Víkurfréttir - 13.02.1997, Blaðsíða 11
Fjöldi umferdaróhappa í ófœrðinni
Mikið var af umferðaróhöppum að sögn lögreglunnar í vikunni
eða alls 41 vegna ófærðarinnar sem verið hefur undanfarið.
Engin alvarleg meiðsl urðu á fólki en í nokkrum tilvikum vai'
um tognun að ræða.
Okumenn teknir
Tveir voru teknir fyrir ölvun við akstur í vikunni og þrír öku-
menn voru teknir fyrir að aka eftir sviptingu ökuleyfis. Númer
voru tekin af sjö bflum vegna vangoldinna aðalskoðanna.
Samkonudag um D-ábuu:
Gerðahreppur
gerir fyrirvara
Lýsir yfirfurðu siuni á því að hjúkrunar-
heimiUnu Garðvangi skuli blandað í málið.
Hreppsnefnd Gerðahrepps
gerði nýverið fyrirvara á sam-
þykkt sinni á samningi um D-
álmu þar sem hún lýsir yfir
furðu sinni á því að hjúkrun-
arheimilinu Garðvangi sé
blandað í málið.
í bókun sem fylgdi samþykkt-
inni segir m.a. „Hreppsnefnd
Gerðahrepps lýsir furðu sinni
á því að hjúkrunarheimilinu
Garðvangi skuli blandað inn í
samninga S.S.S. og ríkisins
um byggingu og framtíðar-
rekstur D-álmu við S.H.S.
Hreppsnefndin leggst hins
vegar ekki gegn því að athug-
un fari fram á því hvort spara
megi og hagræða rekstri
hjúkrunarheimilisins Garð-
vangs svo fremi sem spamað-
ur og hagræðing verði metin
frá sjónarhóli íbúa Gerða-
hrepps sem annarra íbúa Suð-
umesja"
Hreppsnefndin telur nauðsyn-
legt að þegar fari fram um-
ræða um framtíðarmarkmið
öldrunannála á Suðumesjum.
Hún bendir jafnframt á að
verulegt óhagræði skapist af
því að reka samtímis hjúkmn-
arheimili og vistheimili á
Garðvangi.
Einn nefndarmanna hrepps-
nefndar, Olafur Kjartansson,
greiddi atkvæði á móti sam-
þykktinni þar sem hann telur
samkomulagið óásættanlegt
hagsmunum sveitarfélagsins
nema að fyrir liggi samkomu-
lag milli sveitarfélagana á
Suðurnesjum um framtíðar-
rekstur Garðvangs.
ATVINNA
Óskum að ráða starfskraft til
afgreiðslustarfa.
Umsóknareyðublöð á staðnum.
BÁSINN
Vatnsnesvegi 16
Keflavík
ATVINNA
Óskum að ráða starfskraft í bakarí,
ekki yngri en 25 ára.
Vinnutími kl. 13-19. Þarfað geta
hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar í símum
421-5255 og 421-1818.
M Niðurstöður samrœmdra prófa í Sandgerði:
Óásættantegar
-segir í bókun bœjcirstjórnar
Bæjarstjóm Sandgerðisbæj-
ar lýsti nýverið yfír áhyggj-
um sfnum vegna niðustaðna
í samræmdum prófurn í
Grunnskólanum í Sandgerði
og segir þær óásættanlegar.
í bókun bæjarstjórnar um
málið segir m.a. „I ljósi úl-
komu á samræmdum próf-
um er ljóst að bæjarstjórn
getur ekki sætt sig við nú-
verandi stöðu skólans er
varðar námsárangur og mun
leita allra leiða til að koma í
veg fyrir að slík útkoma
verði viðvarandi".
Til þess að skoða vandann
og stuðla að betri nántsár-
angri nemenda verður
„Fræðsluráð" kallað til
starfa til þess að vera skóla-
stjóra og skóla- og fræðslu-
nefnd Sandgerðisbæjar inn-
an handar við endurskoðun
og uppbyggingu sem talin er
nauðsynleg til þess að ná því
markmiði.
Atvinna tölvur
Ert þú rétti maðurinn eða konan.
Vegna aukinna umsvifa leitar Tölvuvæðing að
starfskrafti til að þjónusta tölvur og hugbúnað.
Umsækjendur leggi inn umsóknir á skrifstofu
Tölvuvæðingar, Hafnargötu 31 Keflavík.Uppl. gefur
framkvæmdastjóri á staðnum eða í síma 421-4040.
TÖLVCJVftÐING EHF.
Hafnargata 31 - 230 Keftavík
Sími: 421-4040 & 421-4044 Fax: 421-3545
Bókasafn
Reykjanesbæjar:
NAMSKEIÐIRITUN
verður haldið á Bókasafni Reykjanesbæjar ef
næg þátttaka fæst.
Námskeiðið verður á þriðjudagskvöldum frá kl. 20-22 í
fimm skipti og hefst 18. febrúar n.k.
Námskeiðið kostar 4.000.- kr.
Meðal efnis sem farið verður í er skapandi skrif, s.s. að
yrkja Ijóð, skrifa smásögur, leikþætti o.fl. og aðrir þættir
ritunar, s.s. ritun blaðagreina og frásagnir af ýmsu tagi.
Kennari er Guðbjörg Aðalbergsdóttir,
íslenskukennari í FS.
Þátttaka tilkynnist á Bókasafnið í síma 421-5155
í síðasta lagi mánudaginn 17. febrúar n.k.
Allir aldurshópar velkomnir.
Víkuifréttir
11