Víkurfréttir - 17.04.1997, Síða 10
mig á þessu ári
Sigurgeir Bergsson, 19 ára gamall, vard manni að
bana á nýársnótt í Sandgerði. Hann situr nú í gæslu-
varðhaldi í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg og á
von á þungum dómi fyrir brot sitt. Sigurgeir er hins
vegar ekki sáttur við fréttaflutning af því sem gerðist.
Rétt skal vera rétt, segir hann og því segir hann sögu
sína í einkaviðtali við Dag-Tímann. Hver er hann, hvað
gerðist þessa nótt, hvað fylgdi á eftir? Hvað bíður 19
ára gamals manns sem verður sambýlismanni móður
sinnar að bana?
Víkurfréttir fengu góðfúslegt leyfi hjá Degi Tímanum
til að birta viðtalið við Sigurgeir í heild sinni.
„Allt mitt líf hefur einkennst
af ístöðuleysi. Eg er búinn að
flytja 49 sinnum, fékk mjög
slæmt uppeldi og leið mikið
vegna uppseldisaðstæðna
þegar ég var 6-16 ára gamall.
Ég var kúgaður bæði andlega
og líkamlega og þurfti að sæta
innilokun og barsmíðum.
Fyrir vikið reyndi ég að slíta
mig algjörlega frá
umhveifinu, mér tókst ekki að
eignast neina vini fyrr en
fyrrum fósturfaðir minn og
mamma skildum.
Þegar mamma kynntist
Sigurjóni breyttist allt. Hann
vildi gera allt sem hann gæti
til að bæta líf mitt, fór virki-
lega vel með mömmu og var
góður maður. Hann reddaði
mér vinnu og gaf mér pening
þótt þau væm blönk.
Sjálfsmorðsh vöt
Ég hafði aldrei treyst neinum
fyrr. Hafði búið hjá ellefu
öðrum fjölskyldum, bæði án
foreldra og með og var mjög
þunglyndur. Til að mynda
reyndi ég ítrekað að stytta mér
aldur og var sendur í sveit
eftir að ég reyndi að kveikja í
mér og brenndi í leiðinni skúr
hjá Slippnunt í Keflavík.
Reiðin beindist samt bara
gegn sjálfum mér og ég lenti
mjög sjaldan í átökum. Ég
tjáði aldrei neinum tilfinn-
ingar mínar, enginn vissi hvert
líf mitt í raun var. Ég skamm-
aðist mín mikið, lifði í ein-
angrun og fékk oft
ekkert að fara út eftir að ég
kom úr skólanum. Þegar
skólafélagar mínir spurðu
hvort ég væri til í að koma á
diskótek eða í opið hús, bjó ég
alltaf til afsakanir, laug því að
ég væri að fara í heimsókn
eða eitthvað.
Það breyttist allt þegar ég
kynntist Sigurjóni. Hann
talaði um alla hluti við mig á
rólegum nótum en ég var
lengi að treysta honum. Eg
var hræddur um að hann væri
að gera grín að mér. Hann og
mamma gerðu samt allt til að
breyta viðhorfinu hjá mér, ég
var alveg hættur að treysta
fullorðnu fólki.
Kvöldið örlagaríka
Gamlárskvöld. Ég er björgun-
arsveitarmeðlimur í Gaiðinum
og var að vinna ásamt
félögum mínum við brennu.
Þegar því lauk fór ég heim,
settist heima með Sigga og
mömmu. Við hlustuðum á
tónlist og horfðum á áramóta-
skaupið. Ég drakk ekki mikið.
Klukkan 12 fórum við út og
ég skaut upp nokkmm flug-
eldum. Við skáluðum og ég
faðmaði Sigga og mömmu og
við óskuðum hvert öðru gleði-
legs nýs árs. Þau báðu mig
m.a. að standa mig á þessu ári.
Eftir miðnætti bað ég um að
fá að skreppa út með félögum
mínum og þau leyfðu það.
Það fannst mér mjög skrýtið
því það var nýtt fyrir mér. Ég
fór út til vina minna, var burtu
í einn og hálfan tíma og kom
svo heim um klukkan korter
yfir tvö. Þá voru þau farin, ég
náði mér í tvo bjóra og svo
fórum við tjögur, þrír strákar
og ein stelpa, á “Vitann” í
Sandgerði en
þar var fátt
fólk. Við
reyndum að
finna partý en
það gekk ekki
og um hálf-
þrjú fór ég
heim, fékk
mér að borða
og sofnaði
fyrir klukkan
þrjú.
Um hálfsex-
leytið vaknaði
ég við að mamma og Sigurjón
komu heim. Ég fór í mjög
þungt skap vegna ákveðinna
A allt eins von á að sitja inni í 16 ár en það er sama hve langur sá tími verður. Eg
mun nýta hann vel," segir Sigurgeir Bergsson, sem varð sambýlismanni móður
sinnar að bana á nýársnótt. Ljósmynd: E. Ól.
atburða og hugsana, fann
þunglyndið blossa upp og
afréð að stytta mér aldur. A
þessum tíma var ég með
byssusting í herberginu til
skrauts sem hékk uppi á vegg
og ég tók hann niður.
„Hvad hafði
ég gert? Ég og
Sigurjón höfdum
aldrei rifist og
engan skugga
borið á sam-
skipti okkar"
Með byssu-
stinginn í
hendinni
Þá kom
Sigurjón labb-
andi inn í her-
bergið, settist
við hliðina á
mér í rúminu,
tók utan um
mig og bað
mig að konta
fram að tala
við sig. Ég
sagði nei. Var hundleiður á
lífinu og langaði ekkert til að
halda þessu áfram. Hann vissi
nákvæmlega hvað ég var að
hugsa og bað mig ítrekað að
koma fram, en ég neitaði
alltaf. Þetta endaði með því að
ég stóð upp, hækkaði röddina
og skipaði honum að fara
ffam. Hann neitaði og spurði:
Hvað ætlarðu að gera ef ég fer
ekki fram? Ætlarðu að stinga
mig? Ég svaraði ekki, en hann
lét strax fylgja á eftir: Stingdu
mig þá.
A því augnabliki stend ég í
herberginu en hann situr í
rúminu. Ég sleppi hendinni
minni og rek hnífinn í hann.
Hann horfir á mig með sak-
leysissvip sem minnir mig á
|regar dót er riftð af litlu bami.
Hann hleypur út úr herberginu
inn í eldhús og nær í
viskastykki og fer síðan upp á
efri hæð til mömmu. Ég hleyp
inn í stofu og hringi á
Neyðarlínuna. Ég er ofsalega
hræddur en það eina sem ég
get gert er að bíða eftir lög-
reglunni. Ég hugleiði aftur
sterklega að stytta mér aldur
og er með hnífinn í hendinni
þegar lögreglan kemur.
Sigurjóni blæðir út og læst um
sjöleytið, um hálftíma eftir að
ég stakk hann.
Grét og grét
Hvað hafði ég gert? Ég og
Sigurjón höfðum aldrei rifist
og engan skugga borið á sam-
skipti okkar. Hann gerði allt
fyrir mig. Ég náði hins vegar
ekki að átta mig í raun hvað
gerst hafði fyrr en daginn eftir
þegar presturinn kom til mín í
fangaklefann í Keflavík. Þá
fyrst losnaði ég úr móðunni
sem hafði untlukið mig. Ég
grét og grét og gat ekki sofið.
Ég hafði ekki rænu á að biðja
um svefnlyf og
10
Víkurfréttir