Víkurfréttir - 13.02.1997, Blaðsíða 7
I Reykjanesbœr:
TónlistarskóMr
sameinaðir?
Við gerð fjárhagsáætlunar
Reykjanesbæjar sl. þriðjudag
lagði minnihluti fram tillögu
þess efnis að undirbúin verði
sameining tónlistarskólanna
og að sameiningin taki gildi
árið 1998. Jafnframt verði
þjónustustig skilgreint meðal
annars með það í huga ða nýta
fjármagn og kennslukrafta
sem best. Einnig verði hús-
næðisþörf skilgreind.
Á fundinum vísaði meirihluti í
tillögu sfna í fjárhagsáætlun
þar sem lagt er til að vinnu-
hópur verði skipaður sem haft
það að markmiði að endur-
skoða húsnæði, rekstur og
skipulag tónlistarskólanna.
Minnihluti bókaði um ntálið á
fundinum; „Við afgreiðslu j
fjárhagsáætlunar fyrir árið
1996 lögðu bæjarfulltrúar Al-
þýðuflokksins til „að Tónlist-
arskóli Ketlavíkur og Tónlist-
arskóli Njarðvíkur verði sam-
einaðir og daglegur rekstur
verði undir einni stjórn“.
Þessa tillögu felldi meirihlut-
inn eins og aðrar góðar tillög-
ur. Því er það fagnaðarefni að
sjá þessa tillögu meirihlutans
nú. Hún felur hins vegar að-
eins í sér óljósa endurskoðun,
að því er virðist án markmiðs.
Því vísum við til tillögu
minnihlutans um að unnið
verði að sameiningu skólanna,
slíka stefnumörkun á bæjar-
stjóm að setja fram. Hins veg-
ar bendir þvf miður margt til
þess að meirihlutinn þurfi
skoðun í eitt ár enn til að geta
fallist á þessa tillögu okkar“.
■ Samband sveitarfélaga á Suburnesjum:
Brunavarnir og
Dvalarheimili spari
Tillaga fjárhagsnefndar Sam-
bands sveitarfélaga á Suður-
nesjum. að fjárhagsáætlunum
sameiginlega rekinna stofn-
anna var samþykkt á stjómar-
fundi SSS 3. feb. sl. með þeim
fyrirvara að tekið verði á upp-
söfnuðum halla Brunavarna
Suðurnesja og Dvalarheimila
aldraðra á Suðurnesjum.
Einnig var ítrekað að Heil-
brigðisnefnd og framkvæmda-
stjóri Heilbrigðiseftirlits taki
alla ábyrgð á fjárreiðum emb-
ættisins.
Uppsafnaður halli Brunavama
Suðumesja er áætlaður 4.360
þúsund og Dvalarheimila aldr-
aðra á Suðurnesjum 3.973.
þúsun auk 1.400 þús vegna
viðbyggingar við Garðvang.
Stjórn S.S.S. leggur til að
sveitarfélögin greiði þriðjung
sem verður bætt við hlut sveit-
arfélaganna á árinu 1997.
Einnig leggur stjóm S.S.S. til
að stjómir, framkvæmdastjóri
og slökkviliðstjóri þessara
embætta finni leiðir til sparn-
aðar í rekstri fyrir þeim þriðj-
ungi sent ekki fæst bættur á
næstu tveimur ámm. Itrekað er
að stofnanirnar skulu reknar
innan ramma fjárhgasáætlunar
hvers árs og þá var einnig ósk-
að eftir því við stjórn BS að
skoðun fari fram á því hvað
kostar að reka slökkvilið án
sjúkraflutninga.
Heilbrigðisnefnd og fram-
kvæmdastjóra HES er gert að
taka alla ábyrgð á fjárreiðunt
HES þar sem embættið er nú
rekið fyrir sjálfsaflafé og er
talið eðlilegt að greiðsla reikn-
inga og annarra gjalda taki mið
af innheimtu og fjárhgasstöðu
á hverjum tima.
Sandgerðisbær:
Hugarað
stækkun
leikskóla
Meirihluti bæjarstjórnar
Sandgerðisbæjar hefur
lagt til að liugað verði að
stækkun leikskóla bæjar-
ins. Mun skóla- og
fræðslunefnd kanna frek-
ar núverandi aðstöðu og
bendir meirihlutinn á að
rétt væri að kanna þróun
þessara mála á síðustu
árum og þróun á næstu
árum. Einnig var bent á
aðstöðuleysi fyrir heils-
dagsböm, böm sem þurfa
á stuðningi að halda og
annað sem taka ber tillit
til við fyrirhugaða stækk-
un. Bæjarfulllrúar D-lista
sátu hjá við afgreiðslu
málsins.
r,“
•l
LYKIIR
UUGARDAG
^kóbúdin /Keflavik
Hafnargötu 35
sími 421 1230
Útgerðarfélagið Njörður
Starfsfólk í lodnufrystingu
Óskum eftir að ráða starfsfólk í loðnufrystingu í
Sandgerði á komandi vertíð. Upplýsingar í símum 423-
7448, 421 2682 og 896 5521 (Bjarni Geir eða Sveinbjörn).
SUÐURNESJABUAR!
RoCj retinol
sem er bylting í merðferd gegn hrukkum
í Apóteki Suðurnesja
föstudaginn 14. febrúar kl. 13-18
RoC snyrlifræðiiifnir veitir ráðgjöf og lniðgreiningu á staðnuin.
10% kynningarafsláttur
og ef keypt er fyrir 2000 kr. fylgir falleg gjöf ineð.
í
ri
APOTEK
SUÐURNESJA
Hriugbraut 99 - síini 421 6565 - fax 421 6567 - Ueknasími 421 6566
Víkurfréttir
7