala til erlendra ferðamanna u.þ.b. 8 milljarðar á
ári. íslensk verslun er þar fyrir utan sú atvinnu-
grein í landinu sem greiðir mest til samneyslunnar.
Um 31 % af sköttum sem lagðir em á atvinnu-
greinar í landinu koma ífá versluninni, það em því
augljósir hagsmunir íyrir samneysluna í landinu
og ríkissjóð að íslensk verslun dafni sem best.
Skúli Skúlason
MMverkasýning
í Risinu!
Þjóðháttamálarinn Bjarni Jónsson
opnaði málverkasýningu í Risinu
Tjarnargötu 12 í Keflavík
laugardaginn 14. september sl.
Sýningin stendur til 22. september og
er opið um helgar kl. 14:00 til 20:00.
Fimmtudaginn 19. sept. og
fóstudaginn 20. sept. er opið
kl. 16:00 til 20:00.
/
A sarna tíma sýnirAstrid Ellingsen
prjónaða kjóla ogjakka.
Góð greiðslukjör.
Sérhæfð skrifstofutækni
Kennsla á haustönn í Keflavík
• Almenn tölvufr. og l/l/indows stýríkerfi, 10 klst
• Word fyrir Windows, 24 klst
• Excel fyrir Windows, 24 klst
• Glærugerð og auglýsingar, 10 klst
•Tölvufjarskipti og Internet, 12 klst
• Bókfærsla, 16 klst
• Verslunarreikningur, 16 klst
• Tölvubókhald, 16 klst
Markvisst og hagnýtt nám. Kennt verður þrisvar í viku.
Veglegar bækur fylgja. Engrar undirbúningsmenntunar er krafist.
oivuskou Hí
Borgartúni 28, sími 5616699
Innritun er hafin
V íkurfréttir