Víkurfréttir - 19.09.1996, Side 19
Grindavík og Keflavík eigast
við í næst síðustu umferð Sjó-
vá-Almennra deildinni í knatt-
spyrnu á laugardag í Grinda-
vík. Bæði liðin eru í grimmri
botnbaráttu.
Keflvfkingar og Fylkismenn
gerðu markalaust jafntefli í
Keflavík sl. stinnudag. Að-
stæður voru skelfilegar, mikil
rigning og völlurinn var á floti
og gerði það leikmönnum
erfitt fyrir. Boltinn stöðvaðist
nánast alltaf þegar hann snerti
grasflötinn. Fá tækifæri litu
dagsins ljós. Besta færi Kefl-
víkinga átti Adolf Sveinsson á
20. mín. síðari hálfleiks þegai'
hann reyndi að vippa boltan-
um yfir markvörð Fylkis en
hann sá við honum og varði.
Fylkismenn voru nálægt því
að skora á lokamínútunum en
ónýtur grasvöllurinn sem líkt-
ist frekar sundlaug að þessu
sinni. bjargaði heimamönnum
þegar boltinn stöðvaðist í
markteignum og sóknaimaður
Fylkis náði ekki til hans.
Grindvíkingar fengu háðug-
lega útreið á Skipaskaga. Eftir
hetjulega byijun gegn Islands-
meisturum Skagamanna og
0-2 forystu í byrjun síðari
hálfleiks réðu Grindvíkingar
ekkert við heimamenn sem þó
vom einum fæixi. IA skoraði
fimm mörk á 14 mínútum en
lokatölur urðu 6:3. Mörk
UMFG skoruðu Óli Stefán
Flóventsson, Kucic og Zoran
Ljubicic.
Keflvíkingar eru í fjórða
neðsta sæti með sextán stig,
Fylkir er með 15 stig, UBK
14 stig og Grindavík rekur
lestinameð 13 stig.
♦ Það var mikill fögnuður í Sandgerði eftir sig-
urinn og stemmningin leiknum mikil. Hér að
ofan grípur Sigurður Bjarnason markvörður
boltann í einni sókn Víðis en hér að neðan má
sjá glaða Reynismenn og fjöldann á áhorf-
endapöllunum. VF-myndir/hbb.
Botnbaráttu- og ná-
grannaslagur í Grind
Reynismenn upp
Reynir Sandgerði tiyggði sér sæti í 2. deild að ári með sigri á nágrönnum sínum úr Garði í úrslita-
leik liðanna í Sandgerði sl. laugardag. Lokatölur urðu 3:0 fyrir heimamenn.
Liðið varð í 2. sæti í 3. deildinni, Víðismenn í því þriðja. Dalvík sigraði í deildinni.
V íkurfréttir