Víkurfréttir - 17.04.1997, Blaðsíða 8
SMÁFRÉTTI
19 0 7
19 9 7
SPRRISIÓÐURIHN
fréttir og þjónusta!
Textavinnsla:
Sæmundur Benediktsson
Páll Ketilsson
Ljósmyndir:
Hilmar Bragi Bárdarson
-www.spar.is
IF'
Sparisjóðirnir
hafa nú stigið
fyrsta skrefið í
átt að opnun
heimabanka-
l í i þjónustu á Int-
■ emetinu. Undir
I lok ársins var
[ w<________I Heimabankinn
á Intemetinu kynntur. í Heima-
bankanum er boðið er upp á
allra handa upplýsingaþjónustu,
svo sem yfirlit reikninga, yfirlit
greiðslukorta og millifærslur
milli eigin reikninga. En sem
komið er leyfa öryggisjónaimið
ekki greiðslu reikninga yfir
Intemetið. Auk þess að bjóða
upp á heimabanka á Intemetinu
þá hafa Sparisjóðimir sett upp
öfluga heimasíðu sem hefur að
geyma ítarlegar upplýsingar um
starfsemi og þjónustu spari-
sjóðanna.
Mani" mtfsra ser Qol-
breytta imheir þ^Niustu
lnnheimta reikninga fvrir fyrirtæki
er nýjasta innheimtuþjónusta
Sparisjóðsins.
Nú geta fyrirtæki komið með allar
sínar kröfur eða reikninga sem þau
þurfa að innheimta í Sparisjóðinn og
látið hann innheimta þær fyrir sig.
Farið var að bjóða uppá þessa þjón-
ustu á síðasta ári og hefur hún fallið í
góðan jarðveg hjá viðskiptavinum
okkar og mörg fyriræki þegar nýtt sér
þessa þjónustu.
Húsfélagaþjónusta
Sparisjóðurinn býður húsfélögum og
félagasamtökum margháttaða þjón-
ustu í tjármálum sem er allt í senn
ódýr, örugg og þægileg. Sérstakur
þjónustufulltrúi sér um öll samskipti
við félagið og tryggir persónulega
þjónustu auk þess sem biðraðir heyra
sögunni til.
Félagaþjónusta
í Innheimtuþjónustunni sér Spari-
sjóðurinn um að senda greiðsluseðla
til greiðenda félagsgjalda. Ef félagið
óskar eftir því getur Sparisjóðurinn
reiknað dráttarvexti á þær greiðslur
sem ekki eru í skilum á eindaga.
Sparisjóðurinn sendir yfirlit yfir
ógreidd gjöld, sendir gjaldkera félags-
ins yfirlit yfir ógreidda greiðsluseðla
og fylgir eftir vanskilaskuldunt.
Sparisjóðurinn sendir ítrekanir,
samkvæmt beiðni gjaldkera, til þeirra
sem standa ekki í skilum. Sé þeirri
ítrekun ekki sinnt er send út önnur
ítrekun samkvæmt beiðni gjaldkera
félags. Þar er greiðanda gefinn
ákveðinn tími til að koma skuldinni í
skil. Ef það ber ekki árangur kemur
Sparisjóðurinn gjöldunum í innheimtu
hjá lögmanni óski gjaldkeri félagsins
jress.
1
Fegurðardrottning
„Sparisjóðsins"
Sparisjóðurinn í Keflavík hefur undan-
farin tólf ár verið einn af aðal styrkt-
araðilum Fegurðarsamkeppni Suð-
urnesja. Harpa Lind Harðardóttir
hampaði kórónunni að þessu sinni en
svo skemmtilega vill til að systir henn-
ar. Brynja Björk var í sömu stöðu árið
1995. Fegurðardottning Suðurnesja
1997 hlaut 100 þús. kr. peninga-
verðlaun frá Sparisjóðnum.
Sparisjóðurinn
auglýsir á Strætó
Auglýsingar Sparisjóðsins á strætis-
vögnum hafa vakið athygli og er það
mál manna að þær setji skemmti-
legan svip á bæinn. En þeir eru
merktir í bak og fyrir með nokkrum
helstu þjónustuþáttum sent
Sparisjóðurinn býður viðskipta-
vinum sínum uppá.
Sparisjóðurinn í Keflavík fagnar merkum áfanga 7. nóventber
á þessu ári en þá verður stofnunin níutíu ára gömul.
Auk stórafmælisins eiga öll útibúin stórafmæli. Sparisjóðurinn
í Njarðvík \erður tuttugu ára 14. nóv.en það var fyrsta útibú
Sparisjóða á Islandi þegar það opnaði. Afgreiðslan í Garði varð
lunmtán ára 26. mars og Sparisjóöurinn í Grindavík fagnar tíu
ára afmæli 10. ágúst.
Níutíuára afmælinu verður minnst með ýmsum hætti en það
var 7. nóvember árið 1907 sem starfsemi Sparisjóðsins í
Keflavík hófst.
Knattspyrnudeild Keflavíkur og Spari-
sjóðurinn í Keflavík undirrituðu í síðustu viku
nýjan auglýsinga- og styrktarsamning.
Samningurinn er til tveggja ára en undanfarin
fjögur ár hefur Sparisjóðurinn verið aðal
styrktaraðili Keflvíkinga í knattspymu. Munu
allir flokkar bera auglýsingu frá Sparisjóðnum
á búningum sínum sem og utanyfirgallar
meistaraflokks. Þá mun Sparisjóðurinn koma
vfðar við í starfsemi deildarinnar með ýmsum
hætti. Geirmundur Kristinsson, Spari-
sjóðsstjóri og Jóhannes Ellertsson, fonnaður
Knattspyrnudeildar Keflavfkur undirrituðu
samninginn.
AUGLYSING
Víkurfréttir