Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.04.1997, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 17.04.1997, Blaðsíða 10
mig á þessu ári Sigurgeir Bergsson, 19 ára gamall, vard manni að bana á nýársnótt í Sandgerði. Hann situr nú í gæslu- varðhaldi í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg og á von á þungum dómi fyrir brot sitt. Sigurgeir er hins vegar ekki sáttur við fréttaflutning af því sem gerðist. Rétt skal vera rétt, segir hann og því segir hann sögu sína í einkaviðtali við Dag-Tímann. Hver er hann, hvað gerðist þessa nótt, hvað fylgdi á eftir? Hvað bíður 19 ára gamals manns sem verður sambýlismanni móður sinnar að bana? Víkurfréttir fengu góðfúslegt leyfi hjá Degi Tímanum til að birta viðtalið við Sigurgeir í heild sinni. „Allt mitt líf hefur einkennst af ístöðuleysi. Eg er búinn að flytja 49 sinnum, fékk mjög slæmt uppeldi og leið mikið vegna uppseldisaðstæðna þegar ég var 6-16 ára gamall. Ég var kúgaður bæði andlega og líkamlega og þurfti að sæta innilokun og barsmíðum. Fyrir vikið reyndi ég að slíta mig algjörlega frá umhveifinu, mér tókst ekki að eignast neina vini fyrr en fyrrum fósturfaðir minn og mamma skildum. Þegar mamma kynntist Sigurjóni breyttist allt. Hann vildi gera allt sem hann gæti til að bæta líf mitt, fór virki- lega vel með mömmu og var góður maður. Hann reddaði mér vinnu og gaf mér pening þótt þau væm blönk. Sjálfsmorðsh vöt Ég hafði aldrei treyst neinum fyrr. Hafði búið hjá ellefu öðrum fjölskyldum, bæði án foreldra og með og var mjög þunglyndur. Til að mynda reyndi ég ítrekað að stytta mér aldur og var sendur í sveit eftir að ég reyndi að kveikja í mér og brenndi í leiðinni skúr hjá Slippnunt í Keflavík. Reiðin beindist samt bara gegn sjálfum mér og ég lenti mjög sjaldan í átökum. Ég tjáði aldrei neinum tilfinn- ingar mínar, enginn vissi hvert líf mitt í raun var. Ég skamm- aðist mín mikið, lifði í ein- angrun og fékk oft ekkert að fara út eftir að ég kom úr skólanum. Þegar skólafélagar mínir spurðu hvort ég væri til í að koma á diskótek eða í opið hús, bjó ég alltaf til afsakanir, laug því að ég væri að fara í heimsókn eða eitthvað. Það breyttist allt þegar ég kynntist Sigurjóni. Hann talaði um alla hluti við mig á rólegum nótum en ég var lengi að treysta honum. Eg var hræddur um að hann væri að gera grín að mér. Hann og mamma gerðu samt allt til að breyta viðhorfinu hjá mér, ég var alveg hættur að treysta fullorðnu fólki. Kvöldið örlagaríka Gamlárskvöld. Ég er björgun- arsveitarmeðlimur í Gaiðinum og var að vinna ásamt félögum mínum við brennu. Þegar því lauk fór ég heim, settist heima með Sigga og mömmu. Við hlustuðum á tónlist og horfðum á áramóta- skaupið. Ég drakk ekki mikið. Klukkan 12 fórum við út og ég skaut upp nokkmm flug- eldum. Við skáluðum og ég faðmaði Sigga og mömmu og við óskuðum hvert öðru gleði- legs nýs árs. Þau báðu mig m.a. að standa mig á þessu ári. Eftir miðnætti bað ég um að fá að skreppa út með félögum mínum og þau leyfðu það. Það fannst mér mjög skrýtið því það var nýtt fyrir mér. Ég fór út til vina minna, var burtu í einn og hálfan tíma og kom svo heim um klukkan korter yfir tvö. Þá voru þau farin, ég náði mér í tvo bjóra og svo fórum við tjögur, þrír strákar og ein stelpa, á “Vitann” í Sandgerði en þar var fátt fólk. Við reyndum að finna partý en það gekk ekki og um hálf- þrjú fór ég heim, fékk mér að borða og sofnaði fyrir klukkan þrjú. Um hálfsex- leytið vaknaði ég við að mamma og Sigurjón komu heim. Ég fór í mjög þungt skap vegna ákveðinna A allt eins von á að sitja inni í 16 ár en það er sama hve langur sá tími verður. Eg mun nýta hann vel," segir Sigurgeir Bergsson, sem varð sambýlismanni móður sinnar að bana á nýársnótt. Ljósmynd: E. Ól. atburða og hugsana, fann þunglyndið blossa upp og afréð að stytta mér aldur. A þessum tíma var ég með byssusting í herberginu til skrauts sem hékk uppi á vegg og ég tók hann niður. „Hvad hafði ég gert? Ég og Sigurjón höfdum aldrei rifist og engan skugga borið á sam- skipti okkar" Með byssu- stinginn í hendinni Þá kom Sigurjón labb- andi inn í her- bergið, settist við hliðina á mér í rúminu, tók utan um mig og bað mig að konta fram að tala við sig. Ég sagði nei. Var hundleiður á lífinu og langaði ekkert til að halda þessu áfram. Hann vissi nákvæmlega hvað ég var að hugsa og bað mig ítrekað að koma fram, en ég neitaði alltaf. Þetta endaði með því að ég stóð upp, hækkaði röddina og skipaði honum að fara ffam. Hann neitaði og spurði: Hvað ætlarðu að gera ef ég fer ekki fram? Ætlarðu að stinga mig? Ég svaraði ekki, en hann lét strax fylgja á eftir: Stingdu mig þá. A því augnabliki stend ég í herberginu en hann situr í rúminu. Ég sleppi hendinni minni og rek hnífinn í hann. Hann horfir á mig með sak- leysissvip sem minnir mig á |regar dót er riftð af litlu bami. Hann hleypur út úr herberginu inn í eldhús og nær í viskastykki og fer síðan upp á efri hæð til mömmu. Ég hleyp inn í stofu og hringi á Neyðarlínuna. Ég er ofsalega hræddur en það eina sem ég get gert er að bíða eftir lög- reglunni. Ég hugleiði aftur sterklega að stytta mér aldur og er með hnífinn í hendinni þegar lögreglan kemur. Sigurjóni blæðir út og læst um sjöleytið, um hálftíma eftir að ég stakk hann. Grét og grét Hvað hafði ég gert? Ég og Sigurjón höfðum aldrei rifist og engan skugga borið á sam- skipti okkar. Hann gerði allt fyrir mig. Ég náði hins vegar ekki að átta mig í raun hvað gerst hafði fyrr en daginn eftir þegar presturinn kom til mín í fangaklefann í Keflavík. Þá fyrst losnaði ég úr móðunni sem hafði untlukið mig. Ég grét og grét og gat ekki sofið. Ég hafði ekki rænu á að biðja um svefnlyf og 10 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.